Morgunblaðið - 23.03.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
67
samdi fuglabók þá er Almenna
bókafélagið gaf út í þýðingu dr.
Finns Guðmundssonar. Nefna má
Tenzing, fjallgöngumanninn, sem
fór fyrstur á Mt. Everest með
Hillary, mannfræðinginn og
myndatökumanninn Lewis Cotlow
og dr. George Benjamin, sem er
frægur neðansjávarmyndatöku-
maður. Þarna voru ýmsir fleiri
þekktir vísindamenn og náttúru-
skoðarar og voru konur margra
þessara manna með í förinni. En
alls munu hafa verið í förinni
40—50 manns, auk áhafnarinnar á
skipinu.
— Þegar til Eldlands kom, lá
fyrir að fara yfir Suðurskautshaf-
ið, um 1000 km leið, sem er svipuð
vegalengd og milli Islands og
Noregs. Og þessa leið sigldum við
á skipi.
— Reyndar fórum við fyrst til
Falklandseyja og komum þangað
eftir hálfs annars sólarhrings
siglingu hinn 11. janúar. Við
komum í höfuðstaðinn Port Stan-
ley, sem er lítið þorp með um 1000
íbúa. íbúar Falklandseyja eru
flestir brezkrar ættar og vilja
halda tryggð við Bretland, enda
þótt talsverður samgangur sé við
Argentínu og Argentínumenn vilji
tileinka sér eyjarnar vegna
nálægðar þeirra. Eyjarnar eru alls
340 með hólmum og landið ekki
ósvipað annesjum Skotlands. Það
liggur á 51. gráðu suðlægrar
breiddar.
• Andbýlingar okkar
á Falklandseyjum
— Falklandseyjabúar, sem upp-
nefna sig stundum „þönglara" eða
„kelpers", vegna þörungagróðurs
við eyjarnar, eru um 2000 talsins
og lifa einkum á sauðfjárrækt.
Hafa þar um 360 þúsund fjár af
Polworth-kyni. Aðeins 15 eyjar eru
í byggð. Hinar eru heimkynni
mörgæsa og ýmissa annarra sjó-
fugla og sela, en þar gengur einnig
fé á beit. Þarna á eyjunum eru um
60 tegundir fugla. Ymsar sæsvölur
og albatrosar (styrmir), upland
gæs, ófleyg skipönd og fimm
mörgæsategundir, þ.e. kóngamör-
gæs, gentoo, magellan, macaroni
og klettaskvetta. Magellanmörgær
grefur sér holur eins og lundi.
Fuglinn situr á gættinni og veltir
vöngum í sífellu, þegar að honum
er komið. Aðrar verpa í þéttum
byggðum á jafnsléttu, svo sem hin
virðulega kóngamörgæs og
gentoo-mörgæsin, sem er með
hvítan blett á kolli.
— Veðurfar á eyjunum er
vindasamt. Þar blása tíðir vestan-
vindar af hafi, svalir og rakir, en
veðrið breytist ört, og þegar sólin
brýzt fram úr skýjunum er þar
þægilegt veður. Vaxtartíminn er
um 176 dagar í Port Stanley, frá
15. okt. til 20. apríl. I júní — ágúst
er meðalhitinn 1—2 stig á celcius,
en í desember — febrúar er
meðalhitinn 7—11 stig.
— Við heimsóttum nokkrar
eyjar og skoðuðum dýralíf og
gróður. Nokkrir eyjabændur hafa
friðað fuglabyggðir og látur, þar
sem loðselir, sæljón og sæfílar
kæpa og mörgæsir verpa í
hundraða- eða jafnvel þúsunda-
tali. Við heimsóttum eyjabóndann
á Carcass-eyju. Hann er þar með
10 þúsund fjár. Það er annasamt
hjá honum um sauðburð og
rúning. Hann er með ullarmikið fé
og fær gott verð fyrir ullina, en
lætur sig lítið varða kjötið, enda
eru engin frystihús á eyjunum.
Bærinn hans er úr aðfluttu timbri,
sumt byggt úr skipsfjölum og
rekaefni. Þarna er enginn skógur.
Þökin eru úr bárujárni, máluð
græn eða rauð. í kringum húsið
vex limgerði og í skjóli þess er
blómsturgarður með skrautlegum
lúpínum og ýmsum harðgerðum
blómjurtum, sem við þekkjum
héðan úr okkar görðum, svo sem
venusvagn og valmúar. Eina
eldsneytið á staðnum er mór og
mórinn dökkur og hitaríkur.
Eldavél er í miðri setustofu og er
hún kynt látlaust allan daginn
með mónum. Pönnur og pottar eru
borin inn úr búri og sett á
eldavélina, þegar matreiðsla hefst.
Fólkið er afar gestrisið og vin-
gjarnlegt og svo heimakært að það
vill helst aldrei hreyfa sig burt af
sinni eyju. Bóndakonan sagðist þó
fara einu sinni á ári í þorpið Port
Stanley til innkaupa. Annars er
allt unnið á staðnum og hver
bóndi er sjálfum sér nægur. Póst
fá þeir sendan með lítilli flugvél
og bögglinum hent niður til þeirra
úr vélinni.
— Gróðurinn virtist mér heldur
snöggur og landið grátt yfir að
líta, þrátt fyrir mikla úrkomu, og
Framhald á bls. 78.
Sæfílabrimlar i Suöurskautslandinu. Dr. Sturla Friöriksson tók myndina.
Þessi nýi fjölskylduafsláttur gildir til allra
Norðurlandanna, Bretlands og Luxemborgar.
Fyrst er reiknað út „almennt sérfargjald" fyrir
hvern einstakan í fjölskyldunni - þá kemur
fjölskylduafslátturinn til sögunnar á þann hátt
að einn í fjölskyldunni borgar fullt „almennt
sérfargjald" en allir hinir aðeins hálft.
Með „almennum sérfargjöldum" getur afsláttur „Almenn sérfargjöld" okkar eru 8-21 dags
af fargjaldi þínu orðið 40%, og enn hærri sért fargjöld sem gilda allt árið til nær 60 staða í
þú á aldrinum 12 - 22ja ára - og ekki nóg með Evrópu.
það, nú bjóðum við enn betur. Láttu starfsfólk okkar á söluskrifstofunum,
umboðsmenn okkar, eða starfsfólk ferðaskrif-
stofanna finna hagkvæmasta fargjaldið fyrir
þig og þina.
Nú færö þú fjölskylduafsJátt
til viðbótar
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí
ÍSLANDS