Morgunblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JUNI 1978
Tímamót í Islandssögu
L
Lokaáfangi í
sjálfstæöis-
baráttu
Eitt af Því sem vegur
hvað Þyngst á vogarskál
núverandi ríkisstjórnar,
Þegar störf hennar verða
metin í endað kjörtíma-
bilið er meðferð hennar á
landhelgísmálum. Þau
atriði, sem Þar ber hæst,
eru:
• — 1) Útfærsla fisk-
veiðilögsögunnar í 200
mílur, sem var nokkurs
konar lokaáfangi í sjálf-
stæðisbaráttu Þjóðarinn-
ar til fullra yfirráða yfir
landi og landgrunni.
• — 2) Óslóarsamkomu-
lag, er tryggði viður-
kenningu helztu ad-
stæðinga okkar í haf-
réttarmálum á íslenzkum
yfirráðum og veiðistjórn-
un innan hinnar nýju
fiskveiðilögsögu, um leið
og Þaö batt endi á
Þorskastríö og hugsan-
legar afleiðingar Þeirra.
• — 3) Þetta samkomu-
lag batt enda á aldalanga
veiðisókn Breta og
V-Þjóðverja á íslands-
miðum. Þær lyktir marka
tímamót í íslandssögunni
og uröu stórtækasta fisk-
verndaraögerðin.
• — 4) Sjávarútvegsráð-
herra hefur og beitt sér
fyrir víðtækari fisk-
verndaraðgerðum en
nokkru sinni fyrr í Þjóðar-
sögunni: með tíma-
bundnum og lengri
lokunum veiðisvæða,
tímabundnum veiði-
stöðvunum, Þrengingu
ákvæða um veiðarfæri
(möskvastærðir) og til-
raunaveiðum og vinnslu
lítt nýttra fisktegunda.
Hvergi var Þó gengið
lengra en svo að full
atvinna var tryggð í
sjávarplássum. Og loönu-
veiði á norðurmiðum
færöi ýmsum útgerðar-
stöðum nýjan lífsÞrótt.
• — 5) Með Óslóarsam-
komulaginu vóru brotnir
niður tollmúrar í EBE-
ríkjum (bókun 6) og
íslenzkum iðnaöar- og
sjávarútvegsvörum
tryggður greiðari
aðgangur á Evrópumark-
aði, sem er stórt
Æ:
Matthías Bjarnason.
Lúðvík Jósepsson.
viðskiptalegt hagsmuna-
mál Þjóðarinnar.
Alþýðubanda-
lagiö gegn
200 mílum.
AlÞýöubandalagiö stóð
gegn útfærslu í 200 mílur
meðan Því Þótti stætt á
Þeirri afstöðu. Kunn eru
orð Lúðvík Jósepssonar,
núv. form. flokksins, Þess
efnis að 200 mílna út-
færslan gæti komið ein-
hvern tíma í framtíðinni,
að breyttum alÞjóölegum
hafréttarreglum eða aö
lokinni hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu Þjóð-
anna. Ef peim ráöum
hefði veriö fylgt væru 200
mílurnar enn markmið en
ekki staðreynd.
AlÞýðubandalagið stóð
gegn Óslóarsamkomu-
lagi, sem batt enda á
Þorskastríö, v-Þýzka og
brezka veiðisókn á
íslandsmiðum, tryggði
endanlega viðurkenningu
á íslenzkri veiðistjórn
innan 200 mílnanna og
opnaði íslenzkum út-
flutningsvörum greiöari
leið á Evrópumarkaö.
Þessi andstaða var að
nafninu til byggð á 6
mánaöa samtækum
veiðiheimildum.
Sú tátylla féll undan
fótum Þegar Þess var
gætt, að allir Þingmenn
og ráöherrar AIÞýðu-
bandalagsins greiddu
atkvæði með 2ja ára
veiðiheimildum Breta
innan 50 mílna markanna
1973, Þar sem á annað
hundrað brezkum togur-
um var heimilað að veiða
allt að 130.000 tonn á ári
af Þá Þegar ofveiddum
Þorski, eöa samtals 260
Þús. tonn, án Þess að
nokkur trygging væri fyr-
ir Því, hvað við tæki að
Framhald á bls. 33
Ókeypis fyrir börnin
Fjölskylduparadís sunmrsins
KANARlEYJAR
Vetur, sumar, vor og haust, dagflug á laugardögum - fimmtudögum. Sólskins-
paradís allan ársins hring. Nú fá íslendingar í fyrsta sinn tækifæri til sumarleyfis-
dvalar á Kanaríeyjum. Þúsundir þekkja af eigin reynslu þessar paradísareyjar í
vetrarsól. Aldrei of kalt og aldrei of heitt, þar er sjórinn, sólskiniðogskemmtanalífiö
eins og fólk vill hafa það, (365dagaáári. Góðarbaðstrendur.fjölbreyttskemmtana-
líf. Kanaríeyjar eru fríhöfn með tollfrjálsa verslun. Hægt er að velja um dvöl á
vinsælustu og bestu hótelum og íbúðum á Gran Canariaog Tenerifesvosem: Koka,
Corona Blanca, Corona Roja o.fl. Sunnu skrifstofa með þjálfuðu íslensku starfsfólki
nú opin allan ársins hring.
NÝTT. Vegna hagkvæmra samninga getum vlð í sumar boðið fjölskyldum, ókeypis
ferð með dvöl i ibúð, fyrir öll böm innan 12 ára.
Einnig Sunnuflug til:
MALLORCA dagflug á sunnudögum
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ÍTALÍA dagflug á þriöjudögum
PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum
GRIKKLAND dagflug á þriöjudögum
SUNNA
REYKJAVÍK: BANKASTRÆTI 10 - SÍMl 29322. AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 94 - SÍMI 21835
Tann
ENSKIR
PENINGASKÁPAR
eldtraustir — þjófheldir
heimsþekkt
framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
cSþ Nýborg
Ármúla 23 — Sími 86755
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
barna&fjölskyldu-
Ijösmyndir
AJJSrURSTRCTI 6 SÍMI12644
Tryggðu þér eintak
af bókinni um ^
ERRO
áður en það verður of seint
Bókaklúbbur AB seldi sinn hluta útgáfunnar upp
á svipstundu. Upplag Iceland Review af þessari
sömu bók var takmarkað — og það þrýtur líka fyrr
en varir.
Fæst í bókaverslunum — kostar aðeins kr. 5.940.-.
lcelandReview
Sími 81590 — Stóragerði 27.