Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 10

Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Úr skógræktarstöðinni í Skorradai. ræktarinnar í Skorradal verið í stuttu máli." „Hvenær tókst þú við skógar- varðarstöðunni í Skorradal og í hverju er starf þitt fólgið?" „Ég byrjaði að starfa í Skorradal árið 1959. Áður hafði Daníel Kristjánsson á Hreðavatni stjórnað þar framkvæmdum. Skógarvarða- starfið er nokkuð fjölþætt. Þar má nefna stjórnun á skógræktarfram- kvæmdum og daglegum rekstri, áætlanagerðir og reikningsskil, launagreiðslur og afurðasölu. Skógræktarstörfin eru fjölbreytt. Fyrst má nefna þegar landið er tekiö til skógræktar. Þá þarf fyrst að girða það. Giröingar þurfa svo alltaf töluvert viðhald á hverju vori. Ef gróðursetja á í kjarrlendi þarf fyrst að grisja fyrir gróðursetningu. Grisjun er þannig hagaö að stæðileg- ustu trén eru látin standa en kræklurnar felldar. Þetta þarf helzt að gera 1—2 árum áður en gróður- sett er í svæðið. Þessi fyrsta grisjun er unnin í tímavinnu eða ákvæðis- vinnu. Næst er að gróðursetja barrplöntur í landiö. í framhaldi af þessu mætti geta þess að okkur skógræktarmönnum er stundum legið á hálsi fyrir þessa aðferð við grisjun og plöntun í kjarrlendi. Getum við litið á skógrækt sem arðbœra atvinnugrein ? Viðhorf manna til ræktunar og verndar hvers kyns náttúruauðlinda á landí sem í sjó hefur mjög breytzt til batnaðar með peirri kynslóð sem nú lifir. Þessi mál eru ofarlega á baugi hvarvetna um heim og mönnum er Ijóst að í pessum málum verða allir aö halda vöku sinni. En mönnum er líka Ijóst að jafnvægi og skynsamlegar ráö- stafanir sem á rökum eru reistar verða að ríkja. Ekki má hlúa svo að einum pætti ræktunar til dæmis að gengið sé á annan. Áhugi fyrir skógrækt fer almennt vaxandi hér á landi hin síöustu ár og er enda ekki nema eðlileg afleiðing ötuls brautryðjendastarfs fremstu manna okkar á pví sviði. Þeir tala ekki lengur fyrir daufum eyrum. En pað er um skógrækt að segja að árangur af slíku starfi gefur ekki af sér í aöra hönd fyrr en aö nokkrum tíma liðnum og á tímum hraðans getur farið svo að menn skorti polinmæði. Mönnum hér á landi er ekki tamt að hugsa sér skógrækt sem at- vinnugrein, enda varla fyrr en á síöustu árum að hægt er að tala um hana sem slíka. Nytjar ræktaðs lands hafa fram til pessa nær eingöngu miðast viö hinn hefð- bundna búskap fjár- og nautpen- ings, enda má segja að landslög varðandi ræktun og nytjar míðist nær eingöngu við hann. En nú eru tilraunir við skógrækt svo langt komnar að mál er að islendingar fari að gera sér Ijósan pennan möguleika. Ágúst Árnasori, skógarvörður, annast framkvæmdir á vegum Skóg- ræktar ríkisins í Skorradal og undir hans handleiðslu hefur farið þar fram mikið og merkilegt starf í sögu skógræktar í þessum landshluta. Vissulega eru allir landsmenn sammála um að skógur prýðir landið, ver það uppblæstri og veitir skjól mönnum og málleysingjum. En hvað um skógrækt sem arðbæra atvinnu- grein? Við báðum Ágúst að svara þeirri spurningu. „Vissulega er svo komið að líta megi á skógrækt sem arðbæra atvinnugrein, enda sést þaö æ betur með hverju ári af starfseminni í Skorradal. Því til sönnunar er bezt að nefna nokkrar tölur varðandi jóla- tréssölu hjá okkur. Áriö 1967 voru höggvin og seld 88 jólatré úr Skorradal. Þeim hefur síðan farið árlega fjölgandi og árið 1977 voru þau 3414 og heildsöluverð af þeim 8,7 milljónir brúttó. Heimatekjur að meðtöldum seldum hnausplöntum urðu þannig 11,1 milljón brúttó árið 1977. Elztu jólatrén sem tekin voru til sölu voru gróðursett 1952 en þau yngstu 1964. Hæð þeirra er þá frá einum metra en heildsöluverð pr. stk. 1840.00 krónur, og upp í 5—6 metra eða svokölluð útijólatré sem kosta í heildsölu 32 þúsund krónur. Eftir tegundum skiptust þessi tré þannig árið 1977: Rauðgreni 2677 stk., stafafura 634 stk., sitkagreni 53 stk. og hvítgreni 50. Þessar tölur hljóta aö tala sínu rnáli." „Viltu segja okkur í stuttu máli hvernig þróun skógræktarstarfsins hefur verið í Skorradal?" „Starfsemin hófst á Stálpastöðum árið 1952. Síðan hafa verið gróður- settar þar árlega frá 20 þúsund til 100 þúsund plöntur. Það er svolítið mismunandi. Fer eftir því hvað mikið er til af plöntum og hve mikið fé er handbært. Undanfarin tvö ár hefur stór hluti af framkvæmdafénu farið í að byggja íveruhús fyrir vinnuflokk- inn. Árið 1958 var jörðin Hvammur tekin á leigu til skógræktar og þar hefur veriö aöalbækistöð starfs- manna skógræktarinnar. Bakkakot var tekið á leigu 1969 og árið 1959 keypti Skógrækt ríkisins skóglendið Selsskóga úr landi Indriöastaöa. Áriö 1967 var Skógrækt ríkisins heimilað aö taka hluta jarðarinnar Stóru-Drageyrar til skógræktar og loks keypti Skógrækt ríkisins jarðirn- ar Sarp og hálfa jörðina Efstabæ árið 1970. Þannig hefur landnám skóg- En raunin er sú að enda þótt þessi birkisskógur sé bæði girtur og grisjaður þá er vöxturinn svo hægur og vaxtarformið þannig að slíkur skógur gerir aldrei annað en veita skjól. Hann er því verðlaus þar sem fjalla á um skógrækt sem atvinnu- grein. Þess vegna veljum við barr- plöntur sem bæði eru hraðvaxta, bæta landiö og skapa verðmæti. Þá er þess einnig að geta þar sem gróðursett er í kjarr, að barrplöntur vaxa hægt fyrstu árin — Stubbaskot vaxa hins vegar hratt og því hætta á að þau vaxi barrplöntunum yfir höfuð ef ekki er grisjað frá þeim. Þess vegna þarf að fara aftur yfir reitinn og grisja nú á 3—4 ára fresti frá barrplöntunum. Sérstaklega er þetta aðkallandi þar sem verið er að koma upp jólatjám því stubbskotin vilja lemja hliðarnar á þessum ungu barrplöntum og greinahvirfingin verður því óreglulegri. Eftir 12—14 ár hafa svo þessar plöntur náð hæfilegri jólatrésstærð og þá er grisjaö meö tllliti til sölu. í þessu sambandi má geta þess aö viö erum stundum gagnrýndir fyrir það að höggva svona ung tré. Því leyfið þið þeim ekki að vaxa, er sagt. En því er til að svara að hafi gróöursetn- ing tekist vel þá hafa trén of lítið vaxtarpláss er þau stækka og þess vegna er brýn þörf á grisjun. Þar sem hagkvæmt er að koma því við að grisja út jólatré má gróðursetja um Spjall við Ágúst Árnason skógarvörð i Skorradal Ágúst Árnason við grenitré, sem dafnað hefur vel. 10.000 plöntur í ha. lands en við 40 ára aldur má reikna með innan við 1000 tré á ha.“ „Og nú spyr sá sem ekki veit: Því er þá ekki gróðursett nógu gisið í upphafi?" „Þá kæmu til önnur vandamál, sem taka verður tillit til," segir Ágúst. „Trén þurfa bæði hæfilegt vaxtarrými og skjól hvert af öðru í uppvextinum. Ef gróðursett er mjög gisið með viðarframleiðslu í huga þá verða krónur tjánna of stórar og trén grófgreinótt alveg niður að jörð. Bolurinn veröur mjög breiður alveg neðst en mjókkar ört upp. Þannig vaxnir bolir eru verðlitlir. Ef gróður- sett er gisið koma seinna tekjur af skóginum. Hæfilega og rétt grisjaður skógur er verðmætari en ógrisjaður. í Skorradal erum við með reiti sem ætlaöir eru einungis fyrir jólatrés- rækt. Þar er gróðursett tiltölulega þétt og úr þeim reitum notum við allt til jólatréssölu sem er nógu fallegt. Það er höggvið þegar það er markaðshæft og við bætum í eyðurn- ar jafnóðum. Hins vegar eru svo aðrir reitir sem Landgrunnslaganna frá 1948 minnzt á haf réttarrádstef nu IIANS G. Andersen, for- maður íslenzku sendi- nefndarinnar á 7. fundi hafréttarráðstefnunnar í Genf, kvaddi sér hljóðs í fyrrakvöld í upphafi allsherjarfundar ráð- stefnunnar og minntist þess að 30 ár eru liðin frá setningu íslenzkra laga um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins. í frétt frá utanríkisráðuneyt- inu segir, að Hans G. Andersen hafi m.a. sagt: „í dag eru þrjátíu ára afmæli hinna íslensku laga um vísinda- lega verndun fiskimiða land- grunnsins sem sett voru hinn 5. apríl 1948. Ég tel viðeigandi að minnast þessa atburðar í annálum hafréttarráðstefn- unnar. Lögin frá 1948 voru mjög merk lagasetning og raunar boðberi nýrra tíma á sínu sviði. í fyrsta lagi greindu þau milli landhelgi sem slíkrar og lögsögu yfir lífrænum auðæftim sjávar einnig utan landshelgi. í öðru lagi var landhelgin sem slíkt ekki færð út en lögsaga yfir lífrænum auðæfum utan landhelgi var færð út á hafinu ofan landgrunnsins. í þriðja lagi var lögö áhersla á vísindalega verndun lífrænna auðæfa sjávar bæði með lands- lögum og alþjóðlegum ráðstöf- unum. HANS G. ANDERSEN í fjórða lagi gerðu lögin ráð fyrir að þau yrðu framkvæmd í samræmi við þróun þjóðarétt- ar. Með hliðsjón af því lagði fulltrúi Islands í laganefnd allsherjarnefndar Sameinuðu þjóðanna árið 1949 til að hinni nýstofnuðu þjóðréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna yrði falið að rannsaka reglur hafréttar- ins í heild. Sú rannsókn leiddi síðan til hafréttarráðstefnanna 1958, 1960 og þeirrar sem nú situr. Það var á grundvelli land- grunnslaganna frá 1948 sem fiskveiðimörk íslands voru færð út fyrst í fjórar mílur, síðan tólf mílur, fimmtíu mílur og loks í tvö hundruð mílur. Vissulega voru lögin frá 1948 undanfari efnahagslögsöguhug- taksins, sem nú hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.