Morgunblaðið - 30.03.1978, Page 1

Morgunblaðið - 30.03.1978, Page 1
40 SÍÐUR 63. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Líbanon: Vopnahléiðvirt Sænskur gæzluliði ferst Beirut, New York, 29. marz. AP. Reuter. VOPNAHLÉIÐ í Líbanon virtist í dag orðið alsjört í kjölfar þess að Yassir Arafat leiðtogi Palestínuskæruliða hét því að liðsinna gæzluliðum Sameinuðu þjóðanna á svæðinu. Einhverjar minni háttar skærur munu þó hafa orðið og palestínumenn hafa sagt að þrátt fyrir vopnahléið og nærveru gæzluliða S.b. muni þeir reyna að ná sér niðri á herliði ísraelsmanna á meðan það dvelur á líbönsku landssvæði. Ga'zlusveitir S.b. hafa nú á sínu valdi allar brýr yfir Litanifljót og tóku franskir gæzluliðar síðustu brúna yfir ána nálægt borginni Tyrus eftir að skæruliðar sem höfðu hana á valdi sínu ákváðu að fara að fyrirmælum Arafats og vera ekki í vegi gæzluliðanna. Sænskur gæzluliði fórst við Litanifljót í dag þegar jeppi sem Framhald á bls. 22 Carter hvetur tílsamvinnuum þróunarmálefni Caracas, Brasilía, 29. mars. AP. Reuter. CARTER Bandaríkjaforseti kom í kvöld til Brasilíu höfuðborgar samnefnds ríkis frá Venezúela á leið sinni til fjögurra ríkja þriðja heimsins. Aður en hann hélt frá Caracas flutti Carter ræðuá þingi Venezúelamanna þar sem hann ræddi aðallega um málefni þróunarlandanna og sameiginleg verkefni sem biðu ríkra þjóða og fátækra. Carter skoraði á ríkar þjóðir og fátækar að taka höndum saman um að berjast við verðbólguna og atvinnuleysið í heiminum og bæta lífskjörin í löndum heims. Hann sagði að hinar ríkari þjóðir gætu ekki einar sér bætt efnahgsástand- ið í heiminum. Hann sagði einnig að olíuútflutningsríkin, en Venezúela er eitt þeirra og þriðji stærsti útflutningsaðili olíu til Bandaríkjanna, yrðu að taka á sig sinn skerf í aðstoðinni við þróunarlöndin. Carter lofaði auk- Framhald á bls. 28 Sfmamyml AP Lcifar herjeppans sem sænsku hermennirnir Karl-Oscar Johansson og Mats Goran Lindberg óku f á jarðsprengju í Suður-Líbanon f gær. Johansson lézt þegar en Lindberg slasaðist mikið. beir voru báðir í gæzluliði Sameiðnuðu þjóðanna í S-Líbanon og voru á eftirlitsferð skammt frá Litaniánni þegar þeir óku á sprengjuna. Johansson er fyrsti hermaðurinn í liði Sameinuðu þjóðanna sem bíður bana við störf í S-Líbanon, en alls hafa 519 hermenn látið lífið í gæzlustörfum fyrir samtökin frá því þau voru stofnuð. Mesta lækkun gagnvart yeni London, 29. marz. Reuter. DOLLARINN lækkaði meira en nokkru sinni fyrr frá stríðslokum gagnvart jap- anska yeninu í Tokyo í morg- un og á gjaldeyrismörkuðum í Evrópu síðar um daginn. Japanshanki gerði svo til engar ráðstafanir til stuðn- ings dollaranum og það xtlli heilabrotum. Toshio Komoto utanríkisviðskiptaráðherra ítrekaði hins vegar í þingræðu loforð Japana um að draga úr greiðsluafgangi sínum. Komoto sagði að stjórnin mundi gera nýjar skyndiráð- stafanir til að auka innflutning og minnka greiðsluafganginn sem nam 17,5 milljörðum doll- ara í fyrra. Hann sagði að fyrri ráðstafanir stjórnarinnar til að Framhald á bls. 28 „Stefnan óbreytt —segir Begin—Weizman til Kairó í dag Kaíró, Jerúsalem, 29. marz. Reuter. AP. EZER Weizman varnar- málaráðherra ísraels er væntanlegur til Kaíró á Nýjar reglur í um siglingar Frakklandi olíuskipa Brest, Frakklandi, 29. marz. AP. Reuter. FRANSKAR þyrlur vörpuðu í dag sprengiefni á geyma olíu- skipsins Amoco-Cadiz þar sem það liggur brotið í þrennt undan ströndum Bretagne skaga. Tókst að sprengja göt á þá geyma skipsins sem eftir voru heilir og flæðir nú síðasta olían úr hinum 220 þúsund tonna farmi skipsins í sjóinn. Olíulckinn úr Amoco- cadiz er hinn mesti sem um getur í sögunni og gífurlegt tjón hefur orðið á sjávarlífi á þessum slóðum og ströndum Bretagne. Franska stjórnin samþykkti í dag nýjar og mjög strangar reglur um umferð olíuskipa með ströndum landsins og verða slík skip framvegis að sigla fjær landi en sem nemur sjö sjómflum í stað fimm áður. í framtíðinni verða einnig öll olíuskip sem sigla innan franskrar lögsögu að gera kunnugt um ferðir sínar jafnvel þótt allt sé með fclldu um borð. Eigi skip í erfiðleikum innan 50 mflna frá landi bcr skilyrðislaust að tilkynna þegar um það og dráttarbátar sem hyggjast leggja skipum í erfiðleikum lið verða sömuleiðis að láta yfirvöld vita. Franski sjóherinn hefur í fram- haldi af þessu fengið ný fyrirmæli um eftirlit með skipaferðum og nýrri radareftirlitsstöð sem starf- rækt verður allan sólarhringinn hefur verið komið á fót til að auðvelda eftirlit með ferðum skipa við strendur landsins. Fjöldi sjálfboðaliða hefur sleg- ist í hóp um 2500 hermanna og íbúa á strandsvæðum þeim þar sem olían hefur valdið mestu tjóni við að reyna að hreinsa ströndina og dæla burt olíunni. Strandlengjan á um 130 kfló- Framhald á bls. 28 morgun, fimmtudag, í fylgd með Barak dómsmálaráð- herra. Munu þeir eiga fundi með egypzkum ráðamönnum og verður það í fyrsta sinn í nær tvo mánuði sem full- trúar landanna ræðast við. Ekki er vitað hvaða nýjar tillögur þeir Weizman hafa í pússi sínu í förinni til Kaíró. Heimsókn Weizmans til Kaíró kemur í kjölfar árangurslausrar farar Begins forsætisráðherra ísraels til Washington, þar sem varð opinskár veruleg- ur ágreiningur ísraels- manna og Bandaríkjamanna um nokkur mikilvægustu deilumálin á þessu svæði. Begin flutti í dag ræðu í Knesset, ísraelska þinginu, og lagði þar áherzlu á að stefna stjórnar sinnar væri óbreytt og að Ísraelsríki mundi ekki hika við að vera á öndverðum meiði við Bandaríkjastjórn í málum sem skiptu sköpum fyrir ríkið. Begin sagði það hafa komið fram í viðræðum sínum við Carter Bandaríkjaforseta að Bandaríkja- menn væru enn hlynntir því að Israelsmenn hefðu áfram herlið á vesturbakka Jórdanár. Á hinn bóginn vildu Bandaríkjamenn að íbúar á Vesturbakkanum greiddu um þaö atkvæði í allsherjarat- kvæðagreiðslu hvort þeir vildu hafa heimstjórn undir eftirliti ísraels, gerast formlega hluti af Jórdaníu eða gerast hluti af Ísraelsríki. Slíka atkvæðagreiðslu gætu Israelsmenn ekki sætt sig við, enda myndi PLO-hreyfingin reyna að þröngva sinni eigin Framhald á bls. 22 Hef haldið stillingu minni — segir Aldo Moro í bréfi Sjá Krein bls. 21 -□ Róm. Torino. 29. marz. AP. Reuter. ÍTÖLSKUM yfirvöldum barst í kvöld bréí sem Aldo Moro er sagður hafa skrifað til ítalska innanríkisráð- herrans Francesco Cossiga, en hann stjórnar leitinni að Moro. í bréfinu segir Moro Frá leitinni að Moro að honum hafi verið gerð grein fyrir því að á hann sé litið sem pólitískan fanga og að dómstóll alþýðunnar muni fjalla um störf hans gegn alþýðunni undanfarin 30 ár. Moro skorar í bréfinu á starfsfélaga sína í ítölsk- um stjórnmálum að forðast að láta tilfinningar og óraunsæi taka völdin. „Ég hef haldið fullum sönsum í þeirri aðstöðu sem ég er í og nýt góðs af mikilii reynslu minni. Þið hljótið þó að gera ykkur grein fyrir því að fyrir mér kann að liggja að verða neyddur til að tala Aldo Moro um óþægilega eða hættulega hluti.“ Moro segir einnig í bréfinu að til engra þeirra ráðstafana mcgi grípa sem orðið geti til að liðsinna hermdarverkamönnum þeim sem hafa hann í haldi. Bréfið frá Moro fannst í ösku- tunnu skammt frá höfuðstöðvum kristilegra demokrata í Róm og hafði áður verið vísað á það í símtali. Dreifibréfum frá Rauðu herdeildunum var einnig dreift í nokkrum ítölskum borgum í kvöld og voru sum þeirra einnig undir- Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.