Morgunblaðið - 28.04.1978, Síða 4

Morgunblaðið - 28.04.1978, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978 ■ 1 1 ■ ■■fe blMAR jO 28810 car rental 24460 GEYSIR BORGARTUNI 24 LOFTLEIOIR Vélatorg Borgartúní 24 Sími 28575 og 28590. VÖRUBÍLA- OG VINNUVÉLASALA Ný stjórn Vöku Aðalfundur VÖKU, félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta, var hald- inn í Lögbergi laugardaginn 8. apríl s.l. Kosin var ný stjórn í félaginu, hana skipa: Tryggvi Agnarsson, formaður, Róbert T. Arnason, varaformaður. Sigurður Sigurðarson, ritstjóri, Inga Arnar- dóttir, gjaldkeri, Sigurður Örn Hektorsson, ritari, Auðunn Svafar Sigurðsson, meðstjórnandi, Hreinn Loftsson, meðstjórnandi. Berglind Ásgeirsdóttir fráfar- andi formaður flutti skýrslu stjórnar sinnar. Rakti hún það helzta, sem á döfinni var hjá félaginu s.i. starfsár. Gefin voru út 4 tölublöð af VÖKUblaðinu, en VAKA er að jafnaði send heim til allra stúdenta við Háskólann. Þá voru haldnir félagsfundir, stefnu- skrárráðstefna og fjölmargir smærri fundir. . Á fundinum fóru fram umræður um starfið innan félagsins, starf Vökumanna í Stúdenta- og Há- skólaráði, kosningarnar, undir- búning þeirra og úrslit. r Alyktun frá F.Í.B. Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Félagi íslenzkra bifreiðaeigendai Almennur fundur, haldinn á Akureyri hinn 23. apríl 1978, af Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að allar þær álögur sem nú eru lagðar á bifreiðaeigendur og teljast vera sérálögur umfram aðra neyzlu í landinu, verði skilyrðislaust látnar renna óskiptar til vegasjóðs. — Ef ekki þá verði þær nú þegar felldar niður. Jafnframt bendir funduririn á þá tvísköttun sem nú er lögð á bifreiðaeigendur í formi söluskatts sem reiknaður er ofan á önnur ló'gboðin gjöld, s.s. ábyrgðartrygg- ingu bifreiða og telur slíkt í ósamræmi við gildandi lög um söluskatt. Útvarp Reykjavlk FOSTUDKGUR 28. apríl MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. daghl.). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15. Margrét Örnólfsdóttir les þýðingu sína á sögunni „Gúró“ eftir Ann Cath.- Vestly (10). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög milli atr. Ég man það enn kl. 10.25. Skeggi Ásbjarnarson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00. Sinfónfuhljómsveitin í MáJmey leikur „óeirðar- segg“, forleik eftir Stig Rybrant. höfundurinn stj. / Parísarhljómsveitin leikur „Symphonie Fantastiquc“ eftir Ifector Berlioz. Charles Munch stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 14.30 Miðdegissagan. „Saga af Bróður Ylfing“ eftir F'riðrik Á. Brekkan Bolli Gústavsson les (11). 15.00 Miðdegistónleikar György Sandor leikur á píanó Sónötu nr. 1 í f-moll, op. 1 eftir Sergej Prokofjcff. Gervasc de Peyer og Eric Parkin leika Fantasíu-són- ötu fyrir klarfnettu og pfanó eftir John Ircland. Melos tóniistarflokkurinn leikur Kvintett í A-dúr fyrir' blásturshljóðfæri op. 43 eftir Carl Nielsen. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp 17.30 Útvarpssaga barnanna. „Steini og Danni á öræfum“ eftir Kristján Jóhannsson Viðar Eggertsson les (6). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDIÐ_______________________ 19.35 Viðfangsefni þjóðfélags- fræða Stefán Ólafsson þjóðfélags- SKJÁNUM SIÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna. Tónleikar. Föstudagur 28. aprfl 20.00 Fréttir og veður 20.30 Augiýsingar og dagskrá 20.35 Margt býr i myrku djúpi (L) ' Að undanförnu hefur ofur- kapp verið lagt á könnun himingeimsins, og oft gleymist, að verulegur hluti jarðar er enn ókannaður. Ýmis furðudýr lifa í úthöf- um. og í þessari bresku heimildamynd er lýst nokkrum þeírra. Þýðandi og þulur er óskar Ingi- Ómar 21.00 Kastljós (L) Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Ragnarsson. 22.00 Fálkar (L) (Magaslskola) Ungversk bíómynd frá árinu 1970. Leikstjóri István Gaál. Aðalhlutverk Ivan Andonov, Gytírgy Bánffy og Judit Meszleri. Myndin hefst á því, að ungur maður kemur á sveitabæ. þar sem fálkar eru þjálfaðir til fuglaveiða. Bústjórinn er miðaldra maður að nafni Lilik, og meðal heimiiismanna er ung ráðskona. Þýðandi Hjalti Kristgeirsson. 23.20 Dagskrárlok. fræðingur flytur lokaerindi flokksins og fjallar um atvinnu- og kjararannsókn- ir. 20.00 Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Iláskólabíói kvöldið áðurt — fyrri hluti. Flytjandi með hljómsveit- inni er Fílharmoníukórinn. Stjórnandii Marteinn H. Friðriksson Einsöngvarari Sieglindc Kahmann. Rut L. Magnús- son, Sigurður Björnsson og Halldór Vilhelmsson. a. „Greniskógurinn“ eftir Sigursvein D. Kristinsson (frumflutningur). b. Te Deum eftir Zoltan Kodály. — Jón Múli Árna- son kynnir tónleikana — 20.50 Gestagluggi Ilulda Valtýsdóttir stjórnar þætti um listir og menning- armál. 21.40 Ljóðsöngvar eftir Felix Mendelssohn Peter Schreier syngurt Waltcr Olberts leikur á pfanó. 22.05 Ævisaga Sigurðar Ingj- aldssonar frá Balaskarði Indriði G. Þorsteinsson les (3). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.50 Áfangar Umsjónarmenni ’ Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Æ visaga V est- ur-íslendings „Það má segja að þessi saga sé skrifuð á talmáli og öll frásögn er mjög liðug, líkt og höfundur væri að rabba við pappírinn," sagði Indriði G. Þorsteinsson, er við slógum á þráðinn til hans, en Indriði les í kvöld þriðja lestur kvöldsögunn- ar „Ævisögu Sigurðar Ingjaldssonar frá Bala- skarði". Indriði sagði að sagan fjallaði um fyrri helming ævi Sigurðar, eða tímabilið til 1913. Snerist sagan aðallega um æsku hans og uppvöxt, en Sigurður fæddist í Balaskarði í Lax- árdal. Seinna fluttist hann til Svanagrundar í Refa- sveit og var hann þar með búskap. Bú hans var þó alla tíð frekar lítið, en Sigurður stundaði sjó samhliða búskap sínum, og fór han jafnvel suður á vertíðir. Var sagt um Sigurð að hann bæði hvern þann er vildi fá fisk hjá sér, að taka sér orf í hönd og slá, meðan Sigurður reri til fiskjar. 1887 fluttist Sigurður til Kanada. Fór hann fyrst með skipi sem Óttó Wathne átti til Skotlands, en þaðan með innflytjendaskipi til Kanada. Sagði Indriði að RQl ( HEVRR í Indriði G. Þorsteinsson veturinn þegar Sigurður fluttist vestur um haf hefði verið harður á íslandi og hefði verið kalt langt fram KLUKKAN 22.00 í kvöld verður sýnd í sjónvarpi ungverska kvikmyndin „Fálkar“ (Magasiskola). Mynd þessi er frá árinu 1970 og er István Gaál leikstjóri hennar. Með helztu hlutverk fara Ivan Andonov. György Bánffy og Judit Meszleri. Myndin segir frá ungum manni sem kemur á sveitabæ þar sym íálkar eru þjálfaðir til fuglaveiða. Meðal heimilismanna á bænum er ung ráðskona. í júní. Er til Kanada kom fékk Sigurður vinnu í námu við Ottawa og mun Baldvin Baldvinsson agent hafa útvegað honum þá vinnu. Unnu nokkrir aðrir ís- lendingar í sömu námu. Um síðir gafst Sigurður þó upp á námuvinnunni og fluttist til Gimli, þar sem hann settist að. Var hann við Winnipeg-vatn og veiddi í vatninu. Sigurður andaðist árið 1939 í Gimli, en hann var barnlaus. Kvæntur var hann þó Margréti nokkurri sem einnig var úr Laxár- dalnum. Margrét lifði þó ekki mann sinn því hún andaðist árið 1908. Indriði sagði að svo virtist sem Sigurður hefði haft ótrúlega gott minni, því hann fjallaði í bókinni aðallega um ár sín á íslandi og mundi vel staði, menn og atburðþ Væru engar stór- vægilegar villur í bókinni, hvað þetta varðaði og er bókin þó skrifuð í Kanada.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.