Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 16

Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 Ingólfur Jónsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra: Um 40.000 manns í þéttbýli hafa framfæri af landbúnaði sem varð á útfluttum búvörum. í seinni tíð hefur þetta breyzt. Verðbólga hefur verið hér um árabil frá 30—50%, meðan verð- breytingar í viðskiptalöndum okk- ar hafa verið á sama tíma 3—8% . Auk þess hafa ýmsar þjóðir, sem kaupa íslenzkar búvörur, aukið niðurgreiðslur, þannig að söluað- staðan hefur á augljósan hátt stórum versnað. Eðlilegt er, að menn hugleiði á hvern hátt megi úr þessu bæta. Auðvitað ber að gera söluherferð og leita nýrra markaða um leið og eldri markað- ir, sem fyrir eru, verða betur nýttir. Einnig ber að koma kjötinu á markað í neytendaumbúðum, og kynna besta kindakjöt í heimi enn betur en gert hefur verið. Hærra innanlands- verð eða útflutningsbætur Árið 1960 voru sett lög til þess að bæta aðstöðu landbúnaðarins. Heimilað var að greiða 10% af heildarverðmæti búvörufram- leiðslunnar til þess að bæta bændum þann halla, sem yrði af útfluttum búvörum. Þetta var nýmæli í lögum og hefur síðan reynzt bændum bezta haldreipi. Áður höfðu bændur heimild til þess að hækka búvöruverð á innlendum markaði í því skyni að ná upp þeim halla, sem mátti ætla að yrði af útfluttum búvörum. En það væri bændum lítils virði. Og óhugsandi að varan seldist innan- lands á því verði, sem hefði þurft að setja á hana til þess að unnt væri að bæta bændum það tap, sem yrði á útflutningi. Frá því í ársbyrjun 1960 hafa lög um útflutningsbætur verið í gildi. Bændur gera sér fulla grein fyrir því, að lögin hafi verið þeim sá bjarghringur, sem þeir mega ekki missa. í leiðara í Tímanum snemma á þessum vetri var því haldið fram, að offramleiðslu á búvörum, sem nú er rætt um, mætti rekja til fyrrnefndra laga. NÝLEGA fóru fram í neðri deild Alþingis fróðlegar umræður um málefni landbúnaðar í tilefni umdeilds frv. þingmanna Alþýðuflokks um framleiðsluráð landbúnaðarins. Hér fer á eftir innlegg Ingólfs Jónssonar, fyrrv. landbúnaðarráðherra, í þær umræður, en fáir þekkja málefni landbúnaðar eða þýðingu þeirrar atvinnugreinar fyrir þjóðarbúskapinn betur en hann. Frumvarp, sem stefnir í öfuga átt Meginatriði frumvarpsins eru að skerða greiðslur til landbúnaðar- ins vegna halla á útfluttum búvörum. Gert er ráð fyrir að skerðingin verði gerð í áföngum, róttækum og stórum, þar sem iækkun á tekjum bænda yrði með þessum hætti 1 milljarður kr. á fyrsta ári, ef frumvarpið verður samþykkt. 1. flutningsmaður frumvarpsins, hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, hefur notað langan tíma til þess að ræða frumvarpið og sýna fram á ágæti þess. Það er gott og nauðsynlegt að taka vandamál atvinnuveganna til umræðu og reyna að finna lausn á vandanum. Frumvarp það, sem hér er til umræðu, stefnir í öfuga átt. Það mun gera hlut landbúnaðarins miklu lakari en nú, ef að lögum verður, um leið og það mun ganga í berhögg við þjóðarhagsmuni. Landbúnaðurinn á við ýmsa örðugleika að glíma ekki síður en aðrir atvinnuvegir þjóðarinnar. Löggjöf sem snertir landbúnaðinn og reglur, sem unnið hefur verið eftir, getur þarfnast endurskoðun- ar og breytinga vegna breyttra tíma og breyttra aðstæðna. En ef breytinga er þörf, þarf að gera þær með heildaryfirsýn yfir málin og sannfæringu fyrir því, að það sem gert er megi verða til bóta. Heimaverðbólga höfuðorsök afsetn- ingarvanda erlendis Árið 1977 var gjöfult og gott að flestu leyti. Sjávarafli var mikill og verð á útfluttum vörum mjög hátt. Tíðarfar var yfirleitt gott um land allt og heyfertgur var mikill og víðast hvar góður á s.l. sumri. Skepnuhöld voru í betra lagi og afurðir mikíar á árinu. Þrátt fyrir þetta kvarta menn látlaust undan erfiðum tímurn, taprekstri og fjárskorti, sem atvinnuvegirnir eigi við að glíma. Fyrr á árum var afkoma atvinnuveganna og al- mennings talin vera góð, ef aflabrögð voru hagstæð og skepnu- höld, tíðarfar og heyskapur í betra lagi. En nú virðist þetta ekki nægilegt, vegna þess að verðbólg- an með stöðugt vaxandi kostnaði grefur undan öryggi og hagsmun- um atvinnuveganna og almennings í landinu. Góðærið nýtist ekki, meðan verðbólgan geisar og smýg- ur inn í flestar greinar þjóðfélags- ins. Vegna góðæris hefur verið nokkur aukning á búvörufram- leiðslunni. Aukningin er þó lítil. Kindakjötsframleiðslan hefur staðið hér um bil í stað síðustu árin og mjólkurframleiðslan auk- izt um ca. 6% tvö síðustu ár. Sala innanlands hefur ekki aukizt eins og búast hefði mátt við, heldur orðið nokkur samdráttur í innan- landssölu og markaður erlendis hefur versnað mikið vegna mikilla verðhækkana hér á landi og kostnaður langt umfram það, sem gerist í markaðslöndunum. Meðan verðhækkunum var haldið innan hæfilegra marka og verðbreyting- ar hér á landi voru ekki langt frá því sem gerðist í nágrannalöndun- um, náðu endarnir saman. Þá var tiltölulega gott verð á dilkakjöti í Noregi og Svíþjóð. Þá nægðu lögleyfðar útflutningsbætur til þess að greiða að fullu þann halla, Ég held, að nefndur leiðari hafi verið merktur ÞÞ. Menn deila um það hvort ástæða sé til að hafa miklar áhyggjur af því, sem nú er nefnt offramleiðsla. En ályktun leiðarahöfundar Tímans er að því leyti rétt, að lög um útflutnings- bætur hafa komið í veg fyrir, að búvöruframleiðslan færi stórum minnkandi. Það er mat glöggra manna, að nú væri mikill búvöru- skortur, ef lög um útflutningsbæt- ur hefðu ekki verið í gildi. Bændum hefði fækkað miklu meira en raun ber vitni á þessum árum. Ekki hefði verið ráðist í umfangsmiklar ræktunarfram- kvæmdir, eins og sérstaklega var gert á árunum 1960—1971. Þá hefði draumur þeirra, sem vilja flytja inn erlendar búvörur, rætzt. Á eyju norður við íshaf getur verið stutt á milli mikillar framleiðslu í landbúnaði og of lítillar fram- leiðslu. Ekki eru mörg ár síðan hafís var við Vestfirði, fyrir öllu Norðurlandi og suður með Aust- fjörðum. Þá var kuldi og kal í túnum og í bithögum. Þau ár dró mikið úr framleiðslunni, en það sem bjargaði var sú mikla ræktun, sem hafði verið gerð á flestum ábýlisjörðum í landinu. ALLIR vona, að landsins forni fjandi komi ekki að landi eða nærri landi. En heimskulegt væri nú það að gera sér ekki grein fyrir hættunni. I gegnum árin og aldirnar hafa skipst á góð ár og vond ár. Is, kuldi Ingólfur Jónsson og eldgos hafa reynt á þolrif fólksins í landi okkar. Fámenn þjóð og fátæk átti ekki til næsta máls og leið hungur og skort á flestum sviðum. Tímarnir hafa breytzt, þannig að nú mun vera hægara að afla fanga og vinna bug á erfiðleikum, sem kunna að sækja þjóðina heim. En eigi að síður getur verið slæmt og hættulegt að gera sér á engan hátt grein fyrir því hvar á hnettinum við erum. Verðbólgan höfuðorsök vanda land- búnaðarins Atvinnutækifæri í þéttbýli og búvöruframleiðsla Það er of mikið gert úr því sem kallað er offramleiðsla. Tíðarfar hefur reynzt óstöðugt hér á landi, þótt ekki komi ís, kal eða eldgos, getur versnandi og kólnandi tíðar- far haft mikil áhrif á búvörufram- leiðsluna. Þeim fækkar stöðugt, sem vinna að framleiðslu á búvör- um og eru nú aðeins um 7% af þjóðinni. Talið er, að yfir 40 þúsund Islendinga í kaupstöðum og öðru þéttbýli hafi lífsframfæri við að vinna úr landbúnaðarvörum og við ýmis þjónustustörf tengd landbúnaði. Utflutningsverðmæti iðnaðarvara úr ull og skinnum fer vaxandi eins og kunnugt er og gefa þjóðinni drjúgar tekjur í erlendum gjaldeyri. Talið er, að um 8% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar komi fyrir útfluttar búvörur unnar og óunnar. Það er ekki þjóðhagsiega rétt að draga saman seglin í landbúnaði. Þótt benda megi á ýmsar veilur, margt sem betur mætti fara í fram- kvæmd mála, má það ekki verða til þess að menn leggi árar í bát og gefist upp. Það er bændum ekki að skapi að draga saman og minnka framleiðsluna. Bændur vilja ekki Fjósverk gefast upp þótt á móti blási um sinn. Þótt verðbólgan geri þeim erfitt fyrir og útflutningsbæturn- ar hrökkvi ekki til þess að unnt sé að greiða fullt verð fyrir fram- leiðsluna, eins og áður frá því að lög um útflutningsbætur voru sett. Bændur eru taldir vera lægst launaða stétt landsins. Kjör bænda eru mjög misjöfn eftir því hvernig aðstaðan er. Þeir bændur, sem höfðu verið langt komnir með að byggja og rækta í lok viðreisn- artímabilsins frá 1959—1971, eru yfirleitt vel settir. Þeir skulda lítið miðað við eignir og framleiðslu. Aðrir sem voru komnir vel á veg 1971 komast margir sæmilega af, þótt þeir hafi lent í verðhækkun- um með einhvern hluta fam- kvæmdanna. En þriðji hlutinn er verst settur, þeir sem hafa lent í verðbólgunni með mestan hluta framkvæmdanna og við að koma upp bústofni. Lánskjör hafa versn- að og vaxtakostnaður þeirra, sem í framkvæmdunum standa, er mjög þungur baggi á flestum. Kjör bændastéttarinnar Tekjur bænda eru mjög misjafn- ar vegna aðstöðumunar, og einnig fyrir það, hversu mikill munur er á afurðamagni á jafnstórum bú- um. Það hefur alltaf verið erfitt fyrir bændur að ná sambærilegum tekjum og viðmiðunarstéttirnar hafa, iðnaðarmenn og verkamenn. Það er auðvitað alveg vonlaust, ef útflutningsbætur reynast of litlar og ekki næst fullt yerð fyrir afurðir meðalbúsins. Á árunum 1960—1971 voru útflutningsbætur nálægt 10% af verðmæti land- búnaðarframleiðslunnar og nægði því til þess að tryggja bændum umsamið verð sexmanna nefndar. 1973—1974 nægðu útflutningsbæt- ur ekki til þess að mæta halla af útflutningi og báru bændur þann kostnað. Verðlagsárið 1976—1977 vantaði nokkuð á, að fullt verð næðist og báru bændur einnig þann halla. Útlitið er mjög slæmt á yfir- standandi verðlagsári og talið að vanta muni allt að 2 milljarða króna til þess að fullt verð náist fyrir afurðinar. Úr þessu verður að bæta á einhvern hátt, bændur rísa ekki undir svo gífurlegu tapi. Bezt útkoma varð hjá bændum á árunum 1964—1965. Þá var tekjuhlutfall bænda samanborið við þær stéttir, sem tekjur þeirra miðast við, 83.1% og 86.2% síðara árið. Síðan hefur tekjuhlutfallið alltaf verið undir 80%, varð 1973 79.5% og hefur farið lækkandi síðan. Þegar útflutningsbætur nægja ekki til greiðslu hallans á útfluttum búvörum, telja margir vera besta ráðið að minnka framleiðsluna og miða hana sem mest við innanlandsnotkun. Gjöld ríkissjóðs vegna útflutningsbóta eru sízt hærri nú en þau voru á viðreisnarárunum, sé miðað við útgjaldahlið fjárlaga á þeim tíma og nú. Margir munu hafa gleymt því, að útgjöld fjárlaga fyrir árið 1971, síðasta fjárlagaár viðreisn- arstjórnar, var aðeins 11 milljarð- ar kr., en fyrir árið 1978, 140 milljarðar. Verðlagsárið 1970—1971 voru greiddar útflutn- ingsbætur að upphæð kr. 397 þus. 687 kr. Gert er ráð fyrir, að yfirstandandi verðlagsári verði útflutningsbætur 3000 millj. kr., sem er hlutfallslega talsvert lægra en árið 1971, miðað við útgjöld fjárlaga. Það er engin ástæða til þess nú að skerða kjör bænda með því að minnka útflutningsbætur á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.