Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
117. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skip sæk ja kín-
verska f lótta-
menn í Víetnam
Mstislav Rostropovits, sellóleikarinn heimsírægi, við komuna til Keflavíkur í gær. í
kvöld leikur hann ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Vladimirs Ashkenazy
í Laugardalshöll. Rostropovich hefur skamma viðdvöl á Islandi að þessu sinni, en
förinni er heitið til Lundúna þegar á miðvikudagsmorgun. (Ljósm. ól. K. MaKn.)
Parísarfundurinn um Afríku:
StyðjaVesturveldin sameig-
inlegan herafla Afríkuríkja?
Tokyo. 5. júní. Reuter.
VÍÉTNAMSTJÓRN til-
kynnti í dag að hún hefði
ákveðið að heimila kínversk-
um skipum að koma til
hafna í landinu til að sækja
þangað kínverska borgara
sem vildu komast úr landi
og aftur til Kína. Frétta-
stofa Víetnams sagði í til-
kynningu að ákveðið hefði
verið að hafnirnar yrðu
opnar kínversku skipunum
frá og með 20. júní.
Talið er að um 90 þúsund
Kínverjar hafi yfirgefið Víet-
nam undanfarnar vikur og
Moro morðið:
Sex
ákærðir
Kómahorg. 5. júní. Reuter.
PRENTSMIÐJUEIGANDI og
fimm aðrir menn sem eru
grunaðir um að eiga aðild að
ráni og morði á Aldo Moro
fyrrv. forsætisráðherra Ítalíu.
hafa nú vcrið formlega ákærð-
ir.
Þeir eru fyrstu aðilarnir sem
eru ákærðir í tengslum við
morðið á Moro, en hann fannst
látinn hinn 9. maí eftir að hafa
þá verið 54 daga í haldi hjá
skæruliðum Rauðu herdeild-
anna. Einn þessara sex sem
ákæra hefur verið lögð fram
gegn er ekki fundinn en hinir
fimm voru handteknir í Róma-
borg í síðasta mánuði. Meðal
þessara sex er hálfþrítugur
maður, Enrico Triaca, sem rak
litla prentstofu í Rómaborg.
Maður sá sem enn er leitað er
Mario Moretti, rúmlega þrítug-
ur að aldri. Hann hefur áður
komið við sögu í hryðjuverkum
Rauðu herdeildanna. Moretti er
grunaður um að hafa verið
tengiliður milli prentsmiðjueig-
andans og skæruliða Rauðu
herdeildarinnar.
Bonn. 5. júní. AP. Reuter.
FLOKKUR frjálsra demókrata í
Vestur-Þýzkalandi, sem aðild á að
ríkisstjórn Helmuts Schmidts
kanslara. beið mikið afhroð í
fylkiskosningum f Ilamborg og
Neðra Saxlandi um helgina.
Flokkurinn tapaði öllum fulltrú-
um sínum á báðum stöðum,
jafnaðarmenn héldu meirihluta
stjórnin í Peking hefur ásak-
að Víetnama um að ofsækja
kínverska minnihlutann í
landinu.
Að því er heimildir í Japan
herma, hefur stjórn Kína
ákveðið að minnka mjög
efnahagsaðstoð sína við Víet-
nama í framhaldi af þessum
ofsóknum.
í tilkynningu víetnömsku
fréttastofunnar segir að
sendiherra Kína hafi verið
afhent orðsending þar sem
segir að kínversk skip megi
koma til landsins í ofan-
greindum tilgangi og jafn-
framt sé ásökunum Kínverja
um ofsóknir harðlega mót-
mælt. í orðsendingunni er
skorað á Kínverja að taka
upp vinsamleg samskipti að
nýju við Víetnam.
Flokkur Indiru
vinnur þingsæti
Nýju Dclhi. 5. júní. Rcutcr.
KÓNGRESSFLOKKURINN á
Indlandi. flokkur Indiru Gandhi
fyrrum forsætisráðherra. vann
þingsæti af Janata flokknum sem
nú fer með völd í landinu í
aukakosningum sem haldnar
voru í tveimur kjördæmum
skammt frá Nýju Delhi í dag. í
öðru kjördæminu hélt Janata
flokkurinn þingsa'ti sínu.
París. Luhumhashi.
5. júní. AP. Rcutcr.
HÁTTSETTIR embættis-
menn frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi,
V-Þýzkalandi og Belgíu
sínum í Hamborg og Kristilegir
demókratar juku þingstyrk sinn
í Neðra Saxlandi þar sem þeir
hafa meirihluta. Það vakti mikla
athygli í kosningunum að flokk-
ur umhverfisverndarmanna,
„Græni flokkurinn“. fékk umtals-
vert fylgi í báðum kosningunum
og var nærri því að fá menn
kjörna.
komu t dag saman til fundar
í París um vandamál Zaire
og tillögu Frakka um stór
aukna efnahagsaðstoð við
þjóðir Afríku og sameigin-
Leiðtogar frjálsra demókrata
komu saman til fundar í Bonn í
gær til að ræða kosningaáfallið, en
úrslit þessara kosninga munu ekki
hafa nein bein áhrif á stjórnar-
samvinnu jafnaðarmanna og
frjálsra demókrata á sambands-
þinginu í Bonn. Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra
Framhald á bls. 30.
legan herafla Afríkuríkja
sem nyti stuðnings vest-
rænna þjóða. Athygli manna
á fundinum beindist fyrst og
fremst að hinum aðkallandi
vandamálum í Zaire, en
þangað komu í dag nokkur
hundruð marokkanskir her-
menn til að leysa af hólmi
frönsku útlendingaherdeild-
ina sem þar hefur gætt
öryggis hvítra manna frá
því innrás var gerð í landið
í maímánuði.
Á fundinum i París vildu Banda-
ríkjamenn, Belgar og Bretar
leggja höfuðáherzlu á málefni
Zaire og þann fjárhagsvanda sem
landið á við að stríða, en Frakkar
vildu fjalla á breiðari grundvelli
um málefni Afríku allrar og
möguleika á aukinni efnahags- og
hernaðaraðstoð við lönd álfunnar.
Þá er fjallað sérstaklega um á
hvern hátt Vesturlönd eigi að
bregðast við stórauknum afskipt-
um Sovétmanna og Kúbumanna af
málefnum álfunnar.
Leiðtogar innrásarmannanna í
Zaire hafa harðlega fordæmt
ráðstefnuna í París, en hreyfing
þeirra, FNLC, hefur skrifstofu í
Framhald á bls. 30.
Engisprettu-
faraldur í
Eþíópíu
Nairobi. 5. júní. AP.
ENGISPRETTUFARALDUR
herjar nú á nokkrum svæðum
í Eþíópíu og stefnir í stór-
hættu uppskeru í landinu og
bætist þetta við fæðuöflunar-
vandamál Eþíópíumanna sem
voru ærin fyrir. Embættismenn
hafa farið fram á aðstoð
annarra þjóða í baráttunni við
engispretturnar, en stríðið sem
Framhald á bls. 33
Fylkiskosningar í V-í>ýzkalandi:
Frjálsir demókrat-
ar bíða afhroð