Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.03.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1978 5 Aformum um diskótek mótmælt SVO SEM getiÖ var í Morgunblaðinu 10. marz síðastliðinn hafa aðilar, sem hyggjast setja á stofn diskó- tek eða skemmtistað fyrir ungt fólk, sótt um leyfi til borgaryfirvalda fyrir rekstri slíks fyrirtækis í húsakynnum Alþýðubrauð- gerðarinnar við Laugaveg og Vitastíg. Nú hafa íbúar og atvinnurekendur í ná- grenninu unirritað mótmæli við því að leyft yrði að reka slíkan skemmtistað á þess- um stað og hafa undir- skriftalistar þegar verið afhentir borgarstjóra. Þeir, sem undirritað hafa mótmælin, eru á annað hundrað einstaklingar og fyrirtæki, sem óttast að fylgifiskur slíks skemmti- staðar verði svipaður og verið hefur við Tónabæ og á svokölluðu Hallærisplani. Segja þeir, að reynslan sýni, að ekki takist að halda uppi reglu við slíka staði og að af stafi bæði mikið ónæði og eignatjón. Verði slík starfsemi leyfð, sé það alveg ljóst, að það sé í fullri andstöðu og móti vilja nær allra þeirra, sem búa og starfa við nálægar götur. Húsnæðið, sem um ræðir og nota á undir þessa starf- semi, var áður húsnæði Al- þýðubrauðgerðarinnar á Laugavegi 63. Ilelga Bachmann og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum sínum. Sýninguin á Ödipúsi konungi að ljúka SÝNINGUM á gríska harmleikn- um Ödipúsi konungi lýkur senn, en hann verður næst sýndur í Þjóð- leikhúsinu á laugardagskvöld. Eru þá eftir tvær sýningar á verkinu, en þetta er í fyrsta skipti sem leikritið er sýnt hérlendis og í fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið sýnir grískan harmleik. Þýðinguna gerði Helgi Hálf- danarson og Helgi Skúlason er leikstjóri. Titilhlutverkið, Ödipús, leikur Gunnar Eyjólfsson og Jóköstu leikur Helga Bachmann. Líflegt starf KÍM í RAÐI er að í haust komi hingað til lands dansflokkur á vegum Kínversk-íslenzka menningarfé- lagsins. Er dansflokkurinn frá Tíbet og á árinu er einnig fyrir- hugað að minnast 25 ára afmælis KIM á ýmsan hátt. A aðalfundi félagsins, sem haldinn var fyrir stuttu, kom m.a. fram að starfsemin var með mesta móti s.l. ár, kínversk vináttusendi- nefnd kom til landsins, kvik- myndasýningar voru haldnar og félagið efndi s.l, haust til ferða til Kína sem tæplega 50 manns tóku þátt í. Félagsmenn í Kínversk-íslenzka menningarfélaginu eru nú um 300 og er Arnþór Helgason formaður þess. Fundur um áhugaflug á Islandi FLUGMÁLAF’ÉLAG íslands gengst á fimmtudagskvöld fyrir fundi í ráðstefnusal Hótels Loft- leiða og er efni fundarins áhuga- flug á Islandi í nútíð og framtíð. Framsögumenn eru tveir, Leifur Magnússon varaflugmálastjóri, sem talar um svifflug, og Jóhannes Georgsson flugmaður, sem ræðir um vélflug. Auk þeirra tala Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor og Garðar Gíslason tannlæknir og gera þeir grein fyrir smíði vél- og sviffluga hér á landi. Einnig verður sýnd kvikmynd sem tekin var á flugdegi á Sandskeiði árið 1938. Fundurinn hefst kl. 20:30 •• Okumaður gefi sig fram KLUKKAN 19,30 á þriðjudaginn varð 8 ára drengur fyri drapplit- aðri Volkswagenbifreið á planinu fyrir framan Breiðholtskjör. Öku- maðurinn fór af staðnum án þess að athuga hvort drengurinn hefði meiðzt. Er það ósk slysarann- sóknadeildar lögreglunnar að öku- maðurinn gefi sig fram svo og sjónarvottar ef einhverjir eru, Nohab-dísilvélar hala nú verið pantaðar í nokkur skip á íslandi. Hér sjást fslenzku vélskólanemendurnir fyrir framan vélina, sem sett verður í Sigurð RE 4. Vélskólanemar á ferð um Evrópulönd NEMENDUR 4. stigs Vélskóla ís- lands hafa að undanförnu verið á ferðalagi um nokkur Evrópulönd og í ferðinni hafa þeir heimsótt nokkr- ar vélaverksmiðjur og verksmiðjur, sem framleiða tæki tengd vélum. Dagana 15. og 16. marz s.l. voru nemendurnir ásamt kennurum sín- um gestir hjá Bofors-Nohab í Tröllháttan í Svíþjóð, en áður höfðu þeir heimsótt Alfa-Laval í Stokk- hólmi og ASEA í Vasterás. Þegar nemendurnir yfirgáfu Trollháttan fóru þeir til Kaupmannahafnar, Munehen og London og þaöan til Reykjavíkur. MARGIR I1ALDA AÐ M HÁTALARAR SÉL) AÐCINS CYRIR ATVINNIJMCNN... . mk ■ en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara, notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér. Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess. AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um - VELJIÐ AR HÁTALARA. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 SENDUM BÆKLINGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.