Morgunblaðið - 09.05.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1978
45
VELVAK ANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
p^l/^Arrs^-ua'u ir
Afgreiðsludaman segir þá að ég fái
ekki lengur umtalað lyf gjaldfrítt
nema ég fái nýtt skilríki frá
sjúkrasamlaginu og verði ég því
aftur að leita heimilislæknisins til
að fá beiðni svo sjúkrasamlagið
geti endurnýjað skilríkið.
Ég var alveg agndofa, sár-
óánægður og svo hissa. Spurði ég
svo afgreiðslustúlkuna hvernig í
þessu lægi, en hún svarar því að
nú sé bre.vting orðin á öllu þessu.
Ég varð bara sárreiður yfir þessu
en stillti mig, enda ekki afgreiðslu-
fólkinu um að kenna. Ég hætti svo
öllu mögli og borgaði eins og til
stóð og fór út að því loknu. •
Ég verð nú að segja að þessi mál
eru nú orðin ærið flókin ef lögleg
samþykkt er fengin f.vrir því að
endurnýja þurfi skilríkin hvað
eftir annað sem gilda á í 2 ár
samkvæmt undirskrift f.vrirtækis.
Það þykir kannski djarft að telja
svona Iagað nálgast samningsrof,
en fróðlegt væri að fá að vita
hvaða tilgangi svona lagað þjónar.
• Verst fyrir
aldraða
Það er ekki óeðlilegt að
fólk verði alveg agndofa þegar allt
íeinu verður skyndibreyting á
ýmissi þjónustu fólki til mikils
óhagræðis þegar fyrirgreiðslu er
þörf. Og það er alveg áreiðanlegt
að þegar ýmsar flækjur koma á
opinbera þjónustu þá kemur það
langharðast niður á gömlu fólki.
En því ekki að reyna að gera alla
þjónustu fyrirtækja eins einfalda
og unnt er? Það eru fleiri fyrir-
tæki en sjúkrasamlagiö sem þarna
eiga hlut að máli. Og ekki má 1
heidur gleyma að til eru fyrirtæki
sem hafa miðað að því að gera alla
afgreiðslu þægilegri fyrir fólk. En
því miður eru ýmsar flækjur
komar í spilið hjá ýmsum fyrir-
tækjum, fólki til stóróþæginda,
einkum gamalmennum. Mér
virðist að svona mál mætti taka til
enn meiri athugunar en hingað til.
Það væri a.m.k. æskilegt að öll
þjónusta fyrirtækja yrði ekki gerð
flóknari en vera þarf.
Eyjólfur Guðinundsson."
Við þessa sögu er litlu að bæta,
en hún sýnir að hafa verður
vakandi auga fyrir því að þjónusta
hvers konar sé eins einföld og
þægileg og hún getur verið. Hitt er
annað varðandi lyf að vera má að
þjónusta kringum þau verði að
vera nokkuð flókin e.t.v. til aö
koma í veg f-yrir misnotkun.
Þessir hringdu . . .
• Málum skólann
Vesturbæinguri
— Mér finnst að aftur megi
minna á ummæli er viðhöfð voru
hjá Velvakanda fyrr í vetur er
snerta Vesturbæjarskólann, en
þau voru á þá leið að sumarið verði
notað til að mála hann utan í
svipuðum dúr og hin mörgu
fallegu hús í nágrenninu. Mætti
það verða borgaryfirvöldum til
sóma og börnunum í skólanum til
ánægju.
• Góð eða léleg
hljómsveit?
I’oppari:
-— Éinhvern tíma var talað
um
það þegar listahátíð var annars
vegar að þar yrði ekki um lélegar
hljómsveitir að ræða er kæmu
fram á tónleikum ef fengnar yrðu
popphljómsveitir til landsins. Nú
hefur verið afráðið að fá hingað
hljómsveitina Smokie, sem er af
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í
Roskilde í Danmörku í febrúar
kom þessi staða upp í skák þeirra
Lars Áke Schneiders. Svíþjóð, sem
hafði hvítt og átti leik, og
Thorbjorns Rosenlunds. Dan-
mörku.
28. IIxf7+! - I)xf7, 29. Bg.r,+ -
KdG. 30. IId4+! - Ke5 (Ef 30.
... Rxd4 þá 31. Dc5 mát) 31. Dxd7
~ Dg6? (Betra var auðvitað 31.
... Dxd7) 32.1)df>+ - KÍ5, 33. Df 1
mát. Þeir Schneider og
Westerinen urðu jafnir og efstir á
mótinu, hlutu báðir 8 v. af 11
mögulegum.
mörgum talin fremur léleg hljóm-
sveit og ekki merkileg ef miða á
við margar íslenzkar hljómsveitir.
Mig minnir að hljómsveitin Procol
Harum hafi verið nefnd sem dæmi
um hljómsveit er ekki yrði fengin
hingað, en mér finnst Smokie litlu
skárri.
Ekki ætlar Velvakandi að
blanda sér í umræður um popp-
músík, en telur að erfitt geti verið
að finna mælikvarða á það hvað
telst léleg og hvað góð hljómsveit.
Væntanlega hefur listahátíð eitt-
hvað fyrir sér í því að velja Smokie
í stað einhverrar annarrar og vera
má einnig að ýmis samningsatriði
hafi sín áhrif.
HÖGNI HREKKVISI
Næturfriðurinn úti þessa nótt — æfing að hefjast!
NYTT SIMANUMER
29022
SIGTUNI7'
•SlMI 29022
nálar
BUÐIN
SKIPHOLTI 19 R.
SÍMI 29800 (5 LÍNUR)
27 ÁR Í FARARBRODDI
Sweet Atdehydic shampoo
for normal haif
Contenis 2SÖ C-Cv
Heildsölubirgöir.
KRISTJÁNSSON HF
Ingólfsstræti 12, simar: 12800 - 14878
BLOSSOM
Frábært shampoo
BLOSSOM shampoo freyðir vel, og er fáanlegt
i 4 gerðum.
Hver og einn getur fengið shampoo við sitt hæfi.
Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel líka