Morgunblaðið - 09.05.1978, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
Kappræðufundur í Stapa:
„Unga sjálfstæðisfólk-
ið er umbótaaflið”
Næstsíðasti kappræðufundur
Samhands ungra sjálfstæðis-
manna og Æskulýðsnefndar
Alþýðubandalafjsins var hald-
inn í Stapa á sunnudag, en
fundir hafa verið haldnir í öllum
kjördæmunum nema á Austur-
landi. Ræðumenn S.U.S. voru
Friðrik Sophusson, 6. maður á
lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, 8. maður á lista
flokksins á Reykjanesi og for-
maður Týs í Kópavogi, og Jón
Magnússon, formaður S.U.S.
Ræðumenn Æn. Abl. voru Svav-
ar Gestsson ritstjóri, Arthúr
Morthens, formaður Æn. Abl.
og Guðmundur Ólafsson kenn-
ari. F’undarstjórar voru Krist-
björn Albertsson frá S.U.S. og
Jóhann Geirdal frá Æn. Abl.
Furtdarefnið var höfuðágrein-
ingur íslenzkra stjórnmála —
utanríkismál, efnahagsmál.
Arthúr sagði, að braskaralýð-
urinn stjórnaði Sjálfstæðis-
flokknum, sem væri óþjóðhollur
og kysi að liggja undir út-
lendingum. Herstöðvarmálið,
Friðrik Sophussoni „Sjálf-
stæðisflokkurinn er opinn og
lýðræðislegur f!okkur.“
landhelgismálið og stóriðjumál-
ið væru til marks um það, að
Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að
—selja fjallkonuna.
Friðrik sagði, að unga Sjálf-
stæðisfólkið væri umbótaaflið í
íslenzkum stjórnmálum, það
hefði lagt fram rökstuddar
tillögur til lausnar þeim vanda,
sem ríkisbáknið hefði valdið.
Það stefndi að almennri hugar-
farsbreytingu, meiri virðingu
fyrir fre^sinu og framtakinu,
það vildi báknið burt. En ungt
Alþýðubandalagsfólk hefði ekki
gert neinar umbótatillögur. Það
væri dautt úr öllum æðum, lifði
enn í kreppunni. Minna mætti á
það, að Lúðvík Jósepsson hefði
ekki stutt 200 mílna-stefnuna,
og Magnús Kjartansson hefði
stutt stóriðju á íslandi. Sjálf-
stæðisflokkurinn væri lýðræðis-
legur og opinn flokkur. En
Alþýðubandalagið væri ólýð-
ræðislegur og lokaður flokkur
fámennrar menntamannaklíku,
sem þyrði ekki í prófkjör, því að
hún óttaðist frelsið, óttaðist
fólkið.
Hannes Hólmsteinn Gissurar
soni „Sjálfstæðisflokkurinn kýs
þróun. hvorki kyrrstöðu né
kollsteypu.“
Svavar sagði, að Alþýðu-
bandalagið væri flokkur þeirra,
sem tækju manninn fram yfir
fjármagnið, það væri flokkur
þeirra, sem kysu Island fyrir
Islendinga. Andstæðurnar í ís-
lenzkum stjórnmálum væru Al-
þýðubandalagið og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Alþýðubandalagið
væri ekki flokkur fámennrar
menntamannaklíku. Sjálfstæð-
isflokkurinn væri flokkur
manna eins og Jóns Sólness, sem
kynni til verka í heimsfjármál-
unum, og Alberts Guðmunds-
sonar, sem ætti nokkrar millj-
ónir í bönkum erlendis. Friðrik
Sophusson hefði ekki haldið eins
góða ræðu og á fundinum, frá
því að hann myndi eftir honum,
og Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson gæti vitnað til margra
spekinga í greinum sínum, en þó
væri hlegið að tillögum stutt-
buxnadeildar íhaldsins.
Hannes Hólmsteinn sagði, að
sterk rök mætti leiða að því, að
markaðskerfið, sem sjálfstæðis-
menn kysu, væri bæði réttlátara
og hagkvæmara en miðstjórnar-
Jón Magnússoni „Stefna Sjálf-
stæðisflokksins í varnarmálþ-
um er skýr.“
kerfið, sem Alþýðubaftdalags-
menn kysu. Reynslan staðfesti
það einnig. Vestrænt lýðræðis-
skipulag væri réttlátara og
hagkvæmara en austrænt al-
ræðisskipulag. Það væri þó ekki
gallalaust, en það væri hæg að
bæta, gagnrýni og frjáls skoð-
anaskipti væru til þess. Alþýðu-
dandalagsmenn kæmu óorði á
þau með dylgjum sínum og
aðdróttunum eins og rónarnir
kæmu óorði á brennivínið. Verð-
bólguvandinn^ væri stærsti
vandi Islendinga, ylli óhag-
kvæmri nýtingu framleiðslu-
tækjanna og almennri siðspill-
ingu, og tillögur Alþýðubanda-
lagsins til lausnar honum væru
óraunhæfar. Komast yrði hjá
haftabúskap og skömmtunar-
stjórn, stefna ætti að markaðs-
búskap og sjálfstjórn borgar-
anna. Sjálfstðismenn kysu þró-
þro hvorki kyrrstöðu né koll-
steypu.
Guðmundur sagði, að kjöltu-
rakkar íhaldsins reyndu að slá
ryki í augu almennings, Friðrik
Sophusson með „bákninu burt“,
Hannes Hílmsteinn Gissurarson
með „rússagrýlunni". Hannes
Hólmsteinn væri fasisti. Sjálf-
stæðisflokkurinn væri óarga-
dýrið í íslenzku þjóðlífi, reyndi
svívirðilega aðför að verkafólki
með kjararánslögum sínum.
Karli Marx væri margt að
þakka. Honum væri ekki að
kenna stjórnarfarið í Sovét-
ríkjunum. Guðmundur sagði, að
hann hefði á námsárum sínum
Svavar Gestssoni „Hlegið er að
tillögum stutthuxnadeildar
ihaldsins."
í Moskvu komizt að því, að
Vladimir Jakúb hefði það starf
fyrir sovétið að lesa bréf til
Islendinga og frá þeim í Sovét-
ríkjunum, en þessi sami maður
hefði nýlega skrifað hvern
langhundinn af öðrum í
Morgunblaðið. Væri það vís-
bending um andlegan skyldleika
þjóna Sovétsins og þjóna fjár-
magnsins. Ræðumenn íhaldsins
á fundinum væru pólitískir
öfuguggar. íhaldsmenn væru
annað hvort illa gefnir eða illa
innrættir, en 7essir ræðumenn
væru ekki illa innrættir.
Jón sagði, að stefna ungra
sjálfstæðismanna væri skýr í
utanríkismálum og atvinnumál-
um. Þeir vildu eiga vinsamleg
samskipti við allar þjóðir, en að
gefnum aðstæðum á alþjóða-
vettvangi væri bæði aðildin að
Atlantshafsbandalaginu og
varnarsamvinnan við Banda-
ríkjamenn nauðsynlegar. Þeir
vildu auka frelsi einstakling-
anna með því að minnka af-
skipti ríkisbáknsins af atvinnu-
Hfinu. Islenzkir kommúnistar
hefðu aldrei hugsað um sjálf-
stæði aíslands, heldur um hag
herranna í Moskvu. Saga þeirra
væri svo sannarlega ekki falleg.
Lífskjörin ætti að bæta með
samvinnu stéttanna og aukinni
framleiðni avinnuveganna.
Fundarsalurinn í Stapa var
fullsetinn. Fundarstjórinn frá
Æn. Abl. sagði, að stuðnings-
menn S.U.S. hefðu líklega verið
í meiri hluta á fundinum.
Guðmundur ólafssoni „íhaldið
er óargadýrið í íslenzku þjóð-
lífi.“
Friðrik
nr. 5-6
Las Palmas. 8. maí. AP.
FRIÐRIK Ólafsson gerði jafntefli
við Bretann Michael Stean í
sjiiundu umferð skákmótsins í
Las Palmas á Kanaríeyjum í dag
og er í 6. til 7. sæti ásamt
Spánverjanum Corral með 4
vinninga.
Rússinn Tukmakov vann Spán-
verjann Padron og er efstur með
iiVi vinning. Larsen vann Sanz og
er í 2. til 4. sæti með 5 vinninga
ásamt Sax sem vann Dominguez
og Miles sem gerði jafntefli við
Corral. Stean er í 5. sæti með 4V-i
vinning.
— A Norður-
pólinn
Framhald af bls. 19
út úr vélinni á Keflavíkurflug-
velli og margir létu í Ijós
þakklæti sitt til áhafnar og
starfsmanna.
Þýzku ferðalangarnir voru á
öllum aldri en meirihlutinn
roskið fólk. Blaðamaður ræddi
við nokkra farþega og bar þeim
öllum saman um að ferðin hefði
heppnast mjög vel og jafnvel
tekið því fram, sem þeir áttu
von á. Flestir þeirra, sem
blaðamaður ræddi við, höfðu
ferðast mjög mikið um heiminn
og með þessari ferð vildu þeir
upplifa eitthvað nýtt og ólíkt
því, sem þeir höfðu áður kynnst
í ferðum sínum um heiminn.
- SS.
Hjá sáttasemj-
ara á föstudag
SÁTTAFUNDUR var haldinn í
gær hjá sáttasemjara með fulltrú-
um Verkamannasambandsins,
Vinnuveitenda- og Vinnumála-
sambandsins, en Torfi Hjartarson
sáttasemjari kvað -ekkert nýtt að
frétta af þeim fundi. Næsti fundur
hefur verið boðaður n.k. föstudag
kl.■ 4 hjá sáttasemjara.
— Atkvæða-
greiðslan
Framhald af bls. 3.
borgarstfórnarkosningar kusu alls
4403, þar af eins og áöur sagöi
langflestir síöustu dagana fyrir
kosningar.
Utankjörstaðarskrifstofan er til '
húsa í Miðbæjarskólanum og er
opin mánudaga til laugardaga frá
10-12, 14-18 og 20-22 en á
sunnudögum og helgidögum er opið
frá 14-18.
— Mótmælin
kosta 24 millj
Framhald af bls. 48
Ásgeirsson varaformaðui Al-
þjóðahvalveiðiráðsins og skrif-
stofustj óri sj ávarútvegsráðuneyt-
isins sögðu á blaðamannafundi,
sem þeir boðuðu til, að fullyrðing-
ar Greenpeace væru órökstuddar
og ekki réttlætanlegar. Það væri
ekkert sem benti til þess, að þeir
hvalastofnar, sem væru nytjaðir
við ísland, væru í mikilli hættu,
veiðin væri mjög jöfn og sveiflur
sem yrðu í veiði, væru vegna
utanaðkomandi aðstæðna. Þá
sögðust þeir ekki reikna með að
mótmæli Greenpeace myndu hafe.
mikil áhrif á veiðar hvalbátanna í
sumar, þar sem þeir væru dreifðir
á stóru hafsvæði og ennfremur
miklu öflugri skip en skipið sem
Greenpeace hefur fest kaup á.
— Kissinger
Framhald af bls. 1.
til eins hinna þriggja landa verði
felld verði hætt við sölu á
herþotum til hinna landanna
tveggja. Þingmenn telja að flug-
vélasalan verði samþykkt.
Kissinger sagði þingmönnum að
það mundi hafa alvarlegar afleið-
ingar í för með sér í utanríkismál-
um ef flugvélasala til einhvers
þriggja umræddra landa yrði felld.
Hann harmaði að sala til þriggja
hefði verið tengd saman en sagði
að ef dregið yrði úr hlut Araba
hefði það í för með sér alvarlegar
afleiðingar í sálrænu og pólitísku
tilliti.
Hann lagði áherzlu eins og
ríkisstjórnin hefur gert á hugsan-
lega hættu sem Saudi-Arabíu og
gífurlegri olíuauðlegð landsins
stafaði frá sovézkum áhrifum á
Horni Afríku og vopnasendingum
Rússa til Iraks. „Hvers konar
ógnun við öryggi Saudi-Arabíu
yrði einnig ógnun við öryggi
Bandaríkjanna," sagði Kissinger.
Moshe Dayan, utanríkisráð-
herra ísraels, sagði í brezku
sjónvarpsviðtali í dag að Bretar
hefðu hvatt hann til að endurvekja
friðartilraunir í Miðausturlöndum.
Hann fullyrti að Anwar Sadat
forseti hefði gert hlé á friðartil-
raunum sínum þar sem enginn
annar Arabaleiðtogi hefði viljað
taka þátt í þeim. Dayan kom í dag
í tveggja daga heimsókn til
Noregs.
— Afghanistan
Framhald af bls. 1.
sú stefna fái fylgi múhameðs-
trúarmanna sem eru í meiri-
hluta í landinu. Tarakki neitaði
því um helgina að stjórn hans
væri kommúnistastjórn en
diplómatar segja að ekki fari á
milli mála að hún halli sér að
Moskvu-stjórninni. „Þeir geta
ekki annaö en leynt hugsjóna-
fræðilegri afstöðu sinni af því
múhameðstrúarmenn geta ekki
sætt sig við hana,“ sagði asískur
stjórnarfulltrúi.
Stjórn Tarakkis styðst við
aðeins 50.000 flokksmeðlimi og
stuðningsmenn og verður að
tryggja sér víðtækara fylgi til
að ná fótfestu í þorpum Afghan-
istans sagði asíski stjórnarfull-
trúinn sem hefur rannsakað
flokk Tarakkis. Til þess að ná
því marki segir hann að Tarakki
verði að friðmælast við múham-
eðska trúarleiðtoga.
— Mesti ósigur
Callaghans
Framhald af bls. 1.
skýrt fram að hún mundi þrauka
áfram þótt hún hefði aðeins átta
•atkvæða meirihluta í Neðri mál-
stofunni. Þar til í kvöld hefur
Frjálslyndi flokkurinn bjargað
stjórninni í tvísýnum atkvæða-
greiðslum en nú sneru þingmenn
hans baki við stjórninni.
Atkvæðagreiðslan var um frum-
varp frá Ihaldsflokknum um að
tekjuskattur verði lækkaður úr 34
pensum í 33 pens miðað við hvert
pund. Sigur stjórnarandstöðunnar
mun lítil áhrif hafa á hag
skattborgara, en getur þó kostað
440 milljónir punda á ári og
jafnvel leitt til þess að vextir
hækki. Líka er óttazt að úrslit
atkvæðagreiðslunnar veiki stöðu
pundsins.
Denis Healey fjármálaráðherra
sakaði íhaldsmenn um grófa at-
kvæðaveiðatilraun og sagði að
skattalækkunin mundi spilla fyrir
tilraunum Breta til að halda
verðbólgunni niðri. Nú verður
stjórnin að grípa til annarra ráða
til að afla tekjumissisins sem
úrslit atkvæðagreiðslunnar hafa í
för með sér.
Geoffrey Howe, talsmaður
stjórnarandstöðunnar í fjármál-
um, skoraði á stjórnina að segja af
sér. Hann sagði að engin önnur
ríkisstjórn í sögu Breta hefði orðið
að þola þá auðmýkingu að bíða
ósigur í atkvæðagreiðslu um tekju-
skatt.