Morgunblaðið - 06.06.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978
Skipstjórinn á Rainbow Warrior:
Hefjum vart
aðgerðir fyrr
en á morgun
„VIÐ komum á miðin hér vestur
af íslandi í nótt og ætlum að taka
lífinu með ró næstu tvo datíana.
bæði ætlum við að hvfla okkur
eftir sijílinKuna frá Iljaltlandi og
cins að reyna allan okkar húnað,
þannig að við hefjum vart aðgerð-
ir fyrr cn á miðvikudag,“ sagði
skipstjórinn á Rainbow Warrior
í samtali við Mortcunhlaðið í gær,
en þá var skip Greenpeace sam-
takanna statt 10 mflur suður af
Snæfellsjökli.
„Því miður höfum við ekki séð
neinn hvalbátinn enn, en hins
vegar höfum við séð marga hvali,“
bætti skipstjórinn við. Hann var
þá spurður hvort ekki væri gnægð
af hvölum við ísland." Það teljum
við ekki og við hefjum aðgerðir
eftir 1—2 sólarhringa."
Hjá Hval h.f. í Hvalfirði fékk
Morgunblaðið það upplýst, að nú
væru komnir 24 hvalir á land. 19
Eldingu laust
nidur í kylfínga
Lnndon 5. júní lieuter.
NÍU MANNS, þar á meðal sex
kylfingar. voru fluttir á sjúkra-
hús f dag eftir að eldingu laust
niður á golfvelli. Einn hinna
slösuðu var sagður alvarlega
sa'rður eftir. betta gerðist
skammt frá Birmingham.
— Vinstri
stjórnin
Framhald af bls. 3.
uppi. að með málefnasamn-
ingnum hefur ríkisstjórnin í
þessum efnum markað sér
ákveðna stefnu. Ilún hefur sagt
það skýrt og skorinort, að hún
ætli að láta varnarliðið hvcrfa
frá íslandi í áföngum. bað er
hcnnar stefna. Hverjir þeir
áfangar eru eða verða, cr ekki
markað f málefnasamningnum.
En hitt gefur auga leið. að ef
það cr ekki lcngur grundvöllur
til þess að koma fram þessari
stefnu á skemmri eða lengri
tíma. þá cr grundvöllurinn
fyrir þessari ríkisstjórn hrun-
inn.“
Tillaga um uppsögn
í þessari sömu ræðu vék
Ólafur Jóhannesson að því, hvað
gerast mundi, ef vinstri stjórnin
næði ekki samkomulagi við
Bandaríkjastjórn um þá endur-
skoðun varnarsamningsins, að
varnarliðið hyrfi af landi brott
í áföngum og sagði:
„Ég hef sagt það áður, að ég
muni telja mér skylt skv.
málefnasamningnum að leggja
fyrir Alþingi tillögu um heimild
til þess að segja varnarsamn-
ingnum upp, ef ekki næst með
endurskoðun á honum viðunandi
lausn og við það mun ég að
sjálfsögðu standa."
Ummæli Einars
Ágústssonar
Þetta voru ummæli Ólafs
Jóhannessonar þáverandi for-
sætisráðherra vorið 1974. I
viðtali, sem birtist í blaðinu
„Reykjavík" sem ungir Fram-
sóknarmenn gáfu út fyrir borg-
arstjórnarkosningar fjallar Ein-
ar Agústsson utanríkisráðherra
um þessi mál og segir m.a. að
Framsóknarmenn hafi „beygt
sig fyrir“ þeim vilja Sjálfstæðis-
manna, að varnarliðið yrði
áfram. Utanríkisráðherra segir:
„Við vorum kannski nokkuð
seinir með þetta, en eins og þú
veist er ákvæði í varnarsamn-
langreyðar og 5 búrhvalir, og var
sagt að hvalveiðarnar hefðu geng-
ið mjög vel, það sem af væri. Þeir
hjá Hval vilja nú ekki gefa upp
hvar hvalbátarnir halda sig og
segja að þögnin muni hjálpa þeim
bezt, vildu því ekki gefa aðrar
upplýsingar um bátana.
Margar erlendar fréttastofnanir
hafa mikinn áhuga á aðgerðum
Greenpeace á Islandsmiðum. Nú er
t.d. komin írsk skúta til Reykja-
víkur, sem belgíska sjónvarpið
hefur tekið á leigu um þriggja
vikna skeið. Á skútan, sem heitir
Spirit of Labrador, og er 75 feta
löng eða tæpar 40 rúmlestir, að
fylgjast með mótmælaaðgerðum
Rainbow Warrior næstu vikurnar
og ætlun belgíska sjónvarpsins er
að gera sérstaka þætti um mót-
mælaaðgerðirnar. Ganghraði
skútunnar er 9 sjómílur fyrir eigin
vélarafli, en þegar öll segl eru
komin upp gengur hún 12—14
ingnum við Bandaríkin um 6
mánaða uppsagnarfrest og við
vorum búnir að nota hann
kjörtímabilið varð bara 3 ár, en
ekki 4 eins og við höfðum
reiknað með. Auðvitað má segja
að við höfum verið svifaseinir,
sem var m.a. vegna þess algjöra
forgangs sem landhelgismálið
hafði á þessum tíma. Við vorum
þó komnir það langt. að við
vorum búnir að nota sex-mán-
aða frestinn, búnir að leggja
fram okkar tillögur um tilhög-
un á vissri aðstoðu fyrir NATO
eða Bandaríkin, sem miðuðust
við að ísland væri áfram í
NATO. í málefnasáttmála ríkis-
stjórnar Ólafs Jóhannessonar,
sem alþýðubandalagsmenn
stóðu að, var þetta tekið fram
orðrétt: „Að óbreyttum aðstæð-
um skal ísland halda áfram að
vera aðili að NATO.“ Eftir
kosningarnar 1974, reyndi Ólaf-
ur Jóhannesson eins og kostur
var að koma á stjórnarsamstarfi
með fyrrverandi stjórnarflokk-
um og bæta Alþýðuflokknum
við, því það var nauðsynlegt til
að þingmeirihluti næðist.
Þessar stjórnarmyndunarvið-
ræður strönduðu fyrst og fremst
á óeiningu Alþýðuflokksins og
Alþýðubandalagsins. Það er
alveg sama hvað menn segja nú
eftir á. Svona var þetta. Þegar
málum var þannig komið stóð-
um við frammi fyrir því að
annað hvort yrði landið stjórn-
laust eða við yrðum að ganga til
samstarfs við Sjálfstæðisflokk-
inn og það varð ofan á í
þingflokki Framsóknarflokks-
ins. Sjálfstæðismenn höfðu að
miklu leyti háð kosningabarátt-
una með skírskotun til varnar-
málanna og margir úr röðum
flokksins höfðu beitt sér fyrir
undirskriftasöfnun í nafni sam-
takanna Varið land. Og frá
sjónarhorni Sjálfstæðismanna
kom það ekki til mála að fyrri
stefnu í hermálinu yrði fylgt
fram og við beygðum okkur
fyrir þessu. í staðinn reyndum
við að fá fram lagfæringar á
sambúðinni við herinn. Þær
lagfæringar fólust m.a. í því að
hætta þessu samkrulli sem
hefur viðgengist á Keflavíkur-
flugvelli allt of lengi að almennt
flug og herflug er þarna hvað
innan um annað og við erum
þarna í næsta nágrenni við
hernaðartæki þegar við förum
um völlinn. Þessum aðskilnaði
miðar nokkuð vel áfram og ég
held að allir geti verið sammála
um það að stuðla að þessum
aðskilnaði meðan ekki er meiri-
hluti fyrir því á þingi að herinn
fari.
Seglskútan Spirit of Labrador
fylgir Rainbow Warrior eftir á
Islandsmiðum á vegum belgíska
sjónvarpsins.
sjómílur. I áhöfn skútunnar eru 5
manns.
„Við höfum engan sérstakan
áhuga á þessum togara. Hann þarf
að gera eitthvað af sér til að
komast á blað hjá okkur," sagði
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar, er Mbl. spurði
hann í gær um komu Rainbow
Warrior á Islandsmið.
„Að sjálfsögðu kemur hann inn
í heildarmyndina hjá okkur ein og
öll erlend skip hér við land en við
eltumst ekkert sérstaklega við
hann,“ sagði Pétur.
— Slysavarnar-
félagið
Framhald af bls. 19
geta sagt af sjósóknarárum sínum.
„Ég held ég sé ekkert að blása það
út, þótt ég hafi veriö heppinn í lífinu
og sloppið viö stóráföll. Ég byrjaði 14
ára, þá voru bátarnir opnir og skjól
lítið. Síðan var ég á togurum eftir
1940. Mér líst vel á þá þróun sem
orðið hefur þar. Ég hef aö vísu aldrei
komiö um borð í skuttogara, þó að
mér hafi verið boöiö það, en þaö er
auðvitað mikill munur aö þurfa ekki
aö standa í göngum og standa af sér
sjóganginn jafnhliöa því sem unnið
er.“
Guðmundur kvaðst hafa ákveðið
fátt varðandi það, hvað hann gerði er
hann hætti störfum hjá Ríkisskip.
„Nú er verið að stokka upp lífeyris-
sjóðskerfið og reyna að fá lífeyrinn
verðtryggðan. Ég er nú reyndar
búinn að borga meira í lífeyrissjóö en
ég á að borga, en auk þess hefur mér
til dæmis boðist að vinna á netaverk-
stæði hjá kunningja mínum. Og ég
tók reyndar eitt áriö meirapróf á bíl
og gæti svo sem hugsaö mér að
starfa við slíkt. Nú, reyndar hitti ég
eitt sinn Alfreð Elíasson forstjóra
Flugleiöa og spuröi hann svona í gríni
um starf. Hann sagði að ég gæti
áreiöanlega starfað þar, jafnvel viö
að keyra hjólbörur."
Guðmundur Eyjólfsson er kvæntur
Matthildi Björgu Matthíasdóttur og
eiga þau fjögur uppkomin börn.
— Fanney
Framhald af bls. 2
mb Fanney ÞH 130, en bátur þessi
er farandgripur veittur fyrir
hæsta skiptaverð á innlögðum
bolfiski sl. ár og var það 73,70 kr.
á kíló hjá Fanney. Næstir komu
Kristbjörg og Aron.
Síðan fóru fram ýmsar íþróttir
og leikir og endað var með
dansleik í báðum sölum félags-
heimilsins. Stjórnandi og kynnir
dagsins var Kristján Ásgeirsson.
Fréttaritari
— Frægur
Framhald af bls. 48
iðnaðardeildarinnar einni og
hálfri milljón dollara, sem er
jafnvirði 388,5 milljóna króna, en
gagnstefnuupphæð Kinetic
Fashion nemur tveimur milljón-
um dollara. sem er jafnvirði 518
milljóna króna.
Bergþór Konráðsson hjá
iðnaðardeild Sambandsins sagði,
að málaferlin væru tilkomin vegna
viðskipta á síðasta ári. Kinetic
Fashion hefði þá keypt vörur af
iðnaðardeildinni fyrir um 250.000
dollara, sem • eru jafnvirði 64,7
milljóna króna. Þessa upphæð
hefði fyrirtækið ekki greitt og því
hefði iðnaðardeildin stefnt fyrir-
tækinu. Þá hefði Kinetic Fashion
gagnstefnt iðnaðardeildinni vegna
ófullnægjandi afgreiðslu, þar sem
í fyrstu hefði verið rætt um miklu
meira magn en síðan var selt.
Um það, hvernig upphæðir
málaferlanna væru tilkomnar
sagði Bergþór, að svo virtist sem
í Bandaríkjunum væri ekki farið í
mál upp á minni upphæð en
milljón dollara. „,Og við höfum
tekið mið af því.“
r
— I málaferlum
Framhald af bls. 2
til þess að komast á staði, sem
erfitt er að ná til, t.d. að
hreiðrum. Voru þeir með í
bílnum kaðla og sigbúnað,
stengur með lykkju á endanum,
sem fróðir menn segja að notuð
sé til að krækja í fálkaunga úr
hreiðrum og ennfremur búnað
til þess að halda eggjum heitum.
Lögreglan lagði hald á þennan
búnað en feðgarnir fengu bíl
sinn á laugardag. Þeir eiga
pantað far til útlanda á mið-
vikudag.
Eins og menn eflaust muna,
fundust nokkrir fálkaungar i
kassa á salerni flugstöðvarinnar
í Keflavík vorið 1976. Var ljóst
að fálkaveiðimenn höfðu ætlað
að koma ungunum úr landi en
orðið að skilja þá eftir í
flugstöðinni. Við athuganir á
farþegalistum kom í Ijós, að
þennan sama dag hafði fyrr-
nefndur Konrad Ciesielski farið
af landi brott ásamt konu sinni
og var talið víst að þau hjónin
hefðu ætlað að smygla ungunum
úr landi.
— Starfsfolkið
Framhald af bls. 2
c) Sú nefnd bæjarfulltrúa, sem
rætt hefur við deiluaðila, haldi
áfram störfum fyrst um sinn og
haldi fundi með þeim aðilum, sem
hún hefur þegar rætt við og gefi
síðan öðrum bæjarfulltrúum yfir-
lit um gang þessara mála.
d) Tekin verði upp hreyfanleiki
starfsfólks við eftirlitsstörf í
frystihúsinu.
e) Bæjarfulltrúar eru að sjálf-
sögðu ávallt reiðubúnir til við-
ræðna við starfsfólk, fulltrúa þess
og verkalýðshreyfinguna um allt,
sem snertir hag Bæjarútgerðar-
innar og samskipti og upplýsinga-
miðlun milli þessara aðila.
Með skírskotun til þess, sem að
framan greinir, fara allir bæjar-
fulltrúar þess eindregið á leit við
starfsfólk fiskiðjuversins, að það
hefji störf sín að nýju í trausti
þess, að framangreindar ráðstaf-
anir nái tilætluðum árangri.
Undir þessa sáttatillögu skrif-
uðu allir bæjarfulltrúarnir, 11 að
tölu, en eins og áður segir felldi
starfsfólkið tillöguna með 68
atkvæðum gegn 43.
Guðríður Elíasdóttir, formaður
Verkakvennafélagsins Framtíðar-
innar í Hafnarfirði, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að um-
ræddir verkstjórar, sem væru
tveir, hefðu hafið störf um áramót
eða rétt fyrir áramót. Komu þeir
að fyrirtækinu í óeðlilegu ástandi,
eftir að sagt hefði verið upp
verkstjóra, sem unnið hafði í
Bæjarútgerðinni um margra ára
skeið. Var allri vinnutilhögun í
fiskiðjuverinu breytt og komið á
bónuskerfi. Sagði Guðríður að
verkstjórarnir hefðu komið leiðin-
lega fram við starfsfólkiðog hefðu
þeir lagt þar ákveðið fólk í einelti
lengi, t.d. konu, sem þeir ákváðu að
færa til í starfi og sauð þá upp úr
meðal starfsfólksins.
„Við teljum, forystumenn verka-
lýðsfélaganna," sagði Guðríður,
„að þarna sé ekki-nema ein lausn
til, og það er að mennirnir séu
látnir fara.“ Nauðsynlegt sé á
slíkum vinnustað að gott and-
rúmsloft ríki milli verkstjóra og
starfsfólks. Nauðsynlegt sé jafn-
framt að taka ýmsa mannlega
þætti á mildilegan hátt. „Var
reynt að gera leiðindamál út af
öllum hlutum og hefi ég verið með
annan fótinn hjá forstjóra og
útgerðarráði meirihlutans síðan
um áramótin. Því hef ég ekki átt
að venjast hér í Hafnarfirði, því að
verkstjórar hér í Hafnarfirði hafa
verið indælis menn yfirleitt. Hef
ég átt ánægjuleg samskipti við þá
alla og hef fundið hvað þeim hefur
verið mikið í mun að laða fólkið að
sér, en ekki hrinda því frá sér.
Þannig eiga verkstjórar að vera,“
sagði Guðríður Elíasdóttir.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við verkstjórana og ætlaði að
fá þeirra hlið á málinu, en þeir
vildu ekkert um það segja að svo
stöddu.
— Parísarfundur
Framhald af bls. 1
Brússel. Sovézka fréttastofan Tass
tók í dag mjög í sama streng og
sakaði Vesturlönd um að undirbúa
stofnun hernaðarbandalags eins
og NATO í Afríku og væri tal um
stofnun sameiginlegs herafla Af-
ríkuríkja einn liður í þeim undir-
búningi.
Fyrstu hermenn Marokkóstjórn-
ar komu í dag á vettvang í
Lubumbashi í Shaba-héraði í
herflutningaflugvélum sem
Bandaríkjastjórn lagði til og á
næstu dögum er ráðgert að komnir
verði til Zaire 900—1000 marok-
kanskir hermenn, af þeim 1500
sem fyrirhugað er að senda til
landsins. Síðar er búizt við að um
500 hermenn frá Togo, Gabon,
Miðafríska keisaradæminu, og
e.t.v. Senegal og Fílabeinsströnd-
inni komi til liðs við Marokkó-
mennina.
Frakkar hafa að undanförnu
lagt mikla áherzlu á að komið
verði á fót sameiginlegu herliði
margra Afríkuríkja, en Frakkar
hafa 14 þúsund manna heriið í
ýmsum löndum Afríku sem m.a.
hefur tekið þátt í bardögum með
stjórnarherjum ríkja sem vinveitt
eru Frökkum, eins og Chad og
Máritaníu auk Zaire.
— V-Þýzka-
land
Framhald af bls. 1
V-Þýzkalands og leiðtogi frjálsra
demókrata sagði í dag að kosn-
ingaósigur flokks síns væri alvar-
legt áfall og stærstu stjórnmála-
flokkar landsins kæmust nú ekki
hjá því að taka flokk umhverfis-
verndarmanna alvarlega eftir
þann árangur sem hann hefði náð
í kosningunum. Um leið sagði
Genscher að frjálsir demókratar
myndu þegar í stað hefja sókn til
undirbúnings næstu fylkiskosn-
ingum í landinu, en þær verða
haldnar í Bæjaralandi og Hesse í
haust.
Orðrómur var á kreiki um það
í Bonn í dag að Werner Maihofer
innanríkisráðherra landsins, en
hann er úr flokki frjálsra demó-
krata og hefur sætt harðri gagn-
rýni að undanförnu, verði látinn
segja af sér í kjölfar kosningaúr-
slitanna, en ekkert hefur verið
staðfest í því efni enn.
Helmut Schmidt kanslari lét svo
um mælt er honum barst fregnin
um fylgistap samstarfsflokksins í
ríkisstjórn að þessi úrslit gætu
gert stjórn sinni erfitt fyrir, en
Willy Brandt formaður jafnaðar-
mannaflokksins sagði að frjálsir
demókratar hefðu orðið óeðlilega
mikið fyrir barðinu á framsókn
umhverfisverndarmanna.
Helmut Kohl, leiðtogi kristi-
legra demókrata, sagði að flokkur
sinn mætti vel við úrslitin una,
einkanlega í Neðra Saxlandi þar
sem fylgi hans hefði aukist.
Endanleg úrslit í kosningunum
tveim urðu þau að frjálsir demó-
kratar fengu 4.2% atkvæða í
Neðra Saxlandi, en höfðu 7% áður.
I Hamborg fengu frjálsir demó-
kratar 4.7% atkvæða en höfðu
11% áður. Til þess að fá fulltrúa
kjörna á fylkisþing í V-Þýzkalandi
þarf flokkur að fá a.m.k. 5%
greiddra atkvæða. Jafnaðarmenn
fengu 51.5% atkvæða í Hamborg
og 42.2% í Neðra Saxlandi. Þar
fengu kristilegir demókratar
48.7% atkvæða en þeir fengu
37.5%. atkvæða í Hamborg. Um-
hverfisverndarmenn fengu 4.5%
atkvæða í Hamborg og 3.9%
atkvæða í Neðra Saxlandi.