Morgunblaðið - 01.03.1978, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978
21
Afstaða verkalýðsfélaga til
aðgerða ASÍ og BSRB
REYKJAVÍK
MBL. REYNDI í gær að ná tali af forvstumönnum sem
flestra félaga og sérgreinasambanda innan ASÍ og
spyrja þá um undirtektir við tveggja daga verkfall.
Svörin fara hér á eftir:
þykkt að grípa ekki til ólög-
legra aðgerða.
tAlknafjörður
Verkalýðsfélag Tálknafjarð-
ar hafði síðdegis I gær ekki
tekið neina afstöðu til tilmæla
ASl.__________________
BÍLDUDALUR
Félagsfundur Verkalýðsfé-
lagsins Varnar. Bíldudal. sam-
þykkti einróma að grípa ekki til
verkfallsaðgerða.
ÞINGEYRI
A félagsfundi Verkalýðsfé-
lagsins Brynju, Þingeyri, var
samþykkt með eins atkvæðis
meirihluta að fara ekki f verk-
fall._________________
FLATEYRI
Félagsfundur Verkalýðsfé-
lagsins Skjaldar á FÍateyri sam-
þykkti samhljóða að engin
vinnustöðvun yrði hjá félags-
mönnum._______
SUÐUREYRI
Félagsfundur Verkalýðsfé-
lagsins Súgandi á Suðureyri
samþykkti að ekki skyldi gripið
til vinnustöðvunar.
BOLUNGARVÍK
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur samþykkti ein-
róma að félagsmenn þess felldu
ekki niður vinnu.
ÍSAFJÖRÐUR
Á félagsfundí í Verkalýðsfé-
laginu Baldri. ísafirði, var sam-
þykkt með 18 atkvæðum gegn
15 að taka þátt i tveggja daga
vinnustöðvun. Sex sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna.
SÚÐAVÍK
Verkalýðs- og sjómannafélag
Alftfirðinga, Súðavík, sam-
þykkti að ekki skyldi koma til
vinnustöðvunar á Súðavfk.
DRANGSNES
„Hér höfum við ekkert með
neina samþykkt að gera,“ sagði
Jón Hörður Elíasson, formaður
Verkalýðsfélags Kaldrananes-
hrepps, Drangsnesi. „Vinna
hófst hér við frystihúsið 17.
janúar eftir langt stopp, þannig
að fólk er ekki fúst til þess að
grípa til vinnustöðvunar nú.“
Félagsfundur Verkakvenna-
félagsins Framsóknar sam-
þykkti einróma að verða við
tilmælum ASÍ um vinnustöðv-
un í dag og á morgun. Félagar i
Framsókn eru um 2600 talsins.
„Við siglum út i þetta undir
fullum seglum og hefur félagið
hoðað tveggja daga vinnustöðv-
un allra sinna félagsmanna."
sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson, varaformaður
Verkamannafélagsins Dags-
brúnar, en félagar Dagsbrúnar
eru um 4000.
HVALFJÖRÐUR
Jóhann Þórðarson, formaður
Verkalýðsfélagsins Harðar.
Hvalfirði. sagði enga samþykkt
hafa verið gerða varðandi til-
mæli ASÍ. Til félagssvæðis
Harðar heyrir m.a. helmingur
af framkvæmdunum við járn-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga. en félagssvæðið þar
skiptist milli Harðar og Verka-
lýðsfélags Akraness. Félagar
Harðar eru um 100 talsins.
AKRANES
Á skrifstofu Verkalýðsfélags
Akraness fengust þær upplýs-
ingar að félagsfundur hefði
samþykkt einróma að taka þátt
i tveggja daga vinnustöðvun, en
félagar eru á áttunda hundrað
talsins.
HELLISSANDUR
Gunnar Már Kristófersson.
formaður Verkalýðsfélagsins
Aftureldingar á Hellissandi.
sagði Mbl. að á félagsfundi i
fyrradag hefði verið einróma
samþykkt að verða við tilmæl-
um ASl um 2ja daga vinnu-
stöðvun.
ÓLAFSVÍK
Emanúel Ragnarsson. for-
maður Verkalýðsfélagsins Jök-
uls. sagði. að stjórn félagsins
hefði enga samþykkt gert
vegna tilmæla ASl. V'erzlunar-
og skrifstofumannadeild félags-
ins samþykkti að fara ekki í
verkfall.
GRUNDARFJÖRÐUR
Að sögn Sigurðar Lárussonar.
formanns Verkalýðsfélagsins
Stjörnunnar í Grundarfirði.
samþykkti félagsfundur ein-
róma að taka þátt í vinnustöðv-
un 1. og 2. marz.
STYKKISHÓLMUR
„Það hefur éngin samþykkt
verið gerð," sagði Einar Karls-
son. formaður Verkalýðsfélags
Stykkishólms. „En við vorum
með almennan umræðufund í
gærkvöldi og af máli manna þar
að dæma reikna ég með að
meirihluti félaga leggi niður
vinnu i tvo daga. eins og ASI
hefur beðið um."
BÚÐARDALUR
„Það liggur ekki fyrir nein
sérstök samþykkt félagsins
sjálfs." sagði Gisli Gunnlaugs-
son. formaður Verkalýðsfélags-
ins Vals í Búðardal. „En af al-
mennum umræðufundi að
dæma held ég að fólk sé al-
mennt jákvætt gagnvart tilmæl-
um ASl."
PATREKSFJÖRÐUR
Á félagsfundi Verkalýðsfé-
lags Patreksfjarðar var sam-
HÓLMAVÍK
Stjórn Verkalýðsfélags
Hólmavíkur hafði í gær enga
afstöðu tekið til tilmæla ASÍ.
HVAMMSTANGI
„Við höfum sagt upp kauplið
samninganna og höldum okkur
við það,“ sagði Sigurður Eiríks-
son, formaður Verkalýðsfélags-
ins Hvatar á Hvammstanga.
BLÖNDUÓS
Félagsfundur Verkalýðsfé-
lags Austur-Húnvetninga sam-
þykkti að ekki skyldi gripið til
neinna verkfallsaðgerða.
SAUÐÁRKRÓKUR
Hvorugt verkalýðsfélagið á
Sauðárkróki, Fram eða Aldan,
gerðu samþykkt vegna tilmæla
ASl og lögðu talsmenn beggja
félaga á það áherzlu i samtölum
við Mbl. að það væri algjörlega
í valdi félagsmanna sjálfra,
hvernig þeir brygðust við til-
mælunum.
SIGLUFJÖRÐUR
„Eg reikna með langleiðina i
100% þátttöku i tveggja daga
vinnustöðvun," sagði Kolbeinn
Friðbjarnarson, formaður
Verkalýðsfélagsins Vöku í
Siglufirði. „Við héldum félags-
fund sem samþykkti einróma
að verða viö tilmælum ASÍ og
af fundum á vinnustöðum í dag,
sem ég hef frétt um, hefur þátt-
taka alls staðar verið samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða. Ég held að ein kona í
hvoru frystihúsinu hafi lýst sig
andsnúna vinnustöðvuninni."
ÓLAFSFJÖRÐUR
DALVÍK
AKUREYRI
„Við hvetjum okkar fólk til
að verða við tilmælum ASÍ og
ég á ekki von á öðru en að
vinnustöðvun verði nokkuð al-
geng á öllu félagssvæðinu,“
sagði Jón Helgason, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri.______________
HÚSAVÍK
„Ég held að það sé reiknað
með talsverðri þátttöku verka-
fólks i tveggja daga vinnustöðv-
un hér,“ sagði fréttaritari Mbl.
á Húsavík.
KÓPASKER
„Stjórnin samþykkti einróma
að félagsmenn skyldu ekki taka
þátt í heinu verkfalli nú,“ sagði
Sigurður Óskarsson, formaður
Verkalýósfélags Presthóla-
hrepps, Kópaskeri.
BAKKAFJÖRÐUR
„Við höfum samþykkt að eng-
in vinnustöðvun verði hér,"
sagði Jón H. Marinósson, for-
maður Verkalýðsfélags
Skeggjastaðahrepps. „Hér er
litil sem engin atvinna núna
svo við getum ekki verið meó
slíkar aðgerðir.“
BORGARFJÖRÐUR
EYSTRI
„Við höfum ekki samþykkt
neitt," sagði Halldór Eiðsson,
formaður Verkalýðsfélags
Borgarfjarðar, Borgarfirði
eystri. „Það er mjög takmörkuð
atvinna hér núna. Við klárum í
frystihúsinu í kvöld og þá verð-
ur ekki meira hráefni til
vinnslu og þessir fáu menn,
sem eru að vinna í höfninni,
munu vinna áfram."
REYÐARFJÖRÐUR
„Við höfum enga afstöðu tek-
ið til tilmæla ASI,“ sagði Bóas
Hallgrímsson. formaður Verka-
lýðsfélags Reyðarfjarðar-
hrepps, „og ég reikna ekki með
almennri þátttöku I vinnustöðv-
un.“ _____________
NESKAUPSTAÐUR
„Eg reikna með rnjög al-
mennri þátttöku í vinnustöðv-
unum hér í Neskaupstað," sagði
Sigfinnur Karlsson, formaður
Verkalýðsfélags Norðfirðinga,
er Mbl. ræddi við hann á mánu-
dag. „Við höfum hvatl okkar
félagsmenn til að verða við til-
mælum ASÍ.“
fAskrúðsfjörður
„Almennur félagsfundur
hvatti mjög til þátttöku í vinnu-
stöðvunum og ég held að fólk
verði almennt við þeirri hvatn-
ingu,“ sagði Ingólfur Arnarson,
formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Fáskrúðsfjarðar.
VÍK I MÝRDAL
„Við höfum samþykkt að
vera ekki með neinar aðgerðir á
morgun eða á fimmtudaginn,"
sagði Birgir Hinriksson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vík-
ings í Vik í Mýrdal.
VESTMANNAEYJAR
„Ég held að menn reikni með
mjög almennri þátttöku félaga
verkalýðsfélaganna í vinnu-
stöðvun þessa tvo daga," sagði
fréttaritari Mbl. í Vestmanna-
eyjum.__________________
EYRARBAKKI
„Við ætlum að sitja hjá og
fara að lögum. Það er einróma
samþykkt stjórnar félagsins,"
sagði Kjartan Guðjónsson, for-
maður Verkamannafélagsins
Bárunnar á Eyrarbakka.
SELFOSS
„Ég reikna með mjög þokka-
legri þátttöku fólks í tveggja
daga vinnustöðvun," sagði
Hjörtur Hjartarson, formaður
Verkalýðsfélagsins Þórs á Sel-
fossi. „Það liggur fyrir sam-
þykkt um að við fylgjum ASÍ að
málum og við höfum rætt við
fólk á velflestúm vinnustöðum
um það það verði við tilmælum
ASÍ“____________________
ÞORLÁKSHÖFN
„Það er ákveðið að fella niður
vinnu á morgun, en ekkert
ákveðið með 2. marz," sagði
fréttaritari Mbl. í Þorlákshöfn.
HAFNARFJÖRÐUR
Forystumenn verkalýðsfélag-
anna í Hafnarfirði kváðust
reikna með almennri þátttöku i
tveggja daga verkfallinu. Fé-
lagsfundur Verkakvennafélags-
ins Framtiðarinnar samþykkti
einróma að verða við tilmælum
ASÍ og á félagsfundi Verka-
mannafélagsins Hlífar var sam-
þykkt hvatning til félagsmanna
um að vera með í verkfallinu.
MÁLM- OG SKIPA-
SMIÐASAMBAND
ÍSLANDS
Guðjón Jónsson, formaður
Málm- og skipasmiðasambands
islands, tjáði Mbl. að honum
væri ekki kunnugt um neitt að-
ildarfélag sambandsins sem
ákveðið hefði að taka ekki þátt í
þeim aðgerðum sem formanna-
raðslefna ASÍ hefði hvatt til. I
spjalli Mbl. við Jökul Jóseps-
son, formann Félags járniðnað-
armanna á isafirði, kom þó
fram, að það félag ákvað á fé-
lagsfundi að taka ekki þátt í
aðgerðunum. Félag málmiðnað-
armanna i Norður-Múlasýslu
ákvað að gera enga samþykkt
úm afsiöðu til aðgerðanna, en
Arni Jón Sigurðsson, formaður
félagsins, tjáði Mbl. þó að fé-
lagsmenn hefðu á félagsfundi
verið hvattir til að sýna sam-
stöðu með ASÍ.
i Málm- og skipasmiðasam-
bandi Íslands hafa eftirtalin fé-
lög ákveðið að taka þátt í að-
gerðum ASÍ, að því er Guðjón
Jónsson tjáði Mbl.: Félag bif-
vélavirkja, Félag btikksmiða,
Félag járniðnaðarmanna.
Sveinafélag skipasmiða, Iðn-
sveinafélag Suðurnesja.
Sveinafélag málmiðnaðar-
manna á AkVanesi. Iðnsveinafé-
lag Mýrasýslu, Sveinafélag
járniðnaðarmanna á Akureyri.
Sveinafélag járniðnaðarmanna.
Húsavík og S.-Þing., Málm- og
skipasmiðafélag Neskaupstaö-
ar, Iðnsveinafélag Fljótsdals-
héraðs, Sveinafélag járniðnað-
armanna, Vestmannaeyjum, og
Járniðnaóarmanna Arnessýslu.
Iðnsveinafélag Stykkishólms
ákvað að gera enga samþykkt
um aðgerðir 1. og 2. marz, en
ákvað að þess í stað skyldu
fundir á vinnustöðum kveða á
um aðgerðir. Samþykktu með-
limir félagsins hjá Skipavik að
leggja niður vinnu 1. og 2.
marz. Iðnsveinafélag Skaga-
fjarðar ákvað að fara sömu leið
og þeir í Stykkishólmi, en ekki
reyndist unnt að afla upplýs-
inga af niðurstöðum vinnu-
staðafunda þar.
LANDSSAMBAND
ÍSLENZKRA
VERZLUNARMANNA
Björn Þórhallsson, formaður
sambandsins, sagðist einungis
vita til tveggja félaga innan
sambandsins sem gert hefðu
samþykkt að taka þátt í þeim
aðgerðum, sem ASl hefði boðað
1. og 2. marz. Sagði Björn að.
Verzlunarmannafélag Borgar-
ness hefði samþykkt að taka
þátt í aðgerðunum. Það hefur
almennur félagsfundur i Verzl-
unarmannafélagi Siglufjarðar
ákveðið að óska eftir því að fólk
legði niður vinnu i Siglufirði 1.
og 2. marz. Skv. upplýsingum
sem Mbl. aflaði sér í Siglufirði
eru hins vegar litlar líkur á að
verzlunarfólk þar leggi niður
vinnu i einhverjum mæli. Hef-
ur starfsfólk Kaupfélagsins t.d.
ákveðið að mæta til vinnu.
RAFIÐNAÐAR-
SAMBAND ÍSLANDS
Magnús Geirsson, formaður
sambandsins, tjáði Mbl. í gær
að öll aðiidarfélög sambands-
ins, utan Félag islenzkra skrif-
vélavirkja, hefðu lýst stuðningi
við aðgerðir ASl og hvatt sina
félaga til að leggja niður vinnu.
Sagði Magnús að sum félögin
hefðu þó ákveðið að láta félags-
mönnum sinum það sjálfum
eftir að ákveða hvort þeir legðu
niður vinnu eða ekki. í Rafiðn-
aðarsambandinu éru: Félag ís-
lenzkra rafvirkja, Félag ís-
lenzkra línumanna, Sveinafé-
lag útvarpsvirkja, Rafiðnaðar-
mannafélag Suðurnesja, Raf-
virkjafélag Akureyrar,- Félag
rafiðnaðarmanna, Suðurlandi,
og Félag rafiðnaðarmanna í
Vestmannaeyjum auk Félags
islenzkra skrifvélavirkja.
SAMBAND
BYGGINGARMANNA
Jón Snorri Þorleifsson tjáði
Mbl. í gær að eftirtalin félög
sambandsins hefðu boðað til
verkfalla 1. og 2. og rnarz i
framhaldi af samþykktum
stjórna- og trúnaðarmannaráðs-
funda og félagsfunda: Málara-
félag Reykjavíkur, Sveinafélag
húsgagnabólstrara, Sveinafélag
húsgagnasmiða, Trésmiðafélag
Reykjavíkur. Félag byggingar-
iðnaðarmanna. Hafnarfirði.
Iðnsveinafélag Suðurnesja.
Ið n s v e i n a f é 1 ag M ý r a sý s 1 u.
Byggingamannafélagið Arvak-
ur, Húsavik. Iðnsveinafélag
Fljótsdalshéraðs, deild í verka-
lýðsfélaginu Jökli á Höfn og
Félag byggingariðnaðarmanna
í Vestmannaey jum.
Fél.ag
by ggi n gar i ð n að a r-
manna í Árnessýslu ákvað að
gera ekki samþykkt um aðgerð-
ir 1. og 2. marz
Þau félög í Sambandi bygg-
ingarmanna sent ákváðu að láta
fundi á vinnustöðunum ákveða
aðgerðir voru Iðnsveinafélag
Stykkishólms og Iðnsveinafélag
Skagafjarðar. Samþykkt var á
fundum í Trésmiðjunni Ösp og
Trésmiðju Stykkishólms að
leggja ekki niður vinnu 1. og 2.
marz. en ekki tókst að afla upp-
lýsinga uni hiðurstöður i Skaga-
firði. Trésmiðafélag Akraness
ákvað aó boða ekki til verkfalls.
en stjórnin hvatti félagsmenn
til að leggja niður vinnu 1. og 2.
marz. samkvæmt upplýsingum
Ólafs Backmanns, formanns fé-