Morgunblaðið - 28.04.1978, Qupperneq 1
87. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fætur skotnir
undan enn einu
förnarlambinu
Tórínó — Róm — 27. apríl.
AP — Reuter.
ENN varö maður fyrir skotárás
Rauöu herdeildarinnar á Ítalíu í dag.
Að pessu sinni var Þaö 39 ára
gamall starfsmaður Fiat-vorksmiðj-
anna í Mirafiori, sem varöskotspónn
hryöjuverkamanna, og er hann
ellefti starfsmaöur Fiat, sem verður
fyrir slíkri árás. Það voru tveir
karlmenn og kona, sem réöust að
Sergio Palmieri Þegar hann var á
leið í strœtisvagn rétt hjá heimili
sínu í býti í morgun, og létu Þau
kúlnahríðina dynja á honum, en óku
síöan á brott á ofsahraða í blárri
Fiat-bifreið. „Þeir eru búnir að
eyðileggja mig aavilangt,“ sagði
Sergio Palmieri við fréttamenn Þar
sem hann lá í sjúkrahúsi í dag, en
bein í báöum fótum hans moluðust
við skothríöína.
Rauða herdeildin hefur lýst því yfir
að hún hafi staðið fyrir þessari
síöustu árás, sem og sams konar
skotárás á einn leiötoga kristilegra
demókrata í gær.
Þá gerðist það í dag, að mannræn-
ingjar sem ekki viröast vera í
tengslum við Rauðu herdeildina, létu
lausa tvo gísla, 18 ára dóttur auðugs
kvikmyndahúsaeiganda t Róm og 26
ára gamlan son kaupsýslumanns í
Mílanó. Stúlkan hafði verið á valdi
mannræningjanna í 11 vikur, en
Alberto Campari hafði verið í klóm
ræningja sinna í fjóra mánuði.
Stúlkan kom í leitirnar eftir að
lögreglan handtók foringja hópsins,
sem rændi henni, og virðist svo sem
ekkert lausnargjald hafi verið reitt
fram fyrir hana. Hins vegar er það
haft eftir áreiöanlegum heimildum hjá
lögreglunni að fjölskylda Camparis
hafi greitt verulega upphæð í lausn-
argjald fyrir hann. Lögreglan hefur
eftir Campari, að hann hafi aldrei litið
Framhald á bls 18.
Kúbanskar loft-
árásir á Erítreu?
Washington — Belgrad —
27. apríl — Reuter — AP.
BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið hefur fengið heimildir fyrir því að
kúbanskir flugmenn hafi farið í árásarferðir til Eritreu að undanförnu.
að því er skýrt var frá í Washington í dag, en talsmaður ráðuneytisins
kvaðst ekki geta gefið nánari upplýsingar að svo stöddu. Geysifjölmenn-
ur útifundur var f gærkvöldi haldinn f Havanna til heiðurs Mengistu.
leiðtoga herforingjastjórnarinnar f Eþíópíu, og er talið að þar hafi verið
samankomin um ein milljón manna.
51 fórst þeg-
ar vinnupall-
amir hrundu
St. Mar.v‘s, Vestur-Virginíu
— 27. apríl — Reuter.
FIMMTÍU og einn maður lét lífið
þegar vinnupallar í kaditurni við
orkuver hrundu við Ohio-fljótið í
Vestur-Virginíu í dag. Að sögn
lögreglunnar komst enginn af
þeim. sem voru við vinnu sína á
pöllunum. lífs af.
Orsakir slyssins eru ókunnar, en
sjónarvottar segjast hafa veitt því
eftirtekt að biti í einum pallanna,
sem gerðir voru úr stáli, hafi látið
undan, og hafi þá allt hrunið
saman eins og spilaborg. Hafi
flestir mannanna verið efst á
pöllunum þegar slysið varð, en
fallið hefur samkvæmt því verið
yfir 50 metrar.
Líkin voru í kvöld flutt í kirkju
í nágrenni við slysstaðinn og hefur
aðstandendum verið stefnt þangað
til að bera kennsl á þau. Ostaðfest-
ar fregnir herma að meðal hinna
látnu hafi fjórir verið úr sömu
fjölskyldunni.
Myndin sýnir brakið á botni
kæliturnsins.
AP-símamynd.
Mengistu lýsti því yfir á fundin-
um að baráttunni gegn „svikurun-
um“ í Erítreu yrði haldið áfram þar
til sigur hefði unnizt, og gestgjafi
hans, Fidel Castro, sagði að kúb-
anskt herlið yrði áfram í Eþíópíu til
að koma í veg fyrir „nýjar árásir“
eins og hann orðaði það.
Mengistu hefur fengið konungleg-
ar móttökur á Kúbu og Castro hefur
heitið honum eindregnum stuðn-
ingi. Júgóslavneska fréttastofan
Tanjug hefur þau ummæli eftir
Castro, að „allir skuli gera sér grein
fyrir því að hermenn okkar munu
ekki halda að sér höndum ef til
nýrrar innrásar kemur", um leið og
hann sagði að „brjálæðingslegar
stórveldishugmyndir Sómalíu-
rnanna" hefðu staðfest í eitt skipti
fyrir öll að stjórn Sómalíu hefði
gengið í lið meö heimsvaldasinnum.
Væri aðstoð Kúbu við Eþíópíustjórn
óhjákvæmileg þar sem Sómalir
nytu stuðnings „amerískra heims-
valdasinna, NATOs afturhaldsríkja
í nálægum Austurlöndum og væri
þeim stuðningi beitt til að stöðva
byltinguna í Eþíópíu.
Her tekur völd-
in í Afganistan
Daoud forseti ráðinn af dögum
Islamabad — Nýju Delhi
— 27. apríl — AP-Reuter
Herinn í Afganistan hefur lýst Því
yfir að stjórn Mohammad Daouds,
sem verið hefur við vðld í landinu
undanfarin fimm ór, hafi verið
steypt af stóli aö undangengnum
hörðum bardögum f Kabúl, höfuö-
borg landsins, í dag. í útvarpstil-
kynningu hersins f kvöld var sagt að
Daoud hefði verið „algjörlega af-
máður", en Það orðalag gefur
ótvírætt til kynna að hann hafi verið
ráðinn af dögum. Hefur Dagarwal
Abdúl Khadir verið útnefndur yfir-
maður „byltingarráðs hersins", og
sagði hann f ávarpi til Þjóðarinnar
í kvöld að herinn hefði nú náð
stjóminni í sínar hendur og væru
Þar með öll völd komin f hendur
Þjóðarinnar.
Bardagar í Kabuí hófust um
hádegisbilið í dag og herjuöu skriö-
drekar með mikilli skothríö á mið-
Eyjólfur Konrád Jónsson í samtali vid Morgunbladid:
Tímabært er að taka á Jan
Mayen- og RockaU-vandanum
Kort yfir heimshöfin lagt fram á hafréttarráðstefnunni
„TÍMABÆRT er að taka á Þeim
vanda, sem mörkin viö Jan
Mayen og Rockall skapa", sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson í viðtali
við Mbl. f gær. „Á hafréttarráð-
stefnunni hér í Genf hefur verið
lagt fram kort, sem sýnir land-
grunn, setlög og mörk efnahags-
lögsögu á heimshöfunum. Ljóst
er, að við Þurfum aö skoða
gaumgæfilega réttindi okkar,
enda próun hafréttarmála örari
en við höfum gert okkur grein
fyrir, Þótt stundum virðist Þyngsli
og seinagangur á ráðstefnu sem
pessari."
„Vinnunefndirnar sjö, sem hafa
fengizt viö erfiöustu vandamál
ráöstefnunnar, eru nú u.þ.b. aö
Ijúka störfum og skila formenn
þeirra áliti sínu í næstu viku og þá
hefjast allsherjarfundir.
Það er álit þeirra, sem gerzt
þekkja, aö menn séu nú aö sækja
í sig veðriö og gera sér grein fyrir
því, aö vandamálin veröi aö taka
föstum tökum, svo aö fundir
hafréttarráöstefnunnar verði ekki
bara „árlegir viöburðir" eins og
einhver komst að orði.
í fyrstu nefndinni, sem fjailaöi
um auöæfi landgrunnsins á haf-
svæöinu, hefur verulega miöaö í
átt til samkomulags og í þriöju
nefndinni er hert á ákvæðum um
mengunarvarnir og hefur olíuslysiö
viö Frakklandsstrendur haft mikil
áhrif.
Nú er um það rætt að fram-
lengja ráöstefnuna um eina viku
frá 19. til 26. maí, ef útlit verður
fyrir verulegan árangur slíkrar
framlengingar.
Enn er ekkert Ijóst að því er
varðar þau málefni, sem okkur
skipta mestu. Öruggt ætti þó aö
vera, aö ákvæðin í 61. og 62. gr.
standi óbreytt, en þar er kveöiö á
um rétt strandríkis til aö ákveða
hámarksafla og hagnýtingu hans.
í vinnunefnd fimm eru stanzlaus-
ar umræður um 296. gr. þar sem
fjallaö er um lausn deilumála.
Strandríkin andmæla því, aö
nokkur málskotsheimild veröi
varöandi ákvaröanir þeirra um
hagnýtingu lífrænna auölinda í
efnahgslögsögunni og hefur Hans
G. Andersen flutt tvær ræöur um
þaö efni. Raunar tryggir 71. gr.,
„íslenzka ákvæðiö" svonefnda,
okkur sérstaklega, en allur er
varinn góöur og því hefur íslenzka
sendinefndin ákveöiö aö beita sér
eftir mætti fyrir því aö tengja
heimildir 296. gr. til málskots og
þar beitir nefndarformaöurinn sór
fyrst og fremst þessa dagana.
Honum er vandi á höndum.
því aö fram aö þessu hafa þeir sem
andstæöra hagsmuna hafa aö
gæta viö okkur, enga tilraun gert
til að koma „íslenzka ákvæöinu" út
og því verður aö gæta þess, aö viö
séum ekki sakaöir um óbilgirni og
ósanngjarna andstööu við þá, sem
fram að þessu hafa virt okkar
sérstööu.
Þess er þó að gæta, aö „íslenzka
ákvæðið" tekur einungis til 69. og
70 gr. sem fjalla um réttindi
landluktra og landfræðilega af-
skiptra ríkja til fiskveiöa á miöum
annarra, en ekki til 61. og 62. gr.
sem getið var um hér aö framan.
í ræðum sínum hefur nefndar-
formaðurinn bent sérstaklega á
eftirfarandi atriöi:
1) Efnahagslögsagan er miðuð
við það, aö strandríki hafí full-
veldisrétt yfir auölindum á svæð-
inu. Framhald á bls 18.
borgina, auk þess sem fregnir hafa
borizt af árásum sovét-smíðaðra
Mig-21 orrustuþotna á flugvöllinn viö
borgina. í kvöld var lýst yfir útgöngu-
banni í borginni, jafnframt því sem
tilkynnt var aö til viöeigandi ráöstaf-
ana yröi gripið gagnvart þeim, sem
ekki hlýddu fyrirmælum byltingar-
ráösins skilyröislaust.
Óstaöfestar fregnir berast af því aö
í kringum forsetahöllina hafi lík legiö
á víð og dreif, og einnig að skothríð
hafi verið haldiö uppi frá þaki einnar
stjórnarbyggingarinnar í borginni, en
síðar hafi sézt hvar menn voru reknir
út úr byggingunni með hendur fyrir
ofan höfuö. Þá voru óljósar fregnir af
því að franska sendiráðið í borginni
hefði orðið fyrir miklum skemmdum
í skotárásinni.
Muhammad Daoud hefur veriö
æösti valdamaöur í landinu frá árinu
1973 er hann steypti af stóli frænda
sínum, Zahir konungi. Fyrst eftir
byltinguna þar sem Daoud naut í
ríkum mæli stuðnings herforingja,
sem þjálfaöir voru í Sovétríkjunum,
var hann forsætisráöherra landsins
en síöar forseti. Stjórn Daouds hefur
Framhald á bls 18.
Luns var-
ar við hættu-
ástandi
Lundúnum, 27. apríl. Reuter.
DR. JOSEPH Luns skoraði ■ dag á
stjórnir allra aðildarríkja Atlants-
hafsbandalagsins aó grípa til sér-
stakra ráðstafana vegna sívaxandi
hervæðingar Sovétríkjanna, en her-
búnaður Þeirra væri nú hinn mesti
sem dæmi væru um í veröldinni á
friðartímum. Luns varaði alvarlega
Framhald á bls 18.