Morgunblaðið - 23.03.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1978
77
Frá Rauða torginu. Dómkirkja heilags Basils.
I MOSKVU MEÐ
KERFIÐ Á HÆLUNUM
Einhverra hluta vegna sækja þeir þó
fyrirmyndir sínar í Biblíuna og ef til
vill er það til þess að skilja hið
mannlega í boðskap hennar — svo
sem okkur var sagt.
Já, okkur var sagt hitt og þetta —
en hverju á gestur í Sovétríkjunum
að trúa? Kaiser, blaðamaðurinn við
Washington Post, var vissulega í
vafa eftir þriggja ára veru í
Sovétríkjunum sem fréttaritari
blaðs síns þar. í bók sinni Russia
lýsir hann sannleika og lygi í
Sovétríkjunum. Hann nefnir dæmi
sagnfræðilegs eðlis. Arið 1905, 12
Kristsmyndir — samt eru þeir
Lemport og Silis trúleysingjar.
árum áður en byltingin var gerð,
voru fyrstu sovétin stofnuð eða
byltingarráðin. Eitt hið mikilvæg-
asta var í Pétursborg, og ljóngáfað-
ur, 26 ára gamall maður, Leon
Trotsky, varð formaður þess. Þetta
var fyrsta verkefni Trotskys í
byltingunni. 1 dag geta ferðamenn
skoðað byltingarsafnið í Gorki-götu,
þar sem fyrir byltingu var „enski
klúbburinn“. Sérstakt herbergi er í
safninu með ártalinu 1905 og er þar
lýst byltingarviðburðum þess árs. En
ferðamennirnir þurfa ekki að leita af
sér neinn grun — hvergi er minnst
á TrOtsky eða að hann hafi átt hlut
að byltingunni.
„Hvar er Trotsky?" segist Kaiser
hafa spurt gamla konu sem gætti
herbergis ársins 1905.
„Óvinur fólksins," svaraði sú
gamla, en þetta var einmitt það sem
Stalín kallaði Trotsky.
„Já, síðar,“ sagði Kaiser, „en 1905
var hann leiðtogi sovétsins í Péturs-
borg og mikilvægur byltingarsinni."
Gamla konan hristi höfuðið og
svaraði: „Óvinur fólksins."
Goðsagnirnar
Þrjár
Kaiser segir eftir gömlum
Moskvubúa, að Rússar hefðu búið til
þrjár goðsagnir, sem væri grundvöll-
Vinnustofa þeirra Lemports og Silis í Moskvu.
ur hins nýja þjóðskipulags. Þær
væru goðsögnin um Lenin, goðsögnin
um októberbyltinguna og goðsögnin
um hið mikla föðurlandsstríð, síðari
heimsstyrjöldina. Um fyrstu goð-
sögnina, þ.e. um Lenín, bendir hann
á klausu í Pravda eftir konu Lenins,
Nadezhda Kruoskaya, þar sem hún
segist eiga mikla bón. Hún biður fólk
að syrgja ekki Lenin og að það geri
hann ekki að eilífri tilbeiðsluper-
sónu. Reisið ekki minnisvarða hon-
um til heiðurs eða nefnið staði eftir
honum og minnist hans ekki með
hátíðum o.s.frv. Allt slíkt fannst
honum svo fánýtt og allt slíkt varð
honum til byrði... sagði kona
Lenins. í raun hefði ekki verið unnt
að sniðganga þessa ósk konunnar á
ruddalegri hátt en gert hefur verið.
Lenin er alls staðar nálægur og í
berioskum má kaupa af honum litlar
styttur í öllum stærðum. Goðsögnin
um Lenin er og samtvinnuð goðsögn-
inni um byltinguna.
Þriðja goðsögnin er um heims-
styrjöldina síðari. Þá færðu Sovét-
ríkin miklar fórnir og herir þeirra
börðust vissulega. hetjulega, en
Rússar fara mjög frjálslega með
staðreyndir, þegar fjallað er um
sagnfræðilegar heimildir. Þannig
eru allar goðsagnirnar byggðar upp.
En goðsögnin um stríðið hefur ef til
vill tekið hvað mestum breytingum,
þar sem svo skammt er um liðið frá
því er það átti sér stað. Nýir herrar
taka völd í Kreml og þeir þurfa allir
sínar söguskýringar. Mannkynssög-
unni er breytt. í hinni miklu sovézku
alfræðiorðabók segir t.d. um Pólland
í útgáfu frá 1940: „Innri spilling og
veikleiki Póllands og hin herskáa
stefna valdamanna og tengsl þeirra
við heimsvaldasinna í Englandi og
Frakklandi varð til þess að það lenti
í styrjöld við Þýzkaland og féll
saman við fyrstu árás þýzkra
hersveita". Siðan segir í sömu bók,
útgáfu sem endurskoðuð hefur verið
og gefin er út 1971: „Hin hreystilega
vörn pólska hersins, markaði glæsi-
leg spor í veraldarsöguna, en gat
ekki komið í veg fyrir fall Póllands."
Jafnvel sögulegar staðreyndir virð-
ast hverfular — allt er breytingum
undirorpið. Þessi árátta eða ósiður
— að breyta sögulegum staðreyndum
er annars ekki kommúnískt fyrir-
brigði. Það er gamall rússneskur
vani. Þetta gerði ívan grimmi á 16.
öld og fleiri valdamenn í Rússlandi.
__________Tortryggni____________
Nú eftir þessa lesningu er kannski
ekki undarlegt, þótt ég hafi haft
vantrú á því sem mér var sagt þessa
sjö daga í Sovétríkjunum á síðast-
liðnu hausti. Ég tortryggði gestgjafa
mína og þeir tortryggðu mig ekki
síður sem alla aðra útlendinga. Engu
að síður hafði ég mikla ánægju af að
heimsækja vinnustofu þeirra
Lemports og Silis. Raunar fékk ég
ekki að kynnast hinum fyrrnefnda í
eigin persónu, en ég hafði gaman af
að skoða list þeirra „andófsmann-
anna“, sem sungu svo skemmtilega
sína tregablöndu rússnesku söngva.
17 næturi Paradís
Einstölí ævintýrafcnð sem
ekki veróur endurtekin
Vegna sérstakra samninga við
International Air Bahamas býöur
ferðaskrifstofan Úrval einstaka
ævintýraferð til Bahamaeyjanna.
Brottför: 7. apríl nk.
Gisting: 2ja manna herbergi með
baði á lúxushóteli í 17 nætur.
Innifalið: Beint þotuflug til Nassau.
Ferðir til og frá hóteli. Amerískur
morgunveröur. Fararstjórn.
urval:%JJF‘
lafelagshusmu simi 26900
Eimskipafélagshúsinu simi
BEINT ÞOTUFLUG KEFLAVÍK/NASSAU AÐEINS 60 SÆTI LAUS Verð kr. 188.000.
Ekki innifalið: Brottfararskattur.
Heimkoma: 25. apríl.