Morgunblaðið - 02.04.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.04.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1978 7 Vika er liðin frá páskum, lítum um öxl, skoðum minninga- myndir frá þeim dögum, sem raunverulega vorú fæðingardag- ar kristninnar, þótt hvítasunnu- hátíðin hafi verið túlkuð sem fæðingarhátíð kristinnar kirkju. Kristin kirkja var til áður en hvítasunnuundrið gerðist, en án páskanna hefði kristnin ekki fæðst, aldrei orðið annað en sértrúarflokkur innan gyðing- dómsins. Það er upprisan, sem aldahvörfum veldur oggreinir hinn unga trúflokk frá móður- kirkjunni, gyðingdómi. Er þá ekki vert að geyma þær myndir þótt páskar líði og vikur, mán- uðir, ár, unz páskahátíð verður haldin aftur? Tökum eina þeirra fram og skoðum hana: í kveldhúmi sérðu tvo vini ganga saman veginn frá Jerú- salem til smábæjarins Emmaus. hún fylgir manninum, hvert sem hann flýr og fer. Hún býr í hjarta hans, og hjartað fylgir þér, hvert sem flúið er. Rökkrið hæfir bezt vonlausum flótta vinanna tveggja, en með- an þeir ræða í hálfum hljóðum, hvað gerzt hafði hefur ókunnur maður slegizt í för með þeim. Þeir greina óljóst svip hans í rökkrinu, en hann ávarpar þá og spyr hljóðlega, hverjar samræð- ur þeirra séu. Þá nema þeir staðar daprir í bragði og annar þeirra spyr undrandi, hvort honum einum sé ókunnugt það, sem nú sé á hvers manns vörum í Jerúsalem, krossdauða Jesú, og hann bætir við, að ennfremur hefðu konur, sem snemma morguns komu til grafar hans til þess að veita líki hans umbúnað, sagzt hafa séð þar engla í sýn, sem hefðu sagt hann þar sem þeir vissu postulana samankomna, og berja að dyr- um, en þær voru læstar af ótta við Gyðingana og ofsóknir þeirra vegna hins mikla umtals, sem sögurnar af upprisuundrun- um höfðu vakið. Þar eru postul- arnir saman komnir og hlusta undrandi á það, sem vinirnir tveir höfðu að segja af för sinni út til Emmaus, og þeir segja aftur, að hann sé upprisinn búinn að birtast Pétri, en þá gerist eitt undrið öðru meira: Þarna inni, fyrir luktum dyrum stendur Kristur upprisinn skyndilega ra þeir allir: „Friður sé með yður“. Emmausgöngunni er lokið. Hún hófst í rökkri, en henni lauk í skæru ljósi. Hún hófst við sárustu sorg einmana manna, á rökkvuðum vegi, henni lauk við skínandi gleði. Hún hófst við Rökkurgangan til Emmaus Þetta er að kveldi páskadags. Þeim er fóturinn þungur, enda sorgin þung, sem þeir bera. Fyrir tveim dögum höfðu þeir beðið hryllilegan ósigur. Eins og spilaborg, sem blásið er á, höfðu háreistar vonir þeirra hrunið. Meistarinn hafði talað við þá um sigur, og beið þó ægilegan ósigur sjálfur og látið lífið eins og vesæll glæpamaður á kross- tré. Þeir höfðu trúað því að hann væri hinn fyrirheitni frelsari, en þegar á hólminn kom hafði hann ekki getað leyst sjálfan sig frá smánardauða. Allt var tapað, til einskis var lengur að lifa og stríða. Ur hæðum hæstu gleði höfðu þeir hrapað niður í hyldjúpa sorg. Ur Jerúsalem höfðu vinirnir tveir farið til þess að leita • gleymsku í kyrrláta smábænum Emmaus. í Jerúsalem þoldu þeir ekki við. Þar dundu á þeim hrópin og háðsyrðin og þar minnti þá allt á það, sem þeir þráðu að gleyma, en ,,gleymskunnar hnoss ei hlot- ið fær neitt hjarta, sem gleymsku þráir“ (E. Ben.) Og sorgina fær enginn flúið með því að skipta um dvalarstað, lifa, og jafn ótrúlega hluti hefðu jafnvel nokkrir postulanna vott- að. En allt var þetta of mikil fjarstæða til þess að trúað yrði. En nú tekur rökkurgesturinn að minna vinina tvo á það, sem í fornum spám sé sagt fyrir um hinn komandi lausnara, hann „lýkur upp fyrir þeim ritningun- um“, svo að hjörtu þeirra brenna. Þá nema þeir staðar við húsið, sem vinirnir tveir ætluðu sér að næturstað. Hann lætur að þeirri ósk þeirra, að koma með þeim inn. Þar er skuggsýnt inni, en þeir ganga að borði, þar sem kveldverður bíður þeirra. I rökkurkyrrðinni tekur ókunni gesturinn brauðið og brýtur það að þeirra landssið og réttir þeim. En þá er eins og augu þeirra opnist og skyndilega þekkja þeir, að samferðamaður- inn er Jesús hinn krossfesti sjálfur. En samstundis leysist hann upp og er horfinn, — ekki farinn, en horfinn. Brauðið liggur brotið á borðinu, staður hans við borðið er auður. Lostnir botnlausri undrun kem- ur þeim saman um að halda rakleiðis þegar um nóttina til Jerúsalem til að bera postulun- um hin miklu tíðindi. Þeir leggja tafarlaust af stað. Þegar inn í borgina kemur ganga þeir rakleiðis að húsinu algert vonleysi manna, sem allar vonir höfðu brugðizt við harmleikinn á Golgata, en henni lauk við meira, dýrðlegra undur en þeir höfðu þorað að binda veikustu vonir við. Og fyrirbrigðin héldu áfram að gerast. Páll postuli, sem þá var enn öflugur andstæðingur kristninnar, fékk síðar svo traustan vitnisburð um það, að einu sinni hafi hinn upprisni birtzt meira en 500 manns í einu, svo traustan, að hiklaust skírskotar hann til þeirra, sem þar voru viðstaddir, að bera til baka ef þeir geti, það sem hann segi. Af þessum staðreyndum nærðist frumkristnin. I krafti þeirra sögðu vottarnir, þegar þeir stóðu andspænis dómurum sínum, limlestingum og dauða: „Vér getum ekki annað en talað það, sem vér höfum heyrt og séð“. Skömmu áður en greindar- og merkiskonan, frk. Guðrún kenn- ari Blöndal, andaðist, sagði hún við mig: „Nú les ég ekki lengur, en ég rifja upp fyrir mér það bezta, sem ég hef áður lesið og lært. Ég held að ekkert af því vilji ég síður missa en söguna af rökkurgöngunni til Emmaus." Ég get trúað því, að svo muni um fleiri. Textílsýning í kjall- ara Norræna hússins Tcxtílfélagið gengst fyrir sam- sýningu í kjailara Norræna húss- ins og var , sýningin opnuð í gær kl. 14. Er þetta fyrsta samsýning félagsins, en gert er ráð fyrir að slikar sýningar verði framvegis á dagskrá annað hvert ár. Á sýningunni eru verk eftir 17 félagsmenn Textílfélagsins sem sýna myndvefnað, tauþrykk, fata- hönnun, almennan vefnað, véla- vefnað o.fl. Er tilgangur sýningar- innar að sýna það nýjasta sem félagsmenn eru að vinna að. Textílfélagið var stofnað árið 1974 og telur nú 21 félagsmann. Stærsta verkefnið sem félagið hefur ráðist í til þessa er undir- búningur og umsjá norrænar Textiletrienale, sýningar, sem fór um öll Norðurlöndin og var á Kjarvalsstöðum í janúar í fyrra. Sýningin verður opin daglega kl. 14—22 og lýkur henni mánudaginn 10. apríl. Sýningarnefnd skipa: Eva Vilhjálmsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Jónasdótt- ir, Ragna Róbertsdóttir og Stein- unn Bergsteinsdóttir. Bátur til sölu 8 tonna bátur er til sölu. Bátnum fylgja 4 rafmagnshandfærarúllur, dýptarmælar, spil og talstöö. Ný vél er í bátnum. Upplýsingar í síma 50462. Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu kjoluin pevsum 1 e/ sikyrtum. HAGKAUP SKEIFUNN115 ClTROÉN^ Þjónusta Til aö veita eigendum Citroén bílanna ennþá betri þjónustu, höfum viö flutt í nýtt og fullkomiö húsnæöi aö Smiöjuvegi 32, Kópavogi, og jafnframt leggst niöur rekstur verkstæöisins aö Reykjavíkurvegi 45, Hafnarfiröi. CITROÉN^ Þjónustuverkstæöi Bílaverkstæöiö BRETTI Smiöjuvegi 32, Kópavogur. Sími 75155 og 75156.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.