Morgunblaðið - 28.04.1978, Side 16

Morgunblaðið - 28.04.1978, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978 17 (Jtgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjórí Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiósla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2000.00 kr. á mónuöi innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Stjórnarskrár- nefnd og Alþingi Allsherjarnefnd Neðri deildar Alþingis hefur lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis, að stjórnarskrár- nefnd, sem starfað hefur í nokkur ár, verði leyst frá störfum og ný nefnd kjörin til þess að vinna að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ástæðan fyrir þessum tillöguflutningi er sögð sú, að stjórnarskrárnefnd sé óstarfhæf. Umræður um endurskoðun stjórnarskrárinnar hafa við og við verið á döfinni frá lýðveldisstofnun. Síðan eru liðin 34 ár og við höfum komizt sæmilega af, þótt ekki hafi enn verið sett ný stjórnarskrá. Undirbúningur að setningu nýrrar stjórnarskrár er vandasamur og margslunginn. Miklu skiptir að ekki sé hlaupið að neinu eða ákvarðanir teknar í fljótræði. Raunar má fullyrða, að það sé mikilvægt, að undirbúningur nýrrar stjórnarskrár taki langan tíma og æskilegt er, að opinberar umræður fari fram um ýmsa efnisþætti nýrrar stjórnarskrár áður en formlegar tillögur eru gerðar um hana. Þess vegna er það skoðun Morgunblaðsins, að ekkert tjón hafi af því hlotizt, þótt sú stjórnarskrárnefnd, sem nú situr hafi ekki enn lokið störfum. Sumir þingmenn eru óánægðir með að kosningalögum hefur ekki verið breytt. Það er rétt, að alvarlegt misrétti ríkir milli kjósenda eftir landshlutum. En hér er ekki við stjórnarskrárnefnd að sakast heldur þingið sjálft. Ef þingið er óánægt með, að ekki hafa verið afgreiddar tillögur um breytingar á kosningalögum til þess að jafna atkvæðisrétt manna eftir kjördæmum hefur það ekki við aðra að sakast en sjálft sig, því að þingmönnum var í lófa lagið frá haustmánuðum að undirbúa nauðsynlegar breytingar á kosningalögum. Stjórnarskrárnefnd var ekki skipuð sérstaklega til þess að gera tillögur um breytingar á kjördæmaskipan eða kosningalögum, heldur til þesg að fjalla um víðtæka endurskoðun íslenzku stjórnarskrárinnar. Ef óþolinmæði þingnefndar stafar af því, að stjórnarskrárnefnd hafi ekki lagt fram tillögur um nýja kjördæmaskipan, kemur hún einnig undarlega fyrir sjónir, þar sem ný kjördæmaskipan hefur ekki verið ýkja mikið á döfinni og bersýnilega enn nokkuð langt í, að hún komist til umræðu í alvöru. Það er því erfitt að finna efnisleg rök fyrir þessum tillöguflutningi allsherjarnefndar Neðri deildar Alþingis. Kjarni málsins er þó sá, að tillagan er virðingu þingsins ekki samboðin. í forystu fyrir stjórnarskrárnefnd er Hannibal Valdimarsson, sem á að baki langan, litríkan og umdeildan, en merkan stjórnmálaferil. Tillöguflutningur þingnefndarinnar hefur orðið til þess, að þessi aldni þjóðmálaskörungur hefur orðið fyrir persónulegu aðkasti af því tagi, sem ekki hæfir. Þeir þingmenn, sem nú sitja á Alþingi, mundu áreiðanlega kunna því illa, ef eftirkomendur þeirra í þingsölum kæmu fram við þá af þeirri hvatvísi og tillitsleysi, sem allsherjarnefnd Neðri deildar sýnir Hannibal Valdimarssyni nú. I stjórnarskrár- nefnd sitja aðrir merkir stjórnmálaskörungar, með mikla reynslu að baki. Það er þjóðinni dýrmætt að njóta starfskrafta þeirra enn um sinn við undirbúning nýrrar stjórnarskrár. Forystumenn þingsins hljóta að taka hér í taumana og sjá til þess, að framkoma þingsins verði með þeim hætti, sem hæfir, ekki vegna Hannibals Valdimars- sonar eða annarra meðlima stjórnarskrárnefndar, heldur vegna þingsins sjálfs. Það er ástæðulaust, að Alþingi íslendinga verði sér til skammar. Um skítkast í blöðum egna þessa máls ræðir Mbl. ekki, því að árásirnar á lannibal Valdimarsson, t.d. í forystugrein eins dagblað- A.nna, eru eins og þúfutittlingur reyndi að rota haförn með vængnum. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978 Gelr Hallgrímsson, forsætisráðherra: Þjóðarsátt - samheldni en ekki sundrung HÉR FER á eftir ræöa Geirs Hallgrímssonar, forsætisráöherra, í eldhúsdagsumræöum á Alpingi í gærkvöldi: Reynslan sýnir, að þjóðum farnast best, þegar festa ríkir í stjórnarfari þeirra og unnt er að ná samstöðu hagsmunahópa. Frá lýðveldisstofnuninni 1944 sker árangurinn 1960—1970 sig úr að því leyti, að aðeins þá hafa ríkisstjórnir setið út allt kjörtímabil Alþingis, þar til að núverandi ríkisstjórn hefur setið það til enda. Viöreisnarárin voru eitt mesta framfaraskeið í sögu landsins, þrátt fyrir efnahagsleg áföll og átök hagsmunahópa. Á því stjórnartímabili, sem nú er að Ijúka, hefur veriö tekist á við margvíslegan vanda. Niðurstaða réttsýnna manna hlýtur að verða sú, að almennt hafi vel til tekist, þótt tilætluðum árangri hafi ekki verið náð í öllum greinum. Hrakspár stjórnarandstöðu um upplausn stjórnar- samstarfsins hafa ekki ræst. Þvert á móti hefur hafist ný framfarasókn. Góö sambúð viö önnur ríki Öryggi landsins veröur aö vera tryggt og leggja verður áherslu á góða sambúð við önnur ríki, svo aö unnt sé aö einbeita kröftunum að stjórn innri mála. Strax tveimur mánuðum eftir að ríkisstjórnin var mynduð 1974 var horfiö frá óvissu og öryggisleysi og gert samkomulag við Bandaríkjastjórn. Síðan hefur verið unnið aö framkvæmd þess, m.a. varðandi endanlega kostnaðarskiptingu í fjármögn- un nýrrar flugstöðvarbyggingar, svo að unnt sé að greina algerlega á milli almennrar starfsemi og varnarstarfa á Keflavíkurflugvelli. Öryggismál landsins þurfa að vera til stöðugrar athugunar og umræðu. Sjálfstæðið byggist á því, aö landinu séu tryggðar varnir. Með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfinu við Bandaríkin er best fyrir þessu séð, eins og málum er nú háttað. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði fyrstur stjórnmálaflokka um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur, var fjóst að efasemdir um ályktunina mundu koma fram bæði innanlands og þó fyrst og fremst andstaða erlendis. Þó höfðu ekki liðið nema tvö ár frá því að núverandi ríkisstjórn var mynduð þar til 200 mílna lögsagan hafði hlotið alþjóðlega viðurkenningu. Síðan hefur ekki verið um ágreining viö erlend ríki að ræða. Ekki má þó láta deigan síga við gæslu hagsmuna landsins út á við. Nú er brýnast að tryggja útflutningsverðmætum hagstæðustu mark- aði og afla innfluttra verðmæta með bestu kjörum. Stuðla verður að því, að eðlileg verkaskipting milli þjóða fái að þróast, samkeppni verður að vera frjáls svo að hugkvæmni og útsjónarsemi fái notið sín. Ágreiningur er um það hvernig öryggi landsins skuli tryggt, en hvað er það annað í raun, sem deilt er um nú í lok þessa síöasta þings fyrir kosningar? Og hvað er það sem menn eru sammála um? Þetta erum viö sammála um Allir eru sammála um nauðsyn pess aö halda uppi fullri atvinnu og bægja frá böli atvinnuleysis- ins. Þetta hefur tekist á kjörtímabilinu. Hér á landi finnst mönnum það sjálfsagður hlutur. En er það svo víst. Ekki þarf annað en líta til nágrannaland- anna til aö sjá, að það er meiri vandi en flest þeirra fá ráðið að tryggja hverri vinnandi hönd verkefni. Vi'öa er um þaö rætt í fullri alvöru hvort ekki sé unnt að skipta atvinnuleysinu jafnt á borgarana. Það yrði ekki þolað hér á landi, ef 10.000 manns gengju um atvinnulausir, svo að heimfært sé hlutfallslegt dæmi úr einu nágrannalanda okkar. Allir eru sammála um, að ekki skuli stofna til frekari erlendra skulda og ekki beri aö auka greiðslubyrði afborgana og vaxta erlendra lána frá því sem nú er. Tekist hefur að halda þessari greiðslubyrði innan við 14% hlutfalls útflutningstekna, í stað þess að búist var við að meira en 20% útflutningsteknanna yrði þannig ráðstafað fyrirfram. Menn vara meö réttu viö erlendum lántökum þótt lánstraust íslendinga erlendis sé óskert og beri skilvísi þeirra og áliti gott vitni. Þaö er því að þakka, að okkur hefur einnig tekist að lækka viðskiptahallann við útlönd úr 11%—12% af þjóðarframleiðslu í um 2% síðustu tvö árin og miðum að jöfnuöi á þessu ári. Allir eru sammála um að stefna aö auknum kaupmætti launa. Ríkisstjórnin hefur staðfastlega bent á nauðsyn þess að kaupmátturinn sé í samræmi við afkomu þjóöarinnar. Á fyrstu stjórnarárunum, þegar orkuframkvæmdir voru með mesta móti, til þess að mæta olíuverðhækkunum, og viðskiptakjör versnuðu um nær 30% á tveimur árum, var óhjákvæmilegt að dregið væri úr kaupmættinum, en nú er sá kaupmáttur, sem almenningur nýtur, hærri en nokkru sinni fyrr. Efnahagsráöstafanirnar, sem ríkisstjórnin greip til í febrúar s.l. höfðu einmitt að höfuðmarkmiöi aö varðveita hann. Kaupmátturinn hefur nú um tíma haldist um 15% meiri en hann var fyrir kjarasamn- ingana á síðasta ári. Uni menn við það, getur þessi ávinningur haldist út áriö og aukist síðan smám saman, ef ytri skilyrði versna ekki. Við getum ekki búist við því að unnt sé að auka kaupmáttinn meira á jafn skömmum tíma, þegar við heyrum fréttir af því frá nágrannaþjóðunum, að jafnvel verði að draga úr kaupmætti þar. Allir eru sammála um, aö ráða verði niðurlög- um verðbólgunnar og einbeita beri kröftunum að bví. Við spyrjum ekki að ástæöulausu: Er óhjákvæmilegt að verðbólga sé þrisvar til fjórum sinnum meiri á (slandi en annars staðar í Vestur-Evrópu? Viö svörum öll þessari spurningu neitandi. Að vísu getum viö fært fram ýmislegt okkur til afsökunar. Við búum við einhæfa atvinnuvegi, 75% útflutnings eru sjávarafurðir. Svipull er sjávarafli og óvenju miklar sveiflur eiga sér stað í verðlagi hans. Við hagstæð skilyrði aukast tekjur einstaklinga, atvinnuvega og hins opinbera, eftirspurnin vex og verðlag hækkar í kjölfarið. Þegar afli minnkar og útflutningsverð lækkar, verður engu síður að greiða háan tilkostnað innanlands með því að fjölga íslenskum krónum miðað við söluverð í erlendri mynt, þ.e.a.s. lækka gengið, og verðlagiö hækkar aftur í kjölfarið. Þetta er gömul saga og ný. Almennur skilningur hefur því vaxiö á því, að við verðum að nýta jöfnunarsjóöi í sjávarútvegi betur en hingað til. Enn má læra af draumi Faraós um feitu kýrnar og mögru. Eyðum ekki meiru en við öflum En þótt allir séu sammála um þau markmið, sem aö skuli stefnt: Atvinnuöryggið, viðskiptajöfnuðinn, kaupmáttinn og stöðvun verðhækkana, eru kenningarnar um leiðirnar að markmiðunum margar og mismunandi. Sjálfsagt má t.d. um það spyrja, hvort haldið hafi verið uppi of mikilli eftirspurn eftir vinnuafli og meiri en nauösynleg var til að tryggja fulla atvinnu og þannig sköpuð óeðlilega mikil spenna í efnahagslíf- inu, sem tafið hefur förina aö öllum markmiðunum fjórum. Ef við sækjum of fljótt að einu þeirra, getum við fjarlægst hin þrjú. Við verðum að geta sameinast um þá höfuðreglu og heilræði, sem óhjákvæmilegt er að halda, ef árangri á að ná, aö eyða ekki meiru en við öflum. Við hljótum því að leggja áherslu á aö auka tekjurnar, framleiðslu og útflutning, og draga úr þjóðarútgjöldum með hagkvæmni og sparnaði. Sjávarútvegurinn hefur dregið okkur drýgsta björg í bú undanfarna áratugi. Meö útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur höfum við tryggt okkur yfirráðin yfir auðlindum sjávar, en vegna ástands fiskstofnanna höfum við takmarkað sóknina í þá svo aö haga megi nýtingu þeirra þannig, að við getum treyst afkomuna til lengri tíma, jafnframt því sem leitað hefur verið nýrra miða og fisktegunda. Virkjun fallvatna verður að halda áfram og beisla þarf aðrar orkulindir til að efla undirstöður vaxandi iðnaðar og draga úr notkun erlends eldsneytis. Innlenda verk- og tækniþekkingu verður aö efla og veita fjármagni til nauðsynlegra rannsókna, áður en í stór og smá verkefni er ráðist. Nýta þarf gróöurmátt jarðar til að treysta tekjuöflun okkar í framtíöinni. Vel menntuð æska er ótæmandi auösuppspretta og ekki síst verður hún að finna kröftum sínum viðnám í verðugum verkefnum. Þótt við séum nú í orði sammála um að halda þjóöarútgjöldum innan tekjuöflunar á hverjum tíma, greinir okkur gjarnan á um hvernig skipta skuli útgjöldunum milli einstaklinga og opinberra aðila. Sjálfstæðismenn hafa ávallt talið, að ein- staklingarnir skapi verðmætin og afli teknanna, og því beri hinu opinbera ekki umráð útgjalda með skattlagningu, nema þegar unnt er að færa gild rök fyrir því, að framkvæmdir og þjónusta séu betur komin í höndum þess en einstaklinganna sjálfra, til þess að tryggja félagslegt öryggi. Forvígismenn ýmissa verkalýðssamtaka og stjórnmálaflokka hafa aftur á móti haldið fram hlut hins opinbera. Ráðstöfunarfé almennings aukið Nú hefur brugðið svo við, að jafnvel skilningur þessara manna hefur aukist á því, að svigrúm fyrir kaupmáttaraukningu launþega fæst ekki nema útgjöldum opinberra aðila séu takmörk sett. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var skýrt tekið fram, að ríkisútgjöldum skyldu „sett ákveðin takmörk miðað við þjóðartekjur", og það heit hefur verið efnt. í stað þess að ríkisútgjöld námu 31% af þjóðartekjum nema þau nú 27% af þeim. í þessu felst sparnaður á yfirstandandi ári, er nemur um 16 milljörðum króna og þannig er ráðstöfunarfé almennings aukið. Hluti opinberrar skattheimtu fer til fjárfestingar og fjölskyldur og atvinnufyrirtæki festa fé sitt í íbúðum, öðrum mannvirkjum, og vélum. Hyggileg fjárfesting er nauðsynleg, býr í haginn fyrir framtíðina og bætir lífskjörin. En allir þekkja af eigin reynslu, að sömu peningarnir verða ekki notaðir bæði til fram- kvæmda og daglegra útgjalda. Hæpið er að fjárfestingarútgjöld þjóðarinnar megi vera meiri en um fjórðungur þjóðarframleiösl- unnar, ef þær vonir eiga aö rætast, að sparnaöur innanlands geti undir þeim staöiö. Að öðrum kosti aukast erlendar lántökur eða svigrúmiö fyrir hæfilegar ráðstöfunartekjur almennings og greiðslu á nauðsynlegri opinberri þjónustu veröur of þröngt. Ríkisstjórninni hefur tekist að draga úr fjárfest- ingu og minnka hana úr 34% í 27% af þjóðarframleiðslunni eins og hún er nú. Þessum árangri hefur m.a. veriö náð með því að draga úr opinberri fjárfestingu um 16% á árinu 1977 og 9% 1978. Jöfnuður sparnaðar og útlána Sú stefna ríkisstjórnarinnar að beita vöxtum og verðtryggingu hefur borið þann árangur, að jöfnuður er milli sparnaðar og útlána peningastofn- ana, sem á skorti fyrrum. Þá hefur ríkisstjórnin samhliða samræmt útlánakjör banka og fjárfestingarlánasjóða til þess að veita fjármagninu til arðbærustu framleiðslu- þáttanna í þjóðfélaginu. Þeir sem deila á notkun vaxta og verðtryggingar í þessu skyni, segja í raun, að þeir sem spara eigi að tapa, en þeir, sem eyða eigi að græða á verðbólgunni. Málsvarar Alþýðubandalagsins ganga þannig erinda verðbólgubraskara og skuldakónga, — en á móti hagsmunum launþega og almennings. En þótt þaö sé grundvallaratriði til að ná markmiöunum fjórum, sem fyrr voru nefnd, að beita jöfnunarsjóðum sjávarútvegs, hallalausum ríkisrekstri og jöfnuði í sparnaði og útlánum ásamt hóflegri og hagkvæmri fjárfestingu, þá ráða launa- og tekjuákvarðanir í þjóðfélaginu úrslitum. Ríkisstjórn og kjarasamningar Víðar en hér á landi er við þann vanda aö glíma að ákveða tekjuskiptinguna í þjóðfélaginu og víðar en hér hafa stjórnvöld skipt sér af kjarasamningum. í Bretlandi setja stjórnvöld bann við kauphækkun- um, sem eru hærri en 10% á ársgrundvelli og beita fyrirtæki, sem út af bregöa, refsiaðgerðum. í Danmörku hefur þessu verið líkt fariö. Ríkisstjórnin hefur einhliða sett viðmiöunarreglur um hæstu launahækkanir. í Noregi eru sett lög um gerðardóm, sem ákveöa skal laun innan þeirra marka, sem þjóðarbúið þolir. í öllum þessum löndum eru svonefndir verkamannaflokkar við völd. í Svíþjóð tókust frjálsir samningar um 2—5% kauphækkun á ári. Það þarf engum að koma á óvart þótt íslensk stjórnvöld telji rétt og skylt að grípa inn í kjarasamninga, sem þó er ávallt neyöarúrræði, þegar hækkunin í krónutölu nemur 60—70% eins og hún var á síðasta ári, og útlit var fyrir, að laun hefðu hækkað um 40% í krónutölu á þessu ári. Þessi þróun stefndi atvinnurekstrinum í strand. Þessi þróun hefði leitt til stórfellds viðskiptahalla. Þessi þróun hefði kippt stoðunum undan kaupmættinum, því óstarfhæf atvinnutæki veita engum vinnu eða tekjur. Þessi þróun hefði aukið verðbólguna, sem umfram allt veröur að berjast gegn. Áróður vinstri manna Ræður manna hér í kvöld gefa tilefni til að benda á heföbundinn áróður vinstri manna — stjórnar- andstöðunnar. Þeir lofa mönnum gulli og grænum skógum. Þeir vilja auka í senn framkvæmdir hins opinbera og draga úr skattheimtu. Þeir vilja auka fjárfestingu atvinnuvega en draga úr tekjum þeirra. Þeir vilja auka útlán án þess aö geta þess hvar peningana eigi aö taka. Þeir vilja bæta hag sparifjáreigenda en minnka vaxtagjöld lántakanda. Þeir vilja létta kostnaöi af atvinnurekstrinum en auka skattlagn- ingu á atvinnufyrirtækin. Þeir vilja auka tekjur bænda en lækka verð landbúnaðarvara til neytenda. Þeir vilja samtímis auka allt í senn, opinber útgjöld, fjárfestingu bæði opinberra aðila og einkaaðila, og tekjur einstaklinga. Dæmið gengur alls ekki upp. Ekki er langur tími síðan landsmenn brenndu sig á slíkri stjórnvisku. Gagngerar umbætur í áramótaávarpi mínu komst ég þannig að oröi: „Kosningaár er að hefjast. Að því er stundum látið liggja, aö stjórnmálamenn reyni að kaupa sér vinsældir kjósenda með stórtækum útgjöldum og loforðum um fyrirgreiðslu. Víst er það rétt, að í lýöræöisríkjum er jafnan mikill þrýstingur á stjórnvöld í þá átt að auka hvers konar framkvæmdir og félagslega þjónustu, og valfrelsi og ráöstöfunarrétt einstaklinga hættir til þess að fara út á og stundum út fyrir ystu brún þess, sem þjóðarefnin leyfa. En ég veit aö allur almenningur er í raun og veru ekki ginnkeyptur fyrir gylliboöum.“ Ég ítreka þessi orð hér því að ég veit, að allir skilja í raun nauðsyn þeirra efnahagsráðstafana, sem ríkisstjórnin greip til nú fyrir skömmu og notaðar eru nú sem átylla til að efna til hættulegs óróa á vinnumarkaðinum. En þaö eru fleiri en stjórnmálamennirnir, sem veröa aö forðast að kaupa sér vinsældir og sýna þann kjark og þá festu að faila ekki fyrir freistingunum. Verkföllin og útflutningsbannið skaða þá fyrst og fremst, sem taka þátt í aðgerðunum, og auövitað þjóðina alla um leið. Þörf er áframhaldandi endurbóta á hagstjórninni, togstreitu hagsmunasamtaka og stjórnvalda verður að linna. Grundvöllur nýrrar stefnu hefur þegar verið lagður með starfi ríkisstjórnarinnar. Gagnger- ar umbætur hafa verið gerðar í ríkisfjármálum, fjárfestingu og á lánamarkaði. Hagur lífeyrisþega hefur verið verulega bættur og tillögur eru í mótun um verðtryggðan lífeyri fyrir alla landsmenn. Vandlega undirbúin frumvörp um skattamál og verðlagsmál hafa verið lögð fram á Alþingi. Frjálsræði í gjaldeyrismálum hefur verið aukið. Nefnd hefur skilað mikilli skýrslu um verðbólgu- vandann og lagt fram tillögur um umbætur í stjórn efnahagsmála. Ráögast við aöila vinnumarkaðar Við eigum að sameinast um slíkar umbætur og ég hef, með samþykki ríkisstjórnarinnar, undan- farna daga og vikur ráðgast um það við ýmsa fulltrúa vinnuveitenda og verkalýðssamtaka, hvernig best er að koma á samstarfi þeirra þriggja aðila, sem mestu ráða um efnahagsstefnuna og árangur hennar, en það er forsenda skynsamleara aögerða til lengri tíma eins og t.d. endurskoðunar vísitölubóta. Leita verður lausnar þeirrar deilu, sem nú er uppi og veltur þá á því, hvort samtök launþega og vinnuveitenda geta komið sér saman og fundið leið til þess að sinna þörfum hinna lægst launuðu, án þess aö bera í bakkafullan læk hinna tekjuhærri. Meö efnahagsráöstöfunum ríkisstjórnarinnar var stigið skref í átt til þess að bæta kjör hinna lægst launuðu. Því miður tóku fulltrúar verkalýðshreyf- ingarinnar ekki þátt í mótun þeirra reglna, en raunhæfum endurbótum innan skynsamlegra marka má ekki hafna. Við þurfum á þjóðarsátt að halda, samheldni en ekki sundurlyndi. íslendingar búa nú við meiri velsæld, veita sér meira af efnahagslegum gæðum lífsins en nokkru sinni fyrr, en hvorki þau né sá andlegi þroski og sú siðferöilega reisn, sem sjálfstæðri þjóð er nauösynleg, verða varanleg, ef viö þekkjum ekki okkar vitjunartíma. Kosningar á vori komanda munu leiða í Ijós, að landsmenn þekkja mun ábyrgrar stjórnarstefnu og yfirboða og yfirborðs- mennsku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.