Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978
Nýtt uppboðsfyrirtæki
Fyrir nokkrum vikum sendi
nýtt fyrirtæki, Hlekkur sf., frá
sér fyrstu uppboðsskrá sína yfir
frímerkjaefni, og er það að
langmestu leyti íslenzkt. Að
þessu fyrirtæki standa fjórir
ungir menn og þegar kunnir
meðal frímerkjasafnara: Hálf-
dan Helgason, Lórens Rafn,
Sigfús Gunnarsson og Sigurður
R. Pétursson. Þeir hafa áður
komið við sögu í sambandi við
frímerkjaviðskipti og fengið
nokkra reynslu, þar eð þeir hafa
um skeið rekið skiptiklúbbinn
Keðjuna. Með þessu nýja fyrir-
tæki, sem þeir hafa skírt hinu
skemmtilega nafni Hlekkur,
sem eðli málsins samkvæmt
hlýtur að vera nátengt Keðj-
unni, hyggjast þeir færa starf-
semi sína inn á nýjan vettvang.
í formálsorðum fyrir skránni
segja þeir, að hið nýja fyrirtæki
bjóði öllum frímerkjaáhuga-
mönnum þjónustu sína og marki
uppboðslisti þess tilgang fyrir-
tækisins í aðalatriðum. Enn
fremur segja þeir, að sjá megi af
efni listans, að á boðstólum sé
mjög gott úrval af frímerkjaefni
frá mörgum eigendum og á
lágmarksverði, sem allir venju-
legir safnarar ráði við. Að
endingu taka þeir svo fram, að
það sé undir söfnurunum komið,
hvort hér sé á ferðinni vísir að
löngu og góðu samstarfi.
Uppboð fyrirtækisins fer svo
fram í ráðstefnusal Hótels
Loftleiða laugardaginn 13. maí
nk. óg hefst kl. 13.30. Þar sem
uppboðsskráin birtist rúmum
tveimur mánuðum, áður en
uppboðið fer fram, hafa menn
ágætan tíma til að lesa skrána
og kynna sér þannig efnið. Sjálft
verður það svo til sýnis laugar-
daginn 6. maí kl. 14—17 í sal 1
að Hótel Esju og svo á uppboðs-
stað sjálfan uppboðsdaginn kl.
10—11.30. Skrifleg boð þurfa að
berast fyrir 8. maí.
Þá hefur Hlekkur sf. auglýst
næsta uppboð sitt 7. okt. í haust
á sama stað. Ef menn hafa hug
á að koma efni á framfæri,
verður það að berast til fyrir-
tækisins fyrir 1. júní nk.
Ljóst er af því, sem hér hefur
verið greint frá, að forráðamenn
Hlekks sf. vilja hér brjóta blað
í uppboðssögu íslenzkra frí-
merkja — og er það vissulega
vel. I fyrsta lagi senda þeir
uppboðsskrá sína út með svo
góðum fyrirvara, að enginn ætti
þess vegna að þurfa að missa af
því efni, sem upp verður boðið.
I öðru lagi leiðir svo af því, að
skráin getur borizt tímanlega til
allra safnara úti á landi og eins
til erlendra safnara, sem áhuga
hafa á íslenzkum frímerkjum.
Ég hygg líka, að það sé einmitt
tilgangur þeirra félaga að geta
á þann hátt haslað sér völl
meðal erlendra uppboðsfyrir-
tækja, sem hafa verið einráð
með íslenzkt frímerkjaefni utan
íslands. Ég fagna þessari
stefnu, enda á hún að geta orðið
öllum til hagsbóta — og þá ekki
síður þeim eigendum frímerkja-
efnis, sem oft hafa verið í
hálfgerðum vandræðum með að
losa sig við það efni, sem þeir
hafa ekki áhuga á að eiga í
söfnum sínum, og þá ekki sízt
erlent efni.
Vissulega hefur Félag frí-
merkjasafnara um allmörg ár
haldið frímerkjauppboð undir
ágætri stjórn Sigurðar P. Gests-
sonar og margt efnið skipt þar
um eigendur. Hafa allir verið
mjög ánægðir með þetta fram-
tak F.F. Hinu verður svo aftur
á móti ekki leynt, að þessi
uppboð hafa að mestu verið
bundin við innlendan markað og
þá einkum fyrir það, hversu
seint uppboðsskráin hefur oft
komið út. En með stofnun þessa
nýja fyrirtækis á að geta opnazt
miklu stærri markaður en áður.
Kæmi mér engan veginn á
óvart, að áhugi erlendis frá
mun meiri en forráðamenn
HLEKKUR SF.
DOOC
FríierkiaiPPlil
RAÐSTEFNUSAL HOTELS LOFTLEIÐA
LAUGARDAGINN 13. MAi KL 13.30
Uppb«SMfni8 tr til sýnis laugardaginn 8. mai
kl. 14 - 17 i sal 1 «8 Hótal Esju of uppboðs-
dt»nn M. 18 - 1U0 é uppboðsstað.
Skrifleg boö þurfa að hafa
borist fyrir 8. maf 1978.
Postal bids must hava
reacbad bofor* 8. May 197».
Naesta uppboC verður haldið á sama stað 7. októ-
Hlekksins hafa gert sér vonir
um. Þeir hafa einnig tjáð mér,
að nú þegar séu skrifleg boð
farin að berast fyrirtækinu,
bæði utan af landi og eins frá
útlöndum. Verður að mínum
dómi næsta forvitnilegt að
fylgjast með þessu fyrsta upp-
boði Hlekksins — og ekki sízt'í
ljósi boða erlendis frá. Tel ég
líklegt, að við hér heima verðum
að taka á honum stóra okkar til
að geta hreppt sumt af því, sem
á boðstólum er. En allt kemur
það í ljós eftir rúman mánuð. Ég
Frimerki
eftir JÓN AÐAL
STEIN JÓNSSON
geri svo ráð fyrir, að fyrirtækið
sendi frá sér niðurstöður upp-
boðsins í maí með næstu upp-
boðsskrá í haust. Sannleikurinn
er sá, að það er mjög gagnlegt
fyrir alla aðila að geta þannig
fylgzt með markaðsverði á
hverjum tíma.
Ekki get ég neitað því, að ég
hef heyrt því fleygt, að ýmsir
félagar í F.F. séu hálfuggandi
um framtíð uppboða F.F. við
tilkomu hins nýja fyrirtækis.
Hér hlýtur auðvitað tíminn einn
að leiða í ljós, hvernig fer. Ég
álít sjálfur, að hér sé engin
hætta á ferðum — eða þurfi ekki
að vera. Hitt leiðir eðlilega af
sjálfu sér, að samkeppni hlýtur
eitthvað að aukast um það efni,
sem fáanlegt er, en það á
einungis að verða öllum til
hagsbóta, ef rétt er að staðið. Þá
má og benda á það, að tveir af
aðstandendum hins nýja fyrir-
tækis eru um þessar mundir
miklir áhrifamenn innan F.F.,
annar þeirra nýkjörinn formað-
ur félagsins og hinn dugmikill í
sjálfri uppboðsnefnd þess. Þessa
menn báða tel ég mig þekkja svo
vel, að ég fullyrði, að þeir vilji
veg og hag Félags frímerkja-
safnara sem mestan og líti svo
á, að fyrirtæki þeirra eigi
einungis að geta orðið uppboð-
um F.F. til örvunar. Hér gæti
t.d. uppboðsnefnd F.F. þegar
lært það að koma uppboðsskrá
sinni til muna fyrr út en hingað
til hefur oft orðið raunin á.
Ég hef blaðað í gegnum
uppboðsskrá Hlekks sf. og lízt
vel á hana. Frágangur allur er
til fyrirmyndar og stendur
engan veginn að baki sambæri-
legum erlendum skrám, sem ég
hef séð. Prentun mynda hefur
tekizt vel og framsetning öll er
ljós. Ég get ekki annáð en
fagnað því íslenzka yfirbragði,
sem á skránni er, en mér kæmi
samt ekki á óvart, að auka þurfi
smám saman skýringar á ensku
vegna þeirra erlendu manna,
sem skrána fá í hendur. Þá
virðist mér lágmarksverði víð-
ast stillt í hóf, en þar mun
fyrirtækið að einhverju leyti
bundið af mati seljenda.
Verðlagning heilla bréfa og
stinipla er alltaf vandkvæðum
bundin, enda ræður hér sem
oftast áhugi einstakra manna.
Fróðlegt verður vissulega að sjá,
hver niðurstaða verður af fyrsta
uppboði hins nýja fyrirtækis í
maí bæði í þessum efnum sem
öðrum. Ég vil nota hér tækifær-
ið og óska fyrirtækinu góðs
gengis og vona jafnframt, að
það komi íslenzkum söfnurum
að sem mestum notum samhliða
félagsuppboðum F.F.
Að endingu vil ég benda
söfnurum á, að uppboðsskrá
Hlekks sf. fæst í Frímerkjahús-
inu í Lækjargötu 6 A og
Frímerkjamiðstöðinni á Skóla-
vörðustíg 21 A, og er verði
hennar stillt í hóf.
Ný færeysk
frímerki 13. þ.m.
Póststjórn Færeyja hefur
sent út tilkynningu um næstu
frímerki sín, en þau koma út 13.
þ.m. Eru það þrjú frímerki með
myndum af þremur algengustu
sjófuglum Færeyja og hinum
mikilvægustu, þ.e. lunda, lang-
víu og súlu. Þessi tilkynning er
mjög vel og fallega úr garði gerð
og merkin sýnd í litum. Gæti
póststjórn okkar alveg að ósekju
lært hér margt af frændum
okkar í Færeyjum.
Sérstök fyrstadagsumslög
koma út á vegum póststjórnar-
innar með mynd af fuglabjargi.
Þá verður sérstimpill notaður á
útgáfudaginn, og sýnir hann
lunda á flugi. Umslögin og
stimpilinn teiknar Lasse
Sorensen.
Hver sem er getur gerzt
áskrifandi að frímerkjaútgáfu
færeysku póststjómarinnar og
þarf ekki annað en rita til
hennar og biðja um þar til gert
eyðublað. Utanáskriftin er:
Postverk Foroya, Frimerkja-
deildin, 3800 Tórshavn, Feroyar.
F0ROYSKIR BJARGAFUGLAR
Fyrstadagsumslag.
— Beinar
Framhald af bls. 1.
Frakklandsforseti sagði frétta-
mönnum að hið alvarlega ástand í
efnahags- og gjaldeyrismálum
kallaði á „mikið átak sem krefðist
hugmyndaflugs og skipulagshæfi-
leika". Hann sagði að bandalagið
yrði að koma á laggirnar traustu
gengiskerfi og kvaðst mundu skýra
frá tillögum sínum í þessu efni á
morgun.
Giseard forseti og Helmut
Schmidt kanzlari ræddu leiðir til
að gera Vestur-Evrópu að einu
traustu gjaldeyrissvæði þegar þeir
hittust einslega nálægt París í
marzlok. Embættismenn segja að
þeir hafi náð samkomulagi í
meginatriðum um réttu leiðina.
Fyrir fundinum liggur bréf frá
Roy Jenkins, forseta fram-
kvæmdanefndar bandalagsins, þar
sem hvatt er til öflugrar samstöðu
til að binda enda á glundroðann í
gjaldeyriskerfinu.
Beinu kosningarnar til Evrópu-
þingsins verða haldnar 7,—10. júní
á næsta ári. Þingið sem situr í
Luxemborg verður skipað 410
þingfulltrúum í stað 198 nú.
Þjóðþing aðildarlandanna kjósa
núverandi þingmenn.
— Skotið
Framhald af bls. 1.
sínum að þekktum iðjuhöldi í
Genúa og særðu hann skotsárum.
Talið er öruggt, að mennirnir sem
gerðu atlögu að honum tilheyri
Rauðu herdeildinni. Maðurinn,
Felice Schiaveti, sem er fimmtug-
ur formaður félags iðnrekenda í
Genúa og sjö barna faðir var
fluttur á sjúkrahús og nokkru
síðar var hringt til blaðs í Genúa
og árásinni á hendur Schiavetti
lýst á hendur Rauðu herdeildinni.
— Sameining
Framhald af bls. 3.
Lfugmenn Loftleiða hafa
haldið því fram að flugmenn
Flugfélags íslands hafi tekið
yfir flug á flugleiðum Loftleiða
en þess skal getið, að engin
fjölgun hefir orðið í starfsliði
eða flugflota Flugfélags íslands
síðan 1971. Að undanförnu hafa
Loftleiðaflugmenn komið inn á
rútur Flugfélags íslands eins og
t.d. Frankfurt, sólarlandaflugið
til Ítalíu, Grikklands, Malaga og
fleiri staða, þannig að þeir hafa
ekki farið með skarðan hlut frá
borði á þeim vettvangi.
Hitt er svo, að það er aðeins
eitt ráð til þess að lækna þá
tortryggni og sundrungu sem er
innan stéttar flugmanna vegna
þessara mála og það ráð er að
sameina starfsaldurslista flug-
manna í eitt skipti fyrir öll. Það
munu ekki allir halda nákvæm-
lega sömu röð í réttindum og
þannig mun það bitna á sumum
en koma öðrum betur til dæmis
hvað snertir röð aðstoðarflug-
manna til þess að verða flug-
stjorar, en það miðast við
hugsanlega möguleika í fram-
tíðinni. Þessi sameining á ekki
að hafa áhrif á laun manna í
dag og brýn nauðsyn er til að
leysa þetta óeðlilega deilupiál,
þannig að sameiningin er eina
lausnin þótt menn greini að
sjálfsögðu á um framkvæmd
málsins."
— Þrír á móti
Framhald af bls. 2
okkar og þá helzt reynsla Svía af
milliölinu, sem ekki varð par góð
og þeir hafa nú losað sig við
aftur.“
XXX
„Mér finnst það alveg fáránlegt,
ef fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan
á að verða um bjórinn," sagði
Jónas Árnason, alþingismaður, en
hann var fjarstaddur, þegar málið
var afgreitt.
„Þetta álit er dæmigert um það
óhugnanlega gerviástand, sem
þetta þjóðfélag okkar er komið í,“
sagði Jónas. „Það er líka alveg
dæmigert um mat fjölmiðla á
málum, að þegar Mbl. hringir í
mig, þá er það vegna þessa líka
málsins. Þessu bíður þjóðin spennt
eftir, eða hvað? Spurningunni um
það, hvort það fáist 2—3% sterk-
ari bjór.
Þetta fólk, sem andvaralaust
hefur látið svíkja inn á sig aðild
að hernaðarbandalagi, her og alls
kyns samninga við erlenda aðila.
Það hefur aldrei hvarflað að því,
hvort það fái að greiða þjóðarat-
kvæði um slík stórmál. En nú
bíður það með öndina í hálsinum
eftir því, hvort það fái að greiða
þjóðaratkvæði um bjór.
Og svo á að brambolta með þetta
mál í sambandi við Alþingiskosn-
ingar. Drottinn minn dýri! Hvílíkt
ástand með einni þjóð. Það er ekki
að því að spyrja, þegar bíður
þjóðarsómi...“
XXX
„I sjálfu sér finnst mér ekkert
óeðlilegt að leggja bjórmálið undir
þjóðaratkvæðagreiðslu, en það
verður að gerast með miklu
ákveðnari hætti en kemur fram í
áliti meirihlutans," sagði Lárus
Jónsson, sem var fjarstaddur, er
málið var afgreitt.
„Fólk verður þá að vita, hvað
það er að kjósa um,“ sagði Lárus.
„Á til dæmis að leyfa sölu áfengs
bjórs í verzlunum, eða einungis í
áfengissölunum og miða þá verðið
við áfengisinnihald? Ég tel að það
þurfi að setja þetta mun ákveðnar
fram, þannig að það sé á hreinu,
hvað fólk er að kjósa um.“
Spurningu Mbl. um það, hvort
hann hefði tekið efnislega afstöðu
til bjórsins, svaraði Lárus neit-
andi. „Ég hef ekki alveg gert upp
minn hug í þessu máli.“
— Eastern
Framhald af bls. 21
flugfélagið Pan American samn-
ing um kaup á 12 L-1011 breiðþot-
um af Lockheed fyrir um 500
milljónir Bandaríkjadala.
Frank Borman, fyrrverandi
geimfari í Apollo-áætluninni
ogstjórnarformaður Eastern Air-
lines, sagði á fundi með frétta-
mönnum að þessi vél væri „bezta
vélin sem framleidd væri í dag“.
Borman sagði að hún hentaði
einstaklega vel á flugleiðum
félagsins.
Jafnframt sagði Borman að
A-300 B vélin væri 30% sparneytn-
ari en þriggja hreyfla Boeing-727
og um 20% hagkvæmari í rekstri
en aðrar breiðþotur.
— Norskir
Framhald af bls. 1.
sveitir S.Þ. hafi formlega tekið þar
við. Hóta Palestínumenn að láta
ekki af árásum fyrr en ísraelar
hafi sig á braut af þessu land-
svæði.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur
látið í ljós nokkra óánægju með þá
áætlun sem ísraelar hafa gert um
brottflutning herja sinna. Að vísu
væri hann feginn að undirbúning-
ur væri hafinn en honum fyndist
sem ekki væri á sannfærandi hátt
að honum staðið og minnti á að
samkvæmt samþykkt 425 skyldu
ísraelar á braut með alla sína
menn af líbönsku landi. ísraelar
hafa jafnan sagt að þeir miði að
því að vera farnir frá Suður-Lí-
banon fyrir mánaðamótin, en hafa
einnig slegið þann varnagla, að því
aðeins hverfi þeir allir á braut að
gæziuliðið hafi sýnt fram á, að það
sé fært um að ábyrgjast að
skæruliðar Palestínumanna fái
ekki búið uum sig þarna á nýjan
leik.
— Brezhnev
Framhald af bls. 21
til 22! apríl og munu viðræður
þeirra snúast um hinar svonefndu
„cruise" eldflaugar Bandaríkja-
manna, en ágreiningur um þær
þykir helzt standa í vegi fyrir
SALT-samkomulagi, að sögn sér-
fræðinga.
— K. B. Andersen
Framhald af bls. 48
kynna sér íslenzka fatafram-
leiðslu.
Á laugardagsmorgun fara gest-
irnir til Vestmannaeyja og þaðan
verður flogið til Egilsstaða.
Danski utanríkisráðherrann ósk-
aði sérstaklega eftir því að fá
tækifæri til að heimsækja Aust-
firði og munu þau hjónin fara til
Reyðarfjarðar. Um kvöldið heldur
danski utanríkisráðherrann hóf að
Hótel Borg.
Dönsku gestirnir 'halda utan
aftur á sunnudag.