Morgunblaðið - 30.04.1978, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 30. APRÍL 1978
ÞORSTEINN GYLFASON:
EINU
SINNI
KERLING
Pálína Kael heitir kerling, alræmdur
svarkur, en hefur aldrei til íslands
komið svo vitað sé. Enda er hún
óskrifandi á íslenzku, svo ágæt sem
hún er í ensku og dável lesin í
Dostojevskí og auðvitað í Kafka. Þess
vegna þarf það út af fyrir sig ekki að
koma á óvart að þegar hún skrifar
langar greinar í Morgunblaðið skuli
hún nota dulnefnið Sæbjörn Valdi-
marsson. Er þetta raunar ágæt hug-
mynd, og eftirbreytnisverð fyrir blaða-
menn sem eiga í einhverjum erfiðleik-
um' Til dæmis færi vel á því að Valtýr
Pétursson skrifaði undir nafni Vil-
hjálms Hjálmarssonar þegar hann
fjallar um konjak.
Hitt er svo annað mál að fyrir
allmörgum árum birtist í Lesbók
Morgunblaðsins kvæði eftir Magga
Sigurkarl. Kvæðið minnir mig héti
Sayonara, og langaði mig strax til að
Iesa það því skömmu áður hafði komið
hér út bók með sama heiti, svolítið
dónaleg bók að ég hygg, sem ég hafði
ekki haft tíma til að lesa. Gott ef
Austurbæjarbíó sýndi ekki kvikmynd
eftir bókinni sem líka fór fram hjá
mér. (Ætli hún hafi verið með Marlon
Brando? Pálína hlýtur að muna það.)
Og ekki varð ég mjög vonsvikinn, því
hver var þarna kominn nema gamall
kunningi í nýjum frakka og með hatt!
Svo var viðlag í kvæðinu, alveg ágæt
lína; enda snarað úr frönsku af Tómasi
Guðmundssyni, en áður hafði Paul
Gauguin þýtt hana af máli heimafólks
á Tahítí.
Nú segir Kristján Karlsson hér á
Borginni að verið sé að yrkja einhver
ósköp í landinu, og sitji til að mynda
ungar stúlkur við ljóðagerð myrkranna
á milli. Þetta væri sök sér í skammdeg-
inu, en kemur sér óneitanlega illa fyrir
unga menn þessa dagana. Væri nú ekki
ráð að ungu skáldin fylgdu fordæmi
Magga Sigurkarls, að minnsta kosti
meðan sól er lengst á lofti?
Þá væri kannski tími til að labba
niður í bæ og fylgjast með fram-
kvæmdum. Þar . hefur bæjarstjórn
kerling gert fagurt minnismerki yfir
okkur sem enn munum rúntinn:
Austurstræti er göngugata og lokað í
annan endann með turni handa útlendu
ferðafólki. Þá vantar bara að loka því
í hinn endann líka — til að mynda með
Elínu Pálmadóttur — svo að hinir
erlendu gestir fái frið í götunni. Nema
það komi einnig til álita að reisa
bárujárnsgirðingu við Lækjargötu til
að Stjórnarráðið og stytturnar sjáist
alls ekki. I bænum eru líka fróðlegar
og skemmtilegar leifar frá fyrri tíð.
Sólin hellir sér yfir Hallærisplanið,
þótt hún sé komin til ára sinna, og enn
í dag safnast þar stundum saman ungt
fólk, mátulega drukkið, og gerir
smellin hróp að ráðsettum vegfarend-
um og fleira sem gaman er að. Þegar
bæjarstjórnin er búin að láta kjósa sig
eina ferðina enn ætlar hún að setja allt
þetta unga fólk á safn í Fellahelli og
fylla planið með öðrum minnisvarða og
ennþá veglegri yfir þessi síðustu merki
lifandi lífs í bæjarfélaginu. Svo er það
Tjörnin. Alveg er það ægiiegt að muna
ekki vísuna hans Piet Hein eins og
hann hafði hana sjálfur á sínu máli.
Hljómskálagarðurinn grænkar á ný
eins og guð hefur fyrir hann lagt.
Og piltur og stúlka fá sér frí.
Þau hafa nú gagnkvœman hug á því
sem er hægara gert en sagt.
4V|,
acc
Ieíei
vj^‘v
it'C
(\
t\b\t
víA 's
don'
a\tö°st
VJOU
^ce\
t\\c
e\V
vb\e
c*P
v\íg,(
V\S
,Y\c"V\
obsc'
SS\ve
:\\CV
VO
Oí
t\\c Y
,a\V\\
vJ\
,tb<
a\\°
\í\c\e
\\í\t
t\\V°V\="
VJ
a\v'\ ■
áevxwtv go"\&4
:\w
ÍVVC
;">YTe>í'®'?\í\>’5’
ví\'°ÍC
uc\w>
tí'CS
to
StfO’P
,\e
,toeV
sV'S
M'i
\SJ
\\CÍ v
pv\í«
\V.\S
VSSW;
So"':
"O
Í\C
SV\
\W
t"\fe'
tbov't
act
\\\s
bto
w\\’
,tbeí’
\.. tabeS
‘-"Y'.o'S,
\ci tb'oU®
be
to
b»sl
tbe 1
.t°
be
\NE.WTYOm|
[the
Við ekL*sLæk,d- bá rð Sé 4
'sem eer'i^Jkefð 1
. tilf;n„?r,r °kkur fj° kv°l '
_____ „ _ — þe/rrá '^' Ú'Wr
TALK OF THE TOVN
-----------------Zf; ,?;?*'*■'
tarí» v'° hU9^’æt\a‘ aö
inn 111 bað ek,K'
"eSa. V^ömU myn--r-1' e° 9V°
aö
ð kætta á „ Verðu~
Sömu
aftur og
°Z fæ.
Svifrá,
'nni,
*-Ws Z'Jt:n « « filn
k. '■ —Pauline Kael
sýn\ng » Z vonbrvgöu'
1 1 endi
, aldrei aftur“’f,á Abel -sást
verið kVeifar)lá«eJr bað
toans til að K • eiö ^erg-
^iagi ha*ð se»a að '
^amtíðinni. y ^'atað ■
haldandi unni Ver8erus, A
horfa á sjálfa' *Pe*Ii M að i
eiR'n skoðun er A
,e‘kstjóra á . kn,ynd a-
enda/oiíum, sem'"Um ei«>'n
s*nianIeRri !f t ^ mun
rp* *™ iijc
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSOl
Er nú ekki nema eins að gæta. Þegar
ungu skáldin fara að yrkja gömul
kvæði til að geta brugðið sér í bæinri,
mega þau til með að varast eins og
heitan eldinn að snúa kvæðunum á
óbundið mál áður en þau láta þau frá
sér fara. Af einhverjum ástæðum hafa
skáld verið að reyna þetta um nokkurt
skeið; auk þess sem þau hafa lengstum
kosið heldur að spreyta sig á lakasta
kveðskap fyrirrennara sinna, ugglaust
í þeirri trú að þar riði mest á að bæta
um betur. En þetta hefur gengið anzi
seint. Meinið er að óbundið mál er
miklu erfiðara að eiga við; þar er úr svo
mörgu að velja. Til þess er enginn tími
núna.
Má ég nú ekki biðja þig, Matthías
minn, að birta enga mannsmýnd með
þessari athugasemd? Fólk gæti þá með
engu móti reitt sig á hvort myndin væri
af Pálínu Kael, mér eða kannski
einhverjum nýlátnum heiðursmanni.
Svo hlýtt sem mér er til fólksins í
landinu, látins sem lifandi, og kæmi
líka að sumu leyti vel að vera talinn af,
þá þætti mér miður ef einhver tæki upp
á að villast á mér og henni. Eða þá á
Elínu og turninum.
Atlas
sumarhjólbaröar:
A-78-13 Verö kr. 13.343.-
B-78-13 Verð kr. 13.679.-
C-78-13 Verö kr. 14.255.-
C-78-14 Verö kr. 14.441,-
E-78-14 Verö kr. 15.270.-
F-78-14 Verö kr. 16.046.-
Okkar hagstæða verð á Atlas og Yokohama
hjólbörðum gildir enn.
„ Véladeild HJÓLBARÐAR
Sambandsins SEfSffS***
Sumarstarf
aldraðra Hafnfirðinga
Styrktarfélag aldraöra í Hafnarfiröi, gengst fyrir
orlofsdvöl fyrir aldraöa Hafnfiröinga í Bifröst í
Borgarfirði, á komandi sumri. 2 svalartímar
standa til boöa, annars vegar 19.—26. júní og
Jiins vegar 14—21. ágúst.
Skránig í orlofsferðirnar fer fram í Hafnarfjaröar-
apóteki, frá 2. maí n.k. kl. 9 f.h.
Þátttökugjald kr. 10 þús. greiöist viö skráningu.
Þátttaka er heimil öllum Hafnfiröingum 67 ára og
eldri, svo og hjónum, ef annaö þeirra er á þeim
aldri.
Mögulegur þátttökufjöldi er takmarkaöur og
veröur fariö eftir röö viö skráningu.
Stjórnin.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
f