Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 24
Stöðugt er byggt í Breiðholtinu. Framkvæmdir eru hafnar í Mjóddinni og í baksýn eru einbýlis- rað- og fjölbýlishús í Skógum og Seljum. Ljósm. Mbl.:
Friðþjófur.
Skoðanakönnun meðal Breióholtsbúa:
Umferðartengmg
hverf isins helzta
gagnrýnisefnið
„bað var í raun áberandi,
hvað fólk sýndi mikinn
skilning á því að í uppbygg-
ingu svo stórs hverfis, sem
Breiðholter. er ekki hægt að
gera allt í einu. Þannig má
segja, að fólk hafi kvartað lítið,
nema þá helzt yfir samgöngu-
málunum, en hinsvegar komu
ýmsar gagnlegar ábendingar
fram í svörunum. Margir tóku
það reyndar fram, að þeir vissu
til þess, að það sem þeir bentu
á, væri á döfinni, en þó voru
þeir fleiri, sem ekki virtust vita
mikið um það sem framundan
er, þannig að það er greinilega
þörf á því að borgaryfirvöld
kynni Breiðholtsbúum betur
fyrirhugaðar framkvæmdir í
hverfinu,“ sagði Erlendur
Kristjánsson, formaður Þórs,
félags ungra sjálfstæðismanna
í Breiðholti, er við ræddum við
hann, en bór efndi á dögunum
til skoðanakönnunar mcðal
íbúa Breiðholts.
Aðalspurningin fjallaði um
það, hvað fólk teldi mest aðkall-
andi í Breiðholti og einnig var
spurt, hvað fólk vildi tjá sig um
að öðru leyti; samgöngumál,
heilbrigðismál, aðstöðu fyrir
börn, nánasta umhverfi sitt,
félagsstarfsemi, skóla og hvort
vantaði fleiri verzlanir (hvar og
hverjar), pósthús, matstofur,
löggæzlu, slökkviliðið o.fl.
„Af því sem almennt snertir
hverfið i heild,“ sagði Erlendur,
„má nefna, að fólk nefndi mjög
þörfina á heilsugæzlustöðvum.
I því sambandi má nefna, að
nú er tilbúin fullkomin heilsu-
gæzlustöð fyrir 6—8000 manns í
500 fermetra húsnæði að Aspar-
felli 12, þar sem ætlunin er að
verði vísir að slysadeild. Þá á
stór og mikil heilsugæzlustöð að
rísa í Mjóddinni og er veitt til
hennar fé á fjárlögum þessa árs.
Varðandi aðstöðu fyrir börn
benti fólk almennt á að það
vantaði fleiri dagvistunarrými
og einnig komu margar ábend-
ingar um starfsvelli.
Varðandi skólanan kom það
greinilega fram, að fólk lagði
mikla áherzlu á hagkvæmni í
skólabýggingunum og vísuðu
margir til þess fyrirkomulags,
sem er í Hólabrekkuskóla og
Ölduselsskóla að þar eru lausar
kennslustofur, sem eru hentug
Erlendur Kristjánsson
lausn til að taka toppana,
þannig að ekki standi tómt eftir
vandað og dýrt húsnæði, þegar
nemendum fer aftur fækkandi,
eins og reynslan er í sumum
öðrum borgarhverfum. I svörum
sínum ræddu menn mikið
nauðsynina á fullorðinsfræðslu
og bent var á þá leið að stofna
öldungadeild við Fjölbrauta-
skólann.
Þá kom það líka sterkt fram,
að Breiðholtsbúar vilja mjög
almennt fá slökkvistöð og lög-
reglustöð í hverfið. Lögreglustöð
er fyrirhuguð, en slökkvistöð
ekki, en ég hef þá trú, að
hreyfing komist á það mál úr
þessu.
Einnig var almennt nefnt að
það vantaði skautasvell í Breið-
holt og kvikmyndahús, en meðal
lóða í Mjóddinni var einni
úthlutað undir kvikmyndahús,
til Edda-film. Hins vegar
minntist enginn á þörf á
skemmtistað fyrir fullorðna í
Breiðholti, þannig að sennilega
vilja Breiðholtsbúar öldurhúsa-
starfsemi annars staðar í borg-
inni en í sínu hverfi.
Loks má nefna, að mjög
margir komu inn á kirkjumál.
Virtust flestir þeirrar skoðunar
að smíða eigi eina stóra og
veglega kirkju í hverfinu, en
síðan hafi hver söfnuður sitt
safnaöarheimiii fyrir félags-
starf og kapellu til smærri
kirkjulegra athafna."
— Ilvað með atvinnumálin?
„Þar skiptust menn nokkuð í
tvo hópa; sumir vildu fá léttan
iðnað inn í hverfið, en aðrir
þvertóku fyrir slíka starfsemi.
Ég er þó á því, að fyrrnefndi
hópurinn sé nokkru stærri, en
allir tóku það fram, aö iðnaður-
inn yrði að vera hreinlegur og
nefndu margir bílaverkstæði
sem dæmi um óæskileg fyrir-
tæki í hverfinu.“
— Hvað með séróskir íbúanna?
„íbúar Breiðholts I nefndu
margir betri tengingu milli
hverfishlutanna með göngustíg-
um og einnig nefndu þeir til
sundlaug og íþróttaaðstöðu.
Vegna þess síðarnefnda er
rétt að taka fram, að í syðri
Mjóddinni, fyrir neðan Alaska,
á að rísa mikil íþróttamiðstöð,
þar sem meðal annars verður
sundlaug. Ibúar í Breiðholti III
minntust margir á heilsugæzlu-
stöð, sem ég hef nefnt hér að
framan, og á sundlaug, en á
þessu ári verður einmitt tekin í
notkun 25 metra laug við
Fellaskóla.
Þá komu margir íbúar Breið-
holts III inn á betri tengingu við
Breiðholt I, þar sem eru meðal
annars pósthús og apótek og
margir nefndu, að þeir vildu fá
slíkar stofnanir einnig í sinn
hverfishluta.
Það var svo að vonum áber-
andi meðal íbúa í nýjasta
hlutanum, Breiðholti II, hvað
fólk lagði ríka áherzlu á um-
hverfismálin. Margir þar
nefndu til útivistarsvæði með
trjám og tjörnum og einnig var
mikið spurt um svæðið fyrir
neðan Alaska, en þar á að rísa
mikil íþróttamiðstöð, eins og ég
nefndi áðan.“
— Ilvað með verzlanir?
„Helzt var það, að fólk benti
á að ýmsar sérverzlanir vantaði
og komu ýmsar ábendingar
fram í þeim efnum; En í það
heila tekið held ég að fólk hafi
talið vel að því búið með
brýnustu nauðsynjar.“
— En samgöngumálin?
„í svörum Breiðholtsbúa kom
lítil sem engin gagnrýni fram á
þjónustu Strætisvagna Reykja-
víkur.
Hins vegar kom fram mikil og
almenn gagnrýni á það, að
aðeins ein akstursleið liggur að
og frá hverfinu. Bæði lengir
þetta ferðir fólks óþarfiega
mikið og einnig skapazt mjög
oft hreint vandræðaástand, þeg-
ar mikil umferð er. Fólk spurði
mikið um fyrirhugaða hrað-
braut um Fossvogsdalinn og af
svörum fólks var greinilegt að
það unir illa við það fyrirkomu-
lag, sem nú er á samgöngukerf-
inu, hvað þetta snertir."
— Ilvað hyggist þið gera með
niðurstöður þessarar skoðana-
könnunar?
„Við munum kynna borgar-
fulltrúum efni þeirra og einnig
ætlum við að efna til funda með
Breiðholtsbúum um málefni
hverfisins og fá á þessa fundi
borgarfulltrúa og embættis-
menn borgarinnar til að sitja
fyrir svörum og gefa upplýsing-
ar um það sem á döfinni er.“