Morgunblaðið - 09.05.1978, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
37
— jáhenni
tókst það...
SVEIT Hjalta Elíassonar varð
Islandsmoistari í hridKP. svoita-
koppni 1978. on koppninni lauk
um holgina. Vann sveitin fimm
lciki af sjö ok hlaut 98 stis af
140 möguloKum. í svoit Hjalta
oru ásamt honum< Ásmundur
I’álsson. Einar Þorfinnsson.
GuðlauKur R. Jóhannsson og
Orn Arnþórsson.
Það mátti segja að úrslit
keppninnar væru þegar ráðin
eftir 6 umferðir, en þá þegar
hafði sveitin 20 stig yfir þann
andstæðinginn, sem næstur
kom. Varð því sveit Hjalta að fá
mínusstig í síðustu umferðinni
til þess að tapa titlinum, sem
þeir voru að verja frá sl. ári. Það
var heldur ólíklegt en þó gat það
gerst á sunnudag. Sveit Hjalta
spilaði gegn sveit Guðmundar T.
Gíslasonar og í opna salnum
spilaði landsliðsparið Guðmund-
ur og Karl gegn landsliðsparinu
Guðlaugi og Erni.
Þeir fyrrnefndu spiluðu þenn-
an hálfleik mjög vel og í hálfleik
var sveit Guðmundar með 40
punkta yfir. I síðari hálfleik
urðu þeir þó að gefa helming
þeirra til baka og enda þótt sveit
Hjalta tapaði leiknum 5:15 var
sigur þeirra í höfn.
Fyrir síðustu umferð hafði
sveit Stefáns Guðjohnsens
mesta möguleika á öðru sæti í
keppninni, en þegar upp var
staðið hafði sveit Stefáns orðið
í 5. sæti og höfðu fáir búizt við
því eftir að sveitin hafði verið í
efsta sæti eftir 4 umferðir og þá
m.a. unnið sveit Hjalta 15:5.
Sveit Guðmundar Hermanns-
sonar varð í öðru sæti í keppn-
inni. Það kom engum á óvart. I
sveitinni eru 6 ungir spilarar og
eru þeir til alls líklegir. Ásamt
Guðmundi eru í sveitinni: Sævar
Þorbjörnsson, Sigurður Sverris-
son, Skúli Einarsson, Guðmund-
ur P. Arnarsson og Egill Guð-
johnsen.
4. umferði
I þessari umferð kom bezt
fram það sem ýmsir höfðu spáð
um þetta mót. Þ.e.a.s. úrslit
leikja voru ekki ráðin fyrr en
leikurinn hafði farið fram.
Sveitir Stefáns og Hjalta spil-
uðu saman og var talið að þetta
væri úrslitaleikur mótsins. I
hálfleik hafði Hjalti 34 punkta
á móti 22 en sveit Stefáns var
farsælli í síðari hálfleik og vann
15:5 og var þar með komin í
efsta sætið. Urslit annarra
leikja:
Jón Ásbjss. — Sigurjón 19:1
Guðmundur T.
Steingrímur 0:20
Guðmundur H. — Ármannl:13
Þrjár neðstu sveitirnar unnu
allar sína leiki.
5. umferði
Leikur Stefáns og Jóns var
eflaust leikur umferðarinnar.
Sveit Jóns hafði átt lélegt
„start“ í mótinu en hafði unnið
sveit Sigurjóns stórt í 4. umferð.
í hálfleik hafði sveit Jóns 20
punkta forskot sem hún hélt til
loka og vann 15:5. Sveit Hjalta
tók sveit Steingríms Jónssonar í
kennslustund. I hálfleik var
staðan 91 punktur gegn 4 og
mínus varð ekki umflúinn. Sveit
Hjalta vann 20 mínus 5. Önnur
úrslit:
Sigurjón — Guðmundur H.6:14
Ármann — Guðmundur T. 14:6
6. umferði
I þessari umferð spilar sveit
Hjalta við bikarmeistarana,
sveit Ármanns J. Lárussonar.
Þeir síðarnefndu höfðu komið
ágætlega út úr mótinu og var
vonast til að þeir næðu að
stöðva sveit Hjalta, eða allavega
að ná af þeim nokkrum stigum.
Sveit Hjalta var ekki á þeim
buxunum og sigraði leikinn 18:2.
Bridge
eftir ARNÓR
RAGNARSSON
Sveit Stefáns spilaði gegn sveit
Sigurjóns og er skemmst frá því
að segja að Stefán hlaut ekkert
stig út úr leiknum og varð þar
með íslandsmeistaratitilinn
Hjalta.
7. umforði
Það var ekki sama spennan og
hvílt hefir yfir mótinu undan-
farin ár þegar síðasta umferðin
hófst á sunnudag. Nú var aðeins
um annað sætið að keppa. Þrjár
sveitir höfðu möguleika á því
sæti. Sveit Stefáns með 73 stig,
sveit Guðmundar Hermanns-
sonar með 72 stig, og sveit Jóns
Ásbjörnssonar með 67 stig.
Sigurjón Tryggvason var með 57
stig og kom því ekki til greina.
I hálfleik hafði Jón Ásbjörns-
son 47 punkta gegn 9 á móti
sveit Ármanns á meðan leikur
Guðmundar H. og Stefáns var í
jafntefli. Það voru því allar
líkur á að Jóni ætlaði að takast
að krækja í annað sætið. En
ýmislegt átti eftir að gerast. í
síðari hálfleik snerist leikurinn
algjörlega í höndum sveitar
Jóns og vann Ármann með 11*9.
Á meðan skoraði sveit Guð-
mundar H. jafnt og þétt á móti
sveit Stefáns og endaði leikur-
inn 19:1 fyrir Guðmund. Þessi
úrslit voru þau hagkvæmustu
sem orðið gat fyrirSigurjón sem
vann Steingrím 20 mínus 4 og
hafnaði þar með í þriðja sæti.
Lokastaöam
Sveit Hjalta Elíassonar , 98
Sveit Guðmundar
Hermannssonar 91
Sveit Sigurjóns
Tryggvasonar 77
Sveit Jóns Ásbjörnssonar 76
Sveit Stefáns Guðjohnsens 74
Sveit Ármanns J.
Lárussonar 56
Sveit Guðmundar T.
Gíslasonar 54
Sveit Steingríms Jónassonar 31
Hjalti
Ásmundur
Einar
Guðlaugur
ILG-Wesper
hitablásarar
fyrirliggjandi í eftirtöldum stæröum:
2500 k.cal. 12800 k.cal. 17600 k.cal. 19800 k.cal.
Sérbyggöir fyrir hitaveitu og þeir hljóölátustu á
markaðnum.
Vegna óreglulegs viötalstíma þá vinsamlegast
hringiö í síma á milli kl. 12—13.
Helgi Thorvaldsson, Háagerði 29,
Reykjavík, sími 34932.
Peugeot 504 Diesel
árgerö 1974 til sýnis og sölu.
HAFRAFELL HF. — VAGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
Borgartún29
Hjólbarðaskiptingar,
hjólbarðasala.
Flestar stæröir af Atlas og Yokohama hjólböröum
á góöu veröi.
„ Véladeild HJÓLBARDAR
Sambandsins
Nybóla
sem leysir gamlan vanda
Vandinn er þungt loft -eðalykt. Innilokað loft eða reyk-
mettað. Matarlykt, allskonar lykt sem angrar.
Hér er góð lausn. Lítil kúla, kölluð Airbal. Inni í henni er
lítil plata.unnin úr ferskum náttúruefnum, sem hreinsa
andrúmsloftið.
Virkni kúlunnar er hægt að stjórna meðþvi að færa til
hettu ofan á henni. Þegar lyktarefnin eru þrotin er ný
plata sett í kúluna.
Einn kostur í viðbót - kúlan er ódýr.
Fæst á bensínstöðvum Shell og í fjölda
verslana.
Olíufélagiö Skeljungur hf
Heildsölubirgðir: Oliufélagið Skeljungur.
Smávörudeild Sími 81722
Shell