Morgunblaðið - 28.04.1978, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.04.1978, Qupperneq 32
Demantur M æðstnr eðalsteina ~ (Ptill Sc é>tUttr Laugavegi 35 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978 AliGLÝSÍNGASÍMÍNX ER: 22480 Athyglisverðir beinafundir í Vestmannaeyjum Mannabeinin hin fyrri, sem ? fundust í Eyjum í gær. Á myndinni sem fylgir sést skurð- urinn mikli. sem verið er að ^rafa norður Eiðið. , ^ - •- ^ M,- ■ wvl . m .. . .. ' ' - fip — Ljósm.: SigurKeir. Mannabein á Þrælaeiði MANNABEIN af tveimur mönn- um fundust alldjúpt í Eiðinu f Vestmannaeyjum í sær, cr verið var að grafa þvert norður yfir Eiðið fyrir holræsi. sem flytja á afrennsli frá Vestmannaeyja- kaupstað norður fyrir. en hingað til hefur það farið í höfnina. Beinin fundust á 2.5 til 3ja metra dýpi. Dr. Kristján Eldjárn. for seti íslands, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að manna- bcinafundir hefðu oft orðið á þessum slóðum áður og ætla mætti að þessi eyri væri það sem Framhald á bls 18 Forsætisráðherra: Ráðgast við fulltrúa vinnuveitenda og verkalýðssamtaka GEIR Hallgrímsson, forsætisráð- hcrra, skýrði frá því í eldhúsdags- umræðum á Alþingi í gær. að hann hefði mcð samþykki ríkis- stjórnarinnar, undanfarna daga og vikur, ráðgast við ýmsa fulltrúa vinnuveitenda og vefka- 2 lögreglumenn í Keflavík leystir frá störfum og full- trúi bæjarfógeta segir af sér — vegna framhaldsrann- sóknar handtökumálsins JÓN Eysteinsson bæjarfógeti í Keflavík leysti í gær frá störfum tvo lögreglumenn og samþykkti lausnarheiðni löglærðs fulltrúa við bæjarfógetaembættið cftir að honum höfðu borizt gögn um framhaidsrannsókn handtöku- málsins svonefnda. Rannsóknar- lögregla ríkisins rannsakar nú m.a. hvort þessir þrír menn hafi hugsanlega átt einhvern hlut að máli. Jón Eysteinsson sendi í gær- kvöldi frá sér eftirfarandi frétta- tilkynningu: „Eg hef í dag leyst frá störfum við embættið þá Víking Sveinsson rannsóknarlögreglumann og Viðar Pétursson varðstjóra meðan fram- haldsrannsókn í hinu svokallaða Guðbjartsmálið í athugun hjá ríkissaksóknara MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við embætti ríkissak- sóknara og spurðist íyrir um Guðbjartsmálið svokallaða, þ.e. rannsókn á meintu fjármálamis- fcrli Guðbjarts heitins Pálssonar bifreiðastjóra. en sú rannsókn hóíst í kjölfar handtökunnar í Vogum í desember 1976. Fyrir svörum varð Jónatan Sveinsson saksóknari. Sagði Framhald á bls 18 handtökumáli stendur eða þar til öðru vísi verður ákveðið. Munu þeir njóta þeirrar lögkjara varð- andi launagreiðslur er lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mæla fyrir um. Ég mun og tilkynna dómsmálaráðuneytinu þessa ákvörðun mína og senda því þau gögn málsins, em ég hef fengið í hendur. Þá hefur Viðar Olsen, sem hefur verið lausráðinn fulltrúi hér við embættið, sagt starfi sínu lausu frá og með degjnum í dag að telja og hef ég fallist á það.“ Morgunblaðið spurði Jón Eysteinsson bæjarfógeta að því hvað lægi að baki þessari ákvörð- un og hvort það hefði komið fram við framhaldsrannsóknina að um- Framhald á bls 14. lýðssamtaka um það hvernig bezt yrði komið á samstarfi þeirra þriggja aðila. sem mestu ráða um efnahagsstefnuna og árangur hennar, en það.væri forsenda skynsamlegri aðgerða til lengri tima eins og t.d. endurskoðunar vísitölubóta. Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni að leita yrði lausnar á þeirri deilu, sem nú væri uppi, og skipti þá miklu, hvort samtök launþega og vinnuveitenda gætu komið sér saman og fundið leið til þess að sinna þörfum hinna lægst launuðu án þess að bera í bakkafullan læk hinna tekjuhærri. Geir Hallgrímsson sagði að með efnahagsráðstöfunum ríkisstjórn- arinnar hefði verið stigið skref til þess að bæta kjör hinna lægst launuðu en því miður hefðu fulltrúar verkalýðshreyfingarinn- ar ekki tekið þátt í mótun þeirra reglna, en raunhæfum endurbót- um innan skynsamlegra marka má ekki hafna, sagði forsætisráðherra og bætti við: „Við þurfum á þjóðarsátt að halda, samheldni en ekki sundurlyndi." Ræða Geirs Hallgrímssonar, forsætisráðherra, er birt í heild á miðopnu Morgunblaðsins í dag. Birgir Isl. Gunnarsson um atvinnumálatillögur: Efla Reykjavfk sem atvinnu- stöð og bæta lífskjör bwgarbúa Alþýðubandalag fjandskapast við atvinnurekst- ur í borginni — Atvinnulífið í Reykjavík á ekki upp á pallborðið hjá Framsóknárflokknum TILLÖGUR þær, scm Birgir ísl. Gunnarsson, borgarstjóri, lagði fyrir borgarstjórn Reykjavíkur vofu til síðari umræðu í borgarstjórn í gærkvöldi. Borgarstjóri flutti ræðu við þessa umræðu og kvaðst sannfærður um, að tillögur þcssar yrðu til góðs fyrir atvinnulifið í borginni og að þær mundu styrkja Reykjavík sem atvinnustöð í framtíðinni og verða þáttur í því að bæta lífskjör borgarbúa og gera Rcykjavík að betri borg. Birgir Isl. Gunnarsson lagði áherzlu á það í ræðu sinni, að breytingar hefðu orðið á eðli atvinnulífsins í borginni fyrst og fremst vegna framkvæmdar byggðastefnunnar. Auðvitað segir það til sín, sagði borgar- stjóri, þegar milljörðum er dreift út í atvinnulífið og þess er gætt sérstaklega, að sem allra minnst af því fjármagni komi til Reykjavíkur. Borgarstjóri minnti á, að miklar umræður hefðu orðið um atvinnumál Reykvíkinga, eftir Framhald á bls 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.