Morgunblaðið - 08.04.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978
37
Kammer-
tónleikar
Reykjavíkur Ensemble er
eftirteknarvert fyrirbæri í sam-
félagi, þar sem svona athafna-
semi á sér hvorki stað né stund.
Þörfin og áhuginn er þarna
yfirsterkari hagsmunum og hef-
ur oft verið stofnað til slíkrar
starfsemi, er framan af hefur
verið blómleg en síðar lognast út
af, er þátttakendur þreyttust á
að fórna tíma sínum, oft á tíðum
með vanþakklæti sem eina
afrakstur erfiðis síns, Reykja-
víkur Ensemble undir stjórn
Guðnýjar Guðmundsdóttur hef-
ur nú í nokkur ár staðið fyrir
frábærum flutningi, bæði hér
heima og erlendis við mjög
góðar undirtektir. Það liggur við
að þessi athafnasemi Guðnýjar
hafi verið talin óæskileg, unnin
á kostnað annarra starfa henn-
ar og valdið ósætti milli hennar
og „forstandsmanna" þeirrar
almenningseignar, sem
Sinfóníuhljómsveit íslands heit-
ir. Rekstur Sinfóníuhljómsveit-
Tónllst
eftir JON
ÁSGEIRSSON
ai íslands og starfsaðstaða
hljóðfæraleikara eru mál sem
aldrei hafa verið rædd af
hreinskilni og meira að segja er
svo um hnútana búið, þegar lagt
er í það ævintýri að lögbinda
slíka starfsemi, að þeir sem eiga
lífsafkomu sína undir þessum
lögum, eru ekki spurðir álits og
jafnvel sagt, þegar þreifað var
eftir, að um trúnaðarmál væri
að ræða, sem mun nú vera
nýmæli nema þegar um er að
ræða skyndiráðstafanir. Þrátt
fyrir erfiðar aðstæður hafa
tónlistarmenn ekki sætt sig við
þessa „núll-stöðu“ og reynt á
eigin spýtur að standa undir
fjölbreyttari tónflutningi, sem
ævinlega hefur þurft að miðast
við þann tíma sem afgangs
fellur, er störfum við hljóm-
sveitina og kennslu hefur verið
sinnt. Tónlistarmenn telja ekki
eftir að vinna fyrir kaupi sínu
og þegar gaumgæfilega er at-
hugað, þá kemur upp sú staða,
að bæði útlendir og innlendir
tónlistarmenn eru beinlínis
hraktir héðan og ekkert gert til
að hamla gegn flótta þeirra úr
störfum hérlendis.
Rekstrarform Sinfóníuljóm-
sveitarinnar er rígbundið svo og
fjöldi starfsmanna að starfsem-
in er nálægt því að vera eins og
þrælasláttur, þar sem enginn
má falla úr. Erlendis starfar
fjöldi góðra ísl. tónlistarmanna
sem óreynt er, hvort fáanlegir
séu til starfa. hérlendis, ef
mögulegt væri að finna annan
starfsgrundvöll, eins og til
dæmis að starfsskylda þeirra
væri að miklu leyti bundin við
einleik eða flutning kammertón-
listar með hámarkssetu í hljóm-
sveitinni sjálfri og reynt að
koma á skiptum fyrir erlenda
flytjendur. Þannig mætti lengi
leita úrlausna á erfiðu vanda-
máli í að manna sveitina og
standa svo að flutningi tónlist-
ar, að eitthvað væri til að stæra
sig af. Þann stutta tíma sem
Reykjavíkur Ensemple hefur
starfað hafa mannaskipti orðið
á lágfiðlu og celloleikurum og
eins og málin standa nú, eru
líkur á að cellóleikarinn Nina G.
Flyer sé á förum til Norður-
landa. Flyer er mjög góður
kammermúsikant og í samstarfi
með Guðnýju hefur hún staðið
fyrir frábærum flutningi, svo
eitthvað sé nefnt t.d. Duo fyrir
fiðlu og cello eftir Kodaly og nú
síðast á tónleikum Kammer-
-músikklúbbsins. Fluttir voru
kvartetter eftir Mozart, Bartok
og Schumann. Reykjavíkur
Ensemble skipa auk Guðnýjar
og Nínu Flyer, Mark Reddman,
sem leikur á lágfiðlu og Ásdís
Stross, sem leikur aðra fiðlu. í
heild voru tónleikar mjög góðir.
Fyrir undirritaðan var Mozart
ekki besti hluti tónleikanna og
má vera að sérvizka og mótaður
smekkur valdi meir um þá
afstöðu en gagnvart seinni
verkefnunum. Andstæður í blæ
og „karakter" hefðu mátt vera
meiri, t.d. vantaði allan alvar-
leik í Andante kaflann.
Flutningur sjötta kvartettsins
eftir Bela Bartok er viðburður
bæði vegna verksins og hversu
flutningurinn var frábær.
Tónleikum lauk með hressi-
legum flutningi á Kvartett op.
41, nr. 1 eftir Schumann. Það
skiptir ekki máli að ræða
sérstaklega um einstaka þætti í
flutningi þessara verka, því í
heild voru tónleikarnir svo
glæsilegir, að með stolti er hægt
að segja, að á íslandi starfi
alvöru strengjakvartett.
Jón Ásgeirsson.
Leikhópur Menntaskólans í Kópavogi.
Drukkin manneskja
Menntaskólinn í Kópavogii
PÚNTILA BÓNDI OG
Matti VINNUMAÐUR
eftir Bertolt Brecht.
Leikritið þýddi Þorsteinn Þor-
steinsson.
Prólogus og lokaorð þýddi
Þorgeir Þorgeirsson.
Plómusöng þýddi Guðmundur
Sigurðsson.
Leikstjórii Sólveig Halldórs-
dóttir.
I leikskrá er gerð grein fyrir
verkefnavali leiklistarklúbbs
Menntaskólans í Kópavogi: „Er
við völdum leikritið til sýningar
höfðum við hliðsjón af því að
allir sem óskuðu fengju að vera
með og einnig að leikmyndin
gæti verið sem einföldust í
sniðum. Ekki reyndist um auð-
ugan garð að gresja hvað leikrit
snerti, sem hentaði okkur, en á
endanum varð Púntila og Matti
fyrir valinu. Tvær breytingar
höfum við gert frá upphaflegu
þýðingunni. Sögumanni hefur
verið bætt inn í og eins hefur
leikritið verið stytt".
Þeir sem til þekkja vita að
Púntila og Matti er viðamikið
verk. Engu að síður hentar það
áhugaleikflokkum. Mér er til
dæmis minnisstæð sýning
Skagaleikflokksins á því.
Menntaskólanemar í Kópavogi
hafa að mínu viti valið skyn-
samlega leið í flutningi verksins,
þ.e.a.s. að stytta það og hafa
sýninguna sem einfaldasta, leik-
mynd og fleira. Þetta mikla verk
verður að vísu nokkuð flatt með
þessu móti, en ofgerir engum,
hvorki leikurum né áhorfendum.
Þeir síðarnefndu njóta verksins
með því hugarfari að hér sé
skólafólk að gera metnaðarfulla
tilraun og þegar á heildina er
litið tekst hún ágætlega sem
slík. Vitanlega kemst Brecht
ekki til skila með fullgildum
hætti, en boðskapur hans er hér
kominn. Púntila bóndi talar
mikið um manneskju, en verður
ekki sjálfur manneskja fyrr en
hann er orðinn drukkinn.
Vinnumaðurinn Matti er aftur á
móti sú manneskja sem stendur
sig vel andspænis gerviheimi
stórbænda og embættismanna.
Alþýðufólkið i leiknum er
manneskjulegt vegna þess að
Lelkllst
eftir JOHANN
HJÁLMARSSON
það reynir ekki að vera annað en
það sjálft.
Púntila bóndi og Matti vinnu-
maður mun vera frumraun
Sólveigar Halldórsdóttur sem
leikstjóra, en hún hefur vakið
athygli fyrir leik, fyrst í Nem-
endaleikhúsinu síðan í verkum
eins og Fröken Júlía alveg óð og
Snædrottningunni.
Um leikinn má segja að hann
var hvorki betri né verri en efni
stóðu til. Þorsteinn Hallgríms-
son átti góða spretti í hlutverki
Púntila. Daði Harðarson var
ekki atkvæðamikill Matti, en
traustvekjandi. Þórdís Krist-
leifsdóttir kom vel fyrir í
hlutverki Evu. Ríkharður Frið-
riksson (prófastur, eymdarlegur
verkamaður, þjónn) og Arnór
Snorrason (sendiráðsfulltrúi,
kúadoktor) túlkuðu hinar af-
káralegu hliðar skemmtilega.
Ásthildur E. Bernharðsdóttir
sýndi í senn leikgleði og öryggi.
Sjöfn Heiða Steinsson sómdi
sér vel í hlutverkum sínum.
Sama má reyndar segja um aðra
leikendur sem allir reyndu að
gera sitt besta, en ónefndir eru
Anna B. Sveinsdóttir, Karl
Garðarsson, Regína Ásvalds-
dóttir og Vilmar Pétursson.
Jóhann M. Jóhannsson lék á
harmoniku.
Bertolt Brecht hefur verið
óspart leikinn í skólum landsins
á þessu ári, en 10. febrúar sl.
voru liðin áttatíu ár frá fæðingu
hans. Brecht lést 1956.
LEIÐRÉTTING
í umsögn um sýningu Leik-
listarfélags Menntaskólans við
Hamrahlíð á Túskildingsóperu
Brechts hefur orðið nafnarugl-
ingur sem beðið er velvirðingar
á. Sagt er að Aldís Baldvinsdótt-
ir flytji afburðavel söng Sjóræn-
ingja-Jennýar. Þetta getur ekki
staðist vegna þess^að það er
Hólmfríður Jónsdóttir sem
syngur þennan kunna söng í
hlutverki Pollýar. Lofið gildir
semsagt um Hólmfríði þó að
Aldís sé að sjálfsögðu alls góðs
makleg.
Bridgefélag
Kópavogs
Barometer tvímennings-
keppni félagsins var haldið
áfram sl. fimmtudag.
Bezta árangri kvöldsins
náðui
Sigurður Vilhjálmsson
— Runólfur Pálsson 79
Guðmundur Pálsson
— Sigmundur Stefánsson 77
Vilhjálmur Jónsson
— Borgþór Pétursson 74
Bjarni Pétursson
— Sævin Bjarnason 66
Guðbrandur Sigurbergsson
— Jón Páll Sigurjónsson 63
Nú hafa verið spilaðar 17
umferðir og hafa Jón Páll og
Guðbrandur örugga forystu með
253 stig.
Staða efstu para er annars
þessii
Guðmundur Pálsson
— Sigmundur Stefánsson 203
Óli Már Guðmundsson
— Ásmundur Pálsson 140
Friðjón Margeirsson
— Valdimar Sveinsson 133
Bjarni Pétursson
— Sævin Bjarnason 130
Keppninni verður fram haldið
nk. fimmtudag.
Bridgefélag
Breiðholts
Nýlega lauk aðalsveitakeppni
félagsins og urðu úrslit þessi:
Sveit Eiðs Guðjohnsens 157
(Kristinn Helgason, Guðlaug-
ur Karlsson, Óskar Þráinsson)
Sveit Hreins Hjartarsonar 144
(Cyrus Hjartarson, Sigurður
Ámundason, Bragi Bjarnason,
Guðmundur Aronsson)
Sveit
Sigurbjörns Ármannssonar 143
Sveit Heimis Tryggvasonar 114
Um páska, þ.e. þriðjudagana
fyrir og eftir páska var spilaður
páskatvímenningur og urðu úr-
slit þessi:
A rðiill — 16 pöri
Kristján Blöndal
— Valgarð Blöndal 261
Tryggvi Gíslason
— Sveinn Sigurgeirsson 257
Brldge
Úmsjón ARNÓR
RAGNARSSON
Guðlaugur Karlsson — Óskar Þráinsson 251
Björn Brynjólfsson — Sigurður Þorvaldsson 245
Meðalskor 210 B-riðill — 8 pöri Gísli Tryggvason — Guðlaugur Nielsen 111
Lárus Jónsson — Sigríður Jónsdóttir 103
Hreinn Hreinsson — Sigurður Haraldsson 88
Meðalskor 84 C-riðill — 12 pöri Guðmundur Pálsson — Guðbjörg Jónsdóttir 195
Sveinn Sigurgeirsson
— Þórhallur Þorsteinsson 192
Jón Stefánsson
— Óskar Þráinsson 191
Sigríður Rögnvaldsdóttir
— VigfúS Pálsson 186
Meðalskor 165
Sigurvegarar í páska-
tvímenningnum urðu þvíi
Sveinn Sigurgeirsson 59,42%
Óskar Þráinsson 58,55%
Næsta keppni félagsins verð-
ur barometer og er keppnin
öllum opin. í fyrra varð met-
þátttaka í keppninni og urðu þá
sigurvegarar Sigríður Rögn-
valdsdóttir og Vigfús Pálsson.
Spilað er á þriðjudögum í húsi
Kjöts og fisks, Seljahverfi, og
hefst spilamennska stundvís-
lega klukkan 20.
Barðstrendinga-
félagið
í Reykjavfk
Sveitakeppni félagsins er lok-
ið með sigri sveitar Ragnars
Þorsteinssonar, en spilaðar voru
8 umferðir.
Úrslit 8. umferðar:
Sveit Sigurðar Kristjánssonar
vann sveit Gísla Benjá-
mínssonar með 20 gegn -4
st.
Sveit Baldurs Guðmundssonar
vann sveit Guðmundar
Guðveigssonar með 19
gegn 1 st.
Sveit Ragnars Þörsteinssonar
vann sveit Ágústu Jóns- I
dóttur með 20 gegn + 5 st.
Sveit Guðbjartar Egilssonar
vann sveit Sigurðar ísaks- 1
sonar með 13 gegn 7 st.
Lokastaðani
Sveit stig.
Ragnars Þorsteinssonar 107
Helga Einarssonar 97
Baldurs Guðmundssonar 89
Sigurðar Kristjánssonar 88
Svo endum við vetrarstarfið
mánudagana 17. og 24. apríl með
tveggja kvölda einmennings-
keppni. Tilkynnið þátttöku sem
fyrst í símum 81904 (Sigurður)
og 41806 (Ragnar).