Morgunblaðið - 09.05.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
94. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Leitin að
Moro er
enn efld
Róm. 8. maí. aP. Reutar.
LEITIN að Aldo Moro og ræn-
ingjum hans var enn aukin í dag.
leit fór fram í Róm og Genúa og
tveir ungir menn og ein kona
voru handtekin. En ekkert heyrð-
ist frá mannræningjunum þriðja
daginn í röð og yfirvöldum hefur
enn ekki tekizt að komast á slóð
þeirra þrátt fyrir aðgerðirnar í
dag.
Lögreglumenn reistu götuvígi
skammt frá Vatikaninu, aðaljarn-
brautastöðinni og í fornu miðborg;
inni og leituðu hús úr húsi. I
hafnarborginni Genúa tóku rúm-
lega 500 lögreglumenn þátt í leit
sem þar var gerð og leiddi til þess
að þrír meintir vinstriöfgamenn
til viðbótar voru handteknir,
þannig að alls hafa 29 verið teknir
fastir síðan Rauðu herdeildirnar
tilkynntu að dauðadómnum gegn
Moro yrði framfylgt.
Þau sem voru tekin höndum
voru 28 ára gamall félagsfræði-
stúdent og tveir læknanemar, sem
eru grunuð um að vera félagar í
Framhald á bls. 29.
Mestiósigur
Callaghans
London. 8. maí. AP. Reuter.
STJÓRN Verkamannaflokksins í
Bretlandi beið ósigur í mikil-
vægri atkva-ðagreiðslu um stefnu
hennar í skattamálum í Neðri
málstofunni í kvöld en ekki er
gert ráð fyrir því að James
Callaghan forsætisráðherra rjúfi
þing og efni til nýrra kosninga.
Stjórnin beið ósigur með 312
atkva'ðum gegn 304 þar sem allir
brezku smáflokkarnir tóku hönd-
um saman með íhaldsflokknum
og greiddu atkvæði gegn stjórn
Callaghans. Ósigurinn verður til
þess að stjórnin verður að gera
meiriháttar hreytingar á fjár-
lagafrumvarpi sínu.
Atkvæðagreiðslan var ekki um
traust eða vantraust á stjórnina
en var mesti ósigur stjórnarinnar
síðan hún kom til valda í október
1974.
Þess var krafizt þegar í stað að
Callaghan forsætisráðherra segði
af sér og efndi til almennra
þingkosninga, en stjórnin tók
Framhald á bls. 2S.
Eleonora kona Aldos Moros í bifreið sinni í gærmorgun
á leið til kirkju þar sem hún bað fyrir lífi manns síns
sem blað segir að hafi sent henni kveðjubréf þar sem
hann segi að hann verði tekinn af lífi innan skamms.
Kissinger vill
auka þotusölu
Samningaviðræður
um Namibíu rofna
New York. 8. maí. Reuter.
VIÐRÆÐUM vesturveldanna og
blökkumannaleiðtoga frá Nami-
bíu (Suðvestur-Afríku) var slitið
í dag vegna innrásar Suð-
ur-Afríkumanna í Angóla í síð-
asta mánuði.
Sam Nujoma. forseti SWAPO
(Alþýðusamtaka Suðvest-
ur Afríku). og aðrir fulltrúar í
sendinefnd hans sneru aftur til
aðalstöðva sinna í Lusaka.
I samhljóða bréfum til fulltrúa
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands, Kanada og Vestur-Þýzka-
lands í Öryggisráðinu sagði
Stúdenta-
ókyrrð í
Teheran
Teheran, 8. maí. Reuter.
SEX stúdentar stungu forseta
listadeildar Teheran-háskóla með
rýtingi í dag í kjölfar tilrauna til
að kynda undir ólgu í háskólanum
og hann liggur þungt haldinn í
sjúkrahúsi að sögn embættis-
manna.
Iranska fréttastofan segir að
menn duibúnir sem stúdentar hafi
reynt árangurslaust að undan-
förnu að koma í veg fyrir að
stúdentar og kennarar sæktu tíma.
Talsvert hefur verið um ofbeldis-
verk gegn stjórninni að undan-
fórnu. Taismaður stjórnarinnar
segir að mótmælin í háskólanum
beinist liæði gegn stjórninni og
skipulagi menntamáia.
lílöð sögðu frá því í dag að
Framhald á bls. 29.
Nujoma að SWAPO gæti ekki
tekið þátt í viðræðum að svo
stöddu. En hann ítrekaði áhuga
samtakanna á samningum um
lausn deilunnar um Namibíu sem
Suður-Afríka stjórnar í trássi við
vilja SÞ.
Vestrænu fulltrúarnir fögnuðu
þessu í yfirlýsingu og kváðust
mundu halda tilraunum sínum
áfram, en sumir þeirra sögðu í
einkaviðræðum að þeir sæju fram
á langa sjálfheldu í samningavið-
ræðunum og að sennilega mundu
átök magnast í Namibíu og
nágrannalöndunum.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri SÞ, kvaðst harma það sem
gerzt hafði og kallaði á sinn fund
fulltrúa SWAPO hjá SÞ að ræða
málið.
Suður-Afríkustjórn samþykkti
15. apríl tillögur vesturveldanna
um vopnahlé, brottflutning herliðs
og kosningar undir eftirliti SÞ í
Hundrað
slasast
í Madrid
Madrid, 8. maí. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 100 manns
slösuðust, tveir þeirra alvarlega.
þegar tvær neðanjarðarjárn-
brautarlestir rákust á í Madrid í
kvöld.
Önnur lestin hafði numið stað-
ar milli tveggja stöðva. Farþegi í
Framhald á bls. 29.
Namibíu. SWAPO mótmælti mik-
ilvægum ákvæðum áætlunarinnar
og fór fram á nánari viðræður við
fulltrúa vesturveldanna og þær
áttu að hefjast í dag.
Eftir árás suður-afrískra her-
sveita frá Namibíu á stöðvar
swapo í Suður-Angóla sagði
Nujoma að enn væri áhugi á
viðræðum. En þegar hann hefði
fengið nánari upplýsingar um
árásina sagði hann vestrænu
fulltrúunum að hann og félagar
hans hefðu fengið fyrirmæli frá
miðstjórn sinni um að snúa aftur
Framhald á bls. 29.
Washington, 8. maí. Reuter.
HENRY Kissinger fyrrverandi
utanríkisráðherra lýsti í dag yfir
stuðningi við fyrirhugaða sölu
F-15 herflugvéla til Saudi-Arabíu
en sagði að fara ætti fram á að
stjórn Carters forseta seldi fleiri
fullkomnar orrustuþotur til ísra-
els.
Hann sagði þetta í vitnaleiðsl-
um í utanríkisnefnd öldunga-
deildarinnar og tillaga hans fékk
víðtækan stuðning í nefndinni
sem fjallar um fyrirhugaða sölu
herflugvéla að verðmæti fimm
milljarðar dollarar til Israels.
Saudi-Arabíu og Egyptalands.
Afstaða utanríkisnefndarinnar
er sú að stjórnin eigi að selja
Saudi-Arabíu 60 F15S herflugvél-
ar eins og stjórnin leggur til, að
trygging fáist fyrir því að þær
verði aðeins notaðar til landvarna
og að ísraelsmenn eignist eins
margar F15S þotur og Saudi-Ar-
abar munu ráða yfir.
Carter forseti hefur lagt til að
60 F-15 orrustuþotur verði seldar
til Saudi-Arabíu, 50 F5E orrustu-
þotur til Egyptalands og 15 F-15S
og 75 F-16S orrustuþotur til
Israels. Israelsmenn eiga 25 F-15S
þotur og Kissinger vill að þeir fái
20 til viðbótar þeim 15 sem
stjórnin vill selja þeim svo þeir
ráði yfir eins mörgum þotum af
þessari gerð og Saudi-Arabar.
Kissinger vill líka selja ísraels-
mönnum fleiri F-16S þotúr.
Stjórnin hefur tjáð sig fúsa til
sveigjanleika í afstöðu sinni til
fjölda þeirra flugvéla sem skulu
seldar. Salan á þotunum til Egypta
vekur ekki deilur. Carter forseti
hefur sagt að ef sala á herþotum
Framhald á bls. 28.
Hreinsunarherferð
hafin í Afghanistan
Kabul, 8. maí. Reuter.
NÝJA vinstristjórnin í Afghan-
istan hefur hafið miklar hreins-
anir í ráðuncytum og ætt-
flokknum sem hefur ráðið
lögum og lofum í landinu í
rúma öld samkvæmt áreiðan-
legum heimildum í dag.
Um 60 starfsmenn utanríkis-
ráðuneytisins hafa verið reknir
og flestir sendiherrar landsins
hafa verið heðnir að segja af
sér. Ilreinsanirnar ná einnig til
innanríkisráðuneytisins og
heraflans. Allir fylkisstjórar
hafa verið reknir og herfor-
ingjar skipaðir í þeirra stað.
Miklar mannabreytingar hafa
lika átt sér stað í upplýsinga-
ráðuneytinu, fréttastofu lands-
ins, útvarpinu og blöðunum
Anis og Kabul Times sem
stjórnin á.
Diplómatar í Kabul staðfesta
að embættismenn sem þeir
venjulega skipta við í utanríkis-
ráðuneytinu séu horfnir. Fréttir
herma að allt að 4.000 manns
hafi týnt lífi í stjórnarbylting-
unni 27. apríl þótt hinn nýi
forseti, Nur Mohammed Tar-
akki, segði á -Waðamannafundi
um helgina að aðeins 72 eða 73
hefðu beðið bana. En diplómatar
segja að sú tala nái aðeins til
helztu meðlima fjölskyldu Mo-
hammed Daouds heifins forseta
og ráðherra hans.
Hreinsanirnar beinast gegn
Mohammedzai-ættflokknum
sem hefur ráðið lögum og lofum
í Afghanistan í 130 ár sam-
kvæmt heimildunum. Óvildar
hefur gætt í garð ættflokksins á
síðari árum í kjölfar aukinnar
menntunar þar sem meðlimir
hans hafa fengið beztu embætti.
Nýja stjórnin hefur, boðað
róttækan sósíalisma í mennta-
málum og telur nauðsynlegt að
Framhald á bls. 2'8.