Morgunblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.04.1978, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRIL 1978 Talsmenn stjórnarandstöðunnar: Hlynntir gjald- miðilsbreytingu MBL. hafði í Kær samband við talsmonn stjórnarandstöðunn- ar. Bcnedikt Gröndal formann Alþýðuflokksins. Ragnar Arnalds formann þingflokks Alþýðuhandalagsins og Magnús Torfa Ólafsson for- mann Samtakanna ok spurði Íiá álits á tillögum Seðlahanka slands um gjaldmiðilsbreyt- insiu. Benedikt Gröndal og Magnús Torfi Ólafsson sögðust báðir fylgjandi gjaldmiðils-, breytingu en tóku fram að fleiri ráðstafanir í efnahags- málum væru forsenda þess að gjaldmiðilsbreyting hefði einhver jákvæð áhrif. Ragnar Arnalds benti hins vegar í svari sínu á aðra leið en þá sem Seðlabankinn byggir tillögur sínar á. það er að finna nýtt hugtak vfir þúsund krónur, til dæmis mörk. og taidi hann að þannig gæti breytingin gengið „eðlilega og þægilega fyrir sig”. Magnús Torfi gcrði tillög- ur Seðlabankans að nýjum seðlum og mynt að umtalsefni og kvað scðlatillögurnar bein- línis stælingu á vestur-þýzkum mörkum. Svör þremenning- anna fara hér á eftir. „Ég gerði gjaldmiðilsbreyt- ingu nú að umtalsefni í ára- mótagrein minni og ég er enn sömu skoðunar," sagði Benedikt Gröndal, formaður Alþýðu- flokksins. „Við venjulegar aðstæður er gjaldmiðilsbreyt- ingin sjálf ekki lækning á efnahagsvanda og því verðum við, áður en við^ grípum til hennar, að ná valdi á verðbólg- unni og geta minnkað hana verulega. Það væri afleitt ef við tækjum upp stærri_krónu sem síðan minnkaði um 30—40% á ári. Ef við tækjum til hendinni og næðum verðbólgunni niður, þá finnst mér gjaldmiðilsbreyting sjálfsögð ráðstöfun, sem myndi hjálpa okkur til að endurheimta virðingu fyrir gjaldmiðlinum og verðskyn almennings en hvoru tveggja hefur hrakað geysilega í verðbólguþróun síðustu ára.“ o o o „Ég hef nú ekki fjallað mikið um þetta mál, en út af fyrir sig finnst mér þessi breyting koma vel til greina, ef hún kostar ekki alltof mikið,“ sagði Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins. „Hins vegar er ég alveg ósammála því að þessi breyting sé líkleg til að hafa einhver áhrif á efnahags- lífið eða einhver djúptæk sálar- leg áhrif á fólk. Slíkt finnst mér yfirborðslegt hjal. llitt segir sig sjálft að krónan eins og hún var hugsuð er farin að verða óþægi- leg sem mynteining og því væri reynandi að breyta þessu. Ég vil benda á í þessu sambandi að það væri hægt að láta slíka breytingu ganga yfir á þann hátt að finna bara nýtt heiti yfir eitt þúsund krónur; við skulum segja að eitt þúsund krónur yrðu nefndar ein mörk. Þá væri áframhaldandi hægt að nota krónur, ef menn vilja og síðan myr.du þær hverfa út úr myndinni með tíð og tíma, þannig að ekki yrði nauðsynlegt að gera breytinguna með brauki og bramli. Það sem ég á við er að ég held að það sé hægt að innleiða nýtt hugtak til einföld- unar þannig að breytingin gangi eðlilega og þægilega fyrir sig. Ég bendi á að í skýrslugerð alls konar eru stærðir nú yfirleitt gefnar upp í þúsundum króna eða milljónum, þannig að ef tækist að finna hentugt hugtak yfir til dæmis þúsund krónur og nota það þegar þarf, þá myndi krónan hverfa á sama hátt og aurarnir hafa horfið út úr mvndinni." o o o „Ég hef þar sem þetta mál hefur borið á gónia árum saman haldið því fram að þessi breyt- ing væri nauðsynlegur þáttur til þess að menn reyndu að takast á við verðbólgudrauginn með áhrifaríkari hætti en hingað til hefur yerið gert,“ sagði Magnús Torfi Ólafsson, formaður Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna. „Ég tel,“ sagði Magnús „bæði vegna eðli málsins og reynslu í öðrum löndum að aukíð verð- gildi myntar hafi veruleg sál- ræn áhrif á viðhorf til peninga- mála, meðferðar á peningum og verðmætamat. En mér finnst einnig jafnaug- ljóst að þessi aðgerð ein sér megnar einskis þó hún geti verið áhrifarík samfara aðgerðum sem beinast að því að ráðast að rótum verðbólguvandans. Hins vegar ef ég er spurður um það hvernig mér lítist á þær tillögur að nýjum seðlum og mynt sem Seðlabankinn hefur nú kynnt þá segi ég það, að mér líst ágætlega á myntina en seðlarnir finnast mér leiðinlega sviplíkir þeim sem notaðir eru í Vestur-Þýzkalandi, svo líkir að beinlínis er um stælingu að ræða og því tel ég að þar þurfi að fitja upp á einhverju nýju.“ Sigurvegarar í sparakstrinum. nr. 1 var sá til ha-gri. Illynur Eggertsson nemandi í Iðnhraut og annar varð Ellert Ingason kennari sem er vinstra megin. Tveir Fiat bílar nr. 1 og 2 í spar- aksturskeppni Nýlega efndi Fjölbrautaskólinn á Akranesi til sparaksturskeppni og tók þátt í keppninni nemendur og kennarar í skólanum, 16 talsins. Fékk hver bíll 3 lítra af bensíni í brúsa er tengdur var beint við vél bílsins og var ekið frá Akranesi inn Hvalfjörð og í átt til Reykja- víkur. Sá bill sem lengst komst á þessum 3 lítrum af bensíni var af gerðinni Fiat 127 árgerð 1973 og ók hann 62,9 km sem þýðir 4,76 1. eyðslu á hverja 100 km. í öðru sæti varð einnig Fiat 127, árg. ‘78 en hann ók 58,6 km og eyðir því 5,11 I. Fyrstu 6 bílarnir óku allir 50 km eða meira og var eyðsla þeirra frá 4,76 og upp í 6 1 á hverja 100 km. íslenskir kaupfélagsstjórar 1882-1977 V Andréa Kristjánsson tók saman Kaupfélags- stjóratal komið út Komið er út rit með æviágripi allra þéirra, sem verið hafa kaupfélagsstjórar þeirra félaga, sem verið hafa eða eru innan vébanda Sambands íslenzkara samvinnufélaga. Nefnist það „Is- lenzkjr kaupfélagsstjórar 1882—1977“. Andrés Kristjánsson tók ritið saman. Kaupfélagsstjórar þeir, sem taldir eru í ritinu eru alls 319 og myndir eru af þeim öllum að einum undanskildum, sem aldrei hafði verið ljósmyndaður. 1 bókarlok er skrá yfir öll kaupfélög innan SÍS og nöfn kaupfélagsstjóra þeirra í réttri tímaröð. Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri gefur bókina-út í sam- vinnu við Félag kaupfélagsstjóra og Samband ísl. samvinnufélaga. Húsið opnað kl. 19.00 Kl. 19.30 Vorblótið hefst veizlufagnaði. Matseðill: Brochette d‘agneau a la Genghis Khan Verð aðeins kr. 2850.- með glæsilegum Tízku- sýning, Modelsamtökin sýna nýjustu vor- og sumartízkuna frá Verðlistanum Skemmtiatriði sýning frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar Kynning á snyrtingu Okeypis happdrætti snyrtivörum tvöfalt vinningsverömæti 3 umferöir, hver vinningur Útsýnarferö fyrir 2 til sólarstrandar. — Allir gestir sem koma fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happ- drættismiöa — vinningur Út- sýnarferö til sólarlanda. Hinn þekkti snyrtisérfræðingur Margarethe Ode sýnir meðferð og notkun hinna heimsfrægu Pierre Robert JoneHellen snyrtivara. Model hennar verða fyrrverandi fegurðardrottningar Útsýnar. Allir veizlugestir frá ókeypis snyrtivörusýnishorn. Ljósmyndafyrirsætur Ut sýnar 1978 valdar úr glæsilegum hópi 30 feguröardísa. Ragnar Bjarnason hljómsveit ásamt Þuríði leika fyrir dansi til kl. 1. Munið aö panta borð snemma hjá yfirþjóni í síma 20221, eftirkl. 16.00. Hjá Útsýn komast jafnan færri að en vilja. Útsýnarkvöld eru skemmtanir í sérflokki, þar sem fjöriö og stemmningin bregðast ekki. Ferðaskrifstofan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.