Morgunblaðið - 04.06.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.06.1978, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1978 „Kerfið sífellt fjar- skyldara höfuó- atvinnuveginum" fíabbað vid Gauja á Gullberginu í Vestmannaeyjum Guðjón Pálsson skipstjóri á Gullbergi. Myndin er tekin á sjómannadaginn 197fi. Ljósm. Mbl.i SigurKeir Jónasson. Guðjón Pálsson skipstjóri og útvejfsbóndi á Gullberginu frá Vestmannaeyjum er einn traustasti aflamaóur landsins, en á s.l. ári hefur hann og skipshöfn hans aflað fyrir hundruð milljóna króna. Við röhhuðum við Guðjón um það scm honum finnst efst á bauni í málefnum útgerðarinnar. „Frá mínu brjóstviti tel ég að mun minni loðna hafi gengið hér s.l. vetur en við áttum von á, en hitt er óvíst hvort sá angi loðnugöngunnar sem tapaðist djúpt út af Stokksnesi hafi skilað sér til hrygningar upp að landinu. Hins vegar var mun meiri þorskur hér við Eyjar og austur í Meðallandsbugt en var s.l. ár og þetta voru allt fullvaxnir „Jónar Jónssynir", en það var sáraiítið af „Matthíasi". Mér finnst þróunin í loðnu- veiðunum boða það að við megum í framtíðinni fara að gæta okkar á því að ofveiða ekki loðnustofninn og þeim mun fremur þurfum við að hyggja vel að ef ljóst er að stofninn hefur misfarist í klaki. Það var aftur á móti gleðilegt að fram kemur þorskur sem jafnvel átti að vera búið að veiða. Varðandi flota okkar af stærri gerðinni tel ég að við séum nú þegar komnir með nógu stóran skuttogaraflota á meðan fiskstofnarnir eru ekki búnir að jafna sig eftir þá ásókn sem verið hefur sleitulaust í þá og ég tel einnig að við séum með nær fullskipaðan loðnuflota til þess að veiða það sem eðlilegt getur talizt. Það er því ljóst að við höfum ekki efni á að láta útlendinga hafa mikið þar sem við erum með flotann vannýttan hluta úr árinu. Síldarstofninn tel ég að sé í stórum og hröðum vexti og ég tel það eftirlit eðlilegt sem er í sambandi við síldveiðarnar. I mörgum tilvikum vinnum við ekki skynsamlega og t.d. ætti í mun ríkari mæli að gera síld- veiðarnar arðbærari en þær eru nú og þetta á við um margs konar veiðiskap annan. T.d. varðandi síldina er nú gott tækifæri til þess að sigla með aflann. Markaðirnir í Evrópu eru það góðir í dag að það myndi skila miklu meiri tekjum í þjóðarbúið en síldarútvegsnefnd getur fengið eftir sínum leiðum. A meðan Norðursjórinn er lokaður fyrir síldveiðuuuum verður fersksíldarverðið mjög hátt á mörkuðum nærliggjandi landa og það eigum við að notfæra okkur. Við eigum að stuðla að því að skapa hátt verð á síld, hreinlega að gera það hefðbundið að síldarverð sé hátt. Síldin býður þann mögu- leika, en um þessar mundir eru greiddar 9-13 kr. danskar fyrir kg af síld.“ „Nú er svokallaður dauður tími hjá loðnuflotanum." „Dauða tímabilið er'ákaflega erfitt. Það er verið að tala um að það sé hægt að senda stærri skipin sem hafa vélarafl og mikið lestarrými á kolmunna, en þar sem við búum við svo lélegt hráefnisverð miðað við aðrar þjóðir, þá er það alls ekki arðbært. Fyrir kolmunna-kílóið af Færeyjamiðum fá Danir 50 aura danska, eða yfir 20 kr. ísl., á sama tíma og við fáum 10.80 kr. fyrir kílóið. Þó sigla íslenzku og dönsku skipin sömu vega- lengd í land með aflann miðað við Faxaflóa. Þetta lága fiskverð veldur því að útilokað er að fjárfesta í þessum hlutum. A þessum dauða tima sem er um það bil frá 10. maí til 15. júlí þegar sumarloðnan byrjar, er hugsan- legt að gera þessa báta út á aðrar veiðar, en til þess þarf margt að breytast í okkar Framhald á bls. 62. Gullbergið að koma til hafnar. Þorsteinn Pétursson er nú yfirvélstjóri á Goðafossi en alls hefur hann siglt á 14 skipum Eimskipafélagsins og einum þremur fiskiskipum. Þorsteinn er hér að líta eftir í vélarrúmi Goðafoss. Ljósm. Mbl.i Krist- ján. „Hefði alveg eins getað orðið húsasmiður" fíætt vid Þorstein Pétursson, yfir- vé/stjóra á Godafossi — Það var fyrir hreina tilviljun að ég lenti á sjónum. Ég hafði holzt hugsað mér að verða húsasmiður en á þeim tíma var ekki hægt að komast í það nám. Ég fór að vinna í Stálsmiðjunni en likaði ekki hávaðinn þar og fékk starf sem rennismiður í Vélsmiðjunni Steðja. Upp úr þessu fór ég í Vélskólann en byrjaði á Trölla- fossi 1948 og lauk prófi frá skólanum 1953. Frá því ég byrjaði hef ég verið á 14 Fossum en hætti þó á þeim um tíma og fór á fiskibát. Hélt að ég gæti verið eitthvað meira heima en sú varð ekki raunin og ég fór aftur til Eimskip. — En það að ég varð vélstjóri var fyrir hreina tilviljun og ég gæti alveg eins verið húsasmiður nú, sagði Þorsteinn Pétursson, yfirvélstjóri á Goðafossi er við tókum hann tali um borð í Goðafossi þar sem hann lá í Sundahöfn. Þorsteinn er kvæntur og eiga þau hjónin 3 hörn og barnahörn þeirra hjónanna eru þrjú. — Mér hefur yfirleitt líkað vel að vera á sjónum en þessar löngu fjarvistir frá heimili eru versti ókosturinn og þær verða ailtaf leiðinlegastar fyrir fjöl- skylduna. Og verri eru þær fyrir konuna og börnin heldur en mennina. Við á þessu skipi siglum mest með fisk á Ameríku og Rússland og erum oftast mánuð í burtu. A minni skipun- um er ástandið heldur betra, því þeir eru ekki eins lengi í burtu, en sá tími, sem þeir stoppa í höfn, er hins vegar stuttur. Tíminn í höfn er reyndar stuttur hjá okkur líka. Við eigum t.d. í erfiðleikum með að skipuleggja fríin okkar, því að bæði er erfitt að fá vélstjóra til að leysa af og hitt að það er oftast mjög óákveðið hvaða verkefni bíða skipsins. „Starfandi sjómenn sinna of lítið félags- málum stéttarinnar“ — Ég hætti hreinlega um tíma á farskipunum, mikið vegna þessara löngu fjarvista en þá voru túrarnir fimm til sjö vikur. Auðvitað ætlaði ég að hafa mig upp úr þessu og hætta en skellti mér á bát. Þetta var á þeim árum, sem síldin var og ég hélt að þetta gæfi meiri möguleika til að vera heima en sú varð ekki raunin heldur var maður í burtu allt sumarið. Það fór þvi svo að ég byrjaði aftur hjá Eimskip. — Þessar löngu og miklu fjarvistir okkar sjómanna gera það að verkum að við getum lítið tekið þátt í starfi að félagsmál- um stéttarinnar. Sjómanna- stéttin verður af þessum sökum sundruð. Þeir menn, sem vinna að okkar málum í landi, eru því miður ekki í nægum tengslum við starf okkar og sinna of lítið sjómannsstörfum til að finna hvaða mál brenna heitast á starfandi sjómönnum. Við, sem störfum á sjónum, þurfum sjálfir að vera í þessu og þessu þarf einhvern veginn að breyta en ég geri mér grein fyrir því að það er erfitt. Aukinn frítími gæfi vitanlega meiri möguleika hvað þetta snertir en mér dettur einnig í hug að sjómenn þyrftu að fjalla meira um sín mál skriflega innbyrðis. „Launin þuría aö vera há til að menn tolli til lengdar á sjónum“ — í fyrstu fara menn oftast á sjóinn af hreinni ævintýraþrá. Menn vilja kynnast einhverju nýju og sjá sig um. Það er óneitanlega kostur við sjó- mennskuna sem vinnu, að mað- ur er á vinnustaðnum og þarf ekki að fara langar vegalengdir til og frá vinnu. Ef góður félagsandi er um borð í skipun- um þá heldur það í mennina. Laun sjómanna þurfa að vera töluvert hærri en í iandi til þess að menn tolli í þessu til lengdar. Vitanlega geta menn tollað í þessu í stuttan tíma á lægri launum en sífelld mannaskipti eru hvorki til góös fyrir áhafm irnar né útgerðina. Það fer líka ekki hjá því að maður, sem er mikið fjarverandi frá heimili sínu getur aldrei skapað sér vinnu heima fyrir eða unnið að lagfæringum á heimilinu. Allt hefur þetta í för með sér aukinn kostnað. Að vísu eigum við að fá frídaga fyrir unna helgidaga erlendis en eins og ég sagði áðan þá er ekki gott að fá vélstjóra til að leysa af og þá hafa margir ekki efni á því að taka þessa frídaga og þá sérstaklega hinir yngri. Framhald á bls. 62.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.