Morgunblaðið - 08.04.1978, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 08.04.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 3 Kammersveit Reykjavíkur heldur tónleika í Menntaskólanum við Hamrahlíð sunnudag kl. 17. Tónleikar Kammer- sveitar Reykjavíkur Kammersveit Reykjavíkur heldur tónleika í Menntaskólan- um við Hamrahlíð sunnudaginn 9. apríl og hefjast þeir kl. 17. Á efnisskránni verða verk eftir sænsku tónskáldin Ingvar Lind- holm, Miklós Maros, Sven-Davíð Sandström, Eskil Hemberg og Sven-Erik Báck. Þá verður einnig frumfluttur strengja- kvartett eftir John Speight, en hann hefur stundað tónlistar- kennslu hérlendis undanfarin ár. Einsöngvari á tónleikunum verður söngkonan Ilona Maros. Hún lærði í Búdapest og Stokk- hólmi og hefur sungið í Svíþjóð og víðar um lönd og inn á nokkrar plötur. Er hún einkum þekkt fyrir túlkun sína á samtímatónlist. Hún hefur áður komið hingað til lands, er hún söng með Sinfóníu- hljómsveit íslands á kammertón- leikum á „Norrænum músíkdög- um“ 1976. Stjórnandi tónleikanna vérður Miklós Maros. Hann nam tón- smíðar í Búdapest og Stokkhólmi, m.a. hjá Ingvar Lindholm. Hann starfar nú í Stokkhólmi að tónsmíðum, hljómsveitar- stjórn, leggur stund á raftónlist og er kennari við tónlistarháskól- ann í Stokkhólmi. Ingvar Lind- holm var prófessor í tónsmíðum við tónlistarháskólann í Stokk- hólmi og er ásamt Sven-Erik Báck eitt helzta tónskáld Svía, segir í frétt frá Kammersveit Reykjavíkur. Sven-Erik Báck er skólatjóri og á tónleikunum er flutt eftir hann verkið Decet. Sven-David Sandström er eitt af yngri tónskáldum Svía og svo-er einnig um Eskil Hemberg sem starfar nú sem skipuleggjandi og stjórnandi háskólakórsins í Stokkhólmi. Hann er nú formaður sænska tónskáldafélagsins. Oxulþimgatakmarkanir á velflestum vegum 10 tonn ennþá leyfð á aðalleið Reykjavik- Hornafjörður „VORIÐ er farið að segja heldur betur til sín í vegunum og við höfum orðið að setja 7 tonna öxulþungahámark á vegi víðast hvar, nema á norðanverðum Til sólarlanda í vesturátt ÞOTA frá Air Bahama kom við á Keflavíkurflugvelli í gær til þess að taka 71 íslenzkan hópferöafarþega til Bahma og Florida, en 40 fóru til Bahamá og 31 til Florida í fyrstu hópferð Flugleiða á þessar slóðir. Er hér um tilraun að ræða, að sögn Sveins Sæmundssonar maðafull- trúa, til þess að gefa íslendingum kost á aö kynnast möguleikum sólarstranda í vesturátt. Vestfjörðum og Norðausturlandi. Þó er hámarksþungi enn 10 tonn á aðalleiðinni milli Reykjavíkur og Hornaf jarðar og á vegunum til Þorlákshafnar, Eyrarbakka og Stokkseyrar, en annars staðar eru takmarkanir komnar á,“ sagði Hjörleifur Ólafsson hjá vegaeftirlitinu í samtali við Mbl. í gær. Varðandi færð vegna snjóa sagði Hjörleifur, að „það, sem á annað borð er fært á þessum árstíma vegna snjóa, er fært“. Breiðdals- heiði og Botnsheiði lokuðust þó aftur í gær vegna snjókomu, en í gær var unnið fjórða daginn í röð að mokstri á Fjarðarheiði og stóðu vonir til að hún yrði fær í gærkvöldi. Færeysku loðnuskipin fóru fram yfir kvótann FÆREYSKA blaðið Dimmalætt- ing skýrir frá því fyrir skömmu, að heildarafli færeysku loðnubát- anna á íslandsmiðum hafi numið 36.305 lestum á vertíðinni, en skipin höfðu heimild til að veiða 35.000 lestir upphaflega, þannig að Færeyingar fóru 1300 tonn yfir markið. Það voru 12 færeysk loðnuskip, sem stunduðu loðnuveiðar við ísland í vetur. Fóru skipin alls 60 ferðir á íslandsmið og meðalafli í veiðiferð hefur því verið 600 lestir. Af færeysku skipunum fiskaði Krúnborg mest eða 5.601 lest, Christian í Grjótinum fékk 4.573 lestir, Jupiter 4.034 en önnur skip voru undir 3000 lestum. Samningafund- ir við flugmenn SAMNINGAFUNDIR eru í gangi um þessar mundir hjá Flugleiðum og flugmönnum. Flugmenn Loft- leiða og Flugleiðir voru á fundi í fyrradag og næsti fundur hefur verið boðaður n.k. mánudag, en þann dag verður einnig samninga- fundur hjá Flugleiðum og Félagi íslenzkra atvinnuflugmanna. „Sameining starfsaldurs- lista eina lausnin á óvióun- andi deilumáli flugmanna” — segir Björn Guðmundsson form. Félags ísl. atvinnuflugmanna MORGUNBLAÐIÐ hafði Guðmundsson flugstjóra, atvinnuflugmanna, og in félagsmanna FÍA vegna þei síðustu daga um kjaramál Flugleiða. Björn kvað flugmönnum hafa orðið það ljóst þegar Loftleiðir og Flugfélag Islands voru sam- einuð árið 1973, að það hlyti að koma til þess að sameiningin yrði algjör og þar með að starfsaldurslistar flugmanna yrðu sameinaðir. „Það varð ósamkomulag í stéttarfélagi flugmanna á þessum tíma og er enn,“ sagði Björn, „og undirrót- in tengist sameiningu félaganna vegna þess að ekki var gengið endanlega frá málum flug- manna. Þau voru látin liggja á millli hluta. Ennþá eru það aðeins flugmenn sem eru starfs- menn sitt hvors flugfélagsins. Þetta hlýtur hins vegar að verða einn pakki hvort sem mönnum líkar betur eða verr, en eðli- legast hefði verið að ganga frá þessum málum strax. Þróun málsins hefur tekið þá stefnu að á föstudaginn fyrir s.l. Pálmasunnudag ákvað stjórn Flugleiða að hafa forgang um þessa sameiningu og um það er ekkert nema gott að segja. Það þýðir þó ekki endilega, að við séum sammála öllum hugmynd- um Flugleiða, en styðjum að stuðlað verði að því að flugmenn verði sameinaðir í eina heild og á einn starfsaldurslista. Flug- leiðir hafa stungið upp á því að útlendur sérfræðingur úr röðum flugmanna verði fenginn til þess að aðstoða við lausn þessa máls og þá hugmynd styðjum við af heilum hug. Þá er rétt að taka fram að ég er Flugleiðum 100% sammála um erfiðleikana á Norður-Atl- antshafsfluginu, nema hvað ég lít þá þróun heldur dekkri augum en Flugleiðamenn og tel hana mjög varasama. Sú þróun ætti að brýna menn til þess að taka heldur betur samari í gær samband við Björn formann Félags íslenzkra nti hann álits á afstöðu rra umræðna sem orðið hafa og félagsmál flugmanna og höndum ef það á að halda þeim hlut og sessi sem Flugleiðir hafa haslað sér á þessari flugleið. Fargjaldaþróunin er einnig mjög hættuleg og alvarleg fyrir vesturflug Flugleiða, en hins vegar er ég ákaflega bjartsýnn á flugið milli íslands og annarra Evrópulanda, sérstaklega hóp- farþegaflugið. Það er þó alls ekki skoðun mín að þetta sé allt að fara til fjandans, en hitt er ljóst að við verðum að halda vel á spöðunum til þess að tapa ekki stöðunni í þessu flugi með harðnandi samkeppni. Varðandi þá deilu sem komin er upp á yfirborðið síðustu daga finnst okkur tilefnislaust að draga okkur inn í hana, því við eigum engan hiut að máli. Hitt er svo, að þegar dregur til kjarasamninga er það viðtek- in venja hjá forstjórum Flug- leiða að setja á sig geislabaug og tíunda hvað við höfum í laun. Við viljum hins vegar vekja athygli á því í sambandi við upplýsingar Flugleiða um sundrungu innan flugmanna- stéttarinnar, að vandamálið er ekki aðeins sundrung flug- manna, heldur einnig annars starfsfólks, því það er ekki eðlilegur félagsgrundvöllur inn- an starfsliðs Flugleiða og einnig eru mjög skiptar skoðanir í grundvallaratriðum hjá sjálfum stjórnendum Flugleiða. Varðandi ýmis atriði sem nefnd hafa verið í okkar kröfum er rétt að undirstrika að kröfur um meira orlof byggjast á því að við fáum sama sumarorlof og aðrir landsmenn. Það verður einnig að hafa í huga að starf flugstjóra og flugmanna krefst mikillar árvekni í starfi og mikillar snerpu. Því viljum við styttingu á vinnutíma að við teljum vinnudaginn of langan. Við viljum einnig í framhaldi af því að forstjórar Flugleiða hafa birt launasamning okkar, spyrja hvað þessir herrar hafa í laun, forstjórarnir og fram- kvæmdastjórarnir til dæmis. Geta þeir ekki tjáð þjóðinni það án þess að draga undan og fróðlegt væri að sjá súlurit á samanburði launa þeirra og Dagsbrunarmanna. Björn kvað forráðamönnum Flugleiða verða tíðrætt um slæmt samstarf milli flugmanna Loftleiða og flugmanna Flug- félags íslands en undirrótina væri m.a. að rekja til þess, að Loftleiðaflugmenn hefðu magn- að draug og sumir forystumenn Loftleiða hefðu kynt yndir í þeim efnum. Björn sagði að flugmenn FIA vildu undirstrika að uppsagnir og ráðningar flugmanna Loft- leiða og Flugfélags íslands væru í höndum vinnuveitandans og því væri ómögulegt að beina þeim orðrómi að flugmönnum FÍA, að þeir hefðu eitthvað að segja í þeim efnum. Björn kvað það hafa komið fram hjá flugmönnum Loftleiða að þeir væru andsnúnir því að færa til menn í starfi eins og verið væri að gera með flug- menn á Fokkerum yfir á DC-8. „Þetta er mjög furðuleg af- staða,“ sagði Björn, „og við sjáum ekki á hvaða grundvelli þeir geta verið andsnúnir þessu fyrirkomulagi að fá til liðs í fluginu flugmenn sem hafa hlotið hörðustu þjálfun í flugi sem unnt er að fá, íslenzkt veður og íslenzkar aðstæður. Þá er rétt að geta þess að umræddum 10 flugmönnum Loftleiða var sagt upp á sínum tíma árið 1973 vegna þess að fækkað varí vélakosti Loftleiða um eina vél og samdráttur varð í vesturfluginu og hins ber einnig að geta að allir þessir 10 flugmenn eru nú aftur í starfi hjá Loftleiðum. Framhald á bls. 28 Fáskrúðsfjörður: Frystihúsin hafa ekki undan að vinna allan afi- ann sem kemur á land Fáskrúðsfirði, 6. apríl. Mikill afli hefur borizt á iand á Fáskrúðsfirði undanfarið. í gær og í dag landaði Ljósafell SU 150 lestum og var meginhluti aflans þorskur. Á mánudag og þriðju- dag var landað úr Hoffelli SU 75 lestum og var aflanum úr togar- unum landað hjá Hraðfrystihúsi Fáskrúðsf jarðar. Fjórtán tonnum af þessum afla var ekið til Breiðdalsvíkur og einum bflfarmi var ekið til Borgaríjarðar eystri, en þangað er um 160 km leið. Frá áramótum hefur Ljósafell landað 749 lestum og Hoffell 716. Þrír netabátar eru nú gerðir út frá Fáskrúðsfirði og leggja upp hjá Pólarsíld. Þorri landaði í dag 38 lestum. í gær var Sólborg hér inni með 44 lestir. Guðmundur Krist- inn, sem áður var á loðnu, er nú kominn á net og hefur landað einu sinni. Frá upphafi vertíðar hefur Þorri fengið 305 lestir og Sólborg 295 lestir. Þrír 12 lesta bátar hafa róið með línu undanfarið og fiskað mikið af steinbít í fjarðarmynninu. Hafa þeir komið með inn allt að 2,5 tonn úr róðri, en aðeins er róið með 10—12 bjóð. Einn bátanna leggur upp hjá Pólarsíld, en hinir tveir hjá Hraðfrystihúsi Fáskrúðsfjarð- ar. Róðrar þeirra hafa nú verið SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur, að tillögu Hafrannsókna- stofnunarinnar. gefið út reglu- gerð um lágmarksmöskvastærð loðnunóta og skal möskvastærðin vera minnst 64 mm, og að því er segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu, svari það tii 64 umferða á alin eins og yfirleitt sé miðað við. Reglugerð þessi er sett til þess að hindra að þróun hér á landi verði sú sama og í Noregi, en þar er nú algeng möskvastærð á sumarveiðum 15—16 mm. Slíkur riðill er það smár, að jafnan veiðist mikið af smáloðnu á 2. ári. Sú lágmarksmöskvastærð, sem hér er ákveðin, er í samræmi við stöðvaðir, sökum þess að frysti- húsið hefur ekki annað að vinna allan þann fisk sem hingað berst nú á land. þær möskvastærðir, sem eru notaðar hér, segir í tilkynningu ráðuneytisins. I tillögum Haf- rannsóknastofnunarinnar segir að þessi möskvastærð leiði til þess að langmestur hluti þeirrar loðnu, sem er 12 mm að lengd eða minni, smjúgi riðilinn og veiðist ekki. Prófkjörið í Garðabæ í KYNNINGU á frambjóðendum við prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í blaðinu í gær misritað- ist aldur Margrétar G. Thorlacius. Hún er 37 ára. Reglugerð sett um lág- mark möskvastærð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.