Morgunblaðið - 02.04.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.04.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 2. APRÍL 19?« Hafa baðinnréttingarnar fást í einingum. 1111 fyrirliggjarn k í og hvítU Utsölustaöi MálningarÞjónustan Akranesi íbúðin Akureyri Bústoð Kefiavík Versl. Vaiberg Ólafsfirði Brimnes Vestmannaeyjum og flest kaupfélög um land allt VALD. POULSEN' Suðurlandsbraut 10, símar 38520_31142. Að mörgu er að hyggja, er þú þarft að tryggja Brunar og slys eru of tíóir vióburóir í okkar þjóófélagi. Þegar óhapp skeóur er hverjum manni nauósyn, aó hafa sýnt þá fyrirhyggju, aó fjárhagslegu öryggi sé borgió. Hagsmunir fyrirtœkja og einstaklinga eru þeir sömu. SJÓVÁ SJÓVÁ tryggt er vel tryggt SUÐURLANDSBRAUT 4 - SÍMI 82500 12. Leikendur í Púntila og Matta. Fremri röð írá v.. Anna Jónsdóttir, Þórdís Kristleifsdóttir, Ásthildur Bernharðsdóttir, Sólveig Halldórs- dóttir leikstjóri og Regína Ásvaldsdóttir. Aftari röð f.v.i Karl Garðarsson, Ríkharður Friðriksson, Daði Harðarson, Vilmar Pétursson. Arnór Snorrason og Þorsteinn Hallgrímsson. Sjöfn Heiðu Steinsson vantar á myndina. Nemendur Púntila og Leiklistarklúhbur Menntaskól- ans í Kópavogi hefur að undan- förnu æft leikritið Púntila bónda og Mi}tta vinnumann eftir Bert- hold Brecht. Frumsýning verður sunnudaginn 2. apríl kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs. Leikritið er flutt í þýðingu Þorsteins Þorsteinssonar og í búningi Leiklistarklúbbs M.K. nokkuð stytt og bætt hefur verið M.K. sýna Matta inn í hlutverki sögumanns. Leik- endur eru 11 en hlutverkin um það bil 20. í aðalhlutverkum eru Þorsteinn Hallgrímsson sem Púntila og Daði Harðarson sem Matti. Leikstjóri er Sólveig Hall- dórsdóttir og er þetta fyrsta verkið sem hún stjórnar, en hún útskrif- aðist úr Leiklistarskóla íslands vorið ,76. Félag íslenzkra há- skólakvenna 50 ára Félag íslenzkra háskólakvenna verður 50 ára 7. aprfl n.k. Stofnendur voru 6 og fyrsti formaður var Katrín Thoroddsen, læknir. Aðrir formenn hafa verið. Geirþrúður Bernhöft, cand. theol., Rannveig Þorsteinsdóttir, hæstaréttarlögmaður, Ragnheið- ur Guðmunsdóttir, læknir, og núverandi formaður, Ingibjörg Guðmundsdóttir, lyfjafræðingur. Árið 1930 við stofnun Kven- stúdentafélags íslands gerðist Félag íslenzkra háskólakvenna deild innan þess. Um 20 ára skeið hefur félagið veitt ungum menntakonum styrki til náms, bæði hérlendis og erlendis. Ennfremur hefur félagið staðið fyrir sölu jólakorta Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna um árabil. Afmælisins verður minnzt með hófi föstudaginn 7. apríl n.k. að Hótel Loftleiðum, Víkingasal. Bíó fyrir börn í Breiðholti JUNIOR Chambers-félagsskapur inn í Breiðholti og Framfarafélag Breiðholts III ætla sameiginlega að efna til kvikmyndasýningar fyrir börn í Fellahelli nk. sunnu- dag kl. 3. Sýndar verða gaman- myndir og aðgangur er ókeypis. (Fréttatilkynning). Y firlýsing í tilefni af skipun í stöðu rekstrarstjóra hjá Vegagerð ríkis- ins á Reyðarfirði, viljum við undirritaðir lýsa yfir megnri óánægju okkar vegna þess, að skipaður hefur verið í stöðu þessa maður, sem enga þekkingu hefur á þeim störfum, sem honum eru falin. Að mati yfirstjórnar Vega- gerðar ríkisins á Austurlandi hefur aftur á móti verið gengið fram hjá hæfum manni, sem starfað hefur hjá fyrirtækinu í -fjölda ára. Við viljum benda á, að erfitt er að skapa góðan starfsanda innan fyrirtækis, sem er forsenda af- kasta og góðra vinnubragða, ef ekki er ávallt ráðinn til starfa hæfasti starfskraftur, sem völ er á hverju sinni, og skipan manns í ábyrgðarstöðu, sem reynslulaus er og gjörsamlega ókunnugur starf- semi viðkomandi stofnunar, getur valdið stofnuninni ómældum erfið- leikum og jafnvel lamað starfsemi hennar á viðkomandi stöðum. Þar sem umdæmisverkfræðing- ur Vegagerðar ríkisins á Austur- landi og einn vegaverkstjóri á Reyðarfirði hafa tekið þá ákvörð- un að segja starfi sínu lausu vegna máls þessa, höfum við skorað á þá að endurskoða þá ákvörðun sína, þar sem uppsögn þeirra mun skaða starfsemi stofnunarinnar enn meir en orðið er. Birítir GuðmundsKon umdæmisverkfra'ðinitur VcifaKerð rikisins Boraarnesi. Björn Ólafsson deildarverkfræðinjtur VegaKerð ríkisins Reykjavfk. Eirikur Bjarnason umdæmisverkfræðinttur VeKaaerð ríkisins Isafirði. Guðmundur Svafarsson umdæmisverkfræðinitur Vegaiíerð ríkisins Akureyri. RöKnvaldur Jónsson deildarverkfræðinKur Veitaaerð ríkisins. SteinKrímur Inicvarsson umdæmisverkfræðinKur VeKaKerð ríkisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.