Morgunblaðið - 08.04.1978, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1978
41
fclk í
fréttum
+ Bíll er engin hindrun fyrir fimleikamanninn Benno Gross, sem starfar sem lögreglumaður í
Saarbriicken. Gross er meðlimur í þýska landsliðinu í fimleikum. Og fyrir skömmu fékk hann
tækifæri til að sýna hæfni sína, þegar fram fór keppni milli þýskra og svissneskra fimleikamanna.
Þjóðverjarnir sigruðu með 549,40 stigum á móti 544.45.
Mikið á
sig lagt
+ Það virðist eftirsóknarvert að
eiga heimsmet í öllu mögulegu,
og furðulegt hvað menn leggja á
sig til þess. Einn af þeim, sem
nú sækist eftir þessum titli er
Bandaríkjamaðurinn Bill White.
Hann lét grafa sit lifandi hinn
24. janúar síðastliðinn og er enn
ekki kominn upp á yfirborð
jarðar. Hýbýli hans eru 2 metra
undir yfirborði jarðar og eftir
myndinni að dæma væsir ekki
um manninn, en það er mikið á
sig lagt til að komast í Heims-
metabók Guinness.
Staöa vallarstjóra er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. apríl n.k. og skal
umsóknum skila til undirritaös sem jafnframt
veitir allar nánari upplýsingar.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsmanna-
félags Kópavogskaupstaöar. Umsóknum skal
skila á þar til gerö eyöublöð, sem liggja frammi
á Félagsmálastofnuninni, Álfhólsvegi 132, sími
41570.
Félagsmálastjórinn í Kópavogi.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Háaleitisbr. 1 á laugardög-
um frá klukkan 1 4:00 til 16 00 Erþar
tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa
Laugardaginn 8. apríl veröa til viötals:
Pétur Sigurðsson, alþingismaöur,
Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi og
Hilmar Guölaugsson, varaborgarfulltrúi.
BS
FREEPORTKI.ÚBBURINN
+ Norðmaðurinn Rolv
Wesenlund, (senni-
lega betur þckktur
undir nafninu Fleks-
nes) segist hata snjó
og skíðaferðir. Þess
vegna fer hann alltaf
til Danmerkur um
páskana. En þá cr það
viss hefð. að allir sem
vettlingi geta valdið
þeysa á skíði. Ósló er
næstum því tóm um
páskana og allt er
lokað. Wesenlund seg-
ist kunna því vel að
vera þekktastur fyrir
Fleksnes, þó svo að
hann hafi leikið mörg
önnur hlutverk. Og
segist ekki hafa hug á
að fá alvarlegri hlut-
verk. „Það á vel við
mig að leika í gaman-
leikjum og það eru til
svo margir góðir leik-
arar. sem geta tekið
að sér alvarlegri hlut-
verkin að ég hef ckki
áhuga á að fara að
stela frá þeim.“ Upp-
haflega ætlaði Wesen-
lund að verða blaða-
maður og starfaði sem
slikur um tíma í
heimabæ sfnum, Hort-
cn. Síðan fluttist hann
til Óslóar og fór að
skrifa fyrir sjónvarp-
ið, í smáum stfl að
vísu. En áður en hann
vissi af var hann kom-
inn fyrir framan
myndavélarnar í hlut-
verki hinu káta, en
óheppna Fleksnes.
r boðar til
RAÐSTEFNU
með
DR. FRANK HERZLJN
eiganda og yfirlækni
FREEPORT HOSPITAL
um efnið
THE FREEPORT Pim.OSOPHY
FOR SUCCESSFUL I.IVING
• að
HÓTEL SÖGU
laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. apríl 1978
kl. 10-12 og 13.30-16.00 báða dagana
Ráðstefnan er öllum opin
Þátttökugjald kr. 3.000.00 greiðist við innganginn