Morgunblaðið - 09.05.1978, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGIJR 9. MAÍ 1978
Sannleikurinn um
mjólkursölumáUn
Greinargerd frá sjö-manna nefnd
Samtakanna gegn lokun mjólkurbúda
Óskar Jóhannsson kaupmaður
skrifar grein í Morgunblaðið 4.4. ‘78
„Hvað varð um mjólkursölumálið?",
en hér er um að ræða mjólkurbúða-
málið sem var hvað mest á döfinni
eftir að Mjókursamsalan ákvað að
loka öllum útsölustöðum sínum 1.
febr. ‘77 og hafði að engu kröfur
17.500 neytenda um að halda
rekstrinum áfram.
Óskar fer með rangt mál varðandi
aðalkjarna málsins. Skal leitast við
að leiðrétta það hér.
Alvarlegast er þó að Óskar gagn-
rýnir Samtökin gegn lokun mjólkur-
búða fyrir að vera afturhaldsöm
hreyfing, sem vilji halda í „gamla
daga“ hvað sem það kostar, en
nauðsyn þess að hafa trygga atvinnu
er jafn alvarlegt mál nú sem fyrr.
Hver voru Samtökin gegn
lokun mjólkurbúða?
Þau voru stofnuð á opnum fundi
neytenda og mjólkurbúðakvenna í
júlí 76. Á þeim fundi voru u.þ.b. 60
mjólkurbúðakonur og milli 10—20
neytendur. Var þar kosin 7 manna
nefnd afgreiðslukvenna og neytenda
og voru mjólkurbúöakonur í meiri-
hluta í nefndinni.
Þessi nefnd myndaði forustuna í
samtökunum alveg þar til 1. febr. ‘77.
Nefndin var ávallt hvött áfram til
aðgerða af mjólkurbúðakonum sjálf-
um. Stór hópur kvennanna tók þátt
í undirbúningi allskonar undir
mótmælaaðgerðir. Safnað var undir-
skriftum í langflestum mjólkurbúð-
um í Stór-Reykjavík, og þær voru
ófáar konurnar sem, eftir vinnudag-
inn, bönkuðu uppá hjá neytendum og
hvöttu til stuðnings við baráttu sína
með undirskriftum.
Óhætt er að fullyrða að konurnar
sjálfar hafa safnað megninu af
undirskriftunum, þó víða hafi komið
stuðningur frá neytendum.
Best vitni um stuðning mjólkur-
búðakvenna við baráttuna bera þó
kosningarna til ASI-þingsins haustið
‘76. Voru í framboði 2 listar, A-listi
Hallveigar Einarsdóttur, formanns
ASB, stéttarfélags mjólkurbúða-
kvenna, og B-lista Lilju Kristjáns-
dóttur og fleiri kvenna sem störfuðu
heilshugar í Samtökunum gegn
lokun mjólkurbúða.
Þrátt fyrir vandlega auglýsingu
A-listans í Þjóðviljanum, vann
B-listi mikinn sigur, 120 gegn 73
atkvæðum. Hafa margar kvennanna
harmað það síðan að hafa ekki lýst
vantrausti á' Hallveigu sem formann
félagsins þá, og fengið hana setta af.
Verri þjónusta?
Gaman væri að hrekja ummæli
Óskars um betri þjónustu, betra
vörueftirlit og vöruverð. Erfitt er að
færa sönnur á þetta mál, en víst er
og neytendur kvarta oft undan skorti
á ýmsum tegundum mjólkurvara
seinnipart dags.
Óskar getur ekki fullyrt eitt eða
neitt um þetta, allra síst með því að
vitna í Samsöluna. (Því hún mun
lýsa blessun sinni yfir það þótt
mjólkin yrði send til Alaska, bara ef
hún fengi borgað fyrir.)
Það er staðreynd að starfs-
stúlkurnar í mjólkurbúðunum höfðu
margar unnið sérstaklega lengi við
fyrirtækið, sumar 20 til 30 ár. Það
er einnig staðreynd að flestar
konurnar eru komnar yfir miðjan
aldur, og eiga erfitt með að fá aðra
vinnu. Kaupmenn vildu bara mjólk-
ina, þeir höfðu ekkert að gera með
167 konur nema í einstaka tilfellum.
Mjólkurbúðakonum var hent út í
óvissuna og...
... atvinnumiðlunin
var uppspuni
Eitt sinn sagði Samsalan og
Kaupmannasamtökin í fjölmiðlum
að opnuð hefði verið atvinnumiðlun
fyrir mjólkurbúðakonur sérstaklega.
Ein mjólkurbúðakvenna hringdi til
Kaupmannasamtakanna. Kom í Ijós
að það var engin atvinnumiðlun. Og
sem dæmi: Tvisvar í vetur hafa
fyrrverandi mjólkurbúðakonur leit-
að til Samsölunnar í von um vinnu.
Fyrstu konunni var sagt að hún gæti
e.t.v. fengið skýringu í nýrri búð (við
hlið hinnar á Laugavegi 162) sem
Samsalan myndi opna bráðum.
Hinni konunni var sagt að hún gæti
e.t.v. fengið skýringu í nýrri búð sem
Samsalan myndi opna bráðum. —
Sem sagt tómar blekkingar. Báðum
konunum gefinn ádráttur um sömu
litlu vinnna sem er allt of lítil fyrir
einn að lifa af, og búðin ekki opnuð
enn.
Já mikil var lygin og þvættingur-
inn, og ekki má gleyma frammistöðu
Hallveigar úr því Óskar minntist á
hana.
Hallveig Einarsdóttir,
forraaður ASB
stéttarfélags
mjólkurbúðakvenna.
Þegar það fréttist ári fyrir lokun-
ina, að úr skyldi verða, vildu
afgreiðslukonurnar fara út í baráttu.
Þetta gerðist á félagsfundi, en
Hallveig sagði þá að það væri allt of
snemmt.
Þegar baráttan svo loks fór af stað
sama sumar, sagði Hallveig að það
væri allt of seint. Reynt var með
öllum hugsanlegum ráðum að hvetja
hana til baráttu og samvinnu. Hún
hélt ekki félagsfund sem skv. lögum
skal halda með 1. mán. fresti yfir
vetrartímann. Mjólkurbúðakonur
þurftu að krcfjast fundar í félagi
sínu mcð undirskriftum. Enda hafði
Hallveig í mörgu að snúast. Hún
þurfti að tala við forseta ASÍ,
Samsöluna og Kaupmannasamtökin,
og alls staðar hefur hún komið vel
fyrir ef dæma skal árangurinn af
hlaupum hennar: Tannlaus stuðn-
ingsyfirlýsing frá ASÍ. Samstarfs-
nefnd ASB hafði skrifað verkalýðs-
félögum beiðni þess efnis að styðja
samtökin gegn lokun mjólkurbúða
með auglýsingu í útvarpi fyrir
göngunni og fundinn í Austurbæjar-
bíói, undirritaða af meðal annars
Hallveigu, formanni ASB, en ekki
mætti hún til göngu né fundar.
Forysta Alþýðubandalagsins hafði
hringt út til verkalýðsfélaganna og
varað við að styðja.
Og oft mátti sjá Hallveigu, á
góðviðrisdögum jafnt sem rigningar-
dögum þetta haust, koma út úr
Samsölubyggingunni — og vel var
henni þökkuð samvinnan:
Hallveig formaður
þáöi vinnu í einu
búðinni sera
Sarasalan rekur
Ekki er hún ein elstu kvennanna,
en hún þóttist styðja þá kröfu að þær
gengju fyrir um vinnu. Hún gerir
lítið úr atvinnuvanda kvennanna
með því að segja að engin sé á
atvinnuleysisskrá, og á þá sennilega
við hjá Ráðningaskrifstofu Reykja-
víkur. Sjálf gekkst hún aldrei fyrir
neinni skráningu á atvinnuástandi
kvennanna, en það hefði átt að vera
hennar hlutverk sem formanns ASB.
Var ekki samþykkt á stjórnar-
fundi að hún hlyti 25.000 kr. á mán.
úr sjóðum ASB fyrir störf sín í þágu
félagskvenna?
Margar kvennanna fá skamm-
tímavinnu hér og hvar, en leita og
bíða þess á milli. Hallveig vill ekkert
af þessu vita, og ekki ASÍ-forystan
heldur. ASÍ sá enga ástæðu til að
gera veður útaf alþjóðlegum bar-
áttudegi gegn atvinnuleysi, því hér
væri ekkert. ASÍ viðurkennir ekki að
konur eru notaðar sem varavinnuafl.
Hér er alið á þeirri trú að aumingja-
skapur sé að láta skrá sig atvinnu-
lausan.
Varðandi ummæli Óskars þess
efnis að Samtökin gegn lokun
mjólkurbúða „virðist hafa haft
sérstaklega góðan aðgang að fjöl-
miðlurn", viljum við taka fram að
þegar jafn alvarlegt mál er á
ferðinni og atvinnumissir 167
kvenna og lokun mjólkurbúða, er
ekki óeðlilegt að fjölmiðlar fjalli um
málið, en áberandi vgr er leið á árið,
að svo virtist sem kippt hafi verið í
spottana á bak við tjöldin. Fjölmiðl-
ar birtu meira og meira af yfirlýs-
ingum Samsölu og Kaupmannasam-
takanna, en minna og minna efni frá
okkur.
Arangur af
baráttunni
Engin árangur af baráttunni, segir
Óskar.
— Ekki væri það skrýtið eins
margir og lögðust gegn henni. En við
lærðum sitt af hverju í baráttunni.
Við lærðum um kaldhæðnishátt
Samsölunnar, Kaupmannasamtak-
anna, og ríkisvaldsins, svik stéttar-
félagsformannsins og við lærðum
það að tal þessara manna um
lýðræði, frelsi og réttindi, er tómur
tvískinnungsháttur. Og það er lær-
dómur sem getur komið okkur
verkafólki ansi vel í lífsbaráttunni.
Tómt kjaftaði er í Óskari, þegar
hann talar um „pólitíska heræfingu"
og „hópverkefni þjóðfélagsfræðinga
við Háskólann." Hins vegar þökkum
við hrósið þegar Óskar telur mjólk-
urbúðabaráttuna eiga að hljóta
viðurkenningu sem BA-verkefni við
Háskólann, en sennilega er Óskar
bara undrandi og hræddur við þann
kraft sem býr í verkafólki, er það rís
upp.
Full atvinna — fyrstu mannrétt-
indi!
Fyrrvcrandi starfsstúlkur Mjólkur
samsölunnar>
Lilja Kristjánsdóttir.
Elísabet Sigurðardóttir.
Ilcra Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Guðnadóttir.
F.II. ncytcndai
Sumarliði R. ísleifsson,
Elísabct Rjarnadóttir,
Kristjana Bcrgsdóttir.
8,05% aukn-
ing mjólkur-
innleggs hjá
Mjólkursam-
lagi KEA
1977
AÐALFUNDUR Mjólkursamlags
KEA var haldinn í Samkomuhús-
inu á Akureyri þriðjudaginn 2.
maí s.l. Á fundinum voru mættir
um 140 mjólkurframleiðendur.
I skýrslu Vernharðs Sveinsson-
ar kom fram, að innlagt mjólkur-
magn á sl. ári var rúmar 23
milljónir lítra og hafði aukist um
tæplega 2 milljónir lítra eða 8.05%
frá fyrra ári. Fitumagn mjólkur-
innar var að meðaltali 4.148%.
Mjólkurframleiðendur voru 313 og
hafði fækkað um 7 frá fyrra ári.
Af mjólkinni var 19.87% seld
sem neyzlumjólk en 80.13% fóru
til framleiðslu á ýmsum mjólkur-
vörum. Á árinu 1977 var fram-
leiðsla þeirra þessi: 627 tonn af
smjöri, 743 tonn af ostum, 70 tonn
af mysuosti og mysingi, 160 tonn
af skyri, 35 tonn af þurrmjólk, 216
tonn af kasein og 35 tonn af
youghurt.
Lokatónleikar
í Neskaupstað
LOKATÓNLEIKAR Tónlistar-
skólans í Neskaupstað fara fram
annað kvöld klukkan 20.30. Á
tónleikunum munu koma fram
nemendur Haralds Guðmundsson-
ar í strengja- og blásturshljóðfær-
um, nemendur Ásdísar Ólafsdótt-
ur í gítarleik og nemendur Karls
J. Sighvatssonar í píanóleik.
Minng Snæ-
bjarnar Jóns-
sonar - At-
hugasemd
Um leið og ég þakka Morgun-
blaðinu fyrir að birta fyrir mig
minningargreinina um Snæbjörn
Jónsson mælist ég til, að tvennt
verði leiðrétt, sem ég tel máli
skipta, að komi samkvæmt hand-
riti:
„Hann batt órofa tryggð við
fyrirtæki Bjarna Jónssonar, ísa-
fold...“, les Bjarnar Jónssonar.
í niðurlagi klausunnar um
grein Sn. J. á þýðingum föður míns
og Matthíasar (í Svanhvít) stendur
„og segir þar ýtarlega frá áliti
föður míns á þýðingunni á King
Lear,“ — ... les: „... og segir hann
þar frá áliti Sir William’s á
þýðingunni á King Lear.“
Með þökk fvrir birtinguna.
A. Th.
Siglufjörður;
Fjórðungur
bæjarbúa
sá leikritið
Siglufirði 6. maí.
HÉR VAR sýnt í gærkvöldi
leikritið „A sama tíma að ári“ með
þeim Bessa Bjarnasyni og Mar-
gréti Guðmundsdóttur í aðalhlut-
verkum. Kr skemmst frá því að
segja að aðsókn var svo mikil að
halda varð aukasýningu klukkan
tólf á miðnætti. Tvífylltist Bíóhús-
ið og sáu því samtals 500 manns
leikritið eða fjórðungur bæjarbúa.
Skemmtu menn sér hið bezta.
- m.j.
Sjötug-
ur 1 dag
Theódór Einarsson verslunar-
maður, til heimilis að Háholti 23,
Akranesi, er 70 ára gamall í dag.
Hann er landskunnur ljóða- og
lagasmiður. — Einnig hefir hann
samið skemmtiþætti, sem fluttir
hafa verið við ýms tækifæri. —
Lög hans og Ijóð eru raunar á
mörgum þeim plötum, sem eru
vinsælastar nú í dag. Theódór er
sonur hjónanna Ragnhildar Jóns-
dóttur og Einars Eggertssonar frá
Leirárgörðum undir Skarðsheiði.
— Hann er giftur Guðrúnu Ólafs-
dóttur frá Brautarholti á Akranesi
og eiga þau 3 mannvænleg börn.
Við sendum þér Theódór Einars-
son ósk
og árnu þér heilia með daginn.
Að hverfi ei kímnigáfan grósk,
né getan að yrkja braginn.
Baldur og Júlíus
Hvar er sjóðurinn?
Álagning á mjólkurvörum var
lækkuð um 2,27% við breytinguna.
Þessi lækkun var lögð í sjóði
Samsölunnar af því fulltrúar neyt-
enda í 6-manna nefnd neituðu að
láta lækka mjólkina til neytenda.
Undarlegir fulltrúar það? Er nokkur
sem rúir því enn að þeir gæti
hagsmuna fjöldans? Nei, þeir eru
þarna í blekkingarskyni, en auðvitað
gæta þeir hagsmuna atvinnurekenda
eins og aðr%r nefndarmenn í
nefndum og ráðum ríkisins.
Það sem raunverulega gerðist var
eftirfarandi* Mjólkursalan var
óánægð vegna þess að mjólkurbúð-
irnar skiluðu ekki nógu miklum
gróða að þeirra mati.
Kaupmannasamtökin pressuðu
einnig á að fá mjólkina til sölu, því
að sala nauðsynjavara dregur fólk að
verslunum. Þetta kom allt heim og
saman við hagsmuni þessara háu
herra. Frumvarp var gert að lögum
á Alþingi, þar sem einnig sitja
fulltingismenn atvinnurekenda, og
breytingin varð staðreynd. En þar
sem Samsaian er gróðaþyrst fyrir-
tæki þurftu Kaupmannasamtökin að
borga fyrir breytinguna 2,27% í
formi lækkaðrar álagningar. En
Kaupmannasamtökunum var lofað á
móti ríflegri hækkun 1. mars.
Mjólkin hækkaði auðvitað eins og
Samtökin gegn lokun mjólkurbúða
sáu fyrir. Samsalan fékk sitt. Og
Óskar þykist steinhissa á því hvað
orðið hafi af sjóðnum.
Hagsmunir fjöldans
gleymdust
En eitt var það sem Mjókursam-
salan, Kaupmannasamtökin og
Alþingi gleymdu viljandi. Þeir
spurðu aldrei neytendur og konurnar
167 sem átti í vændum að missa
vinnuna sína, og þeir tóku ekkert
mark á undirskriftasöfnuninni.
£•"=££5 sSSSsiS’ íj-s*---"" "
Hvað varð um
mjólkursölumábð^
Þióðírelsis-
threyfmgm
störfum sem eru óþörf, W hpJ
fBfnum ^“^51 SðítS^Mku'-'
(vfirlýsingar