Morgunblaðið - 08.04.1978, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRIL 1978
Prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar fer fram í dag og á morgun. Sextán
eru í framboði og verður kosið í samkomuhúsi Vestmannaeyja. Stendur kjörfundur yfir kl. 11 —19 í dag, laugardag og
á morgun, sunnudag, kl. 10—22. Hér fara á eftir svör frambjóðenda við spurningunni um hver séu helztu verkefni
bæjarstjórnar.
Geir Jón Þórisson,
lögregluþjónn, 25. ára.
Makii Guórún Ingveldur Trausta-
dóttir.
Úr Reykjavík fluttist ég í janúar
1974 og eftir að hafa kynnst
Vestmannaeyingum og Vest-
mannaeyjum vil ég leggja mitt lóð
á vogarskálina til að vinna að
bæjarmálum. Það er krafa okkar
Vestmannaeyinga að í bæjarstjórn
veljist hæfir menn og treysti ég á
ykkur Vestmannaeyinga að taka
þátt í prófkjörinu til að svo megi
verða.
Stefna mín í bæjarmálum er sú
að unnið verði að þeim verkefnum
sem mest eru aðkallandi, það er
fegrun bæjarins, gatnagerð og
hafnarmál. Vinnum að þvi að
yngja upp bæjarstjórnina, kjósum
yngsta manninn á listanum.
Steingrímur Arnar,
verkstjóri, 47 ára.
Makii Eygló Einarsdóttir.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn
hafði sterkust áhrif á gang bæjar-
málefna í Vestmannaeyjum lifðu
Eyjarnar sitt blómaskeið. Þegar
áhrifavald Sjálfstæðisflokksins
dvínaði tók að halla undan fæti.
Það er sannfæring mín að gæfa
Vestmannaeyja og Sjálfstæðis-
flokksins í Vestmannaeyjum fari
saman. Eg trúi því að verulega
aukin áhrif flokksins á nýjan leik
boði nýtt blómaskeið í Vestmanna-
eyjum.
Þátttaka mín í þessu prófkjöri
þýðir að ég vil gjarnan taka þátt
í þeim átökum sem framundan
eru. Verði ég kosinn í bæjarstjórn
mun ég vinna að því að Vest-
mannaeyjar og Vestmannaeyingar
nái aftur þeim mæli virðingar og
trausts meðal þjóðarinnar sem
þeir nutu fyrr á árum og verð-
skulda enn í dag. Ég vil taka þátt
í störfum sem miða að þessu og
eiga hlut að þeim gagngeru
breytingum sem hljóta að verða á
starfsháttum bæjaryfirvalda frá
því sem nú er til að menn hafi
árangur sem erfiði í þessum
efnum.
Ingibjörg Á. Johnsen,
húsmóðir, 55 ára.
Makii Bjarnhéðinn Eliasson.
Starf mitt hefur töluvert verið
meðal unga fólksins og með því er
gott að vinna. Vinna ber að auknu
bindindisstarfi. Hlut eldri borgara
þarf að gera stærri. I okkar
bæjarfélagi er af miklu að taka
þar sem við stöndum að erfiðri
enduruppbyggingu. Vinna ber að
þeim bæjarmálum sem upp koma
og brýnast þykir að fái afgreiðslu
hverju sinni. Nýta ber fyrst og
fremst verkkunnáttu þeirra
manna, sem hafa reynslu og
þekkingu í hverju máli. Við
þurfum á ný að taka forystuna í
þróun fiskiðnaðar og útgerðar á
Islandi, við þurfum að vinna að því
að þeir sem við fiskiðnað vinna, fái
þau laun sem því fólki' réttilega
ber, þar sem fiskiðnaður er sá
atvinnuvegur okkar sem við byggj-
um lífsafkomu okkar á. Ég vil
hvetja bæjarbúa til að taka þátt í
prófkjörinu, því skynsamlegast og
sterkast er að menn gangi samein-
aðir fram til þess að vinna að
hinum fjölmörgu sameiginlegu
baráttumálum okkar.
Sigurður Jónsson,
yfirkennari, 32. ára.
Makii Ásta Arnmundsdóttir.
Eitt brýnasta verkefni næstu
bæjarstjórnar er að vinna að því
í auknum mæli að skiiningur
ráðamanna þjóðarinnar aukist á
þeim vanda er steðjar að höfuðat-
vinnuvegi Eyjanna, fiskvinnsl-
unni. Tryggja verður að eitthvað
raunhæft verði gert til úrbóta,
framtíð byggðarlagsins byggist á
því. Þótt mörgu sé lokið í uppbygg-
ingarstarfinu eru fjölmörg brýn
verkefni sem bíða úrlausnar næstu
bæjarstjórnar. Stærstu fram-
kvæmdamálin eru varanleg gatna-
gerð, áframhaldandi framkvæmd-
ir við hraunhitaveitu og uppbygg-
ing skipalyftu. Af öðrum verkefn-
um má nefna; kanna þarf rækilega
á hvern hátt bæjarsjóður getur
stuðlað að fjölbreyttara atvinnu-
lífi í bænum, einkum með iðnað í
huga er vel myndi henta fólki með
skerta starfsorku.
Á kjörtímabilinu hefur mikið
verið gert til að bæta félagslega
þjónustu. Næsta verkefni í þeim
efnum er bygging nýs grunnskóla
fyrir byggðina í Hamarshverfi.
Nauðsynlegt er að staðið verði við
þá samþykkt að bjóða út sem flest
verkefni á vegum bæjarsjóðs. í
flestum tilfellum leiðir það til
sparnaðar og flýtir framkvæmd-
um.
Það er siður stjórnmálamanna
að gefa út fyrir kosningar langan
lista með kosningaloforðum. Ég
treysti mér aðeins til að gefa eitt.
Verði ég áfram valin til setu í
bæjarstjórn mun ég í hverju máli
hafa hagsmuni bæjarfélagsins í
huga.
Magnús Þór Jónasson,
stöðvarstjóri, 30 ára.
Makii Guðfinna Óskarsdóttir.
I fyrsta lagi þarf að koma
skipulagi og festu á fjármál
kaupstaðarins, það vill segja að
fjármunir bæjarbúa séu nýttir á
sem skynsamlegastan hátt, ekki
sóað til óþurftar eins og því miður
hefur skeð á undanförnum árum.
Minnka þarf yfirbygginguna og
stjórnunarkostnaðinn, en auka
framkvæmdir. Er ekki nokkur
hemja að aðeins innan við 20%
tekna bæjarins fari í verklegar
framkvæmdir. Báknið burt í
reynd.
I öðru lagi þarf að leggja mikla
áherzlu á mikilvægi hafnarinnar
sem lífæð byggðarlagsins. Eru þar
alltaf brýn verkefni til að leysa og
má þar til nefna dýpkun hafnar-
ionar, sem verður að hafa forgang.
Éá þarf afkastamikið dýpkunar-
skip til að hreinsa höfnina og sér
í lagi innsiglinguna, verður það að
gerast strax. Þá þarf að vinna
áfram að framtíðarskipulagi hafn-
arsvæðisins, koma upp skipalyft-
unni, gera framtíðarhafskipa-
bryggju og hreinsa og fegra
hafnarsvæðið.
í þriðja lagi verður að skapa
fjölþættara atvinnulíf, á ég þar
sérstaklega við að skapa eldri
borgurunum vinnu við sitt hæfi
svo að þetta fólk sem verður að
hætta að vinna erfiðari störf geti
fengið einhverja vinnu við sitt
hæfi en verði ekki að flytja úr
bænum vegna þessa eins og dæmi
eru til um.
Gísli Geir Guðlaugsson,
vélvirki, 37 ára.
Makii Guðlaug Arnþrúður Gunn-
ólfsdóttir.
Áhugamál mín varðandi bæjar-
málin eru almenn og má þar telja
hitaveitu, gatnagerð og þó sér í
lagi þann aðstöðumun sem við
Vestmannaeyingar höfum búið við
í sambandi við skattamál, en þar
hefur vinstri flokkunum tekist að
nýta allar leyfilegar reglur út í
yztu æsar hvað hámark snertir.
Þar þarf að koma til breyting svo
Eyjarnar verði aftur eftirsóttar til
búsetu, því hér getur verið blómleg
byggð sé rétt á málum haldið.
Iðnaður er hér í öldudal og eru
fjármálin erfiðust. Bæjarstjórnin
getur og á að búa betur að þeirri
atvinnugrein, með réttum aðgerð-
um er hægt að bæta þar mikið um.
Vestmannaeyingar — stuðlum
að sigri D-listans með því verður
málefnum okkar bezt borgið.
Jón í. Sigurðsson,
hafnsögumaður. 66 ára.
Það er enginn málaflokkur, sem
ég vil styðja meira en annan, ég vil
aðeins segja það að ég vil vinna að
öllum góðum málum sem eru til
heilla fyrir okkur Vestmannaey-
inga.
Sigurður órn Karlsson,
rennismiður. 30 ára.
Makii Margrét Eiríksdóttir.
Ég tel að stórbæta þurfi um-
gengni og hreinlæti á hafnarsvæð-
inu og í kringum atvinnufyrirtæki
og fyrirtæki í eigu bæjarins. Bæta
þarf aðstöðu fyrir eigendur smá-
báta í höfninni til sjósetningar og
viðhalds. Örva þarf atvinnulíf
kaupstaðarins og gera það fjöl-
þættara og hef ég þá í huga
skipalyftuna.
Ég tel að draga þurfi úr áhrifum
embættismanna á stjórn kaup-
staðarins eins og kostur er, en
bæjarstjórn þarf að vera því beur
vakandi fyrir verkefnum á vegum
bæjarins.
Bjarni Sighvatsson,
kaupmaður, 29 ára.
Makii Auróra Friðriksdóttir.
Það er langt í frá að Vestmanna-
eyjar hafi náð sér eftir gos.
Mörgum áríðandi verkefnum hefur
verið lokið og önnur vel á veg
komin. En ennþá bíður fjöldi
stórra verkefna úrlausnar er varða
bæinn miklu. Sem dæmi má nefna
hraunhitaveituna. Það er sam-
eiginlegt áhugamál allra Eyja-
manna að Vestmannaeyjar og
mannlífið hér verði jafn blómlegt
og fyrir gos. Ef Eyjabúar samein-
ast um að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn til að stýra bænum þá mun það
takast.
Sigurgeir Ólafsson,
stýrimaður, 52 ára.
Makii Erla Eiríksdóttir.
Ég vil taka fram er ég tek þátt
í þessu prófkjöri að atvinnu