Morgunblaðið - 01.03.1978, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1978
— Afstaða
Framhald af bls. 21
lagsins. Sömu afstöðu tók Tré-
smiðafélag Akureyrar.
EINSTÖK FÉLÖG
INNAN ASÍ
Einungis tókst að afla upplýs-
inga um nokkur þessara félaga.
ASB, félag afgreiðslustúlkna í
brauð- og mjólkursölubúðum,
ákvað að boða til verkfalla
starfsfólks síns 1. og 2. marz í
framhaldi af samþykkt stjórnar
félagsins. Sagði Hallveig Ein-
arsdóttir formaður félagsins að
hver og einn félagi yrði þó að
gera sjálfur upp við sig hvort
hann legði niður vinnu eða
ekki.
Bakarasveinafélag íslands
ákvað að taka ekki neina af-
stöðu til boðaðra aðgerða ASl 1.
og 2. marz, en félagið hefur sagt
upp launalið kjarasamninga.
Félag íslenzkra kjötiðnaðar-
manna samþykkti að taka ekki
neina afstöðu til aðgerða 1. og
2. marz. ,,Við töldum ekki rétt
að gera það,“ sagði Gísli Arna-
son, formaður félagsins, i
spjalli við Mbl.
IÐJA í REYKJAVÍK
OG A AKUREYRI
Eins og fram hefur komið í
Mbl. samþykkti trúnaðar-
mannaráð Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík, að
beina þeirri ósk til félags-
manna að þeir verði allir sem
einn við tilmælum ASÍ um að
leggja niður vinnu dagana 1. og
2. marz.
Iðja félag verksmiðjufólks á
Akureyri hefur sent sínum fé-
lögum samsvarandi hvatningar.
— Glistrup
Framhald af bls. 1.
stjórnmálaflokks landsins, sem
hafði afnám tekjuskatts að mark-
miði, var ákærður fyrir að draga
fé til sfn og skjólstæðinga sinna á
ólöglegan hátt.
Þrátt fyrir það verður ekki ann-
að sagt en að Glistrup hafi sloppið
fremur vel. Hann var hreinsaður
af ákæru um stórkostleg skatt-
svik, fékk 250.000 kr. danskar í
sekt og honum þyrmt við kröfu
ákæranda um þungan fangelsis-
dóm. Vandamál Glistrups var
hins vegar það að ef hann vísaði
málinu ekki fyrir hæstarétt átti
hann á hættu að sæta brottrekstri
af danska þínginu á forsendum
borgardómsins. Var það af þess-
um ástæðum að Glistrup reyndi af
öllum kröftum að fá þingið til að
skera úr um hvort honum yrði
úthýst áður en frestur sá, er
Glipstrup hafði til að vísa máli
sínu til hæstaréttar rynni út á
föstudag. Það var hins vegar
ríkissaksóknarinn, sem tók af
skarið og gerði þannig þinginu
kleift að fresta ákvörðun í málinu
þar til úrskurður hæstaréttar
ljggur fyrir.
— Vestfirðir
Framhald af bls. 40
annast, virðist ljóst að hljóðvarp
verður í gangi með eðlilegum
hætti. Einnig verður Gufunes-
radíó í gangi, svo að líkur benda
til þess að utanalandsflug verði
með eðlilégum hætti. Óljóst var i
gærkveldi, hvort starfsmenn á
fjarritum í flugstjórn myndu
koma til vinnu, en það er persónu-
leg ákvörðun hvers og eips, hvort
hann mætír til vinnu klukkan
07.30 í dag. Hins vegar v^r búizt
við því að innanlandsflug félli
niður, þar sem verkamenn koma
þar við sögu.
Búizt er viö að strætisvágnar
gangi með eðlilegutn hætti, þar
„sem .Slaffst.tannafélag Revkja-
víkurborgar . r hvatt félágs-
menn sína tii bess að leggja ekki
niður vinnu, e'Atur og simi starfi
eðlilega og * .- uahennili Reykja-
. víkurborga ; ',i i i”st optn. en
12 af 35 heiti ,n <u; u uevistunar--
stofnum lok
Haraldur jiusson fram-
kvæmdast.iik ‘. . idlags starfs-
manna ríki i>æja bjóst við að
meirihluti k ra tnyndi léggja
niður vinnu Kvaðst hann hafa
heimildir um að 80 til 90% kenn-
ara á Stór-Reykjavíkursvæðinu
myndu leggja niður vinnu.
Engin afstaða starfsmanna
sjónvarpsins var kunn f gær-
kveldi. Klukkan 09 í morgun var
boðaður félagsfundur í Starfs-
mannafélagi sjónvarpsins og átti
þar að fjalla um samræmdar að-
gerðir félagsmanna. Samkvæmt
því sém Morgunblaðið komst næst
var vart búist við því að starfs-
menn felldu niður vinnu í tvo
daga, en búizt var við eitthvað
harðari afstöðu en hljóðvarpsfólk-
ið tók. Þó er ljóst, að þar sem
síðari verkfallsdagurinn er
fimmtudagur getur ekki komið til
þess að sjónvarpsútsending falli
niður nema í einn dag, þ.e.a.s. í
kvöld, ef starfsmenn taka þá
ákvörðun.
Yfirleitt hafa einstök félög
opinberra starfsmanna bæði inn-
an BHM og BSRB ekki tjáð sig um
þessar verkfallsaðgerðir. Hafi
þau gert það, telst það til undan-
tekninga. Það virðist því vera sett
einstaklingnum í vald, hvort hann
á eigin ábyrgð ákveður að leggja
niður vinnu eða ekki.
— Platrán
Framhald af bls. 1.
umsvifamiklu máli og telja að
þar komi margar milljónir
dollara við sögu. í beinum
tengslum við mál þetta réðust
þau á föstudag inn í skrifstofu
starfsmanns tryggingafyrir-
tækis í Mílanó, sem þau gruna
um að hafa verið milliliður
milli iðjuhöldanna og erlendu
tryggingarfyrirtækjanna.
— Verðbréfahrun
Framhald af bls. 1.
bankastjóra og bað hann að svara
því hver áhrif þetta hrap dollar-
ans hefði á stöðu íslenzka gjald-
miðilsins. Jónas sagði að fall doll-
arans hefði að sjálfsgöðu áhrif á
okkur. þvi þeim mun lægri sem
dollarínn væri því óhagstæðara
væri það fyrir okkar viðskipta-
kjör. Hann sagði hins vegar að
það væri matsatriði hvort hér
væri um varanlegt eða timabund-
ið áfall fyrir dollarann að ræða.
Kvaðst hann sjálfur vera þeirrar
skoðunar að dollarinn myndi
rétta við og hefjast upp úr öldu-
dalnum.
— Reynt að
sameina . . .
Framhald af bls. 1.
voru mikil vonbrigði fyrir forsæt-
isráðherra landsins, Moraji Desai,
og Janataflokk hans. Leiðtogi
hins opinbera Kongressflokks,
K.B.Reddi, sagði þegar í stað af
sér og lýsti ábyrgðinni á ósigrin-
um á hendur sér.
Indiru-armur Kongressflokks-
ins vann þægilegan meirihluta í
Karnataka og Andhra Pradesh.
Janataflokkurinn náði hins vegar
meirihluta í Maharashtra, en i þvi
fylki er stærsta borg Indlands,
Bombay. Hann náði einnig meiri-
hluta i Assam og Arunachal Pra-
desh á Austur-Indlandi. Gamli
Kongressfloltkurinn reið ekki
feitum hesti frá yiðureigninni og
náöi aðeins meirihluta atkvæða i
Meghalaya, sem lítið kveður að.
— Kafbátalið
Framhald af bls. 1.
þessum slóðum. En í tilkynn-
ingu þeirra sagði hins vegar, að
þar eð önnur ríki við Eystrasalt
hefðu þegar komið sér upp
kjarnorkuvopnum væri ekki
ástæða til að ætla að slíkir kaf-
bátar röskuðu hernaðarlegu
valdajafnvægi á Norðurhöfum.
— Niceragua
Framhald af bls. 1.
að nokkrir hermenn landsins
hefðu gengið í lið með andstæð-
ingum forsetans, og sagði þær
uppspuna frá rótum.
Mestar urðu óéirðirnar í borg-
unum Masaya og Diriamba, og var
útgöngubann þar í fyrrinótt. Tal-
sambandslaust var við borgirnar,
og einu fréttirnar þaðan bárust
með flótt afólki þaðan. Hermdu
þær fréttir að átök stæðu enn yfir
á milli þjóðvarðliða og óeirðar-
manna. Átökin eiga að hafa hafist
skömmu eftir hádegi á sunnudag,
og höfðu 9 fallið og um 40 særst.
Dagblaðið la Prensa, sem er
málgagn stjórnarandstöðunnar,
lýsti átökunum í Masaya, sem
byltingu, og þjóðvarðliðar sögðu í
dag, að þeir gætu ekki ábyrgst
öryggi blaðamanna, sem þangað
færu.
Rafmagnslaust var í höfuðborg-
inni Mangua á mánudagskvöld, og
jók það enn á spennuna sem þar
ríkir, en þar kom til átaka við tvo
háskóla.
Óeirðirnar sem nú hafa blossað
upp eiga rætur sínar að rekja til
morðsins á Foe Pedro Joaquin
Chamorro, sem myrtur var hinn
10. janúar síðastliðinn. I kjölfar
morðsins urðu miklar óeirðir um
landið, og verkföll voru þar næstu
17 daga.
— Aðgerðaleysi
Framhald af bls. 40
samtökin um aðgerðir sinar. Er
það rétt?
— Þa fóru fram ýmsar um-
ræður við fulltrúa frá laun-
þegasamtökunum sagði Geir
Hallgrimsson, þótt þær hafi
ekki allar verið auglýstar i fjöl-
miðlum. Að lokum fóru fram
formlegar viðræður, þar sem sú
skoðun ríkisstjórnarinnar var
kynnt, að fullnægjandi efna-
hagsráðstafanir yrðu ekki gerð-
ar nema verðbótaákvæði um
kjarasamninga yrði breytt.
Þessu höfnuðu fulltrúar verka-
lýðsfélaganna algerlega og
vildu ekki ræða málið á þeim
grundvelli. Ríkisstjórnin hlaut
því að taka ákvarðanir sjálf og
leitaðist við i þeim efnum, að
aðgerðir yrðu sem mildastar
gagnvart launþegum eins og sjá
má af þvt, að kaupmáttur launa
helzt i desember n.k. eins og
hann var i febrúarmánuði.
Á síðustu stigum málsins var
þó unnt að draga ályktanir af
viðræðum við fulltrúa launþega
og viðbrögðum þeirra, ályktan-
ir, sem leiddu til breytinga á
upprunalegum tillögum rikis-
stjórnarinnar og verður því
ekki sagt, að ekkert Jillit hafi
verið tekið til viðhorfa þeirra.
— Því hefur einnig verið
haldið fram, að rikisstjórnin
hafi að lokum lagt fram aðrar
tillögur en hún hafi kynnt fyrir
verkalýðshreyfingunni.
— Það er ekki rétt. Ríkis-
stjórnin tjáði verkalýðsforyst-
unni hvaða tillögur hún myndi
leggja fyrir þingið, en að teknu
tilliti til sjónarmiða fulltrúa
launþega voru tillögur ríkis-
stjórnarinnar byggðar á þeirri
málamiðlun, sem flestir verð-
bólgunefndarmenn aðhylltust
og búið var að ræða innan verð-
bólgunefndar og utan, þar sem
fulltrúar launþega og stjórnar-
andstæðinga áttu sæti.
Hins vegar var sú leið, sem
fulltrúar stjórnarandstæðinga,
BSRB og ASl í verðbólgunefnd
lögðu til, víðsfjarri þvi að
byggjast á nokkrum möguleg-
um valkostum, sem gerð var
grein fyrir í verðbólgunefndar-
áliti.
I tilefni af því, að fulltrúar
launþega buðu ríkisstjórninni
viðræður á grundvelli þessarar
málamiðlunarleiðar, var fund-
ur haldinn með þeim og því
lýst, að ríkisstjórnin teldi það
ekki lausn vandans að leggja
skatta á þann atvinnurekstur,
sem átti að bjarga, eða stofna
fjárhag ríkissjóðs í voða með
auknum útgjöldum og óraun-
hæfri tekjuöflun, sem átti að
felast í betri innheimtu skátta
frá því, sem reynslan hefur
sýnt að mögulegt er. Slíkt hefði
kynnt undir verðbólguna.
— Telur forsætisráðherra,
að framundan séu hörð átök
milii ríkisvalds og verkalýðs-
hreyfingar eða má búast við,
þrátt fyrir þessar aðgerðir nú,
að vinsamlegt samstarf haldist
áfram eins og verið hefur um
nokkurt árabil milli rikis-
stjórna, sem Sjálfstæöisflokk-
urinn hefur átt aðild aö, og
verkalýðssamtakanna?
— Ég treysti því, segir Geir
Hallgrímsson, að við' rólega
yfirvegun sahnfærist jafnt for-
ystumenn launþega sem laun-
þegar almennt og landsmenn
allir um nauðsyn þess aö snúa
bökum saman til að leysa að-
steðjandi vanda og láta athafn-
ir fylgja í orðum í baráttu gegn
verðbólgunni til þess að halda
fullri atvinnu. Ég hef ekki síð-
ur trú á dómgreind íslendinga
en annarra Norðurlandaþjóða,
sem eiga við sinn efnahags-
vanda að stríða, ef til vill öllu
alvarlegri en við tslendingar í
sumum tilvikum. Ég geri mér
fastlega vonir um, að umræður
og athafnir í efnahagsmálum
geti ekki síður farið fram á
raunhæfum grundvelli hér en
Þar- , , ,
— 10 frystihús
Framhald af bls. 40
sé að þeir aðilar er staðið hafa
undir taprekstri fyrirtækjanna
undanfarin misseri, t.d. bankar,
bæjarsjóðir, bæjarfógetaembætti
fyrir hönd ríkisins og ýmis þjón-
ustufyrirtæki, er safnað hafa inn-
eign hjá okkur, fái úrlausn mála.
Skuldahalinn hefur orðið erfiðari
og erfiðari, þar sem þessir aðilar
hafa farið fram á dráttarvexti af
inneigninni, 3% á mánuði eða
36% á ári sem auðvitað hefur
orðið til þess að inneignin vex
sifellt. Það hefur verið staðfest af
Þjóðhagsstofnun að reksturinn
hér á Suðurnesjum er undir núlli
og ekki er minnsta von til þess
miðað við aðstæður nú að við
munum geta minnkað þennan
skuldahala. Eina leiðin sem við
sjáum út úr þessu er hreinlega að
skuldahalinn verði klipptur af. I
öðru lagi væntum við þess að
fundnar verði leiðir til að þessi
rekstur geti í framtiðinni staðið
undir sér og höfum lagt áherzlu á
að 500 milljónirnar og siðan 350
milljónirnar úr gengismunar-
sjóðnum nægi ekki til að leysa
vandamálið heldur verði þarna að
koma meira til.
— Afkoma
Landsbankans
Framhald af bls. 2
um auknum framlögum til
eftirlaunasjóðs. Að þessu loknu
nam nettóhagnaður að frátöld-
um vöxtum af eigin fé 265
milljónum króna samanborið
við 220 milljónir króna árið áð-
ur. Eigið fé bankans jókst um
632 milljónir króna á árinu, en
sú aukning svarar til nettó-
hagnaðar og þeirra vaxta, sem
reiknaðir eru af eigin fé. Var
aukning nokkru meiri en á ár-
inu 1976, en þá nam hún 499
milljónum króna.
Eigið fé bankans nam í árslok
2875 milljörðum króna. Þrátt
fyrir verulera aukningu i
krónutölu hefur eigið fé bank-
ans farið rýrnandi á undanförn-
um árum, þegar tillit er ekið til
hækkunar verðlags. Hefur það
þannig hækkað verulega í
samanburði við innlán bank-
ans. Það er hvarvetna talið
mikilvægt, að eigið fé banka sé
í hæfilegu samræmi við þær
skuldbindingar, sem bankinn
hefur tekið á sig gagnvart
sparifjáreigendum og erlend-
um lánveitendum. Skiptir því
miklu máli, að eigið fé Lands-
bankans aukist á næstu árum
til jafns við vöxt innlána og
fjárhagur hans geti þar með
haldist jafn traustur sem fyrr.
Að lokum segir í frétt Lands-
bankans, að á árinu 1978 muni
verða að því stefnt í samræmi
við samkomulag bankanna við
Seðlabankann, að útlán Lands-
bankans aukist ekki um meir
en rúmlega 30%, að frátöldum
endurseldum lánum. Á fyrstu
fjórum mánuðum ársins á
aukningin ekki að fara yfir
10%. Jafnframt þessu un bank-
inn stefna að því að lausafjár-
staða hans haldi áfram að
batna. Nauðsynlegt 'er, að
vaxtaaukaútlan aukist meira en
önnur útlán, svo að unnt reyn-
ist að standa undir vaxtabyrði
af vaxtaaukainnlánum og varð-
veita eignafjárstoðu bankans.
— Minning
Sigbjörn
Fratnhald af bls. 30
hvarflar hugurinn til skólaár-
anna, sem við áttum þar saman og
þoldum súrt ög saitt, blítt og
strítt, eins og gengur. Hver og
einn á sitt rúm í minningunni,
þótt ’á ýmsan máta sé.
Sigbjörn var morgum góðum
kostutn búinn og varð eftirminni-
legur félagi og traustur vinur.
Hann var óvílinn, jafnlyndur og
ætið glaður. Skipti engu máli þótt
ekki gengi allt svo sem best varð á
kosið. Honum var léður sá eigin-
leiki að sjá fram úr stundarerfið-
■leikum og láta þá fara hjá án þess
að sýta eða berja sér. Uppgjöf og
undansláttur voru honum fjarlæg
hugtök og smámuni eða stundar-
mótbyr lét hann ekki svipta sig
sálarró.
Á gleðistundum var Sigbjörn
hrókur alls fagnaðar, söngvinn og
síkátur og kunni flestum betur að
gleðjast með glöðum.
Hvort sem við minnumst okkar
ágæta bekkjarbróður við starf eða
leik, verða okkur trúlega
ógleymanlegastir tveir eðlisþætt-
ir hans, sem áttu hvað sterkasta
samhljóma- í sál hans, en þeir
voru góðvild og greiðasemi. Lagði
hann öllum gott til, eygði hið já-
kvæða en leit framhjá hinu, ef
eitthvað var og greiðasemin var
slík, að hann vildi jafnan ganga
feti lengra en fullunnið væri. Efa-
laust hafa þessir eðlisþættir fært
Sigbirni ríkulega uppskeru i
starfi.
Fyrir tæpu ári kenndi Sigbjörn
sjúkdóms, sem nú hefur orðið
honum að aldurtila. I baráttu við
þennan sjúkdóm komu skýrt fram
þeir eðlisþættir sem áður er á
minnst og honum voru svo eigin-
legir. Hann vildi strax vita, hvað
að sér gengi og að þeim svörum
fengnum má líklega segja, að
hann skipulegði baráttuna að svo
miklu leyti sem honum var mögu-
legt. I þeirri baráttu skyldi ekki
slegið undan meðan stætt væri.
Svo fjarlæg var uppgjöfin til hins
síðasta, að vinur og félagi, sem
spjallaði við hann fyrir tveimur
mánuðum og ráðlagði honum að
taka sér hvíld frá störfum, fékk
einungis þetta svar. „Hverju er ég
bættari að liggja í rúminu og
horfa upp í loftið?“
Við viðurkennum að þessi af-
staða hafi verið hárrétt, en þrekið
og æðruleysið, sem speglast í
svarinu var með fádæmum.
Ekki var nokkur vafi á að Sig-
björn vissi fullvel, að hverju gat
stefnt, þrátt fyrir það átti hann
von fram á síðustu stund. Hann
féll óbugaður fyrir ofureflinu en
án þess að hafa slégið undan.
Að leiðarlokum kveðjum við
Sigbjörn og þökkum honum fyrir
samveruna.
Eiginkonu, börnum, aldraðri
móður og öðrum ættingjum flytj-
um við innilegar samúðarkveðjur.
— Sinfónían
Framhald af bls. 2
læra að fiðlu sex ára gamall og
varð atvinnufiðluleikari að-
eins 14 ára gamall. Hann vann
keppnina sem kennd er við
Paganini árið 1956 en siðan
1959, eftir að hafa unnið
Thibauld-keppnina, hefur
hann verið einn -af eftlrsótt-
ustu fiðluleikurum sem nú eru
uppi. Þegar Pauk kemur hing-
að, er hann að koma úr tón-
leikaferð frá Suður-Afríku.
— Prófkjör
Framhald af bls. 2
fram daglega f Valhöll og í
þeirri kosningu geta allir þeir
þátt tekið, sem eiga von á því að
verða fjarverandi aðalpróf-
kjörsdagana. Á laugardag og
sunnudag verða opnir sjö kjör-
staðir víðs vegar um borgina og
eiga þátttakendur að sækja
kjörstaði i þvi hverfi, sem við-
komandi voru skráðir búsettir
1. desember 1977, en á mánu-
dag verður eins og áður sagði
einungis kosið í Valhöll við
Háaleitisbraut.
— Er þetta ekki
svara vert?
Framhald af bls. 15
aurahækkun til Dagsbrúnar-
verkamannsins.
Ef við erum sameiginlega að
berjaát við verðbólgudraug, þá
skulum við gera það sameiginlega
og með augljósum og skýrum
dæmum og láta þá leiðrétta okkur
í því er við höfum misskilið.
Fyrstur skal ég verða til þess að
halda á loft þeim ótvíræðu rökum,
sem réttlæta þessa misskiptingu,
en um leið hefja skelegga baráttu
með þeim, er þarna hafa verið
hlunnfarnir.
Reykjavík, 26. febr. 1977.
• Sigfús J. Johnsen.