Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 1

Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 1
48 SIÐUR OG LESBOK Beinar kosning- ar til Evrópu- þingsins 1979 Kaupmannahöfn, 7. apríl. Reuter. AÐILDARRÍKI Efnahags- bandalagsins ákváðu í dag að fyrstu beinu kosningarn- ar til Evrópuþingsins skyldu fara fram í júní á næsta ári. Þar með er lokið margra mánaða þófi og ósamkomulagi og mikilvægt skref hefur verið stigið í átt til einingar Evrópu. Æðstu menn bandalagsins náðu einnig skjótu sam- komulagi á fyrsta degi fund- ar síns í Kaupmannahöfn um grundvallaryfirlýsingu sem er birt samtfmis því sem umsóknir um aðild að bandalaginu berast frá þremur löndum sem lutu einræðisstjórnum þar til nú fyrir skemmstu — Grikk- land, Portúgal og Spáni. Virðing fyrir lýðræði og mann- réttindum er mikilvæg forsenda fyrir aðild að EBE segir í þessari yfirlýsingu. Frakklands- forseti aldrei vinsælli París, 7. apríl. Reuter. VINSÆLDIR Giscards d'Estaing Frakklandsíorseta hafa stóraukizt eftir sigur mið- og hægriflokkanna í kosningunum í fyrra mánuði að því er segir í niðurstöðum skoðanakönnunar, sem var birt í dag í blaðinu France Soir. Þar kemur fram. að 59% Frakka kváðust vera ánægð með störf forsetans í marz- mánuði og hinir óánægðu voru nú 30% en voru 38% í febrúar- mánuði. Vinsældir forsetans hafa ekki í annan tíma verið meiri síðan hann var kjörinn Frakk- landsforseti t' maí 1974. Aðalumræðuefni fundarins sem stendur í tvo daga eru leiðir til að endurvekja hagvöxt, barátta gegn atvinnuleysi og sú hætta sem Vestur-Evrópu er búin af völdum umróts í alþjóðagjaldeyrismálum og lækkandi gengis dollarans. Valery Giscard d‘Estaing Framhald á bls. 28 Peking: Gagnrýni á Wu Teh eykst Pelting, 7. apr. Reuter. FJÖLDI manns safnaðist saman á götum Peking í dag til að lesa þar á veggspjöldum hinar harð- vítugustu árásir á Wu Teh. borgarstjóra. reyndan kínversk- an leiðtoga sem nefndur hefur verið upp á síðkastið sem stuðn- ingsmaður „bófanna fjögurra“. Wu sem á sæti í stjórnmálaráð- inu virðist eiga í vök að verjast og hafa átt það um hríð, en þessar veggspja’daatlögur að honum nú eru þær mestu sem hafa verið gerðar að honum síðan árið 1976 er ekkja Maos og þrír aðrir fylgismenn hennar voru hreinsað- ir. Wu hefur þó nokkrum sinnum sætt gagnrýni áður þótt ekki hafi hún verið jafn mögnuð og nú. Hann er varaformaður þings alþýðunnar. Frá fundi forystumanna Efnahagsbandaiagsríkja sem hófst í Kaupmannahöfn í gær. Á myndinni ræðir Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur, við Helmut Schmidt, kanzlara V-Þýzkalands, og Giscard d'Estaing. Frakklandsforseti hlustar á. Norskir hermenn fyrir árás Palestínumanna Beirut, Metula, Tel Aviv, 7. apr. AP. Reuter. OPINBERAR heimildir skýrðu frá því í kvöld, að hermenn írá Noregi í gæzlu* sveitum Sameinuðu þjóð- anna í Suður-Líbanon hefðu orðið fyrir skothríð og eld- Brezkir íhaldsmenn: Vilja kvóta á hörunds- dökka innflytjendur London 7. apríl. Reuter BREZKI íhaldsflokkurinn gerði í dag heyrum kunnar mjög einarð- ar tillögur sem miða að því að draga úr innflutningi fólks af öðrum kynþætti en þeim hinum hvíta. William Whitelaw varafor- maður flokksins greindi frá tillög- unum sem gera ráð fyrir ákveðn- Gutenberg-biblía á 508 milljónir New York, 7. apríl Reuter. GUTENBERG-biblía, ein af sjald- gæfustu bókum heims, var seld á uppboði hjá Christie í New York í kvöld fyrir tvær milljónir dollara (um 508 miilj. ísl. kr.) Biblían er í tveimur bindum og hefur ekki verið gefið upp nafn eiganda hennar. Martin Breslau- er, bóksali í New York, sem keypti bókina, sagði að hann hefði verið staðráðinn » því að kaupa bibiíuna, hvað sem hann hefði þurft að greiða fyrir hana. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir bók á slíku uþpboði. Það sem áður var hæst í Banda- ríkjunum var fyrir „Birds of America“ eftir J.J. Audubon og voru fyrir hana dreiddir 360 þús. dollarar. Talið er að nú séu ekki nema um 47 Gutcnbergbiblíur til í öllum heimi. Breslau mun hafa keypt biblíuna fyrir ríkisbókasafnið í Stuttgart í V-Þýzkalandi. í fréttum um uppboðið segir að meðal þeirra sem hefðu komið áður en uppboðið hófst að skoða Guten- bergbiblíuna, sem er talin einhver fegursta bók sem prentuð hefur verið, hafi verið Hans nokkur Kraus, sem átti sína eigin Guten- bergbiblíu þar til fyrir tveimur vikum, að hann seldi hana Guten- bergsafninu í Mainz í Vest- ur-Þýzkalandi. fyrir 1.8 millj. dollara. um kvóta innflytjenda sem verði leyft að koma til Bretlands. Þar er einnig lagt bann við að eiginmenn og unnunstar kvenna frá Samveld- islöndunum sem komnar eru til Bretlands fái leyfi til að koma inn í landið. Þá er almennt í tillögun- um gert ráð fyrir að fólk af öðrum kynþætti fái helzt ekki atvinnu- leyfi í Bretlandi. Stjórn Verkamannaflokksins sagði í gær, að hún myndi ekki beita sér fyrir neinum róttækum breytingum á lögum um inn- flytjendur, en málið hefur verið mjög til umræðu síðan formaður íhaldsflokksins, Margaret Thatc- her, kvað upp úr með það fyrir skömmu að takmarka ætti inn- flutning hörundsdökkra manna til Bretlands. Þó svo að hún sáetti gagnrýni fyrir „kynþáttahatur" kom í Ijós í skoðanakönnunum skömmu síðar, að fylgi íhalds- flokksins hafði aukizt að mun og stuðningur fólks við hugmyndir Thatchers mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Ymsir talsmenn samtaka erlendra innflytjenda af Asíu-þjóð- um hafa látið í ljós mikla gremju með tillögur íhaldsflokksins og segja vítavert að Ihaldsflokkurinn sé að kynda undir kynþáttahatur og telji sér verða það til framdrátt- ar í næstu kosningum. flaugaárás af hálfu Pale- stínumanna. Einn Norð- maður mun hafa særzt. Þetta gerðist í Kawkabahér- aði í suðausturhluta gæzlu- svæðisins. Mjög takmarkað hefur enn verið sagt frá þessu af hálfu opinberra aðila en vitað er að Emman- uel Erskine, yfirmaður gæzlusveitanna í Suður-Líb- anon, fór um Kawkaba í dag til að kanna málið. Norsku hermennirnir hafa lent f hinum mestu þrengingum því að hægri sinnaðir her- flokkar Líbana skammt frá Metula, undir stjórn Sad Haddads majors, hafa hótað að gera að þeim hríð, ef þeir vikju ekki frá ákveðnum stöðum á þessu svæði, þar sem Líbanir kváðust vita að Paiestínumenn hefðu búið um sig. Sad Haddad er mjög andvígur veru gæzlusveita Sameinuöu þjóð- anna í Suður-Líbanon og segir að sínir menn — þ.e. kristnir hægri- sinnar — kjósi að Israelar útkljái málin og augljóst sé að gæzlusveit- irnar muni aldrei geta haft hemil á skæruliðum Palestínumanna. Róttækir Palestínumenn í suð- austurhluta landsins hafa og velgt eftirlitssveitunum undir uggum með því að halda uppteknum hætti pg gera hríð að stöðvum sem ísraelar ráða enda þótt gæzlu- Framhald á bls. 28 11 ára móðir í Argentmu Mar del Plata, Argentínu 7. apríl. Reuter. ELLEFU ára gömul telpa ól fyrir fáeinum dögum barn sem vó 3.5 kg og var heilbrigt og vel skapað. Fæðingin er-sögð hafa gengið að óskum og heilsast móður og barni vel. Nafn telpunnar hefur ekki verið gefið upp. Heimildir Reuterfréttastofunnar sögðu. að móðir stúlkunnar hefði fyrir nokkrum mánuðum kært til lögreglu að dóttur sinni hefði verið nauðgað. Skotid á iðjuhöld í Genúa í gær - frá Moro heyrist ekkert Rómaborg, 7. apríl. AP. í BRÉFI frá eiginkonu Aldo Moros sem birt er á forsíðu blaðsins II Giorno á Ítaiíu í morgun segir að hún vonist til þess að eiginmaður hennar verði leystur úr haldi en hún bætti við, að „því er verr. að enn hefur ekkert gerzt, sem hefur getað vakið með okkur vonir og bjart- sýni“. Elenoura Moro segir í bréfinu að fegin vildu hún að maður sinn vissi að heðið væri fyrir honum þessar löngu stund- ir. Frá ræningjum Moros heyrðist ekki í dag varðandi framsal hans. En í mörgun réðust tveir byssu- bófar með hljóðdeyfi á vopnum - Framhald á bls. 28

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.