Morgunblaðið - 09.05.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAI 1978
Þessir þingmenn kveðja Alþingi:
Tb«ÐU ‘.'“Sten" »I.'>'U'S\
' W"*? Av«faanmar^*”t i sé.vvA
íratnaftn«l' , að geía M()rgunhU^, \
er áVtveðið nar í luíU n.* b\ngslitm s-J-*
a"!j"/*rSBra h^ra ei„hverS
s£rtí -2»&£■.*•&Sri-
SSs§,fS^S
Vcrður ner
Stærsta málið
var að treysta
varnir landsins
s£gr/r Axe! Jónsson
Axel Jónsson var fyrst kosinn á
þinjr uni haustið 1963 en áður hafði
hann haft afskipti áf stjórnmálum
í um 20 ára skeið. Hann var í
upphafi spurður hvort hann hefði
fjallað um einhvern eða einhverja
málaflokka sérstaklega á sínum
þintímannsferli:
— I heild hef ég mest starfað á
sviði sveitarstjórnarmála, t.d. að
samskiptum sveitarstjórna og
ríkis OK ýmsum málum er þau
snerta eins ok kjördæmismálin. Ég
held að óhætt sé að segja að
mörgum málum okkar Re.vknes-
inga hafi vel miðað áleiðis, þó að
auðvitað höfum við ekki náð öllu
fram sem við vildum frekar en
aðrir en síðan 1963 hafa orðið
miklar framfarir og framkvæmdir
f.vrir tilstuðlan og aðstoð fjárveit-
ingavaldsins í okkar kjördæmi.
Minnistu einhvers sérstaks mál-
efnis?
— Það mætti í því sambandi
nefna lagningu Reykjanesbrautar-
innar en hún var eitt af stærri
máiunum og eitt fyrsta verkefnið
ív varanlegum gatnagerðarfram-
kvæmdum. Við fengum að heyra
það oft að þetta væri í heldur
mikið ráðist og ráðstafað um of í
eitt kjördæmi fjármunum til þess
arna. En þetta mál náði fram að
ganga með forystu þingmanna og
flokksforingja okkar, Ólafs Thors,
og skammur tími leið þar til menn
sáu að hér var um framtíðarlausn
að ræða.
— Það hefur eðlilega fallið í
minn hlut að fylgja eftir málefn-
um er snerta hið unga bæjarfélag
Kópavogs og vil ég segja að allir
sem til þekkja og hafa unnið að
þessum málum hafa mætt sérstök-
um skilningi og velvild í því
sambandi. Þá má nefna lagningu
Hafnarfjarðarvegarins gegnum
Kópavog sem var mjög nauðsynleg
framkvæmd og mætti miklum
skilningi fjárveitingavaldsins,
byggðarlaganna í kring og sam-
gönguráðherra, Ingólfs Jónssonar,
sem þá var, en hann lagði grund-
völlinn að því að menn huguðu að
framtíðarlausnum. Slíkar vegbrýr
sem þá voru gerðar voru nýmæli
og tel ég að ekki hafi verið til nein
önnur lausn á þessu ferðarvanda-
máli er leysa varð.
— Um síðasta kjörtímabil vil ég
segja að í mínum huga er eitt
stærsta mál sem náð hefur fram
að ganga að treysta öryggi varna
landsins og í annan stað vil ég
nefna það að tekist hefur að halda
uppi fullri atvinnu þrátt fyrir að
atvinnuleysi hefur verið meira og
minna í kringum okkur. Rétt er að
viðurkenna samt að það hefur
orðið nokkuð á kostnað þess .að
halda verðbólgunni í skefjum, en
ekki hefur tekizt frekar en oft áður
að ráða við þann v.anda.
Hvað tekur svo við?
— Nú ég held áfram að sinna
bæjarmálefnum í Kópavogi eins og
ég hef gert frá árinu 1962. Ég vil
bara óska þeim sem áfram starfa
á Alþingi alls hins bezta í því að
leysa þau vandamál sem að steðja
á hverjum tíma á þann hátt sem
þjóðinni er fyrir beztu.
Axel Jóns.son.- Sumir töldu of miklu fjármagni ráðstafað í eitt
kjiirdæmi. Myndirnar tók Friðþjófur.
Ég finn
hentar
eitthvað sem
lögum, en það hafði verið reynt
áður.
— En af stærri málum er mér
minnisstæðast landhelgismálið,
fyrst stækkunin í 12 mílur sem
gerð var 1961 og viðurkenning
Breta og síðan allar útfærslur allt
til 1975 er fært var út í 200 mílur
og gert samkomulag við Breta í
Ósló þar sem þeir viðurkenndu
útfærsluna og skuldbundu sig til
að hverfa burt ínnan hálfs árs.
í annan stað má nefna þá
stefnumörkun sem átti sér stað við
myndun núverandi stjórnar þar
sem ákveðið var að halda áfram
samvinnu við vestrænar þjóðir um
varnir, en eins og kunnugt er var
komið mjög langt á þeim vegi á
árum vinstri stjórnarinnar að
segja upp þeim samningum, sem
hefði gjörbreytt allri aðstöðu
okkar í utanríkismálum og verið
síður en svo til farsældar. Fyrir
utan má nefna fjölmörg mál sem
fjallað hefur verið um og of langt
yrði upp að telja.
En varðandi sérmál Vestmanna-
eyinga þá tel ég að afgreidd séu
flest þau mál er einhverju varði;
samgöngumálum hefur verið kom-
ið í nokkuð gott horf með dag-
legum ferðum Herjólfs til Þorláks-
hafnar, flugsamgöngum; frá
vatnsveitunni hefur verið gengið
til nokkurrar frambúðar; ákveðin
hafa verið kaup á öðrum rafstreng.
— Nú hvað ég tek mér fyrir
hendur er e.t.v. ekki svo gott að
segja nákvæmlega til um, ég finn
mér eitthvað sem ég tel mér henta.
Ég vil að lokum þakka fyrir það
ágæta samstarf sem ég hefi átt við
kjósendur og íbúa í Suðurlands-
kjördæmi.
mér
- segir Guðiaugur Gísiason
Guðiaugur Gíslason sagðist
fyrst hafa verið kosinn á þing í
vorkosningum 1959, þeim síðustu
er fram fóru eftir eldra kjördæma-
skipulagi. Var hann fyrst þing-
maður Vestmannaeyinga og síðar
þingmaður Suðurlandskjördæmis.
— Ég hef mest haft afskipti af
málefnum er snerta sjávarútvég
enda hafa þau verið aðalmálefni
þess byggðarlags er ég var þing-
maður fyrir. Fyrsta tillaga er ég
flutti var að bæjarsjóður Vest-
mannaeyja keypti allt land í
Eyjum 1960, en tvisvar áður höfðu
verið fluttar um það tillögur, sem
náðu ekki fram að ganga fyrr en
í þetta sinn.
Guðlaugur var að því spurður
hvort honum væru minnisstæð
einhver sérstök mál frá þessum
fyrstu árum:
— Mér er t.d. minnisstætt er
samþykkt voru lög um Stýri-
mannaskóla í Vestmannaeyjum
árið 1964 og einnig er varðar
samgöngumál er þingmenn Suður-
lands fluttu tillögu um kaup á
Herjólfi og eru þessi mál dæmi um
sérmál Vestmannaeyinga. En það
sem ég tel vera eitt hið merkileg-
asta fyrir allt atvinnulíf var
samþykkt tillögu um bann gegn
botnvörpuveiðum báta upp að 200
tonnum er ég flutti ásamt tveim
öðrum þingmönnum, en bannið
náði upp að 3 mílum og á svæðinu
frá Stokksnesi að Reykjanesi.
Þessi tillaga hafði mjög mikil
áhrif á alla fiskveiði og varð hún
til að gera alla bátaveiði jafnari
eftir árstímum. Þetta var fyrsta
breyting er gerð var t þessum
Guðlaugur Gíslason. Eitt af
stærri málum á þingi er landhelg-
ismálið nú og fyrr.
Sjálfsagt harðari skóli
en almenning grunar
- segir Eggert i
— ÞAÐ EITT að hafa setið á
Alþingi í 25 ár eða frá 27 ára aldri
er skólatími út af fyrir sig, sagði
Eggert G. Þorsteinsson, er Mbl.
bað hann að lýsa viðhorfi sínu til
þingstarfanna, og hefur það óneit-
anlega haft áhrif á líf manns og
hugsanir er óhætt að segja. Ég
hygg að í þessum skóla séu þær
námsgreinar uppi sem ei eru á
námskrá annars staðar.
— Þetta er tvímælalaust mikil
reynsla á köflum hörð og miskunn-
arlaus að mér finnst, en ég fer
héðan ókvalinn á hjarta og er ekki
bitur eða sár. Á þessum vinnustað
sem og öðrum verður manni
misjafnlega til manns en ekki illa
við neinn. Margir af þessum
glæsilegustu persónuleikum sem
nú eru horfnir fyrir ætternisstapa
og sópaði af hefur maður fengið að
kynnast í þessu starfi.
Er hægt að segja hvort starfið
er skemmtilegt eða leiðinlegt?
— í það heila er viðfangsefnið
og starfið hér skemmtilegt, en
sjálfsagt er þetta harðari skóli en
almenning grunar og ekki er hægt
að sannfæra neinn um það nema
þann sem kemst í kynni við þau
sjálfur. Almenningur byggir dóm
sinn á störfum alþingismanna um
of á vanþekkingu og því að við
kunnum að vera nokkuð frjálsir í
starfi. Margur maður heldur að
þingstörfin fari fram á þingfund-
um að mestu leyti, en hitt er nær
að tala um að meginhluti starfsins
fer fram utan þingfunda í nefnd-
um og er skylda okkar að vera í
Þorsteinsson
mörgum nefndum. Það stafar því
ekki af fjáröflunaráhuga því þessi
nefndarstörf eru ekki sérstaklega
launuð heldur tilheyra þingstörf-
um beint. Það er líka keppikefli
stjórnmálaflokkanna að eiga full-
Eggert G. Þorsteinsson. Margir
halda að þingstiirfin fari aðallega
fram á þingfundum. en megin
hluti starfsins fer fram á hinum
ýmsu nefndafundum.
trúa í öllum nefndum, því þar er
ráðstafað málum ekki síður en í
þingsölum og þar fer aðalundir-
búningsvinna og mótun þeirra oft
fram.
Var þetta starf eitthvað líkt því
sem þú bjóst við?
— Er ég kom hingað fyrst 27
ára hafði ég töluvert annað álit á
því hvernig starfið væri en á
þessum fyrstu árum voru það
margir sem leiðbeindu fyrstu
skrefin og skipti þá stjórnmála-
flokkur ekki máli. Má eiginlega
segja að með aldrinum fari maður
fremur að líta á persónuleika
manna fremur en pólitískar skoð-
anir þeirra. Það hefur orðið mikil
breyting á þessum tíma og hafa
t.d. kjör og aðbúnaður þingmanna
breyzt mjög. Fyrst var t.d. aðeins
greitt fyrir hvern einstakan þing-
dag og fróðir menn hafa reiknað
út að þingfararkaup þá hafi verið
allverulega frá dögum Hannesar
Hafsteins. Þá var litið of mikið á
þingstörfin sem aukastarf en
þejrri skoðun hefur vaxið mjög
fylgi að þingmenn vinni ekki
önnur störf enda hafi launakjörin
sem betur fer stefnt í þá átt.
Er eitthvað sérstakt þér minni-
stætt frá þessum tíma?
— Mér eru minnistæðust þau 6
ár sem ég sat í ráðherrastól en þau
eru hin erfiðustu og erfiðleikatím-
arnir ‘67 og ‘68 eftir aö síldin
hvarf, og ýmsar efnahagsráðstaf-
anir sem orðið hefur að gera og ég
viðurkenni að voru nauðsynlegar
þó þær hafi ekki alltaf samræmst
persónulegri skoðun eða æskuhug-
sjónum. Nú, félags- og atvinnumal
Framhald á bls. 29.