Morgunblaðið - 08.04.1978, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978
33
minnar vegna hef ég ekki góða
aðstöðu til að sinna bæjarmálum
eins og ég hefði annars hug til.
Mín aðaláhugamál fyrir bæinn eru
uppbygging hafnarinnar, skipa-
lyftan, að koma skolpi frá höfninni
og önnur aðkallandi mál í bæ sem
er í uppbyggingu eins og Vest-
mannaeyjar. Sjálfstæðisflokknum
óska ég góðs gengis í kosningun-
um.
Arnar Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri, 34 ára.
Makii María Vilhjálmsdóttir.
Mörg verkefni bíða næstu bæj-
arstjórnar í Vestmannaeyjum. Má
þar nefna malbikun gatna, áfram-
hald fjarhitunar með hraunvarma,
bygging sorpeyðingarstöðvar,
koma frárennslinu út fyrir Eiði og
viðhald uppgræðslunnar. Dýpkun
hafnarinnar er aðkallandi mál
ásamt þiljum Norðurhafnarinnar
og uppsetningu skipalyftu með
nauðsynlegri aðstöðu.
Meiri festa verður að ríkja í
fjármálum, framkvæmdum og
stjórnun bæjarins en verið hefur
undanfarin ár. Ljóst er að röðun
verkefna hlýtur að stjórnast af
fjárhagsgetu bæjarsjóðs og stofn-
ana hans á hverjum tíma. Hlut-
verk bæjarstjórnar er að nýta
þetta fjármagn sem bezt.
Georg Þór Kristjánsson,
verkstjóri, 28 ára.
Makii Kristrún Harpa Rútsdótt-
ir.
Helztu áhugamál mín eru og
hafa verið íþrótta- og æskulýðs-
mál. í framtíðinni verðum við að
hlúa vel að fólki svo það geti
stundað sín áhugamál í tómstund-
um þar á meðal íþróttir og annað
útilíf.
Ótrúlega mörg mál bíða úr-
lausnar hér í bæ og allir vita að
ekki er hægt að gera allt í einu en
þó verða mörg verkefni að hafa
forgang, það er að segja vegakefi
og framkvæmdir við höfnina, svo
sem hafskipabryggja, skólpið út
fyrir Eiði, stórátak í dýpkun
hafnarinnar og síðast en ekki sízt
hin margumtalaða skipalyfta sem
virðist hafa verið troðin undir
ríkisbákninu.
Guðni Grímsson,
vélstjóri, 43 ára.
Maki: Esther Valdimarsdóttir.
Hraða verður eftir mætti upp-
byggingu rafveitunnar sem mér
hefur fundist dragast fram úr
hófi. Einnig verður að vinna
kappsamlega að uppbyggingu
gatnakerfisins á næsta kjörtíma-
bili. Hætta verður að sletta í
holurnar, heldur láta fara fram
varanlega viðgerð.
Að sjálfsögðu er ég með öllum
góðum málum sem ég tel vera
byggðarlaginu til heilla.
Að lokum er ég á móti þeirri
stefnu núverandi meirihluta bæj-
arstjórnar ið leita uppi alla
hugsanlega skatta til að leggja á
bæjarbúa, en tel að heldur skuli
reynt að laða fólk að og gera
Vestmannaeyjar aftur að þeim
stað þar sem byggilegast er á
Islandi.
Þórður Rafn Sigurðsson,
útgerðarmaður, 35 ára.
Maki: Ingigerður Eymundsdóttir.
Ég hef mestan áhuga fyrir
hafnarmálum, sjávarútvegi og
fiskvinnslu, en þessir atvinnu-
þættir eru lífsnauðsynleg skilyrði
til búsetu í Vestmannaeyjum og
eru verulega háðir störfum bæjar-
yfirvalda hverju sinni.
Samgöngumál Eyjanna þarf að
tryggja enn betur en gert hefur
verið og horfa í þeim efnum fram
í tímann. Tryggja verður áfram-
haldandi rekstur sjómannaskól-
anna í Vestmannaeyjum, Stýri-
mannaskólans og Vélskólans sem
sérskóla með svipuðu sniði og
verið hefur, en láta þá ekki hverfa
inn í báknið.
Ég gef mig í þetta prófkjör
Sjálfstæðisflokksins vegna þess að
ég hef áhuga fyrir mörgum
bæjarmálefnum. Ég met einstakl-
ingsframtakið mikils og Sjálf-
stæðisflokkurinn er eini flokkur-
inn sem metur það einhvers í
stefnuskrá sinni.
Gunnlaugur Axelsson,
framkvæmdastjóri, 37 ára.
Makit Fríða Dóra Jóhannsdóttir.
Nokkur eru þau mál öðrum
fremur, sem ég vil beita mér fyrir
fái ég tækifæri til.
Frárennsli bæjarins, en það fer
í höfnina, er hið fyrsta. Koma þarf
frárennslinu út fyrir Eiðið, eins og
hefur verið stefna margra undan-
farinna bæjarstjórna hér.
I öðru lagi hef ég mikinn áhuga
á hraunhitaveitunni, en halda
verður áfram á því sviði sem unnt
er.
í þriðja lagi læt ég mig varða
uppsetningu skipalyftu sem bæj-
arsjóður hefur átt á hafnarbakk-
anum í mörg ár. Vinna þarf að því
að tryggja fjármagn til verksins
svo lyftan haldi ekki áfram að
ryðga á bryggjunni engum til
gagns.
Auk þessa vil ég taka fram, að
ég vil beita mér fyrir öllum
athyglisverðum málum sem eru
bæjarbúum og Vestmannaeyja-
kaupstað til hagsbóta.
Sigurbjörg Axelsdóttir
húsmóðir, 42 ára.
Makii Axel Ó. Lárusson.
Höfnin verður að hafa forgang
sem lífæð bæjarins. Hraða þarf að
koma skolpinu út fyrir Eiði og að
skipalyfta verði að veruleika.
Dýpkun hafnarinnar er mjög
aðkallandi svo að fiskiskip af
öllum stærðum geti athafnað sig
hér hvenær sem er með góðu móti.
Hitaveituframkvæmdum verður
að hraða sem mest við negum og
freista verður þess að fá nóg
fjármagn til þeirra framkvæmda.
Malbikun hófst loksins eftir níu
ár og verður að halda því stórátaki
vel áfram, svo að Vestmannaeyja-
bær verði fremstur í gatnagerð
eins og hann var þegar Sjálfstæð-
ist’iokkurinn hafði hér meirihluta.
Sorpeyðingarstöðin verður að
komast upp hið allra fyrsta.
Minnka þarf yfirbyggingu á
bæjarkerfinu sem er óhugnanlega
mikil og langt fyrir ofan sambæri-
lega staði annars staðar á landinu.
Framkvæma þarf þá bæjarsam-
þykkt að flest verk á vegum
bæjarins verði boðin út.
Ohjákvæmilegt er að Vest-
mannaeyjakaupstaður eigi ein-
hverjar íbúðir til ráðstöfunar, en
að eiga á annað hundrað íbúðir
nær ekki nokkurri átt. Stefna ber
að því að lækka þá tölu sem fyrst.
RralsVÍK
Dansleikur í kvöld
hljómsveitin
Oktopus
leikur
Aðeins rúllugjald
Aldurstakmark 20 ár. Snyrtilegur klæðnaður.
Hellubíó
Geyspum í Austur
Takmarkið enginn sneyptur út.
Sætaferðir á Haukagleðina B.S.Í. Hafnarfirði,
Þorlákshöfn, Laugarvatni, Selfossi.
(j^Látið draunúnn netast...
TU sudurs meó SUNNU^ ^
VELKOMIN
SUNNUHÁTÍÐ
Hótel Sögu sunnudagskvöldið 9/4.
Portúgölsk
veisla
★ Hátíðin hefst með portúgalskri veislu kl.
7.30.
★ Matseðill
Kr. 2.850-
★ Ferðakynning. Sagt frá Portúgal og þeim
möguleikum sem landiö býöur upp á, sem
nýr og spennandi ferðamannastaður.
★ Litkvikmyndasýning. Splunkuný og mjög
góö kvikmynd frá Portúgal.
★ Tískusýning. Karon samtök sýningarfólks
sýna þaö nýjasta úr tískuheiminum.
★ Ómar Ragnarsson skemmtir af sinni
alkunnu snilld.
★ Stór-Bingó. 3 glæsilegar sólarlandaferðir
dregnar út.
★ Dans. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
ásamt söngkonunni Þuriði Sigurðar-
dóttur.
Húsið opnað kl. 19. Boróapantanir í síma
20221 eftir kl. 4.