Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1978 21 AP-mynd Pólitískt bann sett í Pakistan Islamabad, 29. marz. — Reuter. MOHAMMED ZiaUl Haq hers- höfðingi. sem fer með æðstu völd í Pakistan fyrirskipaði í dag bann í óákveðinn tíma við stjórn- málastarfsemi. UpphafleKa var skipað bann til eins mánaðar og það átti að renna út á föstudag. Zia hershöfð- ingi tilgreindi enga ástæðu fyrir þeirri ákvörðun sinni að fram- lenRja bannið. En stjórnmálasérfræðingar benda á að mikil spenna hefur ríkt í pakistönskum stjórnmálum síðan Sulfikar Ali Bhutto fyrrverandi forsætisráðherra var dæmdur til dauða fyrir 10 dögum, gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á póli- tískum andstæðingi. Herlög eru í gildi og samkvæmt þeim er hægt að dæma menn í sjö ára fangelsi eða hýðingu. Þessum ákvæðum herlaganna hefur verið beitt gegn mönnum sem hafa efnt til mótmælaaðgerða gegn dauða- dómi Bhuttos. Zia hershöfðingi sagði fyrr í vikunni að auðvelt hefði reynzt að halda uppi lögum og reglu. Páll páfi sjötti messaði á Péturstorgi á páskadag að viðstöddu miklu fjölmenni eins og þessi mynd sýnir. Páfi var nýstaðinn upp úr flensu sem hrjáði hann í tvær vikur. Merkja mátti vanheilsu páfa á rödd hans sem var hrjúf og óstyrk í messunni. V íetnamar sakaðir um loftárásir á Kambódíu Aukin spenna í SV-Afríku Bankok, 29. marz. — AP. KAMBÓDÍUMENN sökuðu Víetnama í dag um að hafa gert loftárásir á Kambódíu og myrt óbreytta boegara. Fréttastofa Víetnams skýrði og frá því í dag, að Kam- Veður víða um heim Amsterdam 12 skýjað Apena 16 heióríkja Berlín 18 skýjað Brussel 12 skýjað Chicago 14 heiðríkja Frankfurl 15 skýjaö Genf 15 sólskin Helsinki 2 rigning Jóh.b. 20 skýjað Kaupm.h. 11 sólskin Lissabon 17 sóiskin London 12 sólskin Los Angeles 23 skýajað Madrid 23 skýjað Malaga 17 skýjað Miami 17 skýjaö Moskva 4 skýjað New York 16 heiðríkja Ósló 10 skýjað Palma 18 léttskýjað París 17 skýjað Róm 19 sólskin Stokkh. 10 skýjað Tel Aviv 19 heiðríkja Tókió 18 heiðríkja Vancouver 11 rigning Vínarborg 16 sólskin bódíumenn hefðu ráðizt dag- lega á þorp innan landa- mæra Víetnams til að trufla hrísgrjónaframleiðlsu. Út- varpið í Phon Penh sagði, að Víetnamar hefðu einkum beint aðgerðum sínum að undanförnu að svæði við þjóðveg númer sjö, en hann liggur samsíða landamærun- um fyrir norðan höfuðborg- ina. í útvarpssendingu frá Phon Penh sagði, að ráðizt hefði verið á stíflu í Amp- il-þorpi á föstudag og marg- ir verkamanna við stífluna drepnir og særðir. Næstu tvo daga gerðu víetnamskar herþotur þrjár loftárásir á þorp og stíflur í Kambódíu. I einni þeirra varð mikið mannfall, að sögn útvarpsins. Fréttastofa Víetnams í Hanoi Sænska þingið flytur SÆNSKA ríkisþingið samþykkti í daK íormlega að flytja þingið fyrir 1983 í gömlu þinghúsbygg- inguna skammt frá gamla bæn- um úr núverandi húsakynnum í miðborginni. betta var samþykkt í aðalatriðum í júní 1975. Þingið flutti í menningarmið- stöðina 1970 þar sem gamla þinghúsið var talið of gamalt. Gamla þinghúsbyggingin verður Framhald á bls. 24 minntist ekki á ásakanir Kam- bódíumanna um loftárásir í dag. í staðinn sagði fréttastofan, að Víetnamar væru að koma upp sérþjálfuðum skæruliðahópum í þorpun landsins til að verjast daglegum árásum Kambódíu- manna á víetnömsk þorp. Nú þegar hefur slíkum sveitum verið komið upp í 104 þorpum á Gho Moi-svæðinu. Gho Moi-svæðið er í Giang-héraði og afmarkast af Mekong-á og tveimur þverám hennar um 200 kílómetra suðvest- ur af Saigon. Höfðaborg, 29. marz. AP. JOIIN Vorster forsætisráð’nerra hélt mikilvægan fund með stjórn sinni í dag og sú skoðun hefur fengið byr undir báða vængi að stjórnin ákveði í kjölfar morðsins á Clemens Kapuuo ættar- höfðingja að reyna að finna „innri lausn“ á málcfnum Suð- vestur-Afríku án þátttöku skæru- liða utan landamæranna. Vorster tilkynnti eftir stjórnar- fundinn að nefnd fimm vestrænna ríkja sem reynir að finna lausn á deilunni um sjálfstæði Suðvest- ur-Afríku mundi skýra frá tillög- um sínum á morgun og sagði að stjórnin mundi enga yfirlýsingu gefa út um málið fyrr en tillögurn- ar lægju fyrir. Aður en stjórnin kom saman til fundar fór R.F'. Botha utanríkis- ráðherra í skyndiheimsókn til Windhoek, höfuðborgar Suðvest- ur-Afríku. Síðan Kapuuo var myrtur hefur verið bollalagt hvort Suður-Afríku stjórn muni hafna tilraunum Bandaríkjanna og annarra vest- rænna ríkja til þess að koma því til leiðar að blökkumanna- hreyfingin SWAPO verði aðili að lausn deilunnar um Suðvest- ur-Afríku og að morðið verði til þess að stjórnin taki harðari afstöðu gegn samtökunum sem njóta stuðnings kommúnista. Vestrænu ríkin segja að lausn deilunnar um Suðvestur-Afríku muni ekki fá alþjóðlega viðurkenn- Framhald á bls. 28 Öryggisráðstafanir vegna bókar Nixons Los Angeles, 29. marz. AP. ÚTGEFANDI væntanlegra endurminninga Nixons fyrrum Bandarikjaforseta sagði í dag að öryggisráðstafanir vegna prentunar hókarinnar yrðu næst- um jafn miklar og verið væri að meðhöndla atómsprengju. Um þriðjungur bókarinnar, en texti hennar er um 500 þúsund orð á 1200 blaðsíðum. verður helgaður Watergate hneykslinu. Harold Roth útgefandi bókar Nixons, sem nefnist Endur- minningar, sagði að engar upp- lýsingar úr texta bókarinnar muni „leka“ frá prentsmiðjunni. Prent- smiðjan hefur reynslu á prentun og meðferð leynilegra bóka og skjala, sagði Roth. „Þessi bók inniheldur allar upplýsingar er viðkoma Water- gate-málinu. Eitthvað af textan- um kemur sennilega á óvart, en forsetinn fyrrverandi telur sér ekki trú um að bókin breyti hugmyndum fólks um sig,“ var haft eftir Roth á blaðamannafundi í dag. Nixon fyrrum forseti býr nú í mikilli einangrun, að sögn útgef- anda bókar hans. „Hann fylgist lítið með því sem er að gerast og fáir hringja í hann eða koma í heimsókn. Eg ímyndaði mér Framhald á bls. 28 Moro gæti sagt frá ríkisleyndarmálum ALDO Moro íyrrverandi forsætisráðherra veit sitt af hverju sem ítalskir stjórnmálaleiðtogar vilja ógjarnan að komi fram í dagsljósið og hann veit mörg ríkisleyndarmál svo að margir ítalir óttast hvað hann kunni að segja mönnunum sem rændu honum. Þess vegna hefur verið látið að því liggja að Moro muni ekkert segja nema undir áhrif- um deyfilyfja og að ekkert verði á slíkum vitnisburði að byggja. Einnig hefur verið lagt til að blöðin taki ekkert mark á yfirlýsingum sem kunni að verða hafðar eftir Moro á þeirri forsendu að birting þeirra mundi skaða hagsmuni ríkisins. Síðan Moro var rænt hefur einnig verið um það rætt að setja á ritskoðun á þeirri forsendu að blaðafréttir hindri rannsókn málsins. Þegar Rauða herdeildin hafði á sínu valdi Genúa-dómarann Mario Sossi í 35 daga 1974 birti herdeildin ýmsar óþægilegar upplýsingar. Samkvæmt fyrstu fréttum sætti Sosso mis- þ.vrmingum en seinna skýrði hann svo frá að hann hefði ekki sætt illri meðferð og að einu lyfin sem hann hefði fengið hefðu verið svefnlyf, Einangrun og yfirheyrslur höfðu þau áhrif að hann beið andlegt skipbrot. Sossi „játaði“ þegar hann hafði verið 18 daga í haldi að leyniþjónustustofnanir ríkisins, herlögreglan og lögreglan hefðu ásamt dómstólum gert með sér samsæri gegn öfgamönnum sem þá voru fyrir rétti. Ræningjar Moros eru taldir hafa mestan áhuga á pólitískum leyndarmálum og „játningum“ sem renni stoðum undir ásakan- ir þeirra um að spilling sé ólæknandi á Ítalíu og að eina lausnin sé bylting og uppbygg- ing verkamannaþjóðfélags í anda kenninga Maos. Moro hefur haft mikil.afskipti af öryggis- og hermálum og var síðast utanríkisráöherra 1974 og forsætisráðherra 1976, en ræningjar hans virðast hafa minni áhuga á þeim málum en pólitískum leyndarmálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.