Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 5

Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 5 Sigurgeir Sigurðsson Magnús Erlendsson Snæbjörn Asgeirsson Júlíus Sólnes Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins á Seltjarnarnesi FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- flokksins á Seltjarnarnesi við komandi bæjarstjórnarkosningar hefur verið lagður fram í Seltjarn- arneskaupstað. Ákveðið var að úrslit prófkjörsins, sem fór fram 4., 5. og 6. marz sl., skyldi gilda fyrir 13 efstu sætin, en um 800 manns tóku þátt í prófkjörinu. Fjórtánda sæti listans skipar Karl B. Guðmundsson viðskiptafræð- ingur, sem víkur nú úr bæjar- stjórn að eigin ósk. Hann hefur setið óslitið í bæjarstjórn frá 1962 og lengst af oddviti og síðar forseti. Annars er framboðslistinn þannig skipaður: 1. Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri, Miðbraut 29, 2. Magnús Erlendsson fulltrúi, Sævargörðum 7, 3. Snæbjörn Asgeirsson fram- kvæmdastjóri, Lindarbraut 29, 4. Júlíus Sólnes prófessor, Tjarn- arbóli 8, 5. Guðmar E. Magnússon verzlun- armaður, Barðaströnd 23, 6. Jón Gunnlaugsson læknir, Skólabraut 61, 7. Helga M. Einarsdóttir húsfrú, Lindarhraut 26, 8. Áslaug G. Harðardóttir hús- móðir, Látraströnd 6, 9. Finnbogi Gíslason skipstjóri, Barðaströnd 3, 10. Skúli Júlíusson rafverktaki, Skólabraut 13, 11. Auður Eir Guðmundsdóttir húsmóðir, Melabraut 36, 12. Erna Nielsen húsmóðir, Barðaströnd 11, 13. Guðmar Marelsson sölustjóri, Unnarbraut 17, 14. Karl B. Guðmundsson við- skiptafræðingur, Skólabraut 7. Jón Gunnlaugsson Helga M. Einarsdóttir Lone Pine-skákmótið: NáMargeirog Helgi árangri alþjóðameistara? í 5. UMFERÐ alþjóða skák- mótsins í Lone Pine í Bandaríkj- unum urðu úrslit þau m.a., að Helgi Ólafsson sigraði banda- ríska stórmeistarann Christian- sen og Margeir Pétursson gerði jafntefli við júgóslavneska stór- meistarann Sakovic. Þeir Helgi og Margeir hafa nú 3 vinninga og eiga báðir möguleika á því að fá hálfan titil alþjóðlegs meist- ara ef þeir halda sínu striki. Helgi hefur áður unnið til slíks og ef hann nær aftur árangri alþjóðameistara á þessu skák- móti hlýtur hann þá nafnbót. Rússin Lev Polugaevsky er í efsta sæti sem stendur með 4 'h vinning. Af öðrum íslenzkum keppend- um er það að frétta, að í 5. umferð tefldi Haukur Angan- týsson gegn Júliusi Loftssyni og sigraði Haukur. Þeir Jónas P. Erlingsson og Ásgeir Þ. Árna- son töpuðu báðir, Jónas fyrir Verduga frá Ekvador og Ásgeir fyrir Bretanum Taulbut. Hauk- ur hefur nú 2 vinninga, Ásgeir 3‘h og Jónas 'h vinning. 6 umferðin verður tefld á sunnu- dag. Islenzku þátttakendunum á alþjóða skákmótinu í Lone Pine gekk mjög illa í 4: umferð mótsins. Fjórir þeirra töpuðu sínum skákum en Helgi Ólafs- son náði jafntefli gegn banda- ríska stórmeistaranum Evans. Margeir Pétursson tefldi við enska stórmeistarann Miles og var skákin í jafnvægi til að byrja með. En í 13. leik lék Margeir slæmum leik og eftir það hallaði stöðugt undan fæti og gaf Margeir skákina í 33. leik. Hann hafði svart. Ásgeir Þ. Árnason tefldi við Ligterink og tapaði og sömuleið- is tapaði Haukur Angantýsson fyrir bandaríska stórmeistaran- um Tarjan. Þá tapaði Jónas P. Erlingsson fyrir Whitehead. Hér fer á eftir sigurskák Helga Ólafssonar gegn Christ- iansen: Ilvítti Christiansen, Banda- ríkjunum. Svarti Ilelgi Ólafsson. I.c4-Rf6, 2. Rc3 — c5,3. RÍ3 — d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. e3 — Rxc3, 6. bxc3 — g6, 7. Bc4 — Bg7, 8. h4 - h6, 9. Dc2 - Dc7, 10. Hbl - b6, 11. Bd5 - Rc6. 12. c4 - (H), 13. h5 - g5, 14. Bb2 — e6,15. Bxc6 — Dxc6,16. Bxg7 - Kxg7, 17. Dc3+ - f6, 18. Dd3 - De8,19. a4 - e5,201 a5 - Bg4, 21. Rh2 - Bxh5, 22. axb6 — Bg6, 23. e4 — Dc6, 24. 13 - axb6, 25. Rg4 - Hfd8,26. Db3 - Bxe4!, 27. Hxh6 - Ild6. 28. Kf2 - Hxd2+, 29. Kg3 - Haa2, 30. Hgl - Bg6, 31. De3 - Dd6, 32. Kh2 - Dd3, 33. Dxd3 - Hxd3, 34. Hbl - Hdd2, 35. Hxb6 - Hxg2+, 36. Kh3 - Hxg4, 37. Kxg4 og Christiansen gafst upp um leið. TORfiW pottaplöntusending HORTENSÍA Eg er kölluð hortensía en heiti fullu nafni Hydrangea Macrophylla, Hydrangea þýðir vatnskar, enda er ég sólgin í vatn og má ekki hugsa til þess aö vera vatnslaus. Þó ég segi sjálf frá, er ég orðin mjög vinsæl í seinni tíð, enda auðvelt að hafa mig á heimili. SENERARIA Það var árið 1777 að enskur garðyrkjumaöur Fransis Masson heimsótti mig til Kanaríeyja, en þaðan er ég ættuð. Masson leist strax mjög vel á mig og það varð til þess að hann tók mig meö til Englands, nú er ég orðin heimsfræg, þaö versta við mig er aö ég er alltaf þyrst. Fullu nafni heiti ég „Senecio hybridus". Lítiö við i Blómaval SÍSmarkaóstorg á ístendi btócnouol FiiiííhUisió mr '\irrrz^n l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.