Morgunblaðið - 06.06.1978, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
RENSENBRINK HEFUR LIT-
IÐ ÁLIT Á ERNST HAPPEL
í BLAÐINU Politikcn birtist fyrir skömmu mcrkileK grcin ásamt
viðtali við hollcnska knattspyrnumanninn Rob Renscnbrink sem
talinn cr mcðal bcstu leikmanna hcims í dag og í fyrsta leik
Ihdlendinga á IIM. skoraði hann þrennu Kcjín íran. Ilér fara á cftir
úrdrættir úr fyrrncfndu viðtali og grein.
Potturinn og pannan í leik
hollenska landsliðsins undan-
farin ár hefur verið knatt-
spyrnusnillingurinn Johan
Cruvff, en nú hefur hann dregið
sig í hlé þrátt fyrir fjölda
áskorana og verða Hollendingar
því að legjýa forinjyahlutverkið
á axlir nýs leikmanns. Ernst
Happel ætlaði Wim Van
Hanegem hlutverkið, en sá
þreyttist á ofríki Happeis og dró
sig út úr landsliðshópnum.
Aðstoðarmaður Happels, Jan
Schwartkruis, hafði
Rensenbrink í sigtinu og féllst
Happel að lokum á það.
„Holland á enga möguleika án
Johans Cruyff," segja efasemda-
menn, en Johan Neeskens, félagi
Cruyff hjá Barcelona, er á
annarri skoðun, hann segir:
„Auðvitað er það mikið áfall
fyrir liðið að Cruyff skuli ekki
vera með, en fyrir vikið verður
mikil byrði lögð á axlir Rensen-
brinks og hann er nógu góður
knattspyrnumaður til þess að
bera þá byrði."
Duncan McKenzie sem nú
iéikur með Everton, en lék áður
um skeið við hlið Rensenbrinks
í liði Anderlecht, er einn af
efasemdarmönnunum, hann
segir: „Rensenbrink er húðlatur
og kúrir venjulega í einhverju
skúmaskoti og bíður eftir að
knötturinn komi til hans. Hann
hefur ekki sömu yfirferð og
Johan Cruyff og getur því ekki
tekið stöðu hans nema að
hugarfarsbreyting komi til.“
Sjálfur segir Rensenbrink að
hann sé bjartsýnn á útkomuna,
ef hann hljóti stuðning félaga
sinna í landsliðinu. Og Rensen-
brink heldur áfram: „Annars
dreymir mig ekki lengur um
HM-titil í knattspyrnu, sá
draumur brást hinn 7. júlí 1974
er við töpuðum fyrir
Vestur-Þjóðverjum 1-2. Þegar
við hlupum inn á Olympíuleik-
vanginn fannst mér það vera
hápunktur lífs míns og við
vorum allir vongóðir um sigur.
Þegar leiknum var lokið var
hins vegar komið annað hljóð í
strokkinn og ég ákvað þá að
leika aldrei aftur í HM-keppni.
Það kom einkum til af tvennu,
í fyrsta lagi hafði ég ekki áhuga
á að verða fyrir öðrum eins
vonbrigðum í bráð og í öðru lagi
reiknaði ég ekki með að verða
valinn aftur i liðið eftir 4 ár. En
ég má breyta um skoðun eins og
aðrir.“
Viðtalið heldur áfram og m.a.
ræðir Rensenbrink um þá skoð-
un sína og fleiri að stjórnmál
séu komin fram úr hófi með
fingurna í knattspyrnuna og
hann er persónulega á móti
Argentínu sem vettvangi fyrir
mótshald af þessu tagi. Og við
látum Robbie Rensenbrink Ijúka
þessari grein með áliti sínu á
Ernst Happel, þjálfara hol-
lenska liðsins, og framtíðar-
áformum sínum: „Það versta við
HM-keppnina, var að þurfa að
eyða sex vikum fyrir keppnina í
æfingabúðum með Ernst
Happel. Þegar jafn óþolandi
persónuleiki og maður með jafn
neikvæðar skoðanir á knatt-
spyrnu fer að ná árangri, sviptir
það mann drjúgu af þeirri ást
sem maður hefur á íþróttinrji.
Hann er bjáni og tilfinningalaus
einræðisherra. Eg vona einungis
að hann leyfi mér að leika
óbundinn við einhver varnar-
kerfi, því að slíkt á ekki við mig
og ég óttast hverjar afleiðing-
arnar kunna að verða. Eg vil
eins og hann gjarnan vinna, en
ekki með því að beita öllum
brögðum, ég er fyrst og fremst
maður sem lifir fyrir það að
leika knattspyrnu, en ekki eitt-
hvert vélmenni sem fer í gang sé
settur í það tíkall."
„Ég vonast til þess að ljúka
ferli mínum með félagi í Banda-
ríkjunum og er Cosmos efst á
blaði. Ég hef heyrt því fleygt að
möguleiki sé á því að græða
tvær milljónir dala á ári og ef
tilboð berst mér verð ég fljótur
að panta mé% flugfar, því get
ég lofað.“
• ♦
v.#'
• Robbie Rcnsenbrink —
Verður hann arftaki Johans
Cruyff?
TAP Skota gegn Perúmönnum
var í mcira lagi óvænt og er að
vonum lítil glcði í hcrhúðum
Skotanna. Ali McCleod, þjálfari
Skota, sagði cftir leikinn að hans
mcnn hcfðu Icikið mjög vel fyrsta
stundarf jórðunginn og hann
skildi ekkert í því hvers vegna
leikur liðsins hrundi eins og
hann gerði. Það yrði þó ekki af
Perúmönnum skafið, að þeir
hefðu leikið mjög vel og átt hrós
skilið fyrir.
Calderon, þjálfari Perúmanna,
sagði einfaldlega, að sigur þeirra
hefði verið sigur tæknilegs fót-
bolta yfir kerfisbundnum krafta-
fótbolta. Þá lofaði Calderon mjög
markvörð sinn, einkum fyrir að
verja vítaspyrnu frá Don Masson
í síðari hálfleik. „Við unnum
leikinn þegar Quiroga varði vítið,"
sagði Calderon.
Hollendingar voru ekki ánægðir
með leik sinn gegn Irönum. Eftir
leikinn fullyrtu þeir, að undir
eðlilegum kringumstæðum hefðu
þeir hrúgað inn mörkum, en
völlurinn var eins og svampur og
kom það niður á leik þeirra. Það
var einkum þjálfarinn Ernst
Happel sem lét þessi orð falla en
fyrirliðinn Ruud Krol tók einnig í
sama streng. Það er engu líkara en
Gaman væri að skora
marksegir Nordqvist
EINN clsti lcikmaður IIM-keppn-
innar í Argcntínu er Svíinn
Björn Nordqvist sem lék sinn
109. landslcik á móti Brasilíu á
laugardag og setti þar með nýtt
landsleikjamet. Gamla metið átti
enski íeikmaðurinn Bobby
M(K>re, 108. leikir. Ekki fékk
Björn neinar gjafir fyrir leikinn
eða að honum væri sýndur
einhver sérstakur sómi.
— Það er ekki vegna þess að við
séum eigingjarnir, heidur að hann
hefur ekkert gaman af slíku, sagði
sænski landsliðsþjálfarinn Aby
Eriksson. Leikurinn var honum
mikilvægari en nokkrum öðrum í
liðinu. Björn hefur verið í iands-
liðinu í 14 ár samfellt, og um tíma
var hann í atvinnumennsku í
Hollandi þar sem hann lék með
hollenska liðinu PSV Eindhoven.
— Það var ánægjulegt að þetta
verður í HM-keppni, sagði Björn.
Þetta er þriðja HM-keppnin sem
hann tekur þátt í. Hann hefur
leikið á móti stjörnum eins og
Eusebio, Gerd Múller og Cruyff
— Það er alltaf hætta á feröum ef
Múller er með knöttinn, segir
Björn og bætir því við, að enginn
sé jafn mikill listamaður með
knöttinn og Cruyff.
Nordqvist leikur miðframvörð í
liði Svía og stjórnar varnarleikn-
um, og þykir hano gera það mjög
vel. — Hann hefur mjög glöggt
auga fyrir því hvað er að gerast
á vellinum, og áttar sig fljótt á
sóknaraðgerðum andstæðinganna,
segir Aby þþjálfari. Að því leyti
minnir hann á Bobby Moore.
Hvert skyldi svo vera hans næsta
takmark? Jú, hann langar til að
skora mark í landsleik.
En það er ekki auðvelt fyrir
varnarleikmenn. — Máske fæ ég
eð taka vítaspyrnu eða auka-
spyrnu sem gefur möguleika á
marki, segir Björn og brosir.
• Á Þessari mynd sést formaöur
sænska knattspyrnusambands-
ins Tore Brodd afhenda Birni
Nordqvist blómvönd er hann lék
sinn 108. landsleik.
að slæmum velli sé alltaf um
kennt er Hollendingar leika illa,
en skemmst er að minnast þess er
þeir unnu naumlega hér á Laugar-
dalsvellinum eigi alls fyrir löngu
og voru fljótir að kenna vellinum
um.
Þjálfari írana, Moherjani, var
bitur og sagði að síðari vítaspyrn-
an hefði aldrei átt að dæmast og
lið hans væri mun sterkara en
fram kom í leiknum.
Túnisbúar eru í skýjunum eftir
óvæntan sigur liðsins gegn Mexíkó
og þeir ætla sér ekkert annað en
sigur gegn Pólverjum í dag.
Þjálfari þeirra, Chetali, sagði að
ef Pólverjar og Vestur-Þjóðverjar
lékju gegn þeim eins og þeir léku
í opnunarleiknum, væru Túnisbú-
ar þegar bókaðir í milliriðil.
Þjálfari Brasilíu, Coutinou,
sagði eftir jafnteflið gegn Svíþjóð,
að ýmsir af leikmönnum hans
hefðu verið fram úr hófi tauga-
óstyrkir, en Svíar hafi hins vegar
leikið eins og hann bjóst við, þ.e.
sterkir í vörn og snarir í skyndi-
sóknum. „Svíar verða öllum erfið-
ir,“ sagði Coutinou að lokum.
George Ericson sagði um sama
leik, að jafntefli hefði verið
sanngjörn úrslit og hann vildi
hrósa velska dómaranum Clive
Thomas fyrir frammistöðuna, en
Thomas dæmdi mark af Brasilíu-
mönnum, er þeir skoruðu augna-
bliki áður en að lokaflautan gall
við. Er sagt, að einhver óvinsæl-
asti maður í Brasilíu sé nú
leikmaðurinn sem hornspyrnuna
tók, sem markið var skorað úr.
Var hann að sögn óeðlilega lengi
að stilla knettinum upp.
Lyfja-
hneyksli
á HM
FYRIR hvern leik sem fram fer á HM
eru tveir leikmenn úr hverju liði teknir
til sérstakrar meðferðar og gengið úr
skugga um hvort einhver lyf hafi verið
innbyrt. Þetta var einnig gert fyrir leik
Skota og Perú eins og vera ber og
voru þeir Ken Dalglish og Willie
Johnston látnir ganga fram fyrir hönd
Skota.
Það reyndist allt vera í himnalagi
með Dalglish, en öðru máli gegndi
um Johnston og kom í Ijós að hann
hafði eitthvaö veriö að þefa úr lyfjum.
Hófst nú umfangsmikil rannsókn á
vegum FIFA og voru m.a. gerðar
frekar tilraunir á kappanum. Sögöu
Skotar í fyrstu, að Johnston þjáöist
af ofnæmi og hefði hann líklega tekið
eitthvað inn gegn því. Síðar viður-
kenndi Johnston þó að hafa tekiö inn
tvenns konar örvandi lyf og var hann
þá samstundis dæmdur frá allri
frekari keppni á HM og sendur heim
með næstu vél. Þarf ekki aö fjölyrða
um þaö hversu gífurlegt áfall þetta er
fyrir Skota, sem nýverið steinlágu í
sínum fyrsta leik gegn Perú.
„Ég skil ekki af hverju
leikur liðsins hrundi"
sagði Ali McCleod einvaldur skoska liðsins
HM
í
K
N
A
T
T
S
P
Y
R
N
U
,‘:?r,»-Ti
(Fvitiev )=ei-)KiA,(o
S>'60ic. ? EIOC-V
SE M
T*F=vÆ>o- PYe'lC
^-VUue. 'i íx-tya. -
LjfSKMÍMIiSOTVAOO t-\.
MAWCVáecxOR-
r^'aKT-rXsHÍu
Mo2r=ie •>,
TV&IH
150Í-TUH ‘l
Fer Keegan
til Barcelona?
NÚ GENGUR sú saga fjöllum
hærra, að Kevin Keegan, fótbolta-
maðurinn góðkunni, muni senn
fara til Barcelona fyrir gífurlega
peningaupphæð. Keegan hefur
viðurkennt, að Rinus Michels,
þjálfari Barcelona, hafi talað við
sig um hugsanlegan samning og
hafa svimandi tölur eins og
3600000 dalir verið nefnd í því
sambandi, upphæð sem myndi
gera Keegan að larigdýrasta leik-
manni í heimi. Samningur Keeg-
ans hjá Hamburger rennur út eftir
eitt ár og segir Keegan að hann
muni að öllum líkindum virða
samning sinn, en eftir ár væri
hann sannarlega til umræðu um
Spánardvöl. Þá er það spurningin
hvort Barcelona hefur enn áhuga.
%
jti
Met hjá
Suurbier
HOLLENSKI leikmaðurinn Wim
Suurbier setti áreiðanlega ein-
hvers konar met er hann fór í
lyfjapróf fyrir leik Hollands gegn
íran. Einn þáttur lyfjaprófsins er
skoðun á þvagsýnum, en það tók
Suurbier 255 mínútur að fylla tvö
Iítil tilraunaglös af þvagi og var
hann þó þambandi gosdrykki, bjór
og líkjör allan tímann.
■—t
O'bítdíscAVAE-
Lfi’iKA Af=
«t)ÍLL(5
„ssæsss^
AFive. iA MÍY,
FYKIK,-jé.KKoKJ.
65./"