Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
5
Utflutningur iðnaðarvara
jókst um 42% að áli frátöldu
FYRIR nokkru var haldinn árs-
fundur Útflutningsmiðstöðvar
iðnaðarins og greindi formaður
hennar. Pétur Sæmundsen hanka-
stjóri. frá starfi stofnunarinnar
frá stofnun árið 1971 er hún tók
við starfi Útflutningsskrifstofu
Félags ísl. iðnrekenda er hafði
verið stofnuð árið 1968.
Einnig gat hann um fjárhags-
vandræði stofnunarinnar og sagði
að nokkuð vantaði á að fjármagn
væri fyrir hendi er tryggði
óbreyttan rekstur hennar á þessu
ári. Þá var lögð fram ársskýrsla
framkvæmdastjóra, Úlfs Sigur-
mundssonar, og starfsmenn stofn-
unarinnar fluttu erindi um ýmis
verkefni.
í ársskýrslu Úlfs Sigurmunds-
sonar kemur m.a. fram að árið
1977 var óhagstætt iðnaðinum og
afkoma fyrirtækja versnaði er á
leið. Gengi Bandaríkjadals hækk-
aði t.d. um 12% á árinu em ýmsir
kostnaðarliðir t.d. þeirra fyrir-
tækja er byggja á hráefnum um
40-60%.
Við þessar örðugu aðstæður og
sveíflur, sem iðnaðurinn hefur
mátt búa við, má raunar teljast
merkilegt að útflutningur iðnaðar-
vara hafi aukist. Þannig nam
útflutningur iðnaðarvara án áls
samtals 7.4 milljörðum króna árið
1977, en hafði verið 5.2 milljarðar
árið áður. Aukning í útflutningi
hinna ýmsu iðnaðarvara að áli
undanskildu nam því 42%. Ef ál er
frátalið er ullar- og skinnaiðnaður
langstærstu útflutningsgreinarn-
ar.
Þá gat framkvæmdastjórinn um
útflutning einstakra vöruflokka og
sagði að ullarvöruútflutningur
hefði t.d. aukizt um 30% að magni
til — að mestu í fatnaði og mest
aukning orðið í útflutningi niður-
suðuvara eða úr 963 tonnum árið
’76 í 1702 tonn ’77 eða úr tæpum
600 milljónum í 1206 milljónir.
„Athugavert er,“ sagði Úlfur, „að
af 7.4 milljarða útflutningi án áls
eru 6.7 milljarðar fjórir vöruflokk-
ar sem hafa það sameiginlegt að
byggja á íslenzku hráefni. Þessir
vöruflokkar eru ullarvara, skinna-
vara, niðursuða og kísilgúr."
Þá sagði Úlfur Sigurmundsson
framkvæmdastjóri Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins:
„Til þess að nýta þá möguleika,
sem hafa skapast í helstu við-
skiptalöndum okkar, m.a. vegna
tollfrelsis í Evrópulöndum, er
stóraukið markaðsátak nauðsyn-
legt. Brýnt er, að Útflutningsmið-
stöðinni verði gert betur kleift að
sinna hlutverki sínu með því að
auka fjárráð og mannafla hennar,
sem gera aukna verkaskiptingu og
þar með bætta þjónustu mögu-
lega.“
Drengur
fyrir bíl
DRENGUR á reiðhjóli varð fyrir
bíl á mótum Flókagötu og Þórólfs-
götu í Hafnarfirði síðdegis í gær.
Hann handleggsbrotnaði og hlaut
auk þess minni háttar meiðsli.
Frá ársfundi Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
Tveimur mönnum
bjargaðaf kili
TVEIR menn voru mjög hætt
komnir er seglbát þeirra
hvolfdi úti á Skerjafirði
snemma morguns á Sjömanna-
daginn. Grásleppuveiðimaður
bjargaði mönnunum af kili
seglbátsins á níunda tímanum
þá um morguninn og voru þeir
þá orðnir mjiig hraktir og
kaldir. Mbl. ræddi í ga“r við
grásleppuveiðimanninn. sem
bjargaði mönnunum. Björn
Guðjónsson og son hans Ásgeir.
sem var með honum í bátnum
og tók einnig þátt í björgunar-
aðgerðunum.
„Þetta var nú eiginlega alger
heppni. Ég ætlaði ekkert á sjó
heldur taka það rólega á Sjó-
mannadaginn, en eitthvað dró
mig nú samt af stað og ég fór
út um áttaleytið. Um klukkan
sjö hafði ég séð seglbát sigla út
á fjörðinn, en ég hugsaði nú
ekkert meira um það. Svo
nokkru eftir á ég var lagður af
stað, sá ég einhverja þúst úti á
miðjum firði og tók brátt eftir
því að það hreyfðist eitthvað
ofan á henni. Þá ákvað ég að
kanna þetta nánar og sá þá
hvers kyns var.“
„Þústin var þá kjölurinn á
seglbátnum og hreyfingin sem
ég hafði greint var að annar
mannanna hafði veifað. Þeir
voru mjög kaldir og virtust ekki
geta snúið bátnum á réttan kjöl
og við Ásgeir tókum þá upp í og
eftir að við höfðum hjálpað
þeim við að snúa bátnum, sigldu
þeir rakleitt inn fjörðinn."
„Mennirnir voru í björgunar-
vestum og vel búnir að öðru
leyti. Þetta var bara óhapp, sem
eru ekki óalgeng hérna. Ég held
að þetta hafi verið níundi og
tíundi maðurinn sem ég aðstoða
í einhverjum vandræðum hér
fyrir utan.“
Meðfylgjandi mynd af þeim
feðgum Birni og Ásgeiri, sem
björguðu siglingamönnunum
tveimur, tók Kristján ljósm.
F
A
T
er
tækifærið
Úrval nýlegra bfla
Greiðslukjör við allra hæfi
Bílaskipti — Aldrei meira úrval.
Látið ekki happ úr hendi sleppa, og kaupiö góðan bíl fyrir sumarið.
Opió
laugardag
FIAT EINKAUMBOO A ISLANDI
Davíð Siííurðsson hf.
SÍÐUMULA 35. SÍMAR 85855 — 85571.-