Morgunblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
21
Geir þjálfar Armann
Starfa 4 erlendir handknattleiksþjátfarar hér næsta vetur?
HANDKNATTLEIKSDEILDIR félaganna eru nú að huga að
þjálfaramálum sínum og hafa sum þeirra þegar ráðið sér þjálfara.
Geir Hallsteinsson mun þjálfa 2. deildar lið Ármanns næsta tímabil.
Þá hafa FHingar ráðið til sín pólskan þjálfara sem mun væntanlega
hefja störf í ágústlok hjá félaginu.
Ekki er ólíklegt að fleiri erlendir þjálfarar starfi hér næsta
keppnistímabil. Víkingar eru að leita fyrir sér með þjálfara í
Júgóslavíu, Haukar hafa hug á að ná í þjálfara frá A-Þýzkalandi og
er verið að vinna að þeim málum af fullum krafti hvað sem út úr því
kemur. Þá hefur því verið fleygt að Valsmenn séu á höttunum eftir
erlendum þjálfara, en ekki hefur það fengist staðfest.
- Þr.
• Sveinn Sigurbergsson sigurvegari í þotukeppninni sést hér íbygginn
á svip áður en hann leggur í að slá hvíta boltann.
Góöurárangur
hjá Elíasi
í tugþrautinni
FYRSTI hluti meistaramóts íslands
í frjálsum í ípróttum fór fram um
síðustu helgi. Keppt var í tugpraut,
fimmtarpraut kvenna, 10 km hl.,
3000 m hl. kvenna og 4x800 m
boöhl.
Elías Sveinsson KR varö íslands-
meistari í tugþraut, hlaut alls 7382
stig, sem er frábær árangur í fyrstu
þraut sumarsins og þegar þess er
gætt, aö veöur fyrri daginn var
óhagstætt til keppni
Er þessi árangur Elíasar einn sá
besti á Noröurlöndum í ár. Meö sama
áframhaldi er ekki spurning um að
Elíasi takist aö setja nýtt íslenskt met
í sumar. Árangur Elíasar var þessi
(fyrri dag): 100 m hl. 11,0; langstökk
6,34; kúluvarp 13,72; hástökk 1,85;
400 m hl. 51,6. Eftir fyrri dag hafoi
Elías hlotiö 3655 stig. Síöari dagur:
110 m gr.hl. 15,4; kringlukast 45,38;
stangarstökk 4,25; spjótkast 62,52;
1500 m hl. 4,49,3. Siig aiis 7382.
í fimmtarþraut kvenna sigraði Lára
Sveinsdóttir, Ármanni, hlaut 3496
stig. Rut Ólafsdóttir, 14 ára stúlka úr
FH, setti nýtt ísl. telpnamet í
fimmtarþrautinni, hlaut 2538 stig. Rut
er ein efnilegasta frjálsíþróttastúlka
sem fram hefur komið nú á seinni
árum.
Ágúst Þorsteinsson úr Borgarfirði
sigraöi í 10 km hlaupi á 32,17,6 m,
sem er þokkalegasti árangur. Thelma
Björnsdóttir varð íslandsmeistari í
3000 m hl. kvenna á 12,00,4 m.
Úrslit mótsins urðu sem hér segir:
Tugpraut karla: stig
Elías Sveinsson KR 7382
Þráinn Hafsteinss. Ármanni 6868
Pétur Pétursson UÍA 6499
Þorsteinn Þóriss. UMSS 6353
Hafsteinn Jóhannss. UBK 6036
Vésteinn Hafsteinss. HSK 5966
Stefán Hallgrímsson lauk ekki
keppni.
Fimmtarpraut kvenna: stig
Lára Sveinsdóttir Á 3496
iris Grönfeld UMSB 2641
Rut Ólafsdóttir FH 2538
ísl. telpnamet
10 km hlaup karla: m
Ágúst Þorsteinss. UMSB 32,17,6
Gunnar Snorrason UBK 34,18,4
Emil Björnsson UÍA 37,11,2
3000 m hl. kvenna: m
Thelma Björnsdóttir UBK 12,00,4
Hjördís Árnadóttir UMSB 12,32,2
Alfa Jóhannsd. Afture. 12,51,3
4x8 m bodhlaup karla: m
Sveit ÍR 8,51,4
Sveit FH 8,57,5
Sveit UBK 8,59,9
— ÞR.
IB
>
• Björgvin hefur
tvisvar neitað hag-
stæðum tilboðum frá
erlendum félögum en
nú ætlar hann að slá
til.
BJQRGVIM TIL
ÞÝZKALANDS
BJÖRGVIN Björgvinsson, handknattleiksmað-
urinn góðkunni úr Víkingi, hefur ákveðið að
taka tilboði vestur-þýzks handknattleiksliðs og
leika með því næsta vetur a.m.k. Staðfesti
Björgvin þetta í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Félagið sem um ræðir heitir Tv. Gramke og er í Bremen. Félagið
lék í 2. deild s.l. vetur og vann sér þá rétt til þátttöku í 1. deild næsta
tímabil. Er félagið að leita sér að nýjum leikmönnum og hafði það
samband við Axel Axelsson hjá Dankersen og spurðist fyrir um
Björgvin. Leiddi þetta til þess að félagið bauð Björgvini að koma og
dvelja ytra í viku. Er Björgvin nýkominn heim úr þeirri för.
„Mér leist mjög vel á mig og tilboðið, sem þeir gera mér er mjög
hagstætt. Ég hef tvisvar áður neitað góðum tilboðum, fyrst frá
Dankersen og síðan frá austurrísku liði en í þetta sinn ætla ég að
slá til," sagði Björgvin í gær.
Björgvin sagði ennfremur, að hann ætlaði að kynna sér þýzkan
handknattleik, þar sem hann hygðist taka að sér þjálfun þegar hann
legði sjálfur skóna á hilluna.
Björgvin Björgvinsson er 29 ára gamall. Hann leikur nú með
Víkingi en var áður leikmaður með Fram. Björgvin hefur um margra
ára skeið verið fastamaður í landsliði og hann hefur leikið 106
landsleiki fyrir ísland.
- ÞR/SS.
Hörð og jöf n keppni
í Þotumótinu í golf i
HIN árlega þotukeppni í golfi fór fram um
síðustu helgi á vegum golfklúbbsins Keilis í
Hafnarfirði. Keppni þessi gaf stig til landsliðs og
voru flestir bestu kylfingar landsins meðal
keppenda.
Þrátt fyrir afar slæm skilyrði
náðist þokkalegasti árangur í
keppninni. Sigurvegari í keppni án
forgjafar varð Sveinn Sigurbergs-
son, lék 36 holur á 151 höggi og var
hann einu höggi á undan næsta
manni, Hálfdáni Karlssyni. Báðir
eru félagar í Keili. Þeir Magnús
Birgisson, GK, Björgvin Þorsteins-
son, GA og Geir Svansson, GR,
urðu jafnir í þriðja sæti, léku á 155
höggum. I 6. sæti var Óskar
Sæmundsson, GR, á 153 höggum
og í 7. sæti varð Atli Arason á 156,
áttundi varð Sigurður Hafsteins-
son, GR, á 157 höggum, og kempan
Þorbjörn Kjærbo svo níundi á 158
hóggum. í keppni með forgjóf
tókst ekki að skera út um sigur-
vegarann þar sem þrír urðu jafnir
í efsta sæti. Þeir voru Sveinn
Sigurbergsson, GK, Gunnlaugur
H. Jóhannsson, NK, og Magnús
Birgisson, allir á 141 höggi nettó.
Leika þeir því 18 holur aukalega
um þrjú fyrstu sætin.
Úrslit urðu þessii högg
Sveinn Sigurbergss.
Keili 73-78 - 151
Hálfdán Karlss. Keili76-76 -
152 Óskar Sæmundss. GR77-76
- 153
Stig til landsliðs hlutu:
Sveinn Sigurbergss. Keili
Hálfdán Karlss. Keili
Óskar Sæmundsson GR
Magnús Birgisson Keili
Björgvin Þorsteinss. GA
Geir Svansson GR
Atli Arason NK
Sigurður Hafsteinss. GR
Þorbjörn Kjærbo GS
Hannes Eyvindss. GR
33,25
29,75
26,25
19,25
19,25
19,25
12,25
8,75
5,25
1,75
ÞR.
Jens Jensson
til Malmberget
JENS Jensson sem leik-
ið hefur með Fram í
handknattleik hefur til-
kynnt félagaskipti yfir
í sænska liðið
Malmberget.
Hefur Jens í hyggju
að leika handknattleik
og jafnvel knattspyrnu
með félaginu. — Þr
• Elías Sveinsson byrjar keppnistímabilið vel og árangur hans í
tugþrautinni lofar góðu um að hann setji met í sumar í tugþraut.
Mikið um forföll hjá
atvinnumönnum Dana
TVEIR AF atvinnumönnunum, sem léku með danska landsliðinu í knattspyrnu á móti Norðmbnnum
fyrr í sumar er Danir sigruðu 2-1, hafa tilkynnt forföll og koma ekki með liðinu til íslands í sumar.
Þetta eru þeir Morten Olsen, Racing White, og Birger Jensen, FC Brugge. Morten er í fríi og vill
ekki af þeim sbkum leika en Birger ætlar að gifta sig og verður í brúðkaupsferð. Þá er allsendis
ovíst hvort Benny Nielssen, sem leikur með Anderlecht, komi með liðinu. Hans fyrsta tímabil hjá
Anderlecht hefur verið svo erfitt, að hann telur sig þurfa á allri þeirri hvíld að halda sem möguleg
er. Henning Jenssen, sem leikið hefur fyrir Real Madrid, er meiddur í hné og verður því ekki með.
Það er því enn alveg óvíst hverjir af atvinnumönnum Dana leika á Laugardalsvellinum á móti íslandi
28. júní, eftir því sem dönsku blöðin greina frá.
Heimsmet jafnað
í 200m hlaupi
A-ÞÝSKA stúlkan Marita Koch
jafnaöi sitt eigid heimsmet í 200 m
hlaupi á miklu frjálsíÞróttamóti sem
fram fór í A-Berlín um helaina. Koch
hljóp á 22,06 sek.
þá náði Marlies Göhr besta tíma
ársins í 100 m hl., 11,11 sek. í
Bandaríkjunum hafa frjálsíþrótta-
menn ekki setið auðum höndum.
Greg Foster setti nýtt bandarískt met
í 110 m grindahlaupi, hljóp á 13,22
sek. Gamla metið átti Rod Milburn,
13,24. í 1500 m hl. náoist mjög góður
árangur. Steve Scott hljóp á 3,37,58
mín. sem er besti tími sem naost
hefur í ár. Henry Rono hljóp 3000 m
hindrunarhlaup á 8,12,0 mín. þrátt
fyrir aö hann væri slæmur í fæti.
Edwards hljóp 200 m á 20,2. íslenskir
frjálsíþróttamenn erlendis hafa náð
ágætum árangri. Lilja Guðmunds-
dóttir hljóp nýlega 800 m á 2,11,8
mín. Guömundur Guðmundsson
stökk 2,01 m í hástökki og Einar
Guömundsson hljóp 400 m á 50,9
sek.