Morgunblaðið - 06.06.1978, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
ÞRÓTTUR írá Neskaupstað sótti
ekki kuII í sreipar KR injía er
lióin léku saman á Laugardals-
vellinum á laugardag í 2. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu.
Sigur KR, 4—0. var verðskuldaó-
ur ok helði getað orðið mun
stærri eítir gangi ieiksins. Veður
var ekki knattspyrnumönnunum
haífstætt á lauKardag. úrhellis-
rÍKning var svo til allan tímann
og áttu leikmenn aí þeim sökum
erfitt með að fóta sig á hálum
vellinum. En lítum á gans leiks-
ins.
Fyrri hálfleikur var frekar jafn
fyrstu 15 mínuturnar, en þá tókst
KR-ingum að ná betri tökum á
leiknum þó ekki sé hægt að hrósa
þeim fyrir góða knattspyrnu. Of
mikið var um tilviljunarkenndar
langspyrnur sem framherjarnir
áttu að vinna úr. Það sama var
uppi á teningnum hjá leikmönnun-
um Þróttar. KR-liðið sótti mun
meira og um tíma var um algera
KR-ingar unnu Þrótt-
arana mjög verðskuldað
einstefnu að ræða á mark Þróttara
en þeim tókst þó alltaf að bjarga
sér út úr ógöngunum og koma í veg
fyrir mark. Einu sinni skall þó
hurð nærri hælum er bjargað var
naumlega á línu. „ . ,, ,
Markið la í
loftinu, og á 30. mínútu leiksins
kom fyrsta og eina mark fyrri
hálfleiks. Sverrir hafði gefið inn í
vítateiginn og markvörður Þróttar
sem stóð sig mjög vel í leiknum
kom út á móti en missti af
knettinum. Stefán Örn Sigurðsson
náði boltanum, komst einn innfyr-
ir og var ekki í vandræðum með að
renna knettinum í markið. Var
þetta frekar ódýrt mark, og varð
fyrir slæm mistök í vörn Þróttar.
Staðan í leikhléi var því 1—0.
Leikmennirnir höfðu rétt hafið
síðari hálfleikinn, er KR nær sókn
og Stefán á gott skot, sem bjargað
er á línu, og knötturinn hrekkur út
og fyrir fætur Sigurði Péturssyni
sem spyrnir viðstöðulaust i netið,
2—0. Þetta mark kom á 46. mínútu
leiksins.
Eftir þetta mark dofnaði heldur
yfir leiknum.
Leikmenn Þróttar reyndu að
sækja en gekk frekar illa að ná
skipulögðum samleik og áttu engin
verulega góð markfæri. Upp úr
miðjum síðari hálfleik lifnaði
verulega yfir leiknum og áttu þar
KR-ingar stærri hlut að máli.
Náðu þeir nú sínum besta leik-
kafla og léku oft ágætlega saman.
Þriðja mark leiksins og það
fallegasta kom upp úr þessum
leikkafla. Eftir góðan samleik var
Haukarnir gerðu
góða ferð norður
IIAUKARNIR úr Hafnaríiröi
gerðu góða íerð til Akureyrar á
laugardag þegar þeir sigruðu
Þórsara með tveimur mörkum
gegn engu. Þórsarar hafa komið
mjög á óvart í upphafi mótsins,
vakið athygli fyrir slaka frammi-
stöðu. Það er slakt að lið scm í
fyrra lék í 1. deild skuli aðeins
hafa hlotið þrjú stig eftir fjóra
leiki í 2. deild. Að vísu hafa orðið
miklar mannabreytingar frá í
fyrra. cn langt í frá að um
nokkra nýgræðinga á knatt-
spyrnusviðinu sé að ræða.
Haukar léku í fyrri hálfleiknum
undan nokkurri golu, en þrátt
fyrir það voru Þórsararnir öllu
atkvæðameiri í upphafi, án þess þó
að skapa sér veruleg marktæki-
færi. Það var því í hróplegu
ósamræmi við gang leiksins þegar
Haukarnir skoruðu fyrra mark
sitt. Það var Daníel Gunnarsson
sem skoraði eftir hornspyrnu frá
vinstri. Um miðbik hálfleiksins
juku Haukarnir síðan forystu sína.
Vignir Þorláksson bakvörður,
skaut þá þrumuskoti af um 35
metra færi. Markvörður Þórsgerði
Námskeið
í meðferð
íþróttameiðsla
DAGANA 27.-28. maí var haldið
námskeið í meðferð íþróttameiðsla
á vegum Læknafélags íslands og
íþróttasambands íslands.
Námskeiðið var haldið í Domus
Medica í Reykjavík og sóttu það 30
læknar og sjúkraþjálfarar.
Kennari á námskeiðinu var
norski læknirinn dr. Svein Nilson,
en hann hefur starfað mikið að
málefnum íþróttalæknisfræði í
landi sínu. Dr. Nilson hefur m.a.
skrifað bækur um íþróttir og slys
og meðhöndlun þeirra.
Námskeiðið tókst mjög vel og er
vonandi upphaf skipulegs starfs á
þessu sviði.
þá reginskyssu að reyna að grípa
boltann í stað þess að slá hann yfir
eða framhjá, en mistókst og í netið
lak boltinn.
í síðari hálfleiknum sóttu Þórs-
ararnir stíft, en afar óskynsam-
lega. Byggt var upp á löngum
boltum fram og háum inn í teiginn
sem ýmist höfnuðu fyrir aftan
mark eða strönduðu á Olafi
Jóhannessyni, sem var einn besti
maður vallarins. Nær hefði verið
fyrir Þórsara að reyna að leika1
saman í gegnum vörn Haukanna,
en það var lítt sem ekki reynt og
því fór sem fór. Mark Haukanna
komst þó á tíðum í uppnám,
sérstaklega einu sinni þegar tví-
vegis í sömu andrá var borgið á
línu og þeirri orrahríð lauk með
skoti Jóns Lárussonar í þverslá.
Inn á milli náðu Haukarnir
skyndiupphlaupum, en tókst ekki
að skapa sér færi. Tilþrifalitlum
leik lauk því með sigri Haukanna,
tvö mörk gegn engu.
Sig. G.
• Sigurður
þriðja mark
Indriðason skoraði
KR með skalla.
knötturinn sendur út á kantinn til
Friðriks Þorbjörnssonar sem
brunaði upp að endamörkum og
sendi háan bolta inn í vítateiginn,
þar sem Sigurður Indriðason kom
á fullri ferð og skallaði laglega í
markið. A 85. mínútu leiksins kom
svo lokamarkið.
Vilhjálmur Fredrikssen átti gott
skot, en markvörður Þróttara
missti hálan knöttinn frá sér og
Sverrir Herbertsson, sem fylgdi
fast á eftir, náði knettinum og
skoraði auðveldlega fjórða markið.
Lið KR sigraði mótherja sína
verðskuldað í þessum leik en þrátt
fyrir stóran sigur lék liðið ekki
nægilega vel.
Bestu menn liðsins voru þeir
Guðjón og Ottó svo og Stefán Örn
sem átti góða spretti. Lið Þróttar
náði ekki saman í leiknum, ein-
staklingsframtak var fyrir hendi
svo og ágætis barátta hjá einstaka
leikmönnum, en það dugar
skammt.
Varnarleikurinn var óöruggur á
köflum og of oft voru framlínu-
menn KR-inga óvaldaðir. Liðið
verður að ná betri samleik ætli það
sér að ná langt í deildinni. Bestu
menn liðsins í þessum leik var
markvörður liðsins og Njáll átti
ágætis leikkafla. Þr
r
' '
k ' , * * ' " X %
,
%r ■
. * , • ÖwU
ú v S 'rfícf ' '
,'js : &
W i >/ /
r* , * ■
• Armenningurinn Einar Guðnason nýtti sér grátleg mistök í vörn ÍBl rétt fyrir leikslok og innsiglaði sigur Ármanns, 2i0. Ljósm. RAX
Ármenningar ósigraðir
ARMANN heldur áfram sigurgöngu sinni í 2. deild. Á sunnudaginn
Uigðu Ármenningar ísfirðinga að velli á Laugardalsvellinum og heíur
Ármann þá unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni. í leiknum á
sunnudaginn vann Ármann 2i0 og var það sanngjarn sigur.
Fyrra mark Ármanns kom strax
á fyrstu mínútu. Einar Guðnason,
hinn eldsnöggi framlínumaður
Ármanns, komst þá í gott færi í
vítateig og þegar markvörður
Isfirðinga reyndi að verja tókst
honum ekki betur en svo að hann
felldi Einar og var vítaspyrna
dæmd. Ur spyrnunni skoraði
Þráinn Ásmundsson.
Ármenningarnir voru betri í
fyrri hálfleik og litlu munaði að
Einari tækist að skora en hann
varð aðeins of seinn að ná til
boltans. Isfirðingarnir voru með
slakasta móti og náðu þeir illa
saman úti á vellinum. Þeir fengu
eitt gott færi í f.h. en Finnbjörn
Hermannsson markvörður Ár-
manns bjargaði þá mjög vel.
í seinni hálfleik var leikurinn
jafnari en þó gekk Ármenningum
sem fyrr betur að skapa sér
tækifæri. Á 36. mínútu seinni
hálfleiks skoruðu Ármenningar
seinna mark sitt og innsigluðu
sigurinn. Var markið gjöf eins
varnarmanns ísfirðinga, sem ætl-
aði að gefa boltann til markvarð-
arins en áttaði sig ekki á því að
Einar Guðnason stóð einn og
óvaldaður í teignum. Sendi hann
boltann beint til Einars, sem
þakkaði gott boð og skoraði
framhjá undrandi markverðinum.
Á síðustu mínútu leiksins fengu
ísfirðingar sitt bezta tækifæri er
miðherja þeirra tókst að skalla
boltann yfir þegar mannlaust
markið blasti við.
Sigur Ármanns var sem fyrr
segir verðskuldaður. I liðinu eru
nokkrir ágætir einstaklingar en
einnig áberandi veikleikar. í þess-
um leik voru Finnbjörn markvörð-
ur, Einar Guðnason og Egill
Steinþórsson beztu menn liðsins.
Undirritaður hefur ekki séð ísfirð-
inga i leik fyrr á þessu ári en ef
miðað er við leiki liðsins í fyrra,
sem undirritaður sá, léku þeir nú
langt undir getu. Skaraði enginn
framúr í liði þeirra.
Sævar Frímannsson frá Akur-
eyri dæmdi leikinn og gerði það
mjög vel.
- SS.