Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 14

Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Gamli bærinn að Kolsstöðum, scm þar var áður en Sigurður byggði nýtt hús á jörðinni. í dag, 8. apríl, á níræðisafmæli Sigurður Guðmundsson, fyrrum bóndi á Kolsstöðum í Hvítársíðu. A þessum heiðursdegi hans þykir mér vel við eiga að fyrir almenn- ingssjónir komi dálítill kafli úr þeim skrifum sem hann hefur sett saman á níræðisaldrinum. Allt of fáir hafa lesið þessar greinar Sigurðar, sem flestar hafa birst í því ágæta Kaupfélagsriti í Borgar- nesi, .sem Björn Jakobsson frá Varmalæk ritstýrði lengi með ágætum. Margir mættu öfunda Sigurð á Kolsstöðum af því ágæta vaidi sem hann hefur á íslensku máli, en ekki síður af þeim hlýja persónuleika og lifandi áhuga, sem einkennir ritmennsku hans. Foreldrar Sigurðar voru Guð- mundur Sigurðsson bóndi á Kols- stöðum af hinni kunnu Háafells- ætt (föðurbróðir Jóns Helgasonar prófessors) og Helga Hjálmars- dóttir af Húsafellsætt. Til viðbót- ar því sem Sigurður segir í grein sinni frá lífsbaráttunni má geta þess, að hann sjálfur var sá þriðji af bræðrum sínum með sama nafni, en báðir hinir eldri höfðu dáið á barnsaldri. En alls komust 8 af 11 börnum Guðmundar og Helgu til fullorðinsára. Sigurður 'tók við búi á Kolsstöðum af foreldrum sínum. Kona hans er Kristín Þorkelsdóttir úr Reykja- vík, en börn þeirra hjóna eru 6, öll hið mesta myndar- og kjarnafólk. Þau hjónin dveljast nú á elliheim- ilinu í Borgarnesi, og til þeirra streyma nú hiýjar hugsanir frá fjölmörgum samferðamönnum. Þau hafa sannarlega verið héraði sínu til sóma. Það er mikil gæfa þeirra að við búi þeirra á Kolsstöð- um hefur tekið Guðmundur sonur þeirra, vinsæll afbragðsmaður, og yfirleitt má segja, að hamingjan hafi orðið þessum gömlu sveitung- um mínum því hliðhollari sem lengra hefur á ævina liðið. Og við, sem enn teljumst ekki „aldraðir", megum af þeim Iæra að verða því ljúfari í lyndi sem árunum fjölgar meira. Betri ellilífeyri er varla hægt að fá. Innilegar hamingju- óskir, Sigurður! Páll Bergþórsson. árlega heyjað, og í grasleysisárum að mestu eða öllu leyti. Þangað var ekki mjög langt til heyskapar, og mátti fara að minnsta kosti 8—10 ferðir á dag á þeim vinnudegi, sem þá var á hafður. Heyið var bundið blautt og þurrkað heima á túni. Flóinn var mjög fúinn. Varð því sums staðar að bera sáturnar á öxlunum nokkurn spöl, þar sem ekki var mögulegt að koma hestum að. Ég veit ekki annað en að þeir bændur, sem hér hafa búið, hafi komizt sæmilega af efnalega og ekki þurft að leita aðstoðar til annarra sér og sínum til framfær- is, þrátt fyrir mikla ómegð og margt fólk í heimili. Heyleysi man Sigurður Guðmundsson, Kolsstöðum: Frá gömlum dögum Sigurður Guðmundsson. Frá gömlum dögum Þegar árunum fjölgar og starfs- krafturinn fjarar út, gefst gott næði á einverustundum að líta til baka yfir hið liðna. Líklega verður það svo fyrir flestum, að uppvaxt- arárin verða skýrust í minningun- um og geymast lengst. Mér til dægrastyttingar hef ég dundað við að hripa örlítið upp frá gamalli tíð. Fátt er mér minnisstæðara frá því ég var krakki en heyra talað um heyleysi og bjargarskort. Þó að ég skildi ekki til fulls, hvað það þýddi, þá mátti sjá það á svip fullorðna fólksins, að eitthvað alvarlegt var á ferðinni. — Sjálf- sagt hafa þau ekki orðið öllum létt sporin, sem stigin voru í hjálpar- leit, þegar heyleysi bar að hönd- um. — Ef sauðkindin féll, hvort heidur var úr hor eða drepsótt, var voði fyrir dyrum. Af kindinni voru klæðin, sem skýldu fólkinu, unnin. Einnig lagði hún til mjólk og kjöt, sem þjóðin nærðist á. En heyja- forðinn frá sumrinu nægði ekki ætíð til að framfleyta þeim bústofni, sem heimilin þurftu með, þó að kröfurnar væru ekki aðrar en þær að hafa til hnífs og skeiðar. Var því oft freistast til að hafa skepnur fleiri en heybirgðir þoldu í von um góðan vetur og útbeit. Brygðist það, var voðinn vís. Sem betur fór, voru þeir fleiri, sem aldrei treystu á góðan vetur og þoldu harðindin. Og til þeirra var leitað, þeg ar í nauðirnar rak. Mér fór snemma að skiljast, hversu mikils virði heyin voru. Líklega eru það áhrif frá gömlum tímum, að ég hef alltaf átt bágt með að þola sóðalega meðferð á þeim. A þessum tíma þekktust ekki önnur heyvinnutæki en orf og hrífa, og fóru afköstin eftir orku og lagni þeirra, sem með þeim unnu. Fótstignir hverfisteinar voru þá varla komnir í notkun, svo frumstætt var flest í þá daga. Kolsstaðir í Hvítársíðu, þar sem ég er fæddur og uppalinn og hef dvalizt mestan hluta ævinnar, var kirkjujörð frá Gilsbakka. Henni fylgdu þrjú kúgildi, sem kallað var. Jörðina keypti faðir minn, þegar gefin var laus sala á kirkjujörðum, nokkru eftir alda- mót. Kaupverðið man ég ekki. en ég held, að á þeim kirkjujörðum, sem þá voru seldar, hafi kaupverð og greiðsla verið kaupendum mjög hagstætt. Sami ættliður hefur búið hér á Kolsstöðum frá 1806 og til þess dags, eða í 163 ár. Jörðin var talin með minni býlum sveitarinnar og bar ekki stór bú, meðan ræktun var engin. Túnið gaf af sér um 100 hesta. Sumarið 1918 var töðufallið tæpir 50 hestar. Helzt mun jörð- inni hafa verið talið þetta til gildis: allmikið skóglendi, en þar var tekið hrís til eldiviðar; skjól- samt fyrir skepnur bæði í hraun- inu og hlíðunum, og frekar haga- samt að vetrinum eftir því, sem gerðist á fjallajörðúm. Heyskapur var mjög tak- markaður og reytingssamur, en frekar heygott. Blautur floi liggur hátt upp frá bænum. Þar var ég ekki eftir. Hafi það komið fyrir, hefur það verið fyrir mitt minni. Á síðari búskaparárum föður míns voru hér ætíð birgðir af heyjum. III Slátturinn var þá, eins og raunar alltaf, sá árstími, sem heita mátti að afkoman byggðist á. Margt þurfti að standsetja, svo að allt væri tilbúið, þegar sláttur hæfist. Að vetrinum voru unnin reipi, gjarðir, beizli og hnappheld- ur, líka þurfti að smíða klyfbera, hagldir, sylgjur o.fl. Þá var og mjög áríðandi að yfirfara reiðinga. Meiðsli á hestum, sem oft stöfuðu af illa gerðum reiðingum, var ljótt að sjá. Amboðin þ.e. hrífur og orf, voru söguð úr völdum borðum. I hrífuhausana þurfti að telgja tinda úr brúnspæni. Heimasmíðair ljábakkar, eins og annað, gátu enzt ár eftir ár, þó a.ð blöðin eyddust. Þau voru negld á bakkana með hnoðnöglum. Vinnudagurinn var æði langur, að minnsta kosti myndi hann þykja það nú á tímum. Allar aðstæður og erfiðleikar, ekki sízt til heyöflunar, eru svo fjarri því fólki, sem nú er að verða fulltíða, að varla er von að það geti sett sig inn í það eða skilið til fulls. Vafalaust hefur þessi langi vinnu- tími orðið sumum ofraun, og erfiðið orðið tiltölulega meira en eftirtekjurnar. Eins og þá var flest í pottinn Hagstæðasta starfsár Búnaðarbankans: Innlánsaukning 47,1 % Aldrei skuld við Seðlabankann á árinu LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA staðfesti reikninga Búnaðarbanka íslands fyrir árið 1977 hinn 6. apríl sl. Innlánsaukning á árinu nam 5.779 milljónum króna eða 47,1% en iánveitingar Stofnlánadeildar landbúnaðarins námu rúmlega 2,1 milljarði og jukust um 41,8%. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu hefur borizt frá Búnaðarbanka íslands og fer hún hér á eftir í heildi INNGANGUR Landbúnaðarráðherra, Halldór E. Sigurðsson, staðfesti reikninga Bún- aðarbanka íslands fyrjr árið 1977 hinn 6. apríl. Liðið ár var Búnaðarbankanum mjög hagstætt. Vöxtur innlána hefur aldrei orðiö meiri á einu ári, lausa- fjárstaðan batnaði enn að mun og niðurstaða á rekstrarreikningi sýnir góðan árangur. INNLÁN Innlán í árslok voru 18.055 millj. kr. og jukust um 5.779 millj. kr. á árinu, en það er 47,1%. Næst mesta aukningin varð 1975 32,0%. Þess má geta til samanburðar að innláns- aukning er sú, að trú manna á almennum sparnaði hefur aukist með tilkomu hinna svonefndu vaxtaauka- innlána, en það eru innlánsreikningar bundnir til eins árs í senn með mun hærri vaxtakjörum en önnur innláns- form. Vaxtaaukainnlán voru í árslok 3.630 millj. kr., og varð aukning þeirra 86% á árinu. Innstæöur á bundnum reikningum námu 29% af heildarinnlánum í bankanum og jókst hlutdeild þeirra í fyrsta skipti í mörg ár. Búnaðarbankinn rekur nú 12 útibú utan Reykjavíkur, auk fimm af- greiðslustaða og fimm útibúa í Reykjavík. Á Reykjavíkursvæðinu námu innlán 10.193 millj. kr. í árslok og varð ársaukning 50,8%, en utan Reykjavíkur var innlánsstaöan um áramót 7.862 millj. kr., en það er 42,5% aukning. Á undanförnum árum hefur innlánsaukningin verið hlut- fallslega meiri utan Reykjavíkur. ÚTLÁN Heildarútlán námu 16.311 millj. kr. um áramót og höfðu aukist á árinu um 5.046 millj., kr. eða 44,8%. Hér eru meðtalin öll endurseld lán í Seðlabanka, sem að mestu leyti eru afurðalán landbúnaðarins, svo og skuldabréfakaup bankans af Fram- kvæmdasjóði, sem nemur 10% af innlánsaukningu ársins. Þegar af- urðalánin og skuldabréf Fram- kvæmdasjóðs eru dregin frá heildar- útlánum verða eftir 8.956 millj. kr. með ársaukningu sem nemur 38,1%. Afurðalánin eru langstærsti útlána- flokkurinn eða 6.145 millj. kr. og hafa aukist mun hraðar en önnur útlán hin seinni ár. Á síöustu fimm árum hafa þau sexfaldast á sama tíma og önnur útlán ná því ekki að þrefaldast. Er því Ijóst, að með sömu þróun verður stöðugt minna eftir til lánveit- inga í aðrar greinar en þær, sem njóta afurðalána. Sérstakur útlánaflokkur, vaxta- aukalán, hefur verið tekinn upp, eftir að stofnað var til innlánsreikninga með vaxtaauka. Námu vaxtaaukalán- in tæpum helmingi af vaxtaaukainn- lánum, og þarf enn að auka þetta' hlutfall til að styrkja rekstrarafkomu bankans. Útlán bankans til atvinnuveganna námu 12.102 millj. kr. í árslok, 2.175 millj. kr. til einstaklinga og 2.034 millj. kr. til opinberra aöila. i fyrst nefnda flokknum er hlutur landbún- aðarins stærstur 6.585 millj. kr. Lán Búnaðarbankahúsið á Hlemmi. til iönaðar og byggingastarfsemi voru 1.878 millj. kr. til verzlunar 2.012 millj. kr. til sjávarútvegs 890 millj. kr. og til samgangna, ferðamála og ýmiss konar þjónustustarfsemi 737 millj. kr. Sést af þessari flokkun að bankinn hefur mjög alhliða útlánsvið- skiþti. STAOAN VIO SEDLABANKANN Lausafjárstaða bankans batnaði til muna á árinu, en hún kemur fram á viðskiptareikningi bankans í Seðla- bankanum. Innstæða á þessum reikningi var í árslok 2.606 millj. kr. og hafði aukist á árinu um 1.649 millj. kr. Aldrei kom til yfirdráttar á viðskiptareikningnum á árinu, en sveiflur eru mjög miklar einkum í sambandi viö afurðalánauppgjör. Bindiskylda í Seðlabankanum er nú 25% af innlánum og var á bundnum reikningi í árslok 4.088 millj. kr. Þriðji meginþátturinn í samskiptum við Seðlabankann eru endurkaup hans á afurðalánum landbúnaðar og sjávarútvegs svo og rekstrarlán til iðnaðarins. Námu endurkaupin í árslok 5.091 millj. kr. Þegar þessi þríþættu viðskipti við Seðlabankann eru dregin saman Framhald á hls. 39.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.