Morgunblaðið - 30.04.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1978
3
Menntamálaráðherra
er andvígur sjálf-
stæðri fræðsluskrif-
stofu i Hafnarfirði
TÖLUVERÐAR umræður uröu í efri
deild á föstudag um frumvarp til laga
um grunnskóla, sem flutt er af
nokkrum pingmönnum Reykjanes-
kjördæmis aö beiöni Hafnarfjaröar-
kaupstaðar en frumvarpið felur í sér
aö bæjarfélögum með 10 Þúsund
íbúa eöa fleiri veröi heimilað að setja
á laggirnar sjálfstæöa fræðsluskrif-
stofu. Hafnarfjarðarkaupstaður hefur
ekki tekið pátt í starfsemi fræðslu-
skrifstofu kjördæmisins.
Jón Ármann Héðinsson mælti fyrir
áliti meirihluta menntamálanefndar,
sem leggur til að frumvarpið verði
samþykkt. Axel Jónsson (S) mælti
fyrir minnihluta áliti, og lagðist gegn
frumvarpinu. Kom fram í máli hans að
Kópavogskaupstaður er því mótfall-
inn. í sama streng tók Jón Helgason
(F) sem einnig á sæti í menntamála-
nefnd en tók ekki þátt í afgreiðslu
nefndarinnar. Taldi hann frumvarp
þetta fráleitt og benti á að miklu
Islenzka S króna myntin
Mynt með
líku útliti
2500 ára
ámilli
Myntin frá SM f. Kr.
NÝ ÍSLENZK mynt hefur verið hönnuð
og birt mynd af peningunum í blöðun-
um. Önnur hlið fimm króna peningsins
minnir óneitanlega nokkuð á pening,
sem var í umferð árið 580 fyrir Krists
burð. Slikur peningur fannst á eyjunni
Santorino. Er á honum mynd af
stökkvandi höfrungum. Á Þeim tíma,
eöa tyrír 2500 árum purfti 20 slíka
peninga til að kaupa fyrir einn bát. Nú
er pessi hlið peningsins notuð sem
einkennismerki skipafálags, sem siglir
um Miðjarðarhafið.
Hvaö skyldi þurfa marga íslenzka 5
króna peninga til að kaupa einn bát,
þegar kemur aö því aö myntin veröi út
gefin hér. Sennilega nokkuð marga,
jafnvel þó búiö veröi aö taka tvö núll
aftan af.
Hvað um það, þessir tveir peningar,
sem gefnir eru út meö 2500 ára millibili,
sinn á hvorum staönum, eru býsna líkir.
frekar bæri að taka tillit til landfræði-
legra aðstæöna en íbúatölu, ef á
annað borð væri talin ástæða til aö
leysa upp fræðsluumdæmin núver-
andi, sem hann kvaðst mótfallinn.
Nefndi hann í þessu sambandi að
Vestmannaeyingar þyrftu t.d. að leita
með sín mál til fræðsluskrifstofunnar
á Selfossi en þeir kvörtuðu ekki.
Vilhjálmur Hjálmarsson, mennta-
málaráðherra, gerði ítarlega grein fyrir
þessu máli og lýsti algjörri andstööu
sinni við frumvarpið, sem hann kvað
þarflaust og aðeins til þess fallið að
vekja fræðsluskrifstofuumdæmin.
Hafði ráðherra orð á því að honum
þætti fjármálaráðherra og sumir
þingmenn kjördæmis hans sækja
þetta mál af miklu kappi, og taidi
einsdæmi að einn ráðhérra hefði sig
svo í frammi í máli sem ráöherra sá
er máliö heyrði undir, væri andvígur.
Taldi hann að erlendis mundi viðkom-
andi ráðherra hafa sagt af sér í
mótmælaskyni, en hér væri þó tæpast
nógu stórt mál til að hann brygðist
þannig við.
Ragnar Arnalds (Abl) taldi umkvart-
anir menntamálaráðherra um kapp
fjármálaráðherra á að þröngva þessu
máli í gegn þrátt fyrir andstöðu
meðráöherra hans, nokkuð seint fram
komnar. Kvaðst Ragnar ekki sjá að
með samþykkt þessa frumvarps væri
verið að gefa nein fordæmi í þá veru
að leysa upp fræðsluumdæmin og
kvaðst því styðja frumvarpið til
annarrar umræðu.
VIÐ SETNINGU Náttúruvernd-
arþings á Hótel Loítleiðum í
gærmorgun skýrði Vilhjálmur
Iijálmarsson menntamálaráð-
herra frá því að Eysteinn Jóns-
son sem verið hefur formaður
síðastliðin 6 ár léti af því starfi
að eigin ósk. Þakkaði ráðherra
Eysteini mikilvægt brautryðj-
endastarf. Jafnframt skýrði
ráðherra frá því að Eyþór Ein-
arsson sem verið hefur varafor
maður ráðsins tæki við for
mennsku en Jónas Jónsson yrði
varaformaður. Síðar kýs Nátt-
úruverndarþing scx menn í ráðið
og sex varamenn. Forseti þings-
ins var kjörinn Hákon Guð-
mundsson.
í skýrslu sinni til þingsins
sagði Eysteinn Jónsson m.a. að
talsvert hefði áunnizt í friðunar
og útivistarmálum á vegum
ráðsins og náttúruverndarsam-
takanna í landinu. Þjóðgarðar
Eysteinn hættir
formennsku Nátt-
eru tveir á vegum ráðsins.
Náttúruvætti, friðlönd og fólk-
vangar eru 46 talsins og þar á
meðal svæði sem telja má þjóð-
garðsígildi. Hann sagði að á
náttúruminjaskrá væru 150
svæði og staðir og kæmi þar
glögglega í ljós hvflfkt óhemju
verkefni væri framundan í
friðunarmálum.
Síðar í ræðu sinni ræddi
Eysteinn nauðsyn þess að koma á
landnýtingarskipulagi sem smátt
og smátt næði til alls landsins, að
menn gerðu sér grcin fyrir því
hvernig nýta skyldi landið. Ætti
þess háttar skipulag að vaxa upp
í byggðarlögunum sjálfum á
vegum heimafólks með aðstoð
þeirra sem til þess væru settir að
hafa yfirlit um landið allt.
Erindi voru flutt á þinginu í
gærmorgun, m.a. lögðu dr. Sig-
urður Þórarinsson og Arnþór
Garðarsson fram áfangaskýrslu
um fossa á íslandi og skýrslu um
hveri og laugar og skrá um
vatnasvæði.
Náttúruverndarþing stendur í
Framhald á bls. 37.
Jón Ármann Héðinsson:
Segist hafa ordid fyr-
ir óréttmætu aðkasti
flokksbræðra sinna
JÓN ÁRMANN Héðinsson alpingis-
maöur lýsti pví yfir í efri deild á
föstudag að hann teldi sig hafa
orðið fyrir óréttmætu aðkasti
flokksbræðra sinna í Alpýðuflokkn-
um út af pví að hann væri meðflutn-
ingsmaður að frumvarpinu um bann
við fjárhagslegum stuöningi er-
lendra aðila við íslenzka stjórn-
málaflokka, en petta mál var til
annarrar umræðu í efri deild
Alpingis í gær. Lýsti pingmaðurinn
pví jafnframt yfir, að hann teldi mun
heiðarlegra að pau dagblöð er
stæðu höllustum fætí væru hrein-
lega styrkt beint úr ríkissjóöi en
kvaðst pó hafa vissar efasemdir par
um eftir nýleg dæmi um skrif
íslenzkra dagblaða.
í umræðum um þetta mál gerði
Jón Ármann Héðinsson sérstaklega
að umtalsefni dreifibréf Alþýðu-
flokksins um fjárhagsstuðning þann
er Alþýðuþlaðið og flokkurinn hefðu
fengið frá norrænum jafnaðarmönn-
um, en þar væri því haldið fram á
einum stað að ef frumvarp þetta væri
í gildi, sæti forsvarsmaður flokksins
í fangelsi og dæmdur til að greiða
milljónir króna í sektir. Jón kvaöst
hafa mótmælt málflutningi sem
þessum og krafizt þess að hann yrði
dreginn til baka en því ekki sinnt, og
hann þá ekki tekið þátt í störfum
flokksins eftir það. Hins vegar kvað
Jón Ármann það skipta sig engu
máli, þótt hann væri stimplaður
flokkssvikari vegna aöildar að þessu
frumvarpi, hann hefði aðeins fylgt
sannfæringu sinni, því að hann teldi
algjörlega óeðlilegt að stjórnmála-
flokkar hér nytu fjárhagsstuönings
erlendis frá. Á svipuðum forsendum
hefði hann á sínum tíma gerzt
hvatamaður þess að auglýsingar á
tóbaki væru bannaðar í íslenzkum
fjölmiðlum, en þessar auglýsingar
hefðu verið kostaðar erlendis frá.
Jón kvaðst viðurkenna að dag-
blöðin sum og þá sérstaklega
Alþýðublaðið stæöu höllum fæti, en
miklu hreinlegra væri að taka upp
verulegan ríkisstyrk við þessi blöð og
gæta þess þá að þau blöð fengju
mest sem verst væru stæð, en
þannig kerfi taldi Jón Ármann aö
væri í Noregi. Þingmaðurinn kvaöst
geta hugsaö sér að stuöla að máli af
þessu tagi, enda þótt hann efaðist
um að því yrði vel tekið á þingi og
samstaða næöist um þaö.
Engu að síður kom það fram í máli
Jóns að hann haföi vissar efasemdir
um hvort ríkisstyrkur af þessu tagi
væri réttlætanlegur vegna æsiskrifa
er þingmaðurinn kvaöst hafa orðið
var í blöðum undanfariö, þar sem
stöðugt væri verið að ráðast á
alþingismenn og ata þá auri. Nefndi
þingmaðurinn sem dæmi Landsvirkj-
unarferð þingmanna og fleiri á
sumardaginn fyrsta en vegna hennar
hefði Morgunblaöiö í leiðara leyft sér
að líkja stjórnarmönnum Landsvirkj-
unar við Bokassa, einhvern versta
einræöisherra í Afríku. Einnig nefndi
þingmaðurinn leiðara Alþýöublaösins
nýlega: „Ekki ein báran stök við
Kröflu" þar sem reynt væri að sýna
fram á tengsl Rafafls og Þjóöviljans
viöKröfluframkvæmdina. Kvað þing-
maðurinn fulla ástæðu að krefjast
rannsóknar á þessum skrifum. Sagði
þingmaðurinn að ef blöðin þyrftu
óvandaða blaðamennsku og æsinga-
skrif til að halda í sér lífinu, teldi hann
betra að þau fengju að deyja drottni
sínum.
Einnig tók til máls í þessum
umræðum Steingrímur Hermannsson
(F), og Stefán Jónsson (Abl) sem
Framhald á bls. 37.
Erró-bókin
ÞAÐ mishermi varð í Morgunblað-
inu í gær í frétt um Erró-bók
Iceland Review og bókaklúbbs AB,
sem út kemur um mánaðamót maí
og júní, að sagt var að í bókinni
yrðu viðtöl við Erró og Matthías
Johannessen. Hið rétta er að með
myndum Errós ritar Bragi As-
geirsson grein um listamanninn og
samtalsgrein um Erró er eftir
Matthías Johannessen.
Mæðrablómið
á mæðradag
MÆÐRADAGURINN er í dag og
mun mæðrastyrksnefnd að venju
hafa mæðrablómið til siilu í
tilefni dagsins. Öllum ágóða af
siilu merkisins verður nú sem
fyrr varið til orlolsdvalar efnalít-
illa eldri kvenna, sem ekki eiga
ella kost á hvíldarviku í sumar.
Mæðrastyrksnefnd hefur efnt til
slíkrar hvíldarviku fyrir efnalitlar
eldri konur um margra ára skeið.
Eru þær konur fjolmargar, sem
þess hafa notið en hefðu ella farið
með öllu á mis við sumarhvíid. A
síðasta sumri dvöldu 40 konur að
Flúðum í Arnessýslu á vegum
nefndarinnar og er það einlæg von
hennar, að ágóði af sölu mæðra-
blómsins að þessu sinni nægi til
þess að unnt verði að bjóða a.m.k.
jafnmörgum konum til vikudvalar
á komandi sumri. Mæðrablóm
mæðrastyrksnefndar verður ekki,
fremur en áður, selt í hlóma-
verzlunum en sölubörn munu að
venju ganga í hús og bjóða það til
sölu og eins verður reynt að selja
það við samkomuhús borgarinnar.
Mæðrastyrksnefnd skorar á Reyk-
víkinga að taka sölubörnum henn-
ar vel, svo að mæðrablóm hennar
geti verið í barmi sem flestra á
mæðradaginn.
(Fréttatilkynning)
Veizlukaffi
KVENNADEILD Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík verður með sitt
árlega veizlukaffi og happdrætti í
Lindarbæ 1. maí kl. 14. Að venju
verður þar margt gómsætt á
veizluborðinu og nytsamir og góðir
vinningar í happdrættinu. Allur
ágóðinn rennur til hinna ýmsu
verkefna félagsins bæði í líknar-
og menningarmálum.
Veizlukaffi
VEIZLUKAFFI verður í Iðnó 1.
maí eins og verið hefur á undan-
förnum árum á þeim degi, og alltaf
er vel til þess vandað.
Húsið verður opnað kl. 2.30 og
verður opið fram eftir degi.
1NNLEN"T
FERÐAGETRAUN
Verðlaun Útsýnarferö fyrir 2 til Grikklands.
Sjá Útsýnarauglýsingu á baksíðu Morgunblaðsins í dag,