Morgunblaðið - 04.06.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.06.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1978 55 Ingólfur Konráðsson frá Vöglum — Minnmg Fæddur 12.desember 1914 Dáinn 20.marz 1978 Vorið 1921 fluttist fátæk fjöl- skylda að Gilhaga í Vatnsdal, sem var heiðarbýli fyrir ofan Haukagil. Þessi fjölskylda var Konráð Jóns- son og kona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir með tvo unga syni sína, þá Ingólf á 7. ári og Eggert eins árs. Einnig fluttust með þeim hjónum fósturforeldrar Ragnheiðar, Ingólfur Guðmunds- son og Helga Davíðsdóttir, bæði orðin roskin. Því minnist ég á þetta, að þarna urðu mín fyrstu kynni af þessu fólki, sem ég gleymi ekki. Ég var á 10. ári og faðir minn lánaði 2 eða 3 hesta til flutninga á fólki og búslóð, sem var lítil, og ég var látinn fara með til að taka hestana til baka. Ég gleymi aldrei þessari ferð í aur og bleytu og kalsa veðri. Konurnar höfðu báðar hesta til að sitja á og reiddi Ragnheiður yngri drenginn en aðrir urðu að ganga. Ingólfur Guðmundsson hélt oftast í hend- ina á nafna sínum, sem var nú helst til þreklítill til að labba þessa löngu leið, en það er vel 1 klst. gangur í góðu færi. En ömurleg var aðkoman að Gilhaga- bæ, sem þá hafði verið í eyði í eitt ár. Þegar útihurðin var opnuð blasti við svellbunki og vatnstjörn inn öll göng. Inn í bæinn fór ég ekki en óhug setti að mér, að fólk skyldi þurfa að setjast að í slíkum húsakynnum. En slíkt varð nú gjarnan hlutskipti fátæklinganna hér áður fyrr. Þarna hófust kynni okkar Ingólfs frænda míns, sem héldust með vináttu til hinsta dags hans. Eins og að líkum lætur voru mikil samskipti milli bæjanna og þau góð. Ingólfur fór ungur að vinna eftir mætti, en jörðin er harðbýl og eftir 10 erfið ár fluttist fjölskyldan frá Gilhaga að Vögl- um, sem er annað fjallabýli til og kosta rýrt. Þá voru drengirnir orðnir 4, en dóttir fæddist stuttu seinna. Eftir það veiktist móðirin + Eiginmaöur minn, faöir og fengdafaöir. FILIPPUS BJARNASON, fyrrv. brunavöröur, Reynimel 38, veröur jarösunginn frá Neskirkju þriöjudaginn 6. júní kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Nanna Hallgrímadóttir, Edda FiMppusdóttir, Magnús Sigurósson, Svanhildur Gunnarsdóttir, Sturlaugur Grótar Filippusson. t Maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, ÓLAFUR G. JÓHANNSSON, fyrrverandi skipstjóri, Rauóagerói 42, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. júní kl. 3. Blóm afbeöin. Sigríður Magnúsdóttir, Bára Ólafsdóttir, Ingíbjörg Olatsdóttir, Páll Sigurgeirsson, ___________ barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaöur minn og faöir, HANNES G. PÁLSSON, verkstjóri, Meöalholti 9, veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni þriöjudaginn 6. júní kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuö en þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir. Sigríöur Hannesdóttir, Hafdís Hannesdóttir, Þórir Jónsson. + Eiginmaöur minn, faðir okkar og tengdafaöir, ÞORVALDUR FAHNING, Bólstaöarhlíö 40, veröur jarösunginn í Fossvogskirkju mánudaginn 5. júní kl. 3.00 e.h. Sigríður Eyjólfsdóttir, Rúnar Þorvaldsson, Jakobína Gunnlaugsdóttir, Hilmar Þorvaldsson, Sigrún Aöalsteinsdóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Robert Pennington. + Maðurinn minn, faöir okkar og tengdafaöir, LOFTUR GESTSSON, Skúlagötu 72, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 6. júní kl. 15.00. Sesselja Guðjónsdóttir, María Loftsdóttir, Þórarinn Baldursson, Guömundur Loftsson, Óskar Loftsson. + Viö þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför, EGGERTS ÞORLEIFSSONAR, járnsmiös, Skólageröi 39. Magðalena Andrésdóttir, Bjarni Eggertsson, Sveinbjörg Eggertsdóttir, Þorleifur Eggertsson, Guörún Eggertsdóttir, Sigurður Pétursson, barnabörn. Vesturhópi og var þar stundum einn síns liðs. Síðustu árin fór svo að halla undan fæti með heilsuna, enda ekki alltaf hugsað um hana sem skyldi. Hann var svo heppinn eftir að heilsan bilaði fyrir alvöru að til hans réðst stúlka, sem reyndist honum vel. Og þó hún væri ekki óslitið hjá honum kom hún til hans aftur s.l. vetur og þá með festarmann sinn með sér og sáu þau um skepnuhirðingu að mestu en hann annaðist litlu stúlkuna hennar sem besta móðir á meðan. Og það sýnir betur en orð fá lýst þakklæti hans til þeirra, að örfáum dögum áður en hann dó gekk hann frá afsali á jörðinni til þeirra því hann gerði sér ljóst að hverju dró með heilsu sína. Ég vil geta þess að Ingólfur var ágætur hestamaður og var vart til svo lélegur hestur, sem ekki fór á kostum, er hann var sestur á bak honum. Hann átti og úrvals hrossakyn sem var eftirsótt af öðrum. Að lokum færi ég frænda mínum og vini hinstu þakkir og kveðjur frá okkur hjónum og börnum okkar öllum. Ég veit að við eigum eftir að hittast og þá verður hann eflaust með gráa gæðinginn sinn, en ég með hestinn Tuma sem ég sakna alla daga. Ingólfur varð bráðkvaddpr í örmum vina sinna heima á Grund. Konráð Eggertsson Haukagili og dó eftir tiltölulega stutt veik- indastríð. 1925 keypti Konráð Gilhaga af föður mínum en á hann ekki nema 3 til 4 ár og seldi þá aftur. Vagli keypti hann um þær mundir, er hann flutti þangað, en hættir svo búskap eftir konumissinn og seldi þá Rúneberg Ólafssyni jörðina. Ingólfur kaupir svo Vagli 1935 eða 1936. Ingólfur kvæntist 1936 Jakobínu Þorsteinsdóttur frá Stóra-Hvarfi í Víðidal og hófu þau búskap í Vöglum það ár. Jakobína var mesta sæmdarkona og tók fullan þátt í kvenfélagsstörfum Vatns- dælinga til dauðadags og var mjög félagslynd. Þau hjón áttu ekki lund saman og slitu samvistum. Eignuðust þau 2 syni, Helga fæddan 1937 og Hjörleif 1940. Seinna eignaðist Ingólfur dreng er Guðmundur hét og fluttist hann með móður sinni vestur í Bolung- arvík og reyndist nýtur maður sem bræður hans, en lést ungur af slysförum frá konu og barni. Eftir að þau hjón slitu sambúð er Ingólfur mikið á vegum Ragn- heiðar systur sinnar í Þórorms- tungu og víðar óg stundar þá gjarnan vinnu á ýmsum stöðum og einkum við byggingar, Jakobína heldur áfram búskap með sonum sínum og fer svo er stundir líða að Helgi tekur við jörð og búi og móðir hans stendur fyrir búi með honum meðan heilsa endist. Ingóifur var völundur til allra verka og smiður á járn og tré sem ættmenn hans og því eftirsóttur til allra verka. Oft rétti hann mér hjálparhönd ef mér lá á og var tvisvar hjá mér vetrartíma við fjárgæslu og var ekki kastað til höndum því hann hafði yndi af vel fóruðum skepnum. Ekki má gleyma því hversu barngóður hann var og er ekki ofmælt að hann vildi helst alltaf hafa litla hendi í lófa sér hvort sem var úti eða inni og lá honum þá aldrei svo mikið á að ekki yrðu bæði barn og fóstri , samferða. Svona var þetta á mínu heimili og annars staðar er ég þekkti til. Um árabil var Ingólfur á Kistu í Vesturhópi hjá Eggerti bróður sínum og mun hafa ráðið sér sjálfur að mestu og stundaði þá allmikið smíðar, aðallega skeifna- smíði. Var mjög kært með þeim bræðrum alla tíð. Fyrir allmörgum árum festi hann kaup á jörðinni Grund í Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki Austurbær Kjartansgata Upplýsingar í stma 35408 Tilboö óskast í eftirtaldar bifreiöar, er veröa til sýnis þriöjudaginn 6. júní 1978, kl. 13—16 í porti bak viö skrifstofu vora, aö Borgartúni 7: árg. Ford Cortina fólksbifreið 1974 Volkswagen 1200 fólksbifreið 1973 Chevrolet Blazer 1971 Ford Bronco 1973 Volkswagen Micro Bus fólksbifr. 1975 Volkswagen pallbifreið 1974 Ford Transit Bus fólksbifr. 1971 UAZ 452 torfærubifreið 1971 Land Rover lengri gerð, benzín 1970 Land Rover benzín 1970 Willys jeppi 1966 Dodge W 200 pic-up 1971 Skoda 110 L fólksbifreið 1971 Opel Rekord fólksbifreiö 1971 Tempo mótorhjól 1972 Tilboðin veröa opnuð sama dag kl. 16.30 aö viöstöddum bjóöendum. Réttur áskilinn aö hafna tilboöum sem ekki teljast viöunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.