Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 29

Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978 29 Kerlingin 1 hönd- um Leikfélags V estmannaeyja Leikfélag Vestmannaeyja, frumsýnir í kvöld leikritið Ertu nú ánægð kerling, en leikritið byggist upp á fjórum þáttum eftir Lars Levi Larslatius og einum þætti eftir Svövu Jakobs- dóttur. Tónlistin í leikritinu er eftir G.E. Dander, Megas og Sigurð Rúnar Jónsson. Leikstjóri er Guðrún Alfreðsdóttir og söng- stjóri Sigurður Rúnar Jónsson. Leikmynd gerði Magnús Magnús- son. Ertu nú ánægð kerling er þriðja verkefni Leikfélags Vestmanna- eyja í vetur og verkefni nr. 99 frá upphafi en mikil gróska er nú í leikstarfsemi í Vestmannaeyjum. Auk þessa þriggja sýninga LV í vetur hafa Eyjamenn fengið í heimsókn Leikbrúðuland, Alþýðu- leikhúsið og Þjóðleikhúsið. í Kerlingunni eru II kvenhlut- verk og tvö karlhlutverk. Margt nýtt fólk tekur nú þátt í leikstarf- seminni í Vestmannaeyjum, ungt og áður óþekkt leiklistarfólk. I sýningunni leikur tríó tónlistina og er tríóið skipað Sigurði Rúnari Jónssyni, Ævari Kvaran og Sig- urði Þórarinssyni. Næstu sýningar á Kerlingunni í Eyjum verða á sunnudag kl. 8.30 og á briðjudag á sama tíma. Leikarar og leikstjóri og sviðsmenn Leikfélags Vestmannaeyja í Kerlingunni. Þorsteinn Sigurðsson, formaður Kiwanisklúbbsins Elliða, afhendir Pétri Sigurðssyni, formanni Sjómannadagsráðs, hina góðu gjöf Kiwanis- manna. Kiwanismenn færa Hrafnistu góða gjöf HRAFNISTU í Hafnarfirði barst nýverið góð gjöf frá Kiwanis- klúbbnum Elliða í Reykjavík. Var þar um að ræða annars vegar hreyfanlegt tæki til súrefnisgjaf- ar í neyðartilfellum og hins vegar hitakassa til notkuhar í heilsu- rækt heimilisins, en það eru sérstaklega gerðir kassar fyrir púða sem lagðir eru m.a. yið liðamót sem þurfa hreyfingu og liðkun undir handieiðsiu og með Hefur einhver fundið ljósbrúna skjalatösku? SKÖMMU fyrir hádegi í gær varð ung kona fyrir því óláni að gleyma ljósbrúnni „hard-back“ skjalatösku fyri utan Klappar- stíg 9. Hún var að sækja þangað barnið sitt og lagði töskuna frá sér á gangstéttinni en gleymdi henni óvart. Konan er við háskólanám og f töskunni voru ritgerðir og annað efni, sem konan hafði lagt margra mán- aða vinnu í. Það eru tilmæli lögreglunnar að skilvís finnandi hjálp sjúkraþjálfara eða nudd- ara. Einnig hefur Hrafnistu borizt fjöldi annarrra góðra gjafa að undanförnu, m.a. færði Kvenfélag- ið Hrund í Hafnarfirði heimilinu prjónavél og Sjálfstæðisfélagið Vorboðinn færði því saumavél. Þá færði Oliver Steinn bóksali heimil- inu nýverið fjölda nýrra bóka til minningar um föður sinn og bróður. komi töskunni á lögreglustöðina eða hringi í konuna í síma 16241. Merkjasala ljósmæðra HIN árlegi merkjasölu- dagur Ljósmæðrafélags Reykjavíkur verður á morgun, sunnudag. Merkin verða afhent sölubörnum á tveimur stöðum í bænum, í Langholtsskóla og Álfta- / mýrarskóla. Þorbjörg Þórðardóttir sýnir tauþrykk, sem hugsað er í gluggatjöld, áklæði, púða og fleira í þeim dúr. Mynstrin hefur Þorbjörg kallað „Laufórar“. Fjölbreytt sýning T extílfélagsins ÞESSA dagana stendur yfir í Norræna húsinu sýning 17 félaga í Textílfélaginu. Sýning þessi er hin fjölbreyttasta og þar getur að líta tauþrykk, fatahönnun, vélavefnað, almennan vefnað og myndvefn- að. Má segja að sýningin sé hvort tveggja í senn, listsýning og listiðnaðarsýning. Mbl. ræddi við þrjár listakonur, sem sýna á sýningunni, Ásgerði Búadóttur, Salóme Fannberg og Þorbjörgu Þórðardóttur, og bað þær að segja lítillega frá félaginu og sýningunni. Textílfélagið var stofnað í október 1974, en þetta er fyrsta íslenzka samsýning þess. Árin 1976 til 1977 tóku fimm félagar Textílfélagsins þátt í farand- sýningunni „Nordisk textil- triennale" (Norræn vefjalist), sem sett var upp á Kjarvalsstöð- um. Alls er 21 félagi í félaginu og allt konur. Skilyrði fyrir inn- göngu í félagið er að hafa lokið textíl-námi frá viðurkenndum listaskólum og listiðnaðarskól- um. Skal samanlagður námstími í textílgreinum hafa verið þrjú ár. Sjálfsmenntun kemur einnig til greina. Orðið textíl er dregið af latneska orðinu „texere“ og þýðir nánast fléttun. Ekkert sambærilegt orð er til í íslenzku, en orðið vefjalist hefur oft verið notað yfir þessa listgrein. „Þegar búið er f landi eins og íslandi, fer ekki hjá þvf að maður verði fyrir áhrifum af náttúrunni. Eg túlka þau áhrif sem ég verð fyrir í vefinn á óhlutbundinn hátt, ... eldinn — umbrotin — ísinn — og alls staðar rýkur upp úr jörðinni,“ sagði Ásgerður Búadóttir. Tilgangur sýningarinnar er að sýna það nýjasta sem félags- menn eru að fást við. Myndvefn- aður er ríkjandi á sýningunni og þar er unnið með mismunandi aðferðum og efnum og túlkunar- mátinn ólíkur. Tauþrykkið er ný listgrein og hefur ekki oft sézt hér á sýningum. Fatahönnunin ér einnig nýjung á sýningunni í því formi sem hún er þar. Hafa tveir textíl-hönnuðir haft sam- vinnu um fatahönnunina og bjó annar til efnið en hinn gerði sniðið. Sýningu Textílfélagsins lýkur á mánudagskvöld en hún er opin frá 14 til 22 alla daga. „Ég get ekki flokkað list mfna. Ég er mikið með þrívíddarmyndir og þang og söl nota ég mikið í verkum mínum. Mér finnst gaman að þessu, ég tíni þau niðri í fjöru og ég veit ekki um neina aðra sem notar þang í verk sín,“ sagði Salóme Fannberg. „Ég var svolftið hrædd við að sýna þetta, en ég held að fólki hafi líkað verkin vel. Ég lærði á Spáni, en ég sé engin spánsk áhrif í myndunum. Tæknina lærir maður auðvitað í sínum skóla en viðfangsefnið er alltaf íslenzkt."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.