Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 1
48 SIÐUR OG LESBOK
Beinar kosning-
ar til Evrópu-
þingsins 1979
Kaupmannahöfn, 7. apríl. Reuter.
AÐILDARRÍKI Efnahags-
bandalagsins ákváðu í dag
að fyrstu beinu kosningarn-
ar til Evrópuþingsins
skyldu fara fram í júní á
næsta ári. Þar með er lokið
margra mánaða þófi og
ósamkomulagi og mikilvægt
skref hefur verið stigið í átt
til einingar Evrópu.
Æðstu menn bandalagsins
náðu einnig skjótu sam-
komulagi á fyrsta degi fund-
ar síns í Kaupmannahöfn
um grundvallaryfirlýsingu
sem er birt samtfmis því sem
umsóknir um aðild að
bandalaginu berast frá
þremur löndum sem lutu
einræðisstjórnum þar til nú
fyrir skemmstu — Grikk-
land, Portúgal og Spáni.
Virðing fyrir lýðræði og mann-
réttindum er mikilvæg forsenda
fyrir aðild að EBE segir í þessari
yfirlýsingu.
Frakklands-
forseti aldrei
vinsælli
París, 7. apríl. Reuter.
VINSÆLDIR Giscards
d'Estaing Frakklandsíorseta
hafa stóraukizt eftir sigur
mið- og hægriflokkanna í
kosningunum í fyrra mánuði
að því er segir í niðurstöðum
skoðanakönnunar, sem var
birt í dag í blaðinu France
Soir. Þar kemur fram. að 59%
Frakka kváðust vera ánægð
með störf forsetans í marz-
mánuði og hinir óánægðu voru
nú 30% en voru 38% í febrúar-
mánuði.
Vinsældir forsetans hafa
ekki í annan tíma verið meiri
síðan hann var kjörinn Frakk-
landsforseti t' maí 1974.
Aðalumræðuefni fundarins sem
stendur í tvo daga eru leiðir til að
endurvekja hagvöxt, barátta gegn
atvinnuleysi og sú hætta sem
Vestur-Evrópu er búin af völdum
umróts í alþjóðagjaldeyrismálum
og lækkandi gengis dollarans.
Valery Giscard d‘Estaing
Framhald á bls. 28
Peking:
Gagnrýni á
Wu Teh eykst
Pelting, 7. apr. Reuter.
FJÖLDI manns safnaðist saman
á götum Peking í dag til að lesa
þar á veggspjöldum hinar harð-
vítugustu árásir á Wu Teh.
borgarstjóra. reyndan kínversk-
an leiðtoga sem nefndur hefur
verið upp á síðkastið sem stuðn-
ingsmaður „bófanna fjögurra“.
Wu sem á sæti í stjórnmálaráð-
inu virðist eiga í vök að verjast og
hafa átt það um hríð, en þessar
veggspja’daatlögur að honum nú
eru þær mestu sem hafa verið
gerðar að honum síðan árið 1976
er ekkja Maos og þrír aðrir
fylgismenn hennar voru hreinsað-
ir.
Wu hefur þó nokkrum sinnum
sætt gagnrýni áður þótt ekki hafi
hún verið jafn mögnuð og nú.
Hann er varaformaður þings
alþýðunnar.
Frá fundi forystumanna Efnahagsbandaiagsríkja sem hófst í Kaupmannahöfn í gær. Á myndinni ræðir
Anker Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur, við Helmut Schmidt, kanzlara V-Þýzkalands, og Giscard
d'Estaing. Frakklandsforseti hlustar á.
Norskir hermenn fyrir
árás Palestínumanna
Beirut, Metula, Tel Aviv,
7. apr. AP. Reuter.
OPINBERAR heimildir
skýrðu frá því í kvöld, að
hermenn írá Noregi í gæzlu*
sveitum Sameinuðu þjóð-
anna í Suður-Líbanon hefðu
orðið fyrir skothríð og eld-
Brezkir íhaldsmenn:
Vilja kvóta á hörunds-
dökka innflytjendur
London 7. apríl. Reuter
BREZKI íhaldsflokkurinn gerði í
dag heyrum kunnar mjög einarð-
ar tillögur sem miða að því að
draga úr innflutningi fólks af
öðrum kynþætti en þeim hinum
hvíta. William Whitelaw varafor-
maður flokksins greindi frá tillög-
unum sem gera ráð fyrir ákveðn-
Gutenberg-biblía
á 508 milljónir
New York, 7. apríl Reuter.
GUTENBERG-biblía, ein af sjald-
gæfustu bókum heims, var seld á
uppboði hjá Christie í New York
í kvöld fyrir tvær milljónir
dollara (um 508 miilj. ísl. kr.)
Biblían er í tveimur bindum og
hefur ekki verið gefið upp nafn
eiganda hennar. Martin Breslau-
er, bóksali í New York, sem
keypti bókina, sagði að hann hefði
verið staðráðinn » því að kaupa
bibiíuna, hvað sem hann hefði
þurft að greiða fyrir hana. Þetta
er hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir bók á slíku uþpboði.
Það sem áður var hæst í Banda-
ríkjunum var fyrir „Birds of
America“ eftir J.J. Audubon og
voru fyrir hana dreiddir 360 þús.
dollarar. Talið er að nú séu ekki
nema um 47 Gutcnbergbiblíur til
í öllum heimi.
Breslau mun hafa keypt
biblíuna fyrir ríkisbókasafnið í
Stuttgart í V-Þýzkalandi.
í fréttum um uppboðið segir að
meðal þeirra sem hefðu komið áður
en uppboðið hófst að skoða Guten-
bergbiblíuna, sem er talin einhver
fegursta bók sem prentuð hefur
verið, hafi verið Hans nokkur
Kraus, sem átti sína eigin Guten-
bergbiblíu þar til fyrir tveimur
vikum, að hann seldi hana Guten-
bergsafninu í Mainz í Vest-
ur-Þýzkalandi. fyrir 1.8 millj.
dollara.
um kvóta innflytjenda sem verði
leyft að koma til Bretlands. Þar er
einnig lagt bann við að eiginmenn
og unnunstar kvenna frá Samveld-
islöndunum sem komnar eru til
Bretlands fái leyfi til að koma inn
í landið. Þá er almennt í tillögun-
um gert ráð fyrir að fólk af öðrum
kynþætti fái helzt ekki atvinnu-
leyfi í Bretlandi.
Stjórn Verkamannaflokksins
sagði í gær, að hún myndi ekki
beita sér fyrir neinum róttækum
breytingum á lögum um inn-
flytjendur, en málið hefur verið
mjög til umræðu síðan formaður
íhaldsflokksins, Margaret Thatc-
her, kvað upp úr með það fyrir
skömmu að takmarka ætti inn-
flutning hörundsdökkra manna til
Bretlands. Þó svo að hún sáetti
gagnrýni fyrir „kynþáttahatur"
kom í Ijós í skoðanakönnunum
skömmu síðar, að fylgi íhalds-
flokksins hafði aukizt að mun og
stuðningur fólks við hugmyndir
Thatchers mun meiri en gert hafði
verið ráð fyrir.
Ymsir talsmenn samtaka
erlendra innflytjenda af Asíu-þjóð-
um hafa látið í ljós mikla gremju
með tillögur íhaldsflokksins og
segja vítavert að Ihaldsflokkurinn
sé að kynda undir kynþáttahatur
og telji sér verða það til framdrátt-
ar í næstu kosningum.
flaugaárás af hálfu Pale-
stínumanna. Einn Norð-
maður mun hafa særzt.
Þetta gerðist í Kawkabahér-
aði í suðausturhluta gæzlu-
svæðisins. Mjög takmarkað
hefur enn verið sagt frá
þessu af hálfu opinberra
aðila en vitað er að Emman-
uel Erskine, yfirmaður
gæzlusveitanna í Suður-Líb-
anon, fór um Kawkaba í dag
til að kanna málið. Norsku
hermennirnir hafa lent f
hinum mestu þrengingum
því að hægri sinnaðir her-
flokkar Líbana skammt frá
Metula, undir stjórn Sad
Haddads majors, hafa hótað
að gera að þeim hríð, ef þeir
vikju ekki frá ákveðnum
stöðum á þessu svæði, þar
sem Líbanir kváðust vita að
Paiestínumenn hefðu búið
um sig.
Sad Haddad er mjög andvígur
veru gæzlusveita Sameinuöu þjóð-
anna í Suður-Líbanon og segir að
sínir menn — þ.e. kristnir hægri-
sinnar — kjósi að Israelar útkljái
málin og augljóst sé að gæzlusveit-
irnar muni aldrei geta haft hemil
á skæruliðum Palestínumanna.
Róttækir Palestínumenn í suð-
austurhluta landsins hafa og velgt
eftirlitssveitunum undir uggum
með því að halda uppteknum hætti
pg gera hríð að stöðvum sem
ísraelar ráða enda þótt gæzlu-
Framhald á bls. 28
11 ára
móðir í
Argentmu
Mar del Plata, Argentínu
7. apríl. Reuter.
ELLEFU ára gömul telpa ól
fyrir fáeinum dögum barn sem
vó 3.5 kg og var heilbrigt og
vel skapað. Fæðingin er-sögð
hafa gengið að óskum og
heilsast móður og barni vel.
Nafn telpunnar hefur ekki
verið gefið upp. Heimildir
Reuterfréttastofunnar sögðu.
að móðir stúlkunnar hefði
fyrir nokkrum mánuðum kært
til lögreglu að dóttur sinni
hefði verið nauðgað.
Skotid á iðjuhöld
í Genúa í gær
- frá Moro heyrist ekkert
Rómaborg, 7. apríl. AP.
í BRÉFI frá eiginkonu Aldo
Moros sem birt er á forsíðu
blaðsins II Giorno á Ítaiíu í
morgun segir að hún vonist til
þess að eiginmaður hennar verði
leystur úr haldi en hún bætti við,
að „því er verr. að enn hefur
ekkert gerzt, sem hefur getað
vakið með okkur vonir og bjart-
sýni“. Elenoura Moro segir í
bréfinu að fegin vildu hún að
maður sinn vissi að heðið væri
fyrir honum þessar löngu stund-
ir.
Frá ræningjum Moros heyrðist
ekki í dag varðandi framsal hans.
En í mörgun réðust tveir byssu-
bófar með hljóðdeyfi á vopnum
- Framhald á bls. 28