Morgunblaðið - 30.04.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1978
41
þegar litið er yfir farinn veg. En
góð heilsa og lífsgleði hefur verið
ein af hans heilla vættum, sem
hjálpað hefur til að ryðja veginn,
og gera leiðina greiðfærari. Það
mætti ætla að kominn væri tími til
að taka sér hvíld frá störfum, og
setjast í helgan stein, og ylja sér
við minningar liðinna ára, en rík
athafnarþrá gefur ekki grið, en
léttir störfin, og gefur arð, en litla
hvíld.
Hann hefur nú seinni árin verið
sjálfs síns húsbóndi, hefur alla tíð
verið hneigður til verzlunarstarfa,
enda unnið við þau meiri hluta ævi
sinnar.
Nú flytur hann sjálfur inn sína
vöru, og fer enn í dag til útlanda
að kaupa inn, og líta eftir því, sem
inn er flutt, að það sé i góðu lagi.
Hann vill að það standi, sem lofað
er, enda með afbrigðum heiðarleg-
ur í öllum viðskiptum. Hann fer
sjálfur sem sölumaður út um alla
landsbyggðina með sína vöru í
verslanir, sölumennskan er honum
lagin, enda hefur sölumannafélag-
ið sýnt honum sóma og viðurkenn-
ingu fyrir þau störf.
Ymsum trúnaðarstörfum hefur
Axel gegnt um dagana fyrir
sveita- og byggðafélög, og fyrir
góðtemplararegluna hefur hann
unnið margvísleg störf um langt
árabil, og verið þar mikilvægur
þátttakandi, enda afbragðs söng-
maður og ljóðelskur, og hrókur
alls fagnaðar í vinahópi og kann
frá mörgu að segja á skemmtileg-
an hátt, minnið með afbrigðum
gott og fróðleiksbrunni af að taka.
Þegar Axel bjó á Hellissandi
voru honum falin margvísleg og
mikilvæg trúnaðarstörf, fyrir utan
sitt aðalstarf, sem var við verslun,
ýmist fyrir sjálfan sig eða aðra.
Hann var í hreppsnefnd og oddviti
byggðalagsins, um áraraðir, sýslu-
nefndarmaður og formaður skóla-
nefndar, svo eitthvað sé nefnt. Það
fer því ekki hjá á þessum tíma-
mótum, er Axel lítur til baka, þá
er margs að minnast á svo langri
leið.
Þegar ég sem rita þessar línur
ræði við hann um þetta tímabil,
verð ég þess ávallt vís að hann ber
sérstakt vinarþel til þess byggða-
lags og sterkir þræðir liggja þar á
milli, sem aldrei hafa brostið. Það
er margt ótalið sem Axel Clausen
hefur lagt á gjorva hönd og góðan
hug að um dagana, enda ekki
aetlun mí n önnur en að stikla á
ýmsum atvikum, af nógu væri að
taka.
Átthagafélag Sandara hefur átt
því láni að fagna að njóta starfs-
krafta Axels. Fyrst sem eins af
stofnendum þess, og í stjórn um 20
ára bil, og alltaf jafn fús til að
starfa í þeim félagsskap. Og þótt
hann væri öðrum störfum hlaðinn,
þá var alltaf jafn gott að leita til
hans, alltaf var hann úrræðagóður
og athugull og samvinnuþýður, og
gott með honum að starfa.
Ég hef víst áður sagt, og það á
við enn í dag, að árafjöldinn hefur
ekki náð tökum á þér, þú safnar
þeim að baki, en berð þau ekki í
fanginu, eins og allir geta séð. Og
að lokum kæri vinur óska ég þér
og þinni fjölskyldu alls hins besta,
og þakka þér góða og drengilega
framkomu í samfylgd og starfi og
ég vona að þín ævikvöld verði
friðsæl og björt, og þegar kvöldsól-
in gengur til viðar og Snæfellsjök-
ull rís við hafsbrún, kannt þú
manna best að meta tign hans og
fegurð.
Hann tekur á móti gestum í
Templarahöllinni milli kl. 3—7
síöd. í dag.
Sigurður Bjarnason.
fl IVEVTEIVDA ■b.1978 BLADÍD
W Wt >2 * 118 NBiiJ HPi' lr Í - ’iíka B 1 wTiir ***;
Börnin og neyslusamfélagið
Hvile-vask málió
Um barnabilstóla
Afmælisrit
Neytenda-
samtakanna
NÝKOMIÐ er út rit Neyt-
endasamtakanna en fyrir
nokkru voru liðin 25 ár frá
því starfsemi samtakanna
hófst. Meðal efnis í ritinu er
grein formanns Neytenda-
samtakanna, Reynis Ár-
mannssonar, um réttleysi
neytandans og nokkrir fyrr-
verandi formenn samtakanna
rita greinar um ýmis efni.
Þá er í ritinu grein er
nefnist Börnin og neyzlusam-
félagið, rætt um neytandann
og bílana, húseigandann sem
neytanda og ýmislegt fleira
efni er í ritinu.
Hús og híbýli
HÚSogHÍBÝLI
Kaupmáll Trygglngar
Vlðtal vlð Kfartan Svelnaaon
Tfðld fyrlr gluggana
• I nýju tölublaði er m.a. viðtal
við Kjartan Sveinsson bygginga-
tæknifræðing: „Ég er duglegur og
bjartsýnn, eins og íslenska bjóð-
in.“ Þar er einnig myndagrein um
tjöld fyrir gluggana, sérfræði-
greinar eru um kaupmála og
tryggingar — og ótal margt fleira
er í blaðinu.
• Áskrift að 4 tölublöðum kostar
aðeins 1.325 krónur, núna en þrjú
þeirra eru komin út og það fjórða
er á leiðinni. Fyrir þessa greiöslu
fást 128 síður fullar af alls konar
fróðleik og hugmyndum um hús og
híbýli. Sendið greinilega útfyllta
áskriftarpöntun og greiöslu, kr.
1.325 til: Útgáfufélagið hf. íprótta-
miðstöðinni Laugardal 105
Reykjavík. Síminn er 86544.
Til útgáfufélagsins hf.
Undirr. pantar Hús og híbýli í áskrift og sendir hér með
greiðslu fyrir 4. áskr. árgang (4 tölublöð), kr. 1.325.
Nafn
Nafnnúmer
Heimili Sími
Pnststóð
KYNNING
C^wrfet
Kynning verður á hinum víðfrægu
snyrtivörum í eftirfarandi
snyrtivöruverzlunum:
Þriðjudagur 2/5 frá kl. 13.30—17.30,
Laugavegsapótek, snyrtivörudeild.
Miðvikudagur 3/5 frá kl. 13.30—17.30,
Snyrtivöruverzlunin, Sylvía, Verzlanahöllinni.
Leiðbeinandi verður frú Þóra Þórarinsdóttir,
fegrun arsérfræðingur.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
ÞÚ AUGLÝSIR L'M ALLT
LAND ÞEGAR ÞÚ AUG-
LÝSIR I MORGLNBLADIM
Solex blöndungar
fyrirliggjandi í ýmsar geröir bifreiöa.
Einnig blöökur í Zenith blöndunga.
Útvegum blöndunga í flestar geröir
Evrópskra bifreiöa.
Hagstætt verö.
Gamall og slitinn blöndungur sóar bensfni
sá nýi er sparsamur og nýtinn.
Laugavegi 1 70—172 — Sfmi 21240