Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1978 Loftbrú til Isafjarðar: Rösklega 2 þús. manns flutt innanlands í gær — Stefnan óbreytt Framhald af bls. 1. stjórn upp á íbúana hvað svo sem öllum kosningum liði. „Við erum ekki reiðubúnir að leggja framtíð- :na að veði til þess að kosningar verði haldnar". Shimon Peres leiðtogi stjórnar- andstöðunnar í Israel gagnrýndi harðlega þá stefnu sem Begin og stjórn hans hafa tekið í samninga- viðræðunum við Egypta ög sagði hana hættulega fyrir framtíð landsins. ísraelsmönnum bæri að tilkynna þegar, að þeir væru tilbúnir að láta af hendi vissa hluta af vesturbakkanum. Hins vegar tók Peres undir andstöðu Begins við kosningar íbúanna á því svæði. Að loknum rúmlega 7 klukku- stunda umræðum í þinginu um utanríkismál var samþykktur stuðningur við stefnu Begins með 64 atkvæðum gegn 32 en 8 sátu hjá. I Kaíró lauk í dag fundi ríkja Arababandalagsins, en þar var m.a. samþykkt að reyna að efla einingu Arabaríkjanna sem svo mjög hefur veikzt vegna samn- ingaviðræðna Egypta við Israels- menn og m.a. kom fram í því að nokkur aðildarríki Arababanda- lagsins höfðu ráðstefnuna að engu og sendu þangað enga fulltrúa. Var Numeiri forseta Súdan falið að stýra nefnd sem ynni að því að koma á sáttum milli allra Araba- ríkjanna. — Líbanon Framhald af hls. 1. hann ók í ásamt einum lélaga sínum keyrði á jarðsprengju sem komið hafði verið fyrir til að granda skriðdrekum. Sprakk jeppinn í loft upp og gjöreyðilag- ist og lézt annar þeirra sem í honum var samstundis, en hinn lifði af og var flogið með hann í mikilli skyndingu á sjúkrahús í hafnarborginni Ilaifa í' ísrael. Yfirmaður sænsku gæzluliðanna á svæðinu, Jan Thurstrom of- ursti, sagði fréttamönnum að atburður þessi hefði verið slys. „Hér er allt fullt af jarðsprengj- um, sem sumar hafa verið lengi í jörðu. Því miður var ekið á eina." sagði ofurstinn. Annar samskur yfirmaður í gæzluliðinu neitaði því harðlega á fundi með fréttamönnum að palestínskir skæruliðar hefðu skotið á sænsku gæzluliðana undanfarna daga. Sagði yfirmaðurinn að þar hefði verið um að ra-ða skothríð milli palesti'numanna og ísraclsmanna og hefði hún ekki komið nærri gæzluliðunum. Nú er komnir gæzluliðar frá fjölmörgum löndum til S-Líban- ons. en einhver afturkippur kom í dag í ákvörðun stjórnar Austur- ríkis um að senda gæzluliða. Kreisky kanslari og Waldheim framkva“mdastjóri S.Þ. ræddust við í síma um þetta í dag og Kreisky sagði fréttamönnum síð- ar að Asuturríki mundi ekki senda gæzluliða fyrr en tryggt vopnahlé væri komið á. — Aldo Moro Framhald af bls. 1 rituð af Moro. Lögreglan telur allar líkur til að bréf þessi séu ófölsuð, en áður höfðu verið á kreiki vangaveltur um það að Moro væri alls ekki fangi Rauðu herdeildanna og að myndin sem sögð var vera af honum fyrir framan merki samtakanna hefði verið fölsuð. I dreifibréfunum er enn ítrekað að Moro verði dreginn fyrir alþýðudómstól fyrir myrkra- verk sín í ítölskum stjórnmálum undanfarin 30 ár. Réttarhöldum í máli hermdar- verkamannanna 15 í Torino var fram haldið í dag en talið er að félagar þessara manna í Rauðu herdeildunum hafi í haldi Aldo Moro fyrrverandi forsætisráð- herra Ítalíu. Réttarhöldin í dag hófust með þeim óvenjulega hætti að starfsmaður réttarins las yfirlýsingu frá hinum ákærðu þar sem þeir sögðust ekki vera komnir fyrir réttinn til að verja sjálfa sig heldur til að ásaka aðra. Fyrir hönd almúgans í landinu og kommúnistahreyfingarinnar myndu þeir færa hið heimsvalda- sinnaða ítalska ríki og hreyfingu kristilegra demokrata fyrir rétt. Dómarinn í máli 15-menning- anna ákvað að fyrirskipa að yfirlýsingin skyldi lesin til að koma í veg fyrir að sakborning- arnir trufluðu réttarhöldin með1 hrópum og ólátum í járnbúri því þar sem þeirra er gætt. Ekki er enn ljóst hvort skipaðir verjendur mannanna muni gegna þeim störfum áfram að segja af sér til að leggja áherzlu á kröfu sakborninganna um að þeim sjálf- um verði falin vörn í málinu. ítalska lögreglan hefur ekki lagt neinn trúnað á hótanir glæpa- manna í landinu um að ráða hermdarverkamennina 15 í Torino af dögum í fangelsinu. Rithöfunda- kvöldvaka FÉLAG ísl. rithöfunda heldur þriðju kvöldvöku sína á þessum vetri á Hótel Esju kl. 8.30 í kvöld, fimmtudag. Á kvöldvökunni lesa 5 rithöfundar stutta valda kafla úr verkum sínum. Kvöldvökur félags- ins í vetur hafa þótt vel heppnaðar og verið fjölsóttar en þær eru opnar öllu áhugafólki um bók- menntir svo lengi sem húsrúm leyfir. SNJÓFLÓÐ íéll síðdegis í gær á tvii dæluhús hitaveitu Siglufjarð- ar í Skútudal og sópuðu þeim burtu. Ennfremur tók snjóskrið- an þak af miðlunargeymi en fjórða húsið, sem í var spennistöð, slapp lítið sem ekkert skemmt. Eins og þegar snjóflóð gerði hitavcituna óvirka f lok febrúar s.l. varð Siglufjarðarkaupstaður hitavatnslaus. Voru strax gerðar ráðstafanir til þess að flokkur manna. alls 40 menn, færi í hús í bænum og tengdi olíukynding- artæki við kerfi húsanna og rafmagnskyndingu i þeim húsum, þar sem olíukynding er ekki til staðar til vara. Stóðu vonir til þess að því lyki í nótt, samkva“mt upplýsingum Hreins Júlíussonar bæjarverkstjóra í Siglufirði. Sæmilegt veður var í Siglufirði í gær. hiti um frostmark en dálítill skafrenningur, Snjór er með almesta móti í Siglufirði og nágrenni um þessar mundir. Hreinn Júlíusson fór í gær við annan mann inn í Skútudal á snjósleða til þess að kanna vegs- ummerki en algerlega er ófært í Skútudal á öðrum farartækjum. Hreinn sagði í samtalinu við Mbl. í gær að sér hefði sýnst snjóflóðið núna vera miklu meira en flóðið, sem féll í lok febrúar s.l. Snjórinn hefði sópað húsunum með sér að því er virtist og væri ekki að sjá neitt brak úr þeim, þar sem snjór væri yfir öllu. Hreinn sagði að ekki lægi ljóst fyrir fyrr en búið væri að grafa niður á dælurnar hvort þær hefðu skemmst, en í síðasta snjóflóði urðu aðeins minni háttar skemmdir á dælunum. Hins vegar mætti búast við meiri skemmdum núna, þar sem skriðurnar virtust mun meiri og öflugri en síðast. Húsin tvö voru úr vatnsþéttum krossviði, 3,60 sinnum 3,60 metrar að stærð. Þau voru smíðuð utan um dælurnar fyrir mánuði síðan eftir að snjóflóðið hafði sópað burt upprunalegu húsunum. Ekki kvaðst Hreinn viss um það hvenær snjóflóðið hefði fallið, þar sem bylur var fyrst eftir hádegið, en hann bjóst við því að það hefði verið um hálf tvö leytið í gær. Þegar snjóflóðið féll á dæluhús- in og gerði hitaveituna óvirka í febrúarmánuði var frost um 10 stig og fór því hiti fljótt úr húsum FLUGFÉLAG íslands flutti lið- lega 2000 farþega innanlands í gærdag og flugfélagið Vængir cinnig töluverðan fjölda, og tókst þannig að losa töluvert um þá stíflu sem verið hefur í innan- landsfluginu allt frá þvi' um páska. Mynduð var lofthrú til Isafjarðar og farnar voru þotu- ferðir til Akureyrar til að flutn- ingarnir gengju sem greiðlegast. Enn eru þó farþegar veðurtepptir á Austfjörðum. Að sögn Sveins Sæmundssonar, blaðafulltrúa Flugleiða, hafði ekk- ert að ráði verið flogið innanlands síðustu tvo dagana og horfur reyndar ekki alltof bjartar í bítið í gærmorgun, því að þá var aðeins fært til Vestmannaeyja. Um níu leytið í gærmorgun virtist þó svo sem aðeins væri farið að rofa til á Isafirði, og þess vegna var send þangað ein flugvél — aðallega í tilraunaskyni. Þeirri vél tókst þó að lenda og eftir það birti enn til, svo að umsvifalaust var mynduð loftbrú í Siglufirði. Núna er hitinn um frostmark og búist var við því að menn yrðu fljótari í þetta sinn að koma hita á húsin og er því reiknað með að Siglfirðingar finni ekki eins mikið fyrir hitaveitu- missinum og síðast. Tveir þriðju hlutar húsa í Siglufirði höfðu verið tengdir hitaveitu. Hreinn sagði að lokum, að væntanlega yrði strax í dag hafizt handa við að grafa niður að dælunum. Erfiðleikum er bundið að koma mönnum á staðinn vegna ófærðar og snjóflóðahættu en Hreinn sagði að snjór væri svo mikill á leiðinni að það myndi eflaust taka heila viku að ryðja leiðina inn í Skútudal. I gær var von á snjóbil með Drangi úr EyjafirðL______ ________ — Æskulýðsráð Framhald af bls. 2 úr nágrannabyggðum Reykjavík- ur. Rekstur félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar hefur og dreg- ið úr aðsókn unglinga að Tónabæ, sem Hinrik kvað óhentuga rekstr- areiningu, allt of stóra, og þar af leiðandi nýtast illa, nema til dansleikjahalds, kvað hann rekst- ur staðarins yfirleitt hafa gengið erfiðlegá. Húsið nýttist í raun ekki nema tvö kvöld í hverri viku. Væri Ijóst að það væri mjög léleg nýting, þegar félagsmiðstöðvarnar kæmu út með starf, sem væri um 70 klukkustundir í viku hverri. Tónabær hefur alla tíð verið umfangsmesta viðfangsefni æsku- lýðsráðs og innan þess hafa einnig vaknað meiri efasemdir um Tóna- bæ en nokkurn annan starfsþátt ráðsins. Það sem vakir fyrir æskulýðsráði með sölu Tónabæjar — sagði Hinrik er að fá almennan skemmtistað í stað hans, sem sé minni og þar af leiðandi heppilegri stað, sem gæti nýtzt betur. Hann kvað það geta verið erfiðleikum bundið að finna slíkan stað, og ef það tækist ekki, væri annar valkostur að nýta það fjármagn, sem fyrir staðinn fæst til þess að auka félagsstarfið úti í hverfum borgarinnar. Ljóst væri að rekstur félagsmiðstöðvanna væri á réttri leið og það starf þyrfti enn að endurbæta og þróa. þangað og um kaffileytið í gær höfðu verið farnar 12 ferðir til Isafjarðar. Mun það einsdæmi að svo oft hafi verið flogið til Isafjarðar á einum og sama deginum áður. Ekki mun þó alveg hafa tekizt að hreinsa Vestfirðina í gær vegna ófærðar í kringum ísafjörð, t.d. mun allmargt fólk hafa orðið veðurteppt í Bolungavík en þangað stóð þó til að ryðja í gær. Þá fóru Vængir í gær 5 ferðir til Vestfjarða, en tókst heldur ekki að ná öllum farþegum sem þar biðu og lætur nærri að um 50—60 manns bíði þar enn eftir fari. Flugfélagið ákvað í gær að taka aðra þotuna í innanlandsflugið og fór hún þrjár ferðir milli Reykja- BORGARRÁÐ samþykkti í fyrra- dag heimild fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur til að kanna mögu- leika á sölu stóru Spánartogar- anna þriggja. Bjarna Benedikts- sonar. Ingólfs Arnarssonar og Snorra Sturlusonar og jafnframt að athuga möguleikana á kaup- um á fjórum minni togurum í staðinn. Að athugun lokinni, sem væntanlega fer fram á slþjóðleg- um markaði, mun málið aftur koma til afgreiðslu hjá borgar- ráði. Stjórn bæjarútgerðarinnar og framkvæmdastjórar höfðu sem kynnugt er lagt fyrir borgaryfir- völd beiðni um slíka heimild. Að sögn Einars Sveinssonar, PILTUNUM þremur. sem verið hafa í gæzluvarðhaldi í rúma viku vegna nauðgunar, sem kærð var að morgni laugardagsins 18. marz s.l.. var sleppt úr haldi í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýs- ingum Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. hafa þeir allir játað sinn þátt í þessu máli. Ennfremur er lokið rannsókn SNÓFLÓÐ féll í fyrrinótt á tveimur stöðum í svonefndum Borgartanga sunnanmegin f Seyðisfirði milli Ilánefsstaða og kaupstaðarins. Snjóskriðurnar voru um 300 metra breiðar hvor og sópuðu þær með sér raf- og sfmali'num og ’er því rafmagns- laust sem stendur á Ifánefsstöð- um og öllum bæjum í Mjóafirði. Samkvæmt upplýsingum Jónas- ar Hallgrímssonar bæjarstjóra á Seyðisfirði hafði bóndinn á Há- nefnsstöðum samband við hann í fyrrakvöld og tilkynnti honum að búast mætti við snjóflóðum í Borgartanga. Vegurinn þarna um var kolófær og því ekki þörf á því víkur og Akureyrar. Þrjár ferðir voru farnar til Patreksfjarðar, ein til Þingeyrar, tvær til Vestmanna- eyja, ein til Sauðárkróks og þrjár til Húsavíkur. Hins vegar tókst ekki í gær að fljúga til Austfjarða en þó mun ekki mjög margt fólk bíða þar, aðallega fólk sem ekki hefur komizt upp á Hérað af fjörðunum eða frá Norðausturlandi. Vonir stóðu þó til að úr rættist í gærkvöldi. Vængir flugu alls 5 ferðir til Vestfjarða, eins og áður segir, og til Stykkishólms var farin ein ferð. Hins vegar var ekki unnt að fljúga til Siglufjarðar og Ólafsvíkur í gær. framkvæmdastjóra BÚR, eru rök- in fyrir þessari beiðni þau, að í ljós hefur komið að þessi stóru skip skila eksi meiri afla á land en margir minni togaranna en eru hins vegar margfalt dýrari í rekstri, sérstaklega hvað snertir olíukostnaðinn en einnig fylgir þeim meira og kostnaðarsamara mannahald. „Það þarf ekki lengur vitnanna við — dæmin eru hér allt í kringum okkur um að þessir litlu eða meðalstóru togarar eru langt- um hagkvæmari frá rekstrarlegu sjónarmiði miðað við þær aðstæð- ur sem eru á miðum hér við land,“ sagði Einar Sveinsson. annarrar nauðgunarkæru, sem barst Rannsóknarlögreglunni frá konu á fertugsaldri um páskana. Hins vegar er rannsókn ólokið á þriðja nauðgunarmálinu, sem á að hafa gerst í vesturhluta Reykja- víkur aðfararnótt föstudagsins langa. Þá kærði 18 ára stúlka mann á fertugsaldri fyrir að hafa boðið sér bílfar og nauðgað sér. Situr maðurinn í gæzluvarðhaldi. aö gera sérstakar ráðstafanir vegna umferðar. Hálftíma seinna fór allt rafmagn af Seyðisfirði og vissu menn þá að snjóflóðið hefði fallið. Fóru menn úteftir og aftengdu rafmagnslínuna og eftir rúman hálftíma var rafmagnið aftur komið á Seyðisfirði. Jónas sagði að menn hefðu síðan farið að kanna málin í gærmorgun á bát og þá séð að tvær skriður hefðu fallið alveg niður fyrir veg. Voru skriðurnar um 300 metra breiðar hvor. Þær höfðu brotið 6 rafstaura og nokkru fleiri síma- staura. Óvíst er hvenær viðgerð getur farið fram en þess skal getið að vararafstöð er í Mjóafirði. Snjóflóð gerir hitaveitu Siglufjarðar óvirka í ann- að sinn á skömmum tíma BÚR heimilað að kairna möguleika á söki þriggja Spánartogara N auðgunarmálið: Piltunum sleppt Seyðisfjörður: Snjófióð skemmdu raf- og símalínur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.