Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JUNI 1978
25
I '
á laugardaginn. Hér sést hann skora eitt þriggja marka sinna. Markið
KAPLAKRIKA
boltann til vinstri á Matthías, sem lék
á markvörðinn og sendi góöa send-
ingu fyrir markiö til Péturs í dauða-
færi. Pétur skatlaöi aö markinu og
bakvörðurinn Pálmi Jónsson átti ekki
aöra vörn en slá boltann meö
hendinni. Vítaspyrna var dæmd og úr
henni skoraöi Pétur Pétursson af
öryggi. 6:1
Síöasta markiö kom á 30. mínútu.
Þá komust framlínumenn Akraness í
gegn hægra megin, Matthías fékk
boltann yzt í markteignum, lék
laglega á bakvöröinn og skoraöi meö
þrumuskoti úr mjög þröngri aöstööu.
Friðrik Jónsson, sem kominn var í
markiö fyrir Þorvald Þóröarson, kom
engum vörnum viö. 7:1
Þaö sem eftir var leiksins sóttu
bæði liðin af kappi og fengu FH-ingar
þrjú dauöafæri, Leifur Helgason tvö
og Ólafur Danivalsson eitt en þau
voru öll misnotuð. Við hinn endann
skapaöist eitt sinn mikil hætta og
Matthíasi tókst aö skora eftir aö hafa
fengið boltann frá Pétri Péturssyni en
markið var dæmt af vegna rang-
stöðu.
slök markvarzla varö þeim dýrkeypt
í þessum leik. Janus Guðlaugsson
var sem fyrr bezti maöur liðsins en
Viðar Halldórsson átti einnig góöan
leik.
í STUTTU MÁLI:
Kaplakrikavöllur laugardaginn 3.
júní, Islandsmótið 1. deild, FH-ÍA 1:7
(0:2).
Mark FH: Janus Guölaugsson á 55.
mínútu.
Mörk ÍA: Jón Alfreösson á 12.
mínútu, Matthías Hallgrímsson á
19., 58. og 75. mínútu, Karl Þórðar-
son á 52. mínútu, Jón Áskelsson á
64. mínútu og Pétur Pétursson
(vítaspyrna) á 70. mínútu.
Áminning: Engin.
Ahorfendur: 349.
\
BLIKARNIR NÚ EINIR OG
YFIRGEFNIR Á BOTNINUM
VÍKINGUR vann mikilvægan sigur yfir Breiðabliki úr
Kópavogi á Laugardalsvellinum á sunnudagskvöldið. Bar
leikurinn mjög keim af því, að þarna áttust við tvö lið sem
gengið hefur illa í stigasöfnun undanfarið. Var leikurinn
í stuttu máli ein allsherjar leikleysa frá upphafi til enda,
einkum var þó fyrri hálfleikur slæmur og ofan á þetta allt
bættist, að ýmsir leikmanna virtust hafa meiri áhuga á að
hæfa andstæðinga sína með spörkum sínum en boltann. Og
Rafn Hjaltaiín dómari hefði að ósekju mátt draga gula
spjaldið úr vasa sínum í nokkrum tilvikum.
Fyrsta mark leiksins skor- ekkert fyrr en á 17. mínútu,
aði Gunnar Örn fyrir Víking.
Var það á 15. mínútu og það
fyrsta markverða sem gerðist
inni á vellinum. Hann fékk
knöttinn rétt fyrir utan
vítateiginn og skaut föstu
skoti sem hafnaði neðst í
markhorninu og gerði Sveinn
markvörður vel að vera
nærri því að verja skotið.
Varnarmenn Blikanna voru
þarna sem prúðir áhorfendur
og höfðust ekkert að sem
truflað gæti Gunnar Örn.
Næstu tvö færi áttu Blikarn-
ir, en hvorugt þeirra var gott,
enda skoruðu þeir ekki. A 33.
mínútu tók Gunnar Örn
aukaspyrnu sem endaði
næstum með ósköpum fyrir
Svein markvörð, því að hann
missti boltann klaufalega frá
sér, en sem betur fór fyrir
hann var enginn Víkingur á
næstu grösum. Skömmu síðar
skaut Hinrik Þórhallsson
rétt fram hjá Víkingsmark-
inu og á sömu mínútunni
komst Jóhann Torfason í gott
færi hinum megin, en Sveinn
varði þá meistaralega.
í byrjun síðari hálfleiks
átti Viðar Elíasson þrumu-
skot að Blikamarkinu af
löngu færi, en Sveinn varði
glæsilega og síðan gerðist
en þá náðu Blikarnir sinni
bestu sóknarlotu, sem lauk
með því, að Helgi Helgason
sendi knöttinn fyrir markið
frá vinstri og hinn 17 ára
gamli Benedikt Guðmunds-
son skaut þrumuskoti sem
skall á markvinklinum.
Fjórum mínútum síðar bættu
Víkingar sínu öðru marki við.
Vík. - UBK 3:1
Textii Guómundur
jónsson
Mynds Ravnar Axelsson
Jóhann Torfason sendi góða
stungusendingu inn fyrir
vörn Blikanna á Arnór
Guðjohnsen sem lék á Svein
í markinu og skoraði örugg-
lega. Fallegt mark. Og enn
fjórum mínútum síðar voru
Blikarnir skyndilega komnir
inn í dæmið á ný, er Jón Orri
Guðmundsson skoraði eftir
fyrirgjöf Vignis Baldursson-
ar, en Diðrik var klaufi að
koma ekki í veg fyrir markið.
Síðasta stundarfjórðunginn
sóttu Blikarnir ákaft, en án
árangurs og það eina sem
I
þeir höfðu upp úr því, var að
á síðustu mínútunni lék
Helgi Helgason Víkingur upp
vinstra megin, gaf fyrir þar
sem Arnór var í góðu færi,
Sveinn varði vel skot hans, en
knötturinn hrökk til Óskars
Tómassonar sem renndi
honum aftur til Arnórs sem
þakkaði fyrir að fá annað
tækifæri og skoraði nú af
öryggi af stuttu færi, 3—1, og
Blikarnir steindauðir.
Víkingarnir léku sinn
venjulega „pumpufótbolta"
og virðast þeir ekki kunna
annað en að þruma knettin-
um fram þar sem þeir Arnór
og Jóhann eiga síðan að elta.
Er hætt við að betri lið en
UBK muni sigrast léttilega á
þeim vanda er slík knatt-
spyrna skapar. Arnór verður
þó ávallt erfiður, en hann var
langfrískasti Víkingurinn í
leiknum.
Blikarnir voru hvorki fugl
né fiskur og eins og þeir léku
á sunnudaginn, mega þeir
teljast heppnir að þeir voru
ekki að glíma við sterka
framlínu. Eini maðurinn sem
reis upp úr meðalmennsk-
unni í þeirra herbúðum var
markvörðurinn Sveinn
Skúlason.
í stuttu málii
Laugardalsvöllur 4. júní, 1.
deild Víkingur — UBKi 3—1
(1-0)
Mörk Víkings. Gunnar Orn
Kristinsson á 15. mín. og Arnór
Guðjohnsen á 67. og 90. mínútu.
Mark UBK. Jón Orri
Guðmundsson á 70. mínútu.
Áminning. Engin.
Áhorfendur. 656.
Liöin
Akurnesingarnir spiluöu oft á
tíðum mjög góöa knattspyrnu þrátt
fyrir að völlurinn væri glerháll og
erfiður og ekki verður annað sagt en
framlínumennirnir hafi unnið vel úr
þeim sendingum, sem þeir fengu.
Liðið var mjög jafnt að þessu sinni
og allir leikmennirnir áttu þátt í
þessum stóra sigri. Þó skaraöi einn
leikmaður framúr eins og svo oft
áður, Karl Þóröarson. Hann var
maðurinn bak við flestar sóknarlotur
liösins og hann kom við sögu í
flestöllum mörkunum. Jón Þor-
björnsson var mjög traustur í mark-
inu að vanda, Árni Sveinsson virkur
í spilinu, Jón Gunnlaugsson traust-
astur í vörninni og í framlínunni unnu
Pétur og Matthías mjög vel og
Matthías var auk þess með skot-
skóna meðferðis að þessu sinni.
Guðbjörn Tryggvason og Jóhannes
Guðjónsson komu inn á sem vara-
menn og stóðu sig mjög vel. Mun
Jóhannes án efa styrkja vörn liösins.
FH-ingarnir léku oft vel saman úti
á vellinum en slæm varnarmistök og
rr -v
->
' • r- ■£ ■
. fV; r-r-1
r-
%
.
~ 'í.'
m-- 'Sfi iUs'S . \
■ ■
• 'M:
í
ts
4
-Spílf
-
~> - -L
r'*« -• 7 , \•' ■ VÁÚl- T..'* ” —
• Þriðja mark Víkings á lokamínútunni. Arnór Guðjohnsen skorar auðveldlega. enda liggur Sveinn Skúlason markvörður UBK eftir að
hafa varið annað skot augnabliki áður. Hannes Lárusson er hinn Víkingurinn á myndinni, en Blikinn með angistarsvipinn er Ólafur
Friðriksson.