Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 12

Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Stefán Pétursson útgerðarmaður: Erlendir gestir; 7.667 fyrstu 3 mánuðina ÞRJÚ þúsund tvö hundruð níutíu <>K þrír útlendingar komu til landsins i marzmánuði. en í marz í fyrra heimsóttu okkur 2.958 útiendingar. Flestir erlendu gestanna voru Bandaríkjamenn; 1267. V-Þjóð- verjar voru næstflestir 447, Svíar 393, Danir voru 295, Bretar 226, Norðmenn 207, Irar 96 og Finnar 50, en alls heimsóttu okkur menn frá 44 þjóðlöndum. Frá áramótum til marzloka komu 7.667 útlendingar hingað til lands, en fyrstu þrjá mánuði síðasta árs voru erlendu gestirnir 7.511 talsins. Benedikt Jónasson hraðskák- meLstari ísL HRAÐSKÁKMÓT íslands var haldið í fyrrakvöld í Reykjavík. Keppendur voru 54 og voru tefldar 9 umferðir eftir Monradkerfi og tefldi hver skákmaður 18 skákir. Urslit urðu þessi: 1. Benedikt Jónasson, 14 V2 v. 2. Kristján Guðmundsson 13 v. 3. Ómar Jónsson 12 V2 v. Þegar farið var að stunda loðnuveiðar norður í hafi í svart- asta skammdeginu, áttum við nánast engin skip til þeirra veiða. Verksmiðjurnar voru illa undir- búnar vegna margra ára erfið- leika, en voru þó betur í stakk búnar að taka á móti loðnu til bræðslu, heldur en sá skipafloti, sem til var til loðnuveiða N.A. af Horni. Þarna er sennilega storma- samara en annars staðar kringum landið og meiri hætta af hafís og einnig ein mesta ísingarhætta, sem þekkist. Jafnhliða þessu er geysilegt álag á sjómennina, sem þessar veiðar stunda. Þess vegna verða sjómenn að hafa góð laun, en það hafa þeir ekki, nema á stórum og vel útbúnum skipum. Síðastliðin 2 ár hefur loðnuflotinn mikið verið endurbyggður og hefur það kostað mikið fé, en eins og ég hef áður bent á, er þetta alger nauðsyn og vona ég, að þetta fjármagn eigi eftir að skila sér aftur. Eins og oft vill verða eru skiptar skoðanir um hvernig skipta beri andvirði verðmæti loðnuafurða milli verksmiðja og skipa, og fyrri hluta vertíðar, eða til 15. febrúar, var mikil óánægja meðal sjó- manna og útgerðarmanna með verðlagningu á loðnu. Af þeim hluta, sern' skipin fá fer nálægt helmingur til sjómanna. En um eitt ættu allir aðilar að geta orðið sammála, það er að fá sem mest til skiptanna. I vetur hefur mikið verið rætt um leiguna á Norglobal og honum fundið margt til foráttu. Sérstak- lega hafa verksmiðjueigendur ver- ið leigunni andvígir. Mörg verka- lýðsfélög og jafnvel bæjarstjórnir hafa sent mótmæli, en þessir aðilar hugsa ekki út í það, hvað sjómönnum og útgerð er skipið mikils virði. Þetta skip liggur sem næst loðnumiðunum hverju sinni og það er greitt fullt verð fyrir það hráefni, sem það tekur á móti. Margir hafa áhyggjur af lélegri nýtingú. Það er þeirra mál, sem skipið leigja. Margir tala um að leysa vandann með flutningaskipi, en þeir hinir sömu tala aldrei um hver á að greiða þann flutnings- kostnað. Flutningur á loðnu í flutningaskipum hefði ég haldið að væri það síðasta, sem ætti að gera vegna kostnaðar og rýrnunar á hráefni. Það eru sjálfsagt til mörg flutningaskip innlend, sem fengust til loðnuflutninga, en allir sem um þessi mál ræða og rita, ættu að vita hver kostnaður er því sam- fara, því ekkert flutningaskip hefur þann útbúnað í lest, sem til þarf til loðnuflutninga. Ef útbúa ætti skip til loðnuflutninga í líkingu við það, sem nauðsynlegt er talið við veiðiskipin, mundi það kosta, samkvæmt mati stjórnskip- aðrar nefndar, eitt hundrað millj- ónir króna og ef um leiguskip er að ræða, er þessu tjaldað aðeins til einnar nætur, því þetta yrði að rífa úr skipunum að loðnuvertíð lokinni. Ef flutningaskip yrði notað, þá yrði það að liggja í landvari. Þá yrði fyrst að dæla loðnunni úr veiðiskipinu í flutn- ingaskip. Það gæti tekið nokkurn tíma að fá nægilegt magn í flutningaskipið, sem síðan yrði að sigla með farminn í einn til tvo sólarhringa. Þá þarf í þriðja skipti að dæla loðnunni í land og geta menn þá ímyndað sér hvað rýrnun er orðin mikil. Ef nota ætti þessi flutningaskip, þá yrðu þau að hafa aðstöðu um borð til að vigta loðnuna úr veiðiskipunum', því ekkert veiðiskip tæki á sig rýrnun- ina. Talað hefur verið um flutn- inga með tankskipi og er það sennilega betra, en við eigum ekkert tankskip og yrði að leigja það erlendis frá. Það myndi þurfa að greiðast í erlendum gjaldeyri, ekki síður en leigan á Norglóbal. Það sem af er þessari loðnuvertíð hefur ekki verið þörf á nokkru flutningaskipi. Ég hef heyrt á þingmönnum í Norðurlandskjördæmi eystra, að loðnu hefði átt að flytja norður í Krossanesverksmiðjuna og þing- mönnum úr Suðvesturlandskjör- dæmi og Reykjavík að loðnu hefði átt að flytja til Suðvesturlandsins og Reykjavíkur. Ef þessir menn telja þörf á þessum flutningum í atvinnubótaskyni, þá fæ ég ekki séð, að loðnusjómenn og útvegs- menn eigi að bera kostnað af þessum flutningum. Nú hefur heyrzt, að búið sé að samþykkja að byggja loðnuverk- smiðjy á Skagaströnd, og færð fram sem rök, að fyrir 30 árum var þarna byggð síldarverksmiðja eða um það bil, sem síldin var að hverfa. Var hún lítið notuð og að sögn búið að selja flest nýtilegt úr henni, en eftir mun vera eldþurrk- ari. Það er sú gerð af þurrkurum, sem ekki eru settir í nýjar verksmiðjur, heldur er farið að nota gufuþurrkara, sem að sögn gefa mun betri mjölnýtingu. Þarna er gamall gufuketill, sem ég hef heyrt kunnáttumenn telja ónothæfa. Öll löndunartæki eru ónýt, ásamt löndunarbryggju. Þarna var stórt mjölhús, sem búið er að taka til annarra afnota. Eftir er verksmiðjuhúsið, sem ekki er leggjandi mikið upp úr. Þarna eru engin hafnarskilyrði fyrir stór og hlaðin loðnuskip og allir skipstjór- ar leggja upp úr því að komast í góðar hafnir. Höfnin yrði að mestu greidd úr ríkissjóði og þar er víst af nógu að taka. Menn tala um að Skagaströnd liggi vel við loðnu- miðunum. Þetta er að mínu mati fjarstæða. Það er rétt, að seinni hluta sumars og á haustin er kannski eitthvað styttra til Skaga- strandar en Siglufjarðar, en það er ekkert sem réttlætir að þar sé byggð loðnuverksmiðja. Eins og flestum er kunnugt fer loðnan að ganga austur um áramót og fjarlægist þá Skagaströnd, og það sem af er þessari loðnuvertíð, hefði lítil sem engin loðna verið komin til Skagastrandar á þessari vertíð. Byggi síldarverksmiðjurnar á Skagaströnd, þarf að byggja allt upp að nýju í sambandi við móttöku á loðnu, ef af þessari vitleysu verður, verksmiðjustjóra, verkstjóralið, skrifstofustórhýsi með harðviðarinnréttingum með tilheyrandi vélakosti. Svo er ég að lesa í blöðunum núna, að næg atvinna sé á Skagaströnd, þrátt fyrir bilun á togaranum, og þar af leiðandi ekkert vinnuafl að fá, nema taka fólkið úr annarri atvinnu, sem menn eru búnir að byggja upp á staðnum, en eins og reynslan hefur sýnt, er þessi verkamannavinna mikið betur greidd en önnur vinna, en jafn- framt ótryggasta atvinna, sem hægt er að byggja á. Það sýnig Stefán Pétursson o g bygging síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd á sínum tíma, og á Þórshöfn og mörgum fleiri stöð- um. Ég álít, að viðskiptamenn síldarverksm. eigi nokkurn rétt á því, að rekstrarhagfr. verksmiðj- unnar sýni fram á hvað verksmiðj- an á Skagaströnd yrði mikið dýrari í rekstri en annars staðar. Þá er ekki reiknað með hvað þeir reikna brotajárnið á staðnum. Eins hvað kostar að reka þessa verksmiðju miðað við að reka sams konar verksmiðju á stað, sem ríkisyerksmiðja er fyrir. Eins og menn ættu að .vita, fer verðlaghing loðnunnar fram á þann hátt, að verksmiðjurnar leggja fram sína reikninga og út- frá því er verðið reiknað, eftir því hvað verksmiðjurnar eru vel rekn- ar og hvað góð nýting næst á mjöli og lýsi. Ríkisverksmiðjurnar eru stærstu loðnukaupendur og voru stærstu síldarkaupendur á sínum tíma. Þangað hafa því augu allra sjómanna og útgerðarmanna mænt í sambandi við verðlagningu á síld og loðnu og virðist því miður nokkur misbrestur á nýtingu hjá þeim á undanförnum árum. í skýrslu Loðnunefndar frá þessum tíma er mjölnýting á Siglufirði 15.4% eða aðeins betri en hjá Norglobal. Hins vegar hjá ríkis- vérksmiðjunni á Reyðarfirði varð mjölnýting á sama tíma 17.3% og ég er ekki í neinum vafa um að þessi lélega mjölnýting á Siglu- firði hefur dregið hráefnisverðið mikið niður á þessari vertíð. Ef Loðnuveiðar loðnuvinnsla Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi: — 99 Silfurskeiðarnar tvær 99 ísland er lítið samfélag, sem til skamms tíma hafði aöeins eitt vandamál — en það vanda- mál var stórt — það þurfti að sjá ört fjölgandi landsmönnum fyrir mat. Þannig má segja að ástandið hafi verið þegar sú kynslóð, sem ég tilheyri, ,man fyrst eftir sér um 1940. Enginn má taka þennan for- mála minn svo að ég óski slíkra tíma á ný en eftir á að hyggja held ég að flestir væru fúsir til að viðurkenna að betur hefði farið ef þróunin hefði verið örlítið hægari til þessa dags. Ein eða tvær silfurskeiðar I skeinmtilegu og opinskáu viðtali nýlega sagðist viðmæl- anda blaðs svo frá að hann hefði fæðst með „tvær silfurskeiðar í munni“ og má það tíðindum sæta að menn viðurkenni svo opinskátt að þeir hafi tekið við blómlegu búi. íslensk flugliðastétt fæddist svo sannarlega ekki með tvær „silfurskeiðar í munni“. Hún hóf feril sinn við hinar frumstæðustu aðstæður einmitt á þeim tíma sem til var vitnað og mátti oft ekki miklu muna að atvinnugreinin liði undir lok. Með dugnaði og hörku urðu til tvö sterk fyrirtæki að íslensku mati, Loftleiðir og Flugfélag Islands, sem við getum í dag líkt við „silfurskeiðarnar tvær“. Hverjir hagnast? Hagnast hluthafar Flugleiða svo mjög að eftirsóknarvert sé að eignast hlut í Félaginu? Það held ég ekki og met það af reynslu smáhluthafa. Hverjir sitja þá uppi með „silfurskeið- arnar í munni“? Því er auðsvarað — það er fólkið sem nú kastar á milli sín þessu samvaxna „óskabarní", sem hlýtur að deyja drottni (starfsfólki) sínu innan skamms með sama áframhaldi. Framhaldið Frá sjónarhóli hins almenna hluthafa virðist ekki margra kosta völ um framtíð félagsins. Endurteknar stöðvanir hljóta að leiða félagið til falls (sbr. 40—50 m. kr. tap 4.-5. apríl), spurn- ingin er bara hvenær. Gefist félagið upp í barátt- unni er um að ræða ríkisrekstur á samgöngum til landsins eða jafnvel líklegra að erlend félög legðu undir sig flug að og frá landinu og væri þá þessi grein íslenskrar atvinnusögu verulega skert. Að lokum Það er vonandi að skynsemin ráði ferðinni í framtíðinni hvað varðar rekstraröryggi sam- gangna til og frá landinu svo og þá markaði er unnir hafa verið með mikilli vinnu og tilkostnaði. Tekjur starfsfólks við flug- rekstur hljóta að vera mjög góðar, þar sem tugir sækja um hvert laust starf. Það væri öllum hlutaðeigandi hollt að minnast hins gamla spakmælis „að enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.