Morgunblaðið - 09.05.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
19
Á Norðurpólinn með
Arnarflugi og 125
þýzkum ferðalöngum
Þessi fyrsta ferð kann að vera upphafið að
pólarferðum Arnarflugs á komandi árum
Arnarllugsvélin á Longyearbæjarflugvelli á Svalbarða.
Flugíreyjurnar Guðbjörg Loní Kristjánsdóttir og Sigrún Eggertsdóttir skenkja farþegum kampavín
yfir Norðurpólnum (Ljósm. Mbl. SS)
Frú Anna Schmidt átti 71 árs afmæli í gær og hún hafði fengið ferðina í afmælisgjof. í tilefni afmælisins
færði Arngrfmur Jóhannsson flugstjóri henni kampavinsflösku að gjöf.
Guðrfður Kristinsdóttir flugfreyja afhendir þýzkum hjónum staðfestingarskjalið.
ÞAD ríkti glaumur og gleði í
Boeing 720 ílugvél Arnarflugs
um hálfþrjúleytið í fyrrinótt.
Kampavinið flaut í strfðum
straumum og þýzkir söngvar
hljómuðu í vélinni. Ástæðan
fyrir þessari miklu kátfnu var
sú. að þarna fengu 125 Þjóð-
verjar þann draum uppfylltan
að fljúga yfir Norðurpólinn.
Það virtist ekkert skyggja á
gleðina þótt ekki sæist í pólinn
fyrir skýjaþykkni. Hitt var
aðalmálið að hafa „komið“ á
pólinn og fá staðfestingarskjal
um það undirritað af flug-
stjóranum í ferðinni, Arngrími
Jóhannssyni.
Þessi ferð verður hugsanlega
upphafið að föstum pólarferðum
Arnarflugs á komandi árum og
fyrir forvitnisakir fékk blaða-
maður Mbl. leyfi til að slást í
förina. Það eru eflaust margir
undrandi á því að grundvöllur sé
fyrir ferðum af þessu tagi, þar
sem verið er á flugi í tæpa sjö
tíma og aðeins stoppað í eina
klukkustund á Svalbarða á
heimleiðinni. Og líklega þýðir
ekki að bjóða þessar ferðir nema
á þýzkum markaði. Þjóðverjar
eru mesta ferðaþjóð heimsins og
ótrúlega margir Þjóðverjar hafa
„farið allt“ eins og kallað er og
eru því alltaf að leita sér að
einhverjum nýjum ferðamögu-
leikum. Fyrir þá og aðra ævin-
týraþyrsta Þjóðverja er íslands-
ferð með viðkomu á Norðurpóln-
um svarið.
Áhugi strax mikill
„í fyrra var í fyrsta skipti
farið í hópferð yfir Norðurpól-
inn frá Þýzkalandi og sú ferð
varð kveikjan að því að þýzkar
ferðaskrifstofur buðu nú upp á
nokkurra daga íslandsfejrðir,
þar sem pólarflug var innifalið,"
sagði Stefán Halldórsson starfs-
mannastjóri Arnarflugs þegar
blm. spjallaði við hann um
aðdragandann að þessari
óvenjulegu ferð.
„Ekki man ég hvaða flugfélag
bauð upp á þessa ferð í fyrra en
öllum til undrunar seldist hún
upp á svipstundu enda þótt hún
kostaði tugi þúsunda króna og
þetta væri beint flug frá Þýzka-
landi til pólsins og til baka
aftur,“ bætti Stefán við. „Eftir
þessa velheppnuðu ferð leituðu
þýzkar ferðaskrifstofur til
Arnarflugs og spurðust fyrir um
það hvort félagið gæti boðið upp
á pólarflug í tengslum við
Islandsferðir. Þetta var algjör
nýjung og við vorum svolítið
hræddir við að svara játandi,
héldum kannski að þátttakan
yrði engin. En við slógum til og
það var ákveðið að bjóða upp á
slíka ferð með lendingu á
Svalbarða í bakaleiðinni. Og
okkur til furðu varð strax mikill
áhugi á þessum ferðum, enda
þótt þær kosti ferðalanginn tugi
þúsunda aukalega. Þrjár ferðir
voru fastráðnar í sumar og er
þessi sú fyrsta, en ein af þeim
verður farin beint frá
Dússeldorf í Þýzkalandi með
millilendingu í Bodö í Noregi.
Hugsanlega verða ferðirnar
fleiri ef áhugi verður mikill. í
ferðinni núna eru blaðamenn
frá þýzka stórblaðinu Frank-
furter Allgemeine og kann það
að auka áhugann til muna ef
þeir skrifa vel um þessa fyrstu
ferð.“
24 lengdarbaug fylgt
til pólsins
Þýzki ferðahópurinn kom
hingað til lands á upp-
stigningardag. Á sunnudags-
kvöldið var hann mættur á
Keflavíkurflugvelli og greinileg
eftirvænting ríkti í hópnum,
enda hápunktur ferðarinnar að
hefjast. Á tilkynningatöflum
flugstöðvarinnar blasti við
óvenjuleg áletrun, „North Pole“
stóð þar skýrum stöfum innan
um aðra og venjulegri
ákvörðunarstaði svo sem
Luxembourg og New York. Áður
en lagt var af stað skýrði
flugstjórinn Arngrímur
Jóhannsson blaðamanni frá
flugáætlun, sem var í grófum
dráttum þessi: Frá Keflavík
tökum við stefnuna á Ögurvita
og síðan fylgjum við 24 lengdar-
baugnupi upp aö Norðurpólnum
og fljúgum því meðfram austur-
strönd Grænlands. Á leiðinni til
baka fylgjum við 15 lengdar-
baug niður á Longyearbæ á
Svalbarða þar sem við lendum
og höfum klukkutíma viðdvöl.
Síðan höldum við heim á leið til
Keflavíkur og á leiðinni munum
við fljúga yfir nafla alheimsins,
Akureyri.
Pólarbjór á pólnum
Arnarflugsvélin fór í loftið
stundarfjórðungi fyrir mið-
nætti. Ferðin á Norðurpólinn
gekk vel, því að 100 hnúta
meðvindur var alla leiðina.
Greinilegt var að starfsmenn
Arnarflugs höfðu gert allt til
þess að ferðin heppnaðist vel og
yrði Þjóðverjunum eftirminni-
leg. Vandað var til matargerðar,
heilagfiski í forrétt, lambakjöt í
aðalrétt og ávaxtafrómage í
eftirrétt. Islenzkur pólarbjór
var borinn fram með matnum.
Að málsverði loknum var borið
fram „tárakaffi", þ.e. kaffi með
íslenzku brennivíni, púðursykri
og rjóma. Farþegar fengu
sérprentaðan matseðil á þýzku,
þar sem m.a. var stutt lýsing á
öllum réttunum.
Stemmningin eins og
í Þórsmerkurferð
Þjóðverjarnir virtust
skemmta sér hið bezta og
stemmningin var eins og í
rútuferð í Þórsmörk um
verzlunarmannahelgi, allir kátir
og hreifir og enginn hélst við í
sæti sínu. Ljósmyndavélar voru
á lofti og voru menn iðnir við að
mynda hrikalegt landslag
Grænlands. Um hálfþrjúleytið
var komið að pólnum. Og um
leið og Arngrímur flugstjóri
tilkynnti að áfangastaðnum
væri náð vóru tapparnir dregnir
úr kampavínsflöskunum og
Þjóðverjarnir skáluöu fyrir
þessum merka áfanga í lífi
þeirra og sungu þýzka söngva.
Engin óánægjurödd heyrðist
jafnvel þótt ekki sæist í sjálfan
pólinn fyrir skýjum.
Nú var stefnan tekin á Sval-
barða og farþegar féngu úthlut-
að staðfestingarskjölum undir-
rituðum af Arngrími um að þeir
hefðu flogið yfir Norðurpólinn.
Þá var ennfremur útbýtt póst-
kortum með víkingamynd eftir
Nordþolflug
Urkunde
Hiermit urird bestiúgt, dass
Herr/hm i---------
am .?■•*< anBorddesStrotofets
der Eagle atr den Nordpol úbergeflogen bat.
EAGLE AIR ,
Svona leit staðfestingarskjalið út.
Halldór Pétursson, en kort þessi
gátu farþegar sent ættingjum
og vinum frá Longyearbæ á
Svalbarða. Á Svalbarða var lent
klukkan að verða fjögur um
nóttina og höfð klukkustundar
viðdvöl. Þar var 11 stiga frost en
glaðasólskin. Þjóðverjarnir not-
uðu tímann óspart til
myndatöku.
Vildu upplifa
eitthvað nýtt
Nú var stefnan tekin á Kefla-
vík og lent þar klukkan að verða
átta í gærmorgun. Ferðin hafði
gengið að óskum og flugvélin
ekki lent í neinum villum þrátt
fyrir að hún flygi á sömu slóðum
og Suður-Kóreumennirnir á
dögunum enda eru Arnarflugs-
menn nýbúnir að setja mjög
fullkómin siglingatæki í vélar
sínar. Það voru þreyttir en
ánægðir ferðalangar, sem stigu
Framhald á bls 28.